Dagur - 20.05.1994, Síða 16
SÆ LKERA HLA ÐBORÐ
föstudags-, iaugardags- og sunnudagskvöid
Fjöldi Ijúffengra rétta á kr. 1.290
Fiskiðjan á Sauðárkróki fær ferskan þorsk úr Barentshafi:
Þýskir togarar landa
230 tonnum til vinnslu
Isíðustu viku landaði þýski
togarinn Europa um 120
tonnum af ísuðum þorski úr
Barentshafi og á miðvikudag
kom annar þýskur togari, Bre-
men, með 110 tonn til Sauðár-
króks. Gísli Svan Einarsson, út-
gerðarstjóri, segist eiga von á
framhaldi á þessum viðskiptum
við Þjóðverja en þetta eru fyrstu
Leikskólamáliö:
Bráðabirgða-
rekstur á veg-
um bæjarins
ferskfisklandanir erlendra tog-
ara sem koma til vinnslu á
Sauðárkróki.
Rússneskir togarar hafa landað
þorski veiddum í Barentshafi til
vinnslu á Sauðárkróki en sá fískur
hefur verið frystur.
„Þjóðverjar eru með 7 þúsund
tonna kvóta í Barentshafi og það
eiga allar þjóðir kvóta í Barents-
hafí nema viö Islendingar vegna
þess að við stjórnvöl íslenska
sjávarútvegsins sitja framtakslaus-
ir menn. Þýska fyrirtækið í Brem-
erhaven sem við erum nú að
skipta við er með nokkur hundruð
tonna kvóta og sjá hag sínum best
borgið meó því aó landa hjá okk-
ur. Við þurfum að brjóta odd af
oflæti okkar og semja beint við
Norðmenn. Heildarþorskkvóti ís-
lendinga hefur minnkað urn helm-
ing og auðvitað eiga menn að hafa
forgöngu um þaö aö leita annað
eftir veiðileyfum, en ekkert frum-
kvæði hefur komið frá stjórnvöld-
um heldur kemur það allt frá út-
gerðarmönnunum sjálfum, sem
hafa breytt sóknarmynstrinu til
þess að lifa kvótasamdráttinn af.
Eg á ekki von á því að nein breyt-
ing verði á því í bráðina," sagði
Gísli Svan Einarsson.
Allir togarar Skagfirðings hf.
eru á veiðum nema Hegranes SK-
2, sem landaði sl. mánudag og
hélt til veiða í gærkvöldi. GG
Málað á lýðveldisafmœlisári.
Mynd: Robyn
Bæjarráð Akureyrar sam-
þykkti í gær að gerður verði
Ieigusamningur við Halldóru Ei-
ríksdóttur um leigu á húsinu
Dvergagil 3, þar sem Leikskóli
Guðnýjar Önnu hf. hefur verið
til húsa.
Jafnframt samþykkti bæjarráð
að þar verði til bráðabirgóa, um
tveggja mánaða skeió, rekinn leik-
skóli fyrir þau börn sem áóur voru
á Leikskóla Guðnýjar Önnu hf.
Bæjarráð fól bæjarstjóra og bæjar-
lögmanni að ganga frá nauðsyn-
legum samningunt vegna þessa.
Samkvæmt upplýsingum blaósins
í gær er við það miðað að leik-
skólinn verði opnaður nk. þriðju-
dag.
I bókun bæjarráðs í gær er ít-
rekað að með þessari bráðabirgða-
ráðstöfun felist engar skuldbind-
ingar gagnvart þeim börnum, sem
hafi pláss á leikskólanum né for-
eldrum þeirra. Leigutíminn verói
nýttur til aó leita frekari lausnar á
þessu vandamáli. óþh
ÚA fær víða fisk til vinnslu
Utgerðarfélag Akureyringa
hf. fékk í gær til vinnslu um
70 tonn af grálúðu og karfa í
fímm gámum frá útgerð ískfísk-
togarans Bessa ÍS-410 en Bessi
ÍS hefur landað hjá ÚA en
einnig hefur áður komið fiskur í
gámum frá sömu útgerð. Líkindi
eru til þess að framhald verði á
þessum viðskiptum. Á sl. ári
keypti ÚA um 2.000 tonn frá
öðrum útgerðum til vinnslu.
í gær kom fiskur frá Reykjavík,
en fiskurinn kemur ýmist í gámum
með flutningaskipum eða land-
leiðina með flutningabílum. Harö-
bakur EA-303 landaði í gær 170
tonnum af grálúðu en næsta lönd-
Fylgst með hraðakstri
Lögreglan á Norðurlandi, þ.e.
í Húnavatnssýslu, Skaga-
fírði, Eyjafirði og Þingeyjarsýsl-
um, mun í sumar sameinast um
átak í umferðargæslunni og
verður þá lögð áhersla á t.d. að
koma í veg fyrir hraðakstur,
ölvunarakstur, ástand bfla,
ljósanotkun, öryggisbelti o.fl.
Hverju embætti er falið að sjá
um eitt tímabil og verður tilkynnt
hverju sinni hvað standi til að
skoða sérstaklega og vill lögregl-
an með því stuðla að fyrirbyggj-
andi aðgerðum í umferðinni.
Um næstu helgi, þ.e. hvíta-
sunnuhelgina, verður lögreglan
mikið úti á þjóðvegunum og mun
leggja sérstaka áhersla á að
fylgjast mcð hraðakstri og ástandi
ökumanna. Á sl. sumri var lög-
reglan með hliðstæða samvinnu
sem gafst mjög vel. GG
íslenskir kjötdagar:
Páll Hjálmarsson kjötmeistari 1994
- tvenn gullverðlaun til Akureyrar og ein til Húsavíkur
Páll Hjálmarsson, kjötiðnað-
armaður hjá Kjötiðnaðar-
stöð KEA á Akureyri, hlaut titil-
inn kjötmeistari 1994 í fag-
keppni Meistarafélags kjötiðn-
aðarmanna - íslenskra kjötdaga
- sem haldin var nýlega. Páll
varð stigahæstur keppenda með
282 stig en alls hlutu sex kepp-
endur yfír 270 stig. Þá hlaut Páll
Hjálmarsson gullverðlaun fyrir
vínarpylsur í flokki fyrir soðnar
matar- og áleggspylsur og um
leið meistaratitilinn í þeim
flokki.
Annar meistaratitill kom í hlut
starfsmanns Kjötiðnaðarstöðvar
KEA því Ævar Austfjörð hlaut
gullverðlaun og meistaratitil fyrir
blóðmör í flokki fyrir blóðpylsur
og kjötsultur. Þá hlaut Hrönn
Káradóttir frá Kjötiðju KÞ á
Húsavík gullverölaun fyrir úrbein-
aðan hangiframpart.
Auk hinna norðlensku þátttak-
enda hlutu Jónas Fr. Hjartarson
frá Meistaranunr hf. í Reykjavík
VEÐRIÐ
Hiti breytist lítið á landinu í
dag en á Norðurlandi gæti
orðið vart við einhverjar
skúraleiðingar en annars
veróur hæg norðlæg átt.
Áfram verða skúrir á Norö-
urlandi á laugardag og
sunnudag en þá verður áttin
meira vestlæg. Hiti verður á
bilinu 5 til 15 stig en útlit er
fyrir þurrviðri eftir hvíta-
sunnuhelgina.
Páll Hjálmarsson og Ævar Austfjörð mcð verðlaunabikara og pcninga.
Mynd: ÞI.
gullverðlaun og meistaratitil fyrir
salamipylsu og hreindýrapaté og
Arnar Sverrisson frá Síld og ilski í
Hafnarfirói hlaut gullverólaun og
meistaratitil fyrir hráskinku. Sér-
stök verðlaun voru veitt fyrir at-
hyglisverðustu nýjungina og þau
hlaut Kristján R. Arnarson frá
Kjötiöju KÞ á Húsavík. Yfirdóm-
ari í keppninni var Jens Munch frá
Skagen í Danmörku en hann hefur
mikla reynslu sem dómari í
keppnum sem þcssari víða um
lönd og var l'yrir skemmstu valinn
yfírdómari í Danmörku. Auk hans
störfuðu fimm einstaklingar í
dómnefnd; tveir meistarar liá
Mcistarafélagi kjötiðnaðarmanna,
einn frá Iðnskólanum í Reykjavík,
einn frá Rannsóknastofnun land-
búnaðarins og einn frá Samtökum
iðnaðarins.
Af 130 vörutegundunt, sem
bárust í keppnina, hlutu 75 þeirra
verólaun þar af 18 gullverðlaun og
er það mikil aukning frá síðustu
keppni. Auk gullverðlauna hlutu
26 vörutegundir silfur og 31
brons. ÞI
un cr ekki fyrr en eftir hvítasunnu-
helgina. Á laugardag koma áhafn-
ir Mecklenburgcrtogaranna Dor-
ado og Gemini til baka frá Þýska-
landi og halda togararnir þá á
miðin, en á Akureyri hafa þeir
fengið ýmsa þjónustu eins og t.d.
frá Slippstöðinni Odda, Kælivcrki
og Marel. Von er á tveimur öðrum
Mecklenburgertogurum til lönd-
unar í lok maímánaðar. GG
Allt fyrir garðinn
í Perlunni við
0KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, simi 23565
íslenskt
og gott
Byggðavegi 98
Opið til kl. 22.00 alla daga