Dagur - 26.05.1994, Page 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 26. maí 1994
FRETTIR
^^Hrísalundi
Afgreiðslutími:
Mánud.-föstud.kl. 10.00-19.30
laugard.kl. 10.00-18.00
^^Sunnuhlíð
Afgreiðslutími:
Mánud.-laugard.
kl. 10.00-20.00
Tílboð
Sparnaðar-
pylsur
488
Gott á grillið
FulKrúar stjórnmálaflokkanna ciga annríkt á lokasprcttinum fyrir svcitar-
stjórnarkosningarnar. 1 gær hcimsóttu frambjóðcndur á Akureyri Miðstöð
fólks í atvinnulcit þar sem myndin var tekin. Frá vinstri: Sigurður J. Sig-
urðsson, Sjálfstæðisflokki, Guðmundur Stefánsson, Framsóknarflokki, Sig-
ríður Stefánsdóttir, Alþýðubandalagi og Hreinn Pálsson, Alþýðuflokki.
Mynd: Robyn
Niu stúdcntar útskrifuðust frá Framhaldsskólanum að Laugum sl. laugardag.
Framhaldsskólinn að Laugum:
Niu studentar utskrifaðir
Framhaldsskólanum að Laug-
um S.-Þing. var slitið með hátíð-
legri athöfn í íþróttahúsi skól-
ans, laugardaginn 21. maí 1994.
Alls voru 110 nemendur í skól-
anum í vetur. 25 nemendur út-
skrifuðust með grunnskólapróf
úr 10. bekk. 9 nemendur iuku
stúdentsprófi frá skólanum að
þessu sinni. Jón I>ór Ólason var
með hæstu einkunn á stúdents-
prófi 8,03.
Að morgni skólaslitadags
komu nýstúdentar, kennarar og
eldri stúdentar saman til morgun-
verðar, síðan var plantað trjám í
skólalóðina. Eftir hádegi voru
skólaslit og komu 200 gestir til at-
hafnarinnar. Boðið var til kaffi-
samsætis að lokinni athöfn. Og
um kvöldið var sameiginleg stúd-
entahátíó þar sem kennarar og ný-
stúdentar ásamt fjölskyldum
þeirra fögnuðu áfanganum.
(Fréttatilkynning)
Verkalýðsfélögin á Akureyri:
Efling iðnaðar, fisk-
vinnslu og ferðaþjónustu
Verkalýðsfélögin á Akureyri og
við Eyjaíjörð telja að efling iðn-
aðar, flskvinnslu og ferðaþjón-
ustu séu mcgin undirstöður þess
að unnt verði að draga úr því
mikla atvinnulcysi sem einkennt
hefur atvinnuiíf landsmanna að
undanförnu og Akureyri hefur
ekki farið varhluta af. Þetta
kemur fram í ályktun um at-
vinnumál er lögð var fram á
fundi er félögin gengust fyrir á
Akureyri nýlega.
í ályktuninni segir að efla beri
fataiðnaö fyrir innlendan markað.
Vinna beri að smíði húsgagna og
innréttinga er eigi sér ríka hefð á
Akureyri. Tryggja verði stöðu
skipaiönaðarins, gera hann sam-
keppnishæfan og byggja í því efni
flotkví á Akureyri. Auka verði úr-
vinnslu á „hreinum" landbúnaðar-
afurðum og efla endurvinnslu-
starfsemi. Hvað fiskvinnslu varðar
verði að auka útflutningsverðmæti
íslenskra sjávarafurða og sérhæf-
ingu og fullvinnslu sjávarafla. I
feróaþjónustu verói að bæta aó-
stöðu í Hlíðarfjalli, fjölga afþrey-
ingarmöguleikum ferðamanna,
hraða byggingu orlofsbyggóar við
Kjarnaskóg, efla samstarf Eyfiró-
inga um ferðamál og fjölga bein-
um flugferðum erlendis frá til Ak-
ureyrar.
I ályktuninni segir ennfremur
aó Háskólinn á Akureyri sé ung
stofnun er hafi þegar sannað til-
verurétt sinn - ekki síst á sviði
sjávarútvegs. Því verói að skapa
skólanum góð vaxtarskilyrði;
meðal annars meó því að efla
sjávarútvegsbrautina, fjölga öðr-
um námsbrautum er tengjast at-
vinnulífi, tryggja skólanum góða
rannsóknaraðstöðu og marka
framtíðarstefnu í húsnæóismálum
hans. ÞI
Akureyri:
Árekstur bíls
ogmótorhjóls
í fyrrakvöld rákust bíll og mót-
orhjól saman við Ráðhústorg á
Akureyri. Ökumaður hjólsins
var fluttur til skoðunar á
sjúkrahús.
Samkvæmt upplýsingum frá
varðstjóra hjá Akureyrarlögrcgl-
unni varð óhappið á Geislagötu
við Ráðhústorg. Eftir aó ökumað-
ur hjólsins haföi veriö skoðaður á
sjúkrahúsi fékk hann að fara heim
og hjólið var óskemmt cftir
áreksturinn. JÓH
4 lítrar
kr. 1.980
Ljósir litir
Margra ára rann-
sóknir og vöruþróun
fyrir íslenskar
abstæbur hefur skilab
frábærum árangri.
SÁÁ-N
Abalfundur Norburlandsdeildar SÁÁ
veröur haldinn í Alþýöuhúsinu, Skipagötu 14,
4. hæö. (Fiölarinn) miövikudaginn 1. júní kl.
20.30.
Venjuleg aöalfundarstörf.
Stjórnin.
Kópal Steintex
10 lítrar
kr. 4.750
KAUPLAND
Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565