Dagur - 21.04.1994, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 21. apríl 1994
ÍsMiíí* Skógræktarfélag
Eyfirðinga
Abalfundur
Skógræktarfélags Eyfirbinga
fyrir árið 1994 verbur haldinn fimmtudaginn 28.
apríl kl. 20 í Galtalæk.
1. Dagskrá samkvæmt lögum félagsins.
2. Fræðsluerindi, Árni Steinar Jóhannsson, umhverfisstjóri.
3. Kynntir verða möguleikar félaga til leigu skógræktarlands
á Hálsi í Eyjafjarðarsveit.
Stjórnin.
4P OPÐHÚS
Laugardaginn 23. apríl kl. 16 verður kosninga-
skrifstofa Alþýðubandalagsins á Akureyri
opnuð í Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18.
Frambjóðendur verða á staónum og boðió verður
upp á kaffi og meðlæti. Allir velkomnir.
Kosningaskrifstofan verður eftirleiðis opin
alla daga kl. 16-18.
Kosningastjóri er Jón Haukur Brynjólfsson.
Sími á kosningaskrifstofu er 25875.
Alþýðubandalagið á Akureyri.
HOTEL KEA
Gleðilegt sumar!
I
Hljómsveitin Marmilaði
leikur fyrir dansi laugardagskvöld 2%
Húsið opnað kl. 23.00 fyrir aðra en matargesti. X/y
☆ ☆ ☆
Alla sunnudaga okkar vinsæla
sunnudagsveisla
á Súlnabergi
Súpa, tveir kjötréttir ásamt desserthlaðborði.
Verð aðeins kr. 1.050.
Frítt fyrir börn 0-6 ára 'L gjald fyrir 7-12 ára.
Höldum áfram ökkar sívinsælu pizzu-
og hamborgaratilboðum.
Hamborgarar frá kr. 185.
Pizzur „tvær fyrir eina".
Sé pizzan tekin heim færð þú aðra eins fría.
FRÉTTIR
Sveifarstjórnakosningarnar 28. maí nk.:
Undirbúningurinn á fulla ferð
Það styttist í sveitarstjórnakosn-
ingarnar og eru flokkarnir sem
bjóða fram, komnir á fulla ferð
við undirbúning þeirra. Á Ak-
ureyri bjóða fjórir flokkar
fram, Alþýðubandalag, Al-
þýðuflokkur, Framsóknarflokk-
ur og Sjálfstæðisflokkur og hafa
listar þeirra þegar verið birtir.
En þaö er aö fleiru að hyggja
fyrir kosningarnar en að stilla upp
listanum, m.a. að opna kosninga-
skrifstofu, ráða kosningastjóra,
vinna stefnuskrá, huga að útgáfu-
málum og kynningum og margt
fleira.
Kosningaskrifstofa Alþýðu-
bandalandsins veróur sem fyrr í
Lárusarhúsi, Eiðsvallagötu 18 og
hefur Jón Haukur Brynjólfsson,
verið ráöinn kosningastjóri flokks-
ins. Alþýðuflokkurinn er með
kosningaskrifstofu að Gránufé-
Fulltrúar á lista Framsóknarflokksins fyrir bæjarstjórnarkosningarnar á
Akureyri í næsta mánuði, buðu gcstum og gangandi kaffisopa í miðbæ Ak-
ureyrar sl. föstudag og ræddu þau mál sem helst brenna á bæjarbúum.
Mynd: ÞI
Sjálfstæðismenn opnuðu kosningaskrifstofu í Listhúsinu Þingi við Hóla-
braut á laugardag. Mynd: Robyn
Símí 27586
Kynníng
Laugardagínn 23. apríl kynnír
Sígríður I Óskarsdóttír
barnapela
í Vöggunní,
Sunnuhlið
frá kl.
10-12
lagsgötu 4 en ekki hefur verið
gengið frá ráðningu kosninga-
stjóra.
Bragi Bergmann, fyrrum rit-
stjóri Dags, hefur verið ráðinn
kosningastjóri Framsóknarflokks-
ins en kosningaskrifstofa flokks-
ins er að Hafnarstræti 90. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur opnað
kosningaskrifstofu í Listhúsinu
Þingi við Hólabraut og hafa tveir
starfsmenn verið ráónir á skrif-
stofuna, þau Magnús Már Þor-
valdsson og Ásta Pálmadóttir. KK
Listasafnið á Akureyri:
Ljómandi aðsókn
að sýningunum
- leiðsögn í boði í dag
Nú stendur yfír í Listasafninu á
Akureyri sýning á ljósmyndum
Vigfúsar Sigurgeirssonar og
málverkum Guðmundar frá
Miðdai. Að sögn Haraldar Inga
Haraldssonar, forstöðumanns,
hefur aðsókn að þessum sýning-
um verið afar góð.
„Þaó hefur verið gríðarleg að-
sókn og fólk hefur haft mikla
ánægju af þessum myndum. Sýn-
ingargcstir eru mikið að spá í
gömlu ljósmyndirnar og því þótti
okkur upplagt að fá menn sem
þekkja myndirnar vel til aó vera
með leiósögn á sýningunni,“ sagði
Haraldur Ingi.
Leiðsögn um Ijósmyndasýning-
una verður á boóstólum í dag og
nk. sunnudag. Haraldur Sigur-
geirsson, bróóir Vigiusar, mun
spjalla við gesti um myndirnar og
llciri fróðir menn koma jafnvel
þar við sögu. Nánari upplýsingar
íast í Listasafninu á Akureyri. SS
Amtsbókasafnið:
Útlán jukust um
5,8% milli ára
Heildarútlán á bókum, hljóð-
bókum og myndböndum hjá
Amtsbókasafninu á Akureyri á
árinu 1993 voru 122.857 bindi, á
móti 115.993 bindum árið 1992.
Aukningin er 6.867 bindi eða
5,8% og er hún nær eingöngu í
heimalánum bóka til einstak-
linga.
Lán til skipa, skóla og stofnana
voru 4.281 bindi, sem er 244
bindum færra en 1992 og munar
þar mestu að minna var lánað til
lögreglustöðvarinnar (fangelsis-
ins) en oftast áður.
Þessar upplýsingar koma fram í
ársskýrslu Amtsbókasafnsins
1993. Þar má sjá að útlán drógust
nokkuð saman tvo fyrstu mánuói
ársins miðað vió árið á undan en
síðan tóku þau mikinn kipp í mars
og hcldu llugi út árið. Flest bindi
voru lánuð út í mars, 10.380, en
fæst í maí, 7.381.
Togarar Samherja voru iðnastir
vió bókakassana og fengu alls
1.596 bindi en togarar ÚA komu
skammt á eftir með 1.514 bindi.
Heimlán af lestrarsal voru
1.190 bindi (766 árió 1992),
heimsendar bækur 3.157 (2.422),
hljóðbækur 5.092 (4.452) og
myndbönd 5.297 (5.783).
Alls nutu 62 lánþegar, aldraðir
og öryrkjar, heimsendingarþjón-
ustunnar, en félagar í Soroptim-
istaklúbbi Akureyrar annast út-
keyrslu á bókunum.
Skráðir gestir á lestrarsal skv.
gestabók voru 4.953 (5.119), eða
um 18 á dag til jafnaðar. Alls voru
lánuð 46.437 bindi (41.264) úr
prentskilasafninu til notkunar á
lcstrarsal. SS