Dagur - 21.04.1994, Blaðsíða 15

Dagur - 21.04.1994, Blaðsíða 15
IÞROTTIR Fimmtudagur 21. apríl 1994 - DAGUR - 15 HALLDÓR ARINBJARNARSON íslandsmótið í júdó í fyrsta skipti haldið utan Reykjavíkur: Þeir bestu berjast í KA-húsinu - keppni hefst á laugardaginn kl. 13.00 - stefnir í eitt besta mót til margra ára Nk. laugardag hefst íslandsmót- ið í júdó í KA-húsinu á Akur- eyri. A mótið eru skráðir milli 60 og 70 keppendur og er þetta í fyrsta skipti sem mótið er haldið utan Reykjavíkur. Jón Óðinn Óðinsson, júdóþjálfari hjá KA, sagði allt stefna í afar gott mót, að öllum líkindum það besta til margra ára. Því er full ástæða fyrir fólk að leggja leið sína í KA-húsið og fylgjast með spennandi keppni. Mótið hefst kl. 13.00 og búast má við að því Ijúki um kl. 17.00. Að sögn Jóns Öðins er ekki síðra að fylgjast með undankeppninni þar sem oft má sjá meiri tilþrif en í úr- slitaglímum. Keppt verður í 7 þyngdarflokk- um auk opna flokksins og í þcim öllum má búast við afar spennandi keppni, ekki síst í opna flokknum þar sem breiddin hei'ur aldrei ver- ið meiri. Segja má að nær allir sterkustu júdómenn landsins verði meðal þátttakenda. Þó vantar að sjáfsögðu Bjarna Friðriksson sem hætt hefur keppni og Freyr Gauti Sigmundsson er að ná sér eftir erf- iða aðgerð á öxl. KA hefur öflugu liði á að Oldungamót blakara á Húsavík: skipa. Þar má nefna Þorvald Blön- dal í -86 kg flokki, Gísla Jón Magnússon í þungavigt, Rúnar Snæland í -67 og Sævar Sigur- steinsson í -65. Ekki má heldur gleyma verðlaunahöfunum frá Noróurlandamótinu, Vemharð Þorleifssyni og Friðriki Blöndal. Af öðrum sterkum keppendum má búast við miklu af Armenn- ingunum Halldóri Hafsteinssyni í -86 og Eiríki Kristinssyni í -71, sem mun berjast við Daníel Reyn- isson frá Hvolsvelli. Frá Grinda- vík kemur hinn sterki Sigurður Bergmann sem keppir í þungavigt og margir bíða spenntir eftir opna flokknum þar sem búast rná við einvígi hans og Vemharðs Þor- leifssonar. Þess má geta að ísfiró- ingar senda nú keppendur á mótið. Keppendur koma frá 7 félögum en auk KA eru það Armann, Júdófé- lag Reykjavíkur, Selfoss, Baldur á Hvolsvelli, Grindavík og ísafjörð- ur. „Stemmningin er serstok" - segir Bárður Guðmundsson, öldungur mótsins Öldungamót Blaksambands ís- lands er haldið á Húsavík 20.- 23. apríl. Mótið hefur verið haldið einu sinni á ári frá 1975 og er þetta því 19. mótið. Stöð- ugt fleiri keppendur taka þátt í mótinu. Að þessu sinni keppa 51 lið í 167 leikjum og Qöldi þátt- takenda er um 420. Mótið hefst kl. 20 á miðviku- dagskvöld. A fimmtudag og föstu- dag er leikið frá kl. 8 á morgnana til miðnættis og á laugardag til kl. 17. Lokahóf er á laugardagskvöld, en þar spilar Geirmundur með sinni sveifíu fyrir 360-370 manns. Öldungur mótsins er valinn hvcrju sinni og næsta mót haldiö í hans heimabæ. Bárður Guð- . mundsson var öldungur mótsins í fyrra: „Eitthvað varð að nclna hópinn, fyrst var bara talað um öldunga, það voru 30 ára og eldri. Þegar fjölgaði á mótinu var farið að kalla þá öðlinga sem eru cldri en 40 ára og nú stendur til að búa til þriðja flokkinn, ljúflinga, sem eru eldri en 50 ára. Svona heldur þetta áfram, nema að hópnum verði skipt upp á fleiri mót, en til- laga um slíka tilhögun liggur frammi. Stemmning er einkennandi fyr- ir þcssi mót. Flestir sem mæta ár eftir ár eru orðnir góðir kunningj- ar. Það hefur skapast mjög góð vinátta milli fólksins og stemmn- ingin er sérstök. Leikgleðin er mikil, mikið er sungið og sérstak- lega á lokahófinu. Skylda öldungs mótsins er aó sjá til þess að mótiö sé haldið á réttum tínia að ári. Hann hefur urnsjón meó framkvæmd mótsins. Strax að móti loknu í fyrra hófst undirbúningur. Þá var höllin pönt- Körfubolti, 9. flokkur Þórs: Úr leik í bikarnum en áfram á íslandsmótinu Um síðustu helgi stóð 9. flokkur Þórs í körfubolta í ströngu og keppti bæði í bikarkeppninni og á íslandsmótinu. Liðið tapaði fyrir IBK í fjögra liða úrslitum bikarsins en komst í undanúrslit á Islandsmótinu. Lcikur Þórs og ÍBK í bikarnum var jafn og í leikhléi var staðan 33:33. í síðari hálfleik sigu Kefl- víkingar fram úr og sigruðu 64:56. Sigurður Sigurðsson var stiga- hæstur Þórsara með 23 stig, Elvar Valsson skoraði 16, Bjarni Magn- ússon 8; Óöinn Ásgeirsson 4, Sævar Áskelsson 3 og Trausti Björgvinsson 2. Þórsarar kepptu í A-riðli á síð- asta fjöllióamóti vetrarins. Lióið Islandsmótið í vélsleðaakstri: Mývatnssveitar- keppninni aflýst Annarri umferó Islandsmótsins í vélsleðaakstri, sem vera átti í Mý- vatnssveit um helgina, hefur verið aflýst og verður ekki keppt í Mý- vatnssveit að þessu sinni. Næsta umferð íslandsmótsins verður í Hlíðarfjalli um næstu helgi, 29,- 30. apríl og þangað mæta allir hclstu vélsleðakappar landsins. Nánar verður sagt frá mótinu í næstu viku. vann Grindavík 54:48, ÍBK 43:36 og hefndi þar meó ófaranna úr bikarnum. Þór tapaði síðan fyrir Val 61:70, Haukum 35:76 og KR 43:55. Sigurður Sigurðsson var sigahæstur Þórsara með 89 stig, Elvar Valsson skoraði 61, Bjarni Magnússon 31, Sævar Áskelsson 20, Óðinn Ásgeirsson 19, Jóhann- es K. Sigursteinsson 8 og Trausti Björgvinsson 4. Liðið endaði í 4. sæti og komst í fjögra liða úrslit ásamt Haukurn, KR og Val. Þjálf- ari liðsins er Jónas L. Sigursteins- son. ódýrir morguntímar verð 270,- krónur. Pallar, magi, rass og læri, lokaðir kvenna- tímar. Líkamsræktln Hamri sími 12080. uð, gistirými, hljómsveitin og síð- an hefur aðalstarfið verið eftir ára- mótin og gengið mjög vel. Fjórar duglegar konur starfa með mér í undirbúningsnefndinni,“ sagði Bárður, aðspurður um fram- kvæmd og undirbúning mótsins. IM KA-mcnnirnir Vernharð Þorleifsson og Sævar Sigursteinsson verða í eldlín- unni um hclgina. Aðalfundur Aðalfundur Kaupfélags Eyfirðinga verður haldinn í Alþýðuhúsinu á Akureyri laugardaginn 23. apríl nk. og hefst kl. 10.00 Dagskrá: 1. Rannsókn kjörbréfa og kosning starfsmanna fundarins. 2. Skýrsla stjórnar. 3. Skýrsla kaupfélagsstjóra. Reikningar félagsins. Umsögn endurskoöenda. Tillögur félagsstjórnar um ráöstöfun eftirstööva o.fl. 4. Afgreiðsla reikninga og tillagna félagsstjórnar. 5. Skýrsla stjórnar Menningarsjóðs KEA. 6. Erindi deilda. 7. Þóknun stjórnar og endurskoðenda. 8. Kosningar. 9. Önnur mál, sem heyra undir aðalfund skv. félagssamþykktum. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.