Dagur - 26.05.1994, Side 13
Fimmtudagur 26. maí 1994 - DAGUR - 13
Að pissa í skóinn sinn
I blaðinu Lífsmarki á dögunum
birtist auglýsing frá Sjálfstæðis-
flokknum, þar sem minn ágæti fé-
lagi, Sigurður Lárusson, knatt-
spyrnuþjálfari, lýsir nokkrum
ástæðum þess að hann hyggst
kjósa Sjálfstæðisflokkinn í kom-
andi kosningum. I sjálfu sér hef ég
ekkert vió þaö að athuga að Siggi
ætli að kjósa íhaldið, þó svo að ég
telji atkvæði hans sem og annarra
bétur komió hjá Alþýðuilokknum.
Hitt er annað mál að röksemda-
færsla Sigga fyrir því að kjósa
íhaldið er afar einkennileg ef um-
mæli hans á undanförnum árum
eru höfð til hliðsjónar.
Sigurður Lárusson hefur allt frá
því að hann fluttist aftur til Akur-
eyrar og tók við þjálfun knatt-
spyrnuliós Þórs gagnrýnt harka-
lega þann aöbúnað sem knatt-
spyrnumenn á Akureyri hafa búið
við. Siggi hefur talið að hinar
slæmu aóstæður sem knattspyrnu-
menn hafa búið við á Akureyri,
einkum vetur og vor, hafi valdið
því aó árangur knattspyrnumanna
hafi ekki orðið eins góður og ann-
ars hefði mátt ætla.
Nú er það svo að sjálfstæðis-
menn hafa farið meó forystu í
bæjarmálum undanfarin átta ár og
það án þess að nokkuð hafi ræst úr
málum knattspyrnumanna. Þrátt
fyrir árvissa gagnrýni Sigurðar
Lárussonar á slælega framgöngu
bæjaryfirvalda (Sjálfstæðisflokks-
ins) hvaó varðar aóbúnað aó
knattspyrnumönnum, segist hann
binda mestar vonir vió Sjálfstæó-
isflokkinn í úrlausnarefnum
íþróttamanna. Slíka röksemda-
Nói Björnsson.
„Sigurður Lárusson
mun kjósa Sjálfstæð-
isflokkinn sennilega
vegna aðbúnaðar að
knattspyrnumönnum,
eða hvað? Hvorki
hann né aðrir geta þó
vænst þess að sjálf-
stæðismenn frarn-
kvæmi það á næstu
fjórum árum sem þeir
hafa ekki gert unaan-
farin átta ár þrátt fyr-
ir að halda um stiórn-
artaumana í bæjar-
málum.“
færslu kalla menn nú stundum „að
pissa í skóinn sinn“.
Þegar gengið var til kosninga
fyrir fjórum árum var eitt helsta
kosningamál sjálfstæðismanna að
koma sundlaugarmálum í mann-
sæmandi horf. Til þess var horft
að mikilvægt væri að gera á brag-
arbót fyrir hina fjölmörgu bæjar-
búa sem sundlaugina nota og þá
ekki síður með tilliti til ferða-
manna. Þegar eftir kosningar var
þetta brýna kosningamál sett á
hilluna, en þess í staó settir veru-
legir fjármunir í Listagil. Eg hef í
sjálfu sér ekkert út á uppbyggingu
Listagilsins að setja, en tel að
Sjálfstæðisflokkurinn hall brugð-
ist kjósendum sínum með því að
fara algjörlega að vilja Alþýðu-
bandalagsins og setja Listagilið
sem forgangsmál. Ég tel aö þeim
fjármunum hefði verið betur kom-
ið til lagfæringa á sundlaug og til
annarar íþróttastarfsemi.
Sigurður Lárusson mun kjósa
Sjálfstæðisflokkinn sennilega
vegna aðbúnaðar að knattspyrnu-
mönnum, eða hvaö? Hvorki hann
né aðrir geta vænst þess að sjálf-
stæðismenn framkvæmi það á
næstu íjórum árum sern þeir hafa
ekki gert undanfarin átta ár þrátt
fyrir að halda um stjórnartauma í
bæjarmálum. Gefum samkrulli
sjálfstæðismanna og allaballa kær-
komið frí.
Kjósum fiokk framkvæmda og
framfara, Alþýðullokkinn. X-A.
Nói Björnsson.
Höfundur skipar 6. sæti á lista Alþýðuflokksins
fyrir bæjarstjómarkosningarnar á Akureyri.
Gullið á pönnunni.
Forstöðukonan og matráðs
maðurinn í þykjustuleik
Skemmtilegt atvik átti sér stað í
eldhúsinu á Sólborg einn morgun
ekki fyrir löngu. Eg var að setja
smjörlíki á pönnuna því ég ætlaði
að fara að steikja kjötbollur. Inn í
eldhúsið kom forstöðukonan Sig-
rún Sveinbjörnsdóttir. Hún var nú
bara svona að ganga um og heilsa
upp á starfsfólkið eins og hún ger-
ir gjarnan. Sigrún er mikill
húmoristi og mjög skemmtileg að
ræóa við. Hún hlær mjög
skemmtilcga og það er alltaf mikil
gleði í kringum hana og hún kem-
ur öórum í gott skap sem hún ræó-
ir við. Þegar hún kemur að pönn-
unni og sér á henni sjö smjörlíkis-
stykki segist hún aldrei hafa séð
svo mörg stykki á einni pönnu.
„Þetta er svo fallegt," segir hún,
„alveg eins og gull,“ og þá var nú
stutt í eitthvað meira.
„Já“, segir starfsstúlka sem
þarna var viöstödd, „ef þetta væri
gull sem þú ættir hvað mundir þú
gera við það?“
„Ég mundi byggja leikskóla í
Drekagili fyrir það,“ svaraði hún
að bragði.
„En hvað mundir þú gera ef þú
ættir gullið?" spyr Sigrún mig.
„Ég mundi stofna sjóð sem
hefði það hlutverk að stuðla aó
því að mæður gætu verið heima
hjá börnum sínum til aó hygla
þeim.“
„Þú talar eins og sjálfstæóis-
maður af gamla skólanum," svar-
aði Sigrún að bragói. Við ræddum
þetta á léttum nótum aftur og bak
og áfram og þrátt fyrir galskapinn
var augljóst að henni var alvara
með leikskólann. í matartímanum
var grínast meó þetta svolítið og
ég sagði Sigrúnu aó ég gæti átt
það til að setja þessar samræóur
okkar og grín á blað. Hún sagði aó
ef ég gerði það væri eins víst aö
pólitíkin blandaðist í þetta mál.
Einhver viökvæm sál segði sem
svo að hún hefði fengið mig til
þess að skrifa þetta til athyglis-
auka fyrir sig. Ég sagðist ekki láta
pólitíkina segja mér hvað ég mætti
skrifa. Ef ég héldi mig innan alls
velsæmis gagnvart henni þá varö-
aði mig ekkert um pólitíkina sem
nú væri á svo viókvæmu stigi sagt
á stofnanamáli.
Þegar Sigrún kom til okkar á
Sólborg sem forstöðukona hafði
hún það hlutverk að vinna að því
að leggja Sólborg niður sem vist-
heimili samkvæmt áætlun sem
hafði verið gerð um það. Ekki hef-
ur hún goldið þess í samskiptum
vió starfsfólkið nema síóur sé.
Hún er að sjá og heyra í góðum
metum hjá starfsfólkinu. Ég hefði
ekki viljað missa af því að kynn-
ast Sigrúnu og ég þykist vita aö
svo er um fleiri starfsmenn á
staónum. Sigrún er heil í sínum
félagsmálahugsjónum, kvikar ekki
í þeim efnunt þó umræður verði
harðar.
Ég vil hér með biðja pólitíska
andstæðinga Sigrúnar, en ég er
einn af þeim, afsökunar á þeim
óleik sem ég kann aó gera þeim
með þessum skrifum.
Brynjólfur Brynjólfsson.
Höfundur er mulreióslumaöur á Akureyri
VERKMENNTASKÓLINN
Á AKUREYRI
SKÓLASUT
verða í íþróttahöllinni á Akureyri
lausardasinn 28. maí kl. 10 árdesis.
Skólameistaru
^»»>.»»»»»^
S 'Lrj Gæöingakeppni S
{ ^ Léttis J
sem jafnframt er úrtökukeppni fyrir landsmót
verður haldið á Hlíðarholtsvelli 28.-29. maí
A 1994.
Dasskrá:
Lausardasur 28. maí.
9.00 B flokkur sæðinga - undankeppni
11.30 Barnaflokkur - undankeppni
A 13.00 Unglingaflokkur - undankeppni
14.00 A flokkur gæðinga - undankeppni
17.00 Úrslit
B flokkur gæðinga
Barnaflokkur
Unglingaflokkur y
A flokkur gæðinga
Sunnudagur 29. maí.
13.30 kappreiðar: 150 m skeið, 250 m skeið, 300 m stökk,
300 m brokk.
Nafnakall fer fram við dómpall 30 mínútum fyrir auglýstan
tíma hverrar keppnisgreinar.
Sumarnámskeið
Golfskóia David's
og Golfklúbbs Akureyrar
f sumar munu Golfskóli David's og Golfklúbbur
Akureyrar bjóða upp á golfnámskeið fyrir börn
sem eru fædd 1981-1986 og verður hvert
námskeið í einn mánuð í senn og byrjar það
fyrsta 1. júní.
Alls verða námskeiðin 3 f sumar og eru þau í
4 tfma á dag frá kl. 10 til 14 alla virka daga.
Einnig framhaldsnámskeið fyrir þau
sem voru í fyrra.
Aðalmarkmið námskeiðanna verður að börn læri
öll helstu grundvallaratriði golfsins svo sem
golgripið, golfseifluna, golfstöðuna, púttin,
golfreglurnar og umgengni um golfsettið og
golfvöllinn.
Aðalkennari verður David Barnwell sem er
hámenntaður golfkennari frá Englandi (talar góða
fslensku) og honum til aðstoðar eru tveir af okkar
efnilegustu og bestu golfspilurum þeir
Siggi Palli og Öddi.
Þátttökugjald er kr. 6.500 á mánuði.
Ath. Einnig verður boðið upp á hálfsmánaðar-
námskeið og kosta þau kr. 3.500.
Innifalið í verðinu eru öll golfáhöld til æfinga og
golfboltar, boðið verður upp á léttan kaffitíma svo
að börnin þurfi ekki að taka með sér nesti og f lok
hvers námskeiðs verður haldin pylsu grillveisla og
allir fá viðurkenningarskjal frá golfskólanum.
Námskeiðin verða sem hér segir:
1. námskeiðið verður frá 1. júní til 30. júní.
2. námskeiðið verður frá 1. júlí til 30. júlí.
3. námskeiðið verður frá 3. ágúst til 31. ágúst.
Innritun og allar nánari upplýsingar eru veittar
hjá GA í síma 22974.