Dagur - 21.04.1994, Blaðsíða 5

Dagur - 21.04.1994, Blaðsíða 5
Fimmtudagur 21. apríl 1994 - DAGUR - 5 Stræti Leikfélags MA Menntaskólinn á Akureyri á sér langa hefð í leikstarfsemi. A hverju ári hefur uppsctningar Lcikfélags Menntaskólans á Akur- eyri (LMA) verið beðið með nokkurri cftirvæntingu og oftar en ekki hefur verió eftir nokkru að bíða. Sýningar lcikfélags skólans hafa iðulega verió eftirtektarverð- ar, enda félagið seilst til að taka til meðferðar verk, sem ekki endilega hafa átt erindi á l'jalir atvinnulcik- húss bæjarins, en eru ekki síóur athyglisvcrð fyrir það. Mánudaginn 18. apríl frurn- sýndi Leikfélag Menntaskólans á Akureyri verkefni sitt á þessu ári. Það er leikritið Strœti eftir Jim Cartwright, þann hinn sama og skrifaði verkið Bar-par, sem notið hefur mikilla vinsælda undanfarið í uppsetningu Leikfélags Akureyr- ar. Leikstjóri uppsetningarinnar á Strœti er Rósa Guðný Þórsdóttir en Iýsingu annaðist Ingvar Björns- son, ljósameistari Leiklélags Ak- ureyrar. Þýðandi Strœtis er Arni Ibscn. Þýðing hans cr lipur og fer vel í munni lcikcnda. Arni bcitir slang- yrðum og götumáli í þýðingu sinni, en hjá slíku verður ekki komist í þcssu verki. Það er gróft aö yfirbragói, cnda má segja, aö það fjálli um líf götunnar, þar scm dvclja lauslátar konur og drykk- felldir karlar; þar sem hin hold- lcga fýsn cr ofarlcga á áhugasviöi beggja kynja ásamt löngun til þcss að komast undan hinurn daglcga ömurleika, atvinnulcysi og von- leysi um bjartari framtíð yllr í aðra heima, sem geta ekki átt sér stoð í raunveruleika strætisins. Lausnar verður því ekki leitaó í annaö en alglcymi vímunnar og svölun þeirra kennda, sem al- mennt eru nefndar dýrslegar, þeg- ar maðurinn á í hlut. Þessu lýsir orðfæri verksins ljóslega í þýó- ingu Arna Ibscns, en hann nær einnig til innri strengja vcrksins, þar sem eru þær tilfinningar vænt- umþykju, bræðralags og sam- kenndar, sem búa í brjóstum þess fólks, sent um sviðið fer og vckja enduróm í hjörtum áhorfenda. Þessa þætti þarf aó vefa saman af verulegri kúnst til þess aó leik- verkið Strœti nái að njóta sín. Þar hefur leikstjórinn, Rósa Guöný Þórsdóttir, unnið gott verk. Hún hefur náð ntiklu út úr hinunt ungu og óreyndu lcikurunt sínum. Af grcinilegri natni hefur hún mótað þá og laðaó til túlkunar, sern tíðast er vel sönn og á stundum vcrulega djúp svo sem í löngunt köllum cinræóu Lilju Bjarnadóttur í hlut- vcrki Spúsu hins sköllótta, nærnri túlkun Antons Hjartarsonar á hin- um fordrukkna Curt, miklum hluta lciks Arnýjar Lcifsdóttur í hlut- verki Mollýjar, víðast í talsvcrt vel unnum lcik Gunnþórunnar Steinarsdóttur í hlutvcrki Valeríar, tíðum í jafnagóóri túlkun Berg- lindar Brynjólfsdóttur á Hclenu og í óhcnuöum ruddaskap Brendu í túlkun Eddu H. Svcinsdóttur. í síðastnefnda tilfellinu hel'ði þó mátt taka sér leyfi til þcss að breyta tcxta lítillega, til þess að el'ni hans félli betur að pcrsónu leikkonunnar. Allt rcnnsli vcrksins er vcl lip- urt. Hvergi cr áberandi tafir að finna hvort hcldur í fcrli verksins sjálfs né hcldur í sviðsskiptingum, sem eru margar og greinilega vel þjálfaóar. Hreyftngar á sviði ganga llestar vel upp, þó að á nokkrum stöðum hefði bctur mátt gera, svo scnt í dansatriði Bistos, scnt Icikinn er af vcrulcgum þrótti af Guðmundi Guóbrandssyni. Það cr nokkuó langdrcgið og handahófskcnnt á kölíum og nær tæplcga marki. Guómundur fcr cinnig mcö hlut- verk hins sköllótta og gerir þar talsvcrt vel. Einnig var samkvæmi Eddics, Brinks, Carolar og Louis- ar, sent lcikin cru af Gunnari Jó- hanncssyni, Jakobi Jóhannessyni, Freyju Frímannsdóttur og Unni Friöriksdóttur, nokkuð lcngi aö komast á llug. Það náði þó allvið- unandi risi scm lokapunktur vcrksins. Gunnar, Jakob, Frcyja og Unnur cru með talsvert stór hlutverk í vcrkinu og gera víða vcl. Almcnnt cr textallutningur góður og skýr í vcrkinu. Þó brcgð- ur lítillcga af, svo scm hjá Þórólfi E. Eyvindssyni í hlutvcrki Skinns- ins. Þóróll'ur gerði á rnargan veg vcl í erllðri einræðu sinni, cn hefði mátt mæla skýrar. Einnig hcfói mátt betur gcra á köflum í framsögn Daða Þorstcinssonar í hlutvcrki Prófessorsins. Þá brá fyrir daullegum framburði hjá Heru Harðardóttur í hlutverki Lancar og Tinnu Ingvarsdóttur í hlutvcrki Dorar. Þær geröu báðar víða vel í fasi og túlkun persón- anna. Páll Tómas Friðriksson fer meó hlutverk Scullerys. Hann er nokk- LEIKLIST HAUKUR ÁCÚSTSSON SKRIFAR urs konar sögumaður vcrksins og tengir það sarnan. Páll gerir vel í þcssu hlutvcrki og cr skemmtilega sannfcrðugur sem hinn svali gæi scm nýtur líðandi stundar. Eitt veigamesta atriói sýningar- innar cr samleikur þeirra Petrínu Þórarinsdóttur í hlutverki Clare og Olafs Dans Jónssonar, sem leikur Joey. Orvæntingaruppgjör Joeys við hinar ósigrandi kringumstæð- ur og kvöl heimsins skilar sér að llcstu prýðilega í leik og framsögn Olafs Dans og innileiki og ást Clöru cr á margan vcg sannfær- andi í túlkun Petrínu. I þcssu at- riði má segja að verkið sent hcild rísi hvað hæst, enda rná hcr finna innri tón þcss hvað grcinilcgast. I öðrum hlutverkum cru Ingólf- ur Grímsson, sem leikur fordrukk- inn hermann, Bergur Guðmunds- son, sem leikur Brian, Gunnhildur Finnsdóttir, sem fer með hlutverk Lindu, Kristján Jónsson, sem leik- ur Barry og Pabba Eddies, Sverrir Friðriksson, sem fer með hlutverk Blowpipes, og Jóhanna Jóhannes- dóttir, sem leikur Chantölu. Öll standa vel fyrir sínu og leggja að fullu sitt til almennt vel lukkaðrar uppsctningar. Jim Cartwright er ekki óum- deildur leikritahöfundur. A sinni heimagrund, í Bretlandi, hefur hann hlotið bæði lof og last fyrir lcikverk sín. Hvað sem mönnum kann um þau aó finnast, verður því ekki neitað, að í verkum sín- um lcitast Jim Cartwright við að kryfja vanda og þrautir samtíma okkar. Hér á landi kann mönnum að linnast, að þau mál, sem tekið er á í lcikverkinu Strœti, scu þeim Ijarri og snerti þá lítt. Svo er þó í raun alls ekki, ef grant er skoðað. Vaxandi drykkja ungmenna og fulloröinna, atvinnuleysi, sem viróist vera að lestast í sessi í ís- lensku þjóðlífi, það þjóðfélagslos, scm við víða verðum vör vió og margt annaó, sem glímt er við í þcssu verki eru ekki síður okkar vandamál hér á landi cn annars staðar í hinum vestræna heimi. I verkinu cr því hugvekja - vissu- lega sláandi og hrottaleg - og hún tímabær. Því eiga menn erindi á sýningu Leikfélags Mcnntaskól- ans á Akureyri á leikritinu Strœti. Bæði er ánægjulcgt að sjá ungt fólk gera vel og af metnaði, en hitt skiptir ckki síður máli, að sýning- in gæti vakið ýmsa af doða tóm- lætis og værukærni. Sumaráætlun Flugleiða: Fimm ferðir á dag milli Akureyrar og Reykjavíkur Sumaráætlun Flugleiða tekur gildi þann 30. maí. Eins og und- anfarin ár, verða farnar fimm ferðir á dag á milli Akureyrar og Reykjavíkur. Ein breytingin er sú að síðasta vél sem fór 20.45 úr Reykjavík í fyrra, fer í sumar kl. 21.00. Aætlaó cr að lljúga fjórar ferðir á viku til Húsavíkur, í tcngslum við Ilug til Sauðárkóks. Til Sauð- árkróks verða farnar 8 ferðir á viku, fjórar nteð Fokkcr Ilugvcl- um Fluglciða og fjórar mcö Mctró flugvcl Fluglclags Norðurlands. „Mcð þátttöku FN á Sauðár- króksleióinni, cr sá mögulciki lýr- ir hcndi, að farþcgar gcti fariö frá Sauðárkróki til Akurcyrar og það- an til Reykjavíkur og cða í beinu llugi FN til Kcflavíkur, í vcg lyrir millilandallug,“ segir Bergþór Er- lingsson, umdæmisstjóri Fluglciða á Norðurlandi. Bergþór scgir að áætlað sæta- Iramboð til Sauðárkróks þessa þrjá sumarmánuði, verði rúm 4.100 sæti en áætlaður farþega- fjöldi á flugleiðinni, miðað viö reynslu lýrri ára, sé rúmlega 2.800 farþcgar. Það cr meóalsætanýting upp á rúm 68%. „El' aö markaður- inn kallar á lleiri fcrðir t.d. til Sauðárkróks, cru Fluglciömcnn tilbúnir aó setja inn Ueiri lérðir. En þetta sætaframboð cr í cólilegu samræmi vió þá flutninga sent eru á þessari lluglcið.“ Fluglciðir eru að llytja 32- 33.000 farþega á flugleiðinni Rcykjavík-Akureyri yfir sumar- tímann. Hins vegar eru brcytingar á fjölda farþcga mun minni milli sumar- og vetrartímans á Akur- eyrarlciðinni en t.d. á mörgum öórum flugleiðum félagsins. KK ÁSKÓLINN AKUREYRI HASKOLINN Á AKUREYRI Opið hús Kynning á námi í Háskólanum á Akureyri verð- ur laugardaginn 23. apríl kl. 14.00- 17.00. Kynningin verður í húsakynnum skólans að Glerárgötu 36 og Þingvallastræti 23. Dagskrá: Glerárgata 36 Kl. 14.00. Rektor. Saxófónkvartett undir stjórn Finns Eydal. Almenn kynning. Kl. 15.00 Kynning deilda og stofnana. Glerárgata 36 Rekstrardeild, sjávarútvegs- deild og samstarfsstofnanir. Þingvallastræti 23 Heilbrigðisdeild, kennaradeild og bókasafn. Léttar veitingar verða á boðstólum. Væntanlegir nemendur geta hitt kennara, forstöðu- menn deilda og nemendur skólans. Allur almenningur og velunnarar skólans eru velkomnir. Kennslumálanefnd Háskólans á Akureyri. A ugiýsing hjá okkur nær um allt NorðurEand ÍMdliE S24222 Fm 27639 Aöalfundur íslandsbanka Aðalfundur íslandsbanka hf. 1994 veröur haldinn í Borgarleikhúsinu mánudaginn 25. apríl 1994 og hefst kl. 1630. Dagskrá 1. Aöalfundarstörf í samræmi viö 19. grein samþykkta bankans. 2. Tillögurtil breytinga á sam- þykktum bankans: a) Skipulagsbreytingar í yfirstjórn b) Um eignaraöild útlendinga c) Um verkefni bankaráös d) Um verkefni bankastjórnar 3. Önnur mál, löglega upp borin. Atkvæöaseðlar og aðgöngumiðar að fundinum veröa afhentir hluthöfum eöa umboösmönnum þeirra í íslandsbanka hf. Ármúla 7, Reykjavík 3. hæö 20. og 22. apríl n.k. frá kl. 915-1600 og á fundardegi frá kl. 915 - 1200. Ársreikningur félagsins fyrir áriö 1993 sem og tillögur þær sem fyrir fundinum liggja veröa hluthöfum til sýnis á sama staö. Hluthafar eru vinsamlegast beönir um aö vitja aðgöngumiða og atkvæðaseöla sinna fyrir kl. 1200 á hádegi á fundardegi. Reykjavík, 19. apríl 1994 Bankaráð íslandsbanka hf. ÍSLANDSBANKI

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.