Dagur - 26.05.1994, Qupperneq 18
18 - DAGUR - Fimmtudagur 26. maí 1994
ÍÞRÓTTI R
HALLÞOR ARINBJARNARSON
Stórmót í kvennaknattspyrnu á Norðurlandi:
Norðurlandamót U-16
ára haldið síðast í júní
Undirbúningur fyrir Norður-
landamót í kvennaknattspyrnu,
U-16 ára, er nú í fulluin gangi.
Mótið fer fram síðast í næsta
mánuði, hefst þann 23. júní og
þar taka þátt 5 þjóðir auk ís-
lendinga. Mótið hefur áður ver-
ið haldið hér á landi en verður
nú í fyrsta skipti í umsjón Norð-
lendinga en þeir héldu Norður-
landamót í sama aldursflokki
drengja fyrir nokkrum árum.
Þátttökuþjóðir eru sex talsins
og skiptast þær á um mótshaldið.
Síðastlióið sumar fór þaö fram í
Hollandi en Hollendingar keppa
alltaf á mótinu ásamt Norður-
landaþjóðunum Svíþjóð, Dan-
mörku, Noregi, Finnlandi og ís-
landi.
Nefnd á vegum KSÍ sér um
framkvæmd og formaður hennar
er Stefán Gunnlaugsson á Akur-
eyri. Aðrir í nefndinni eru Rafn
Hjaltalín, Snorri Finnlaugsson,
framkvæmdastóri KSÍ, Elías Her-
geirsson og Elísabet Tómasdóttir,
stjórnarmenn KSI. Starfsmaóur er
Logi Olafsson, landsliðsþjálfari
kvenna.
Að sögn Stefáns var strax tekin
ákvöróun um að dreifa leikjunum
um Norðurland og veróur leikiö á
5 stöðum. Fyrsta umferóin er 24.
júní og þá fara allir þrír leikimir
fram á Olafsfirði, þann 25. á
Sauðárkróki, 26. á Húsavík, á
Dalvík 28. og síðasta umferðin
verður á Akureyri 29. júní og þá
lýkur mótinu.
Keppendur veróa um 150 tals-
ins. Helmingur þeirra mun gista á
Hótel Vin við Hrafnagil og hinn
helmingurinn á Edduhótelinu á
heimavist MA.
Leikjaniðurröðun er þessi:
24.júní, Olafsfjaðarvöllur:
Ísland-Finnland kl. 13.00
Holland-Noregur kl. 15.00
Svíþjóð-Danmörk kl. 17.00
25. júní, Sauðárkróksvöllur:
Ísland-Holland kl. 13.00
Finnland-Danmörk kl. 15.00
Noregur-Svíþjóð kl. 17.00
26. júní, Húsavíkurvöllur:
Danmörk-Noregur kl. 13.00
Svíþjóð-Ísland kl. 15.00
Holland-Finnalnd kl. 17.00
28. júní, Dalvíkurvöllur:
Holland-Svíþjóð kl. 13.00
Finnland-Noregur kl. 15.00
Ísland-Danmörk kl. 17.00
29. júní, Akureyrarvöllur:
Danmörk-Holland kl. 13.00
Svíþjóð-Finnland kl. 15.00
Noregur-ísland kl. 17.00
___ Æ‘
Hér má sjá merki Norðurlandamóts kvcnnalandsliða yngri en 16 ára, sem
haldið verður á Norðurlandi í lok næsta mánaðar.
Handbolti:
Landsliðið hafði KA
Eins og greint var frá í síðustu
viku var íslenska landsliðið í
Götukörfuboltamót Þórs og Greifans:
Sumarbolti 94
Sumarbolti 94 er nafn á 5 götu-
boltamótum, sem haldin vera á
Akureyri sumarið 1994, eitt í
hverjum mánuði frá maí til
september. Keppt verður til
verðlauna á hverju móti, en
einnig verður keppt um bestan
samanlagðan árangur á öllum
mótunum og titilinn Sumar-
boltameistari 94. Fyrsta mótið
verður nk. laugardag, 27. maí,
við Hamar, félagsheimili Þórs
og hefst kl. 11.00.
Reglur eru þær að hvert lið er
skipað 4 leikmönnum en þrír leika
í einu. Leikió er í 20 mín. eða þar
til annað liðið hefur skorað 20
stig. í hverju liði í karlaflokki má
Knattspyrna, 4. deild C-riöill:
SM lagði Geislann
í fyrrakvöld léku í 4. deild karla
í knattspyrnu lið SM og Geisl-
ans frá Hólmavík. Leikið var á
heimavelli þeirra síðarnefndu, á
nýlegum grasvelli. Geislamenn,
sem eru nýliðar í deildinni, urðu
að sætta sig við annað tap
sumarsins í jafn mörgum leikj-
um en SM krækti í fyrstu stigin.
Lokatölur urðu 6:3.
Hinir eyfirsku gestir í SM náóu
forustunni í fyrri hálfleik og
Ieiddu 3:1 í leikhléi. Þeir voru
áfram skrefi á undan í síðari hálf-
leik og í stöðunni 4:3 bættu þeir
tveimur mörkum við og gerðu út
um leikinn.
Donald Þór Kelley, marka-
kóngur C-rióils sl. sumar, skoraði
4 mörk fyrir SM og þeir Sigurður
Skarphéðinsson og Kristján Krist-
jánson sitt markið hvor. Ólafur
Freyr Númason skoraði tvö af
mörkum heimamanna og Halldór
Ólafsson eitt.
Jón Gunnar Traustason er
þjálfari Hólmvíkinga en hann lék
áður með Tindastóli og Þór. „Það
var greinileg framför hjá mínum
mönnum frá fyrsta leiknum en
þeir þurfa tíma til aö átta sig á að-
stæðum og ná betur saman,“ sagði
Jón Gunnar. Leikur SM og Geisla
var fyrsti leikur 2. umferðar. Hinir
leikirnir 3 fóru fram í gærkvöld en
úrslit lágu ekki fyrir þegar blaóðió
fór í vinnslu.
aðeins vera einn meistaraflokks-
leikmaóur.
Flokkarnir sem keppt er í eru
eftirfarandi (þátttökugjöld á lið í
sviga);
Minnibolti 12 ára o.y.,
strákar og stelpur (1600 kr.)
Strákaflokkur 13-15 ára
(2000 kr.)
Stelpuflokkur 13 árao.e.
(2000 kr.)
Karlaflokkur 16 ára o.e.
(2400 kr.)
Greifinn veitir pizzuveislur fyr-
ir tvö efstu sætin í hverjum flokki.
Þátttaka tilkynnist í Hamar s.
12080 og hjá Hrannari s. 11061.
handknattleik í æfingabúðum á
Blönduósi um síðustu helgi í
boði heimamanna. Ferðinni
lauk með æfingaleik við styrkt
lið KA og eftir skemmtilega við-
ureign hafði Iandsliðið betur,
32:25.
Tveir leikmenn léku með báð-
um liðum, Bjarki Sigurðsson lék
fyrri hálfleikinn með KA og þann
síðari með landslióinu og Valdi-
mar Grímsson þann fyrri með
landsliðinu og síðari með KA.
Bjarki var markahæstur í leiknum
með 4 mörk fyrir hvort lið. KA-
liðið var einnig styrkt meó Jó-
hanni Samúelssyni, sem var
markahæstur KA og Bjarni
Frostason stóð í KA-markinu og
varði 17 skot. Liðiö tefldi m.a.
fram tveimur 3. flokks leikmönn-
um, Sverri Björnssyni og Halldóri
Sigfússyni, sem báóir skoruðu
gegn landslióinu.
Lokatölur urðu sem fyrr segir
32:25 eftir að landsliðið hafði leitt
í leikhléi, 13:12. KA hafði yfír-
höndina framan af leiknum og
landsliðið komst í l'yrsta skipti yfír
í stöðunni 10:9. Árni Stefánsson,
liðsstjóri KA, sagði ferðina hafa
verió afar ánægjulega. Blönduós-
ingar stóðu frábærlega aó öllum
málum og aö sögn Árna hefur
staðurinn upp á margt aó bjóóa
fyrir lið sem hyggja á æfingabúð-
ir.
Mörk lundsliðsins: Jón Kristjánsson 6,
Patrekur Jóhannesson 5, Bjarki Sigurós-
son 4, Róbert Sighvatsson 3, Gústaf
Bjamason 3, Ólafur Stefánsson 2, Valdi-
mar Grímsson 2, Siguróur Sveinsson 1
og Gunnar Beinteinsson 1.
Mörk KA: Jóhann Samúelsson 6, Bjarki
Sigurósson 4. Atli Þór Samúelsson 3,
Valur Amarson 3, Leó Öm Þorleifsson 2,
Helgi Arason 2, Sverrir Bjömsson 2,
Þorvaldur Þorvaldsson I, Halldór Sigfús-
son I og Valdimar Grímsson I.
Knattspyrna Þór:
Guðmundur
með gegn FH?
Síðdegis í gær hafði ekki enn
tckist aó ganga frá fclagaskipt-
um Guómundar Benediktsson-
ar úr Ekeren í Þór. Belgíska fé-
lagið hefur enn ekki viljaó
skrifa undir en þó stóðu vonir
til að hreyfing kæmist á málið
í gærkvöld og að Guðmundur
geti því leikið með gcgn FH í
kvöld.
Norðurlandamót í torfæru:
Einar bestur
Fyrsta umferðin af fjórum í
Norðurlandamótinu í torfæru
fór fram í Svíþjóð, í nágrenni
Stokkhólms, sl. sunnudag.
Keppt var bæði í götubíla- og
útbúnum flokki og keppir
landslið Islendinga gegn sameig-
inlegu liði hinna Norðurland-
anna.
Það var Akureyringurinn Einar
Gunnlaugsson á Norðdekk Drek-
anum sem náöi bestum árangri í
útbúna flokknum. Islendingar röð-
uóu sér reyndar í efstu sætin í báð-
um flokkum. I götubílaflokki sigr-
aöi Þorsteinn Einarsson, næstur
kom Ragnar Skúlason og Sigurður
Þ. Jónsson varð 3. íslandsmeistar-
inn í útbúna flokknum, Gísli G.
Jónsson á Kókómjólkinni kom
næstur á eftir Einari. I 3. sæti varð
Svíinn Peter Eklun.
Næsta umferð Noróurlanda-
mótsins verður nú um helgina en
að henni lokinni koma torfæru-
kapparnir heim og halda áfram þar
sem frá var horfíð meö keppni á
Islandsmótinu. Norðurlandamótið
verður síðan klárað í haust þegar
erlendu keppendurnir koma hing-
að til lands.
Sumarbúðir
í Hamri
íþrótta- og leikja-
námskeið fyrir börn
6-13 ára verða
í Hamri í sumar.
Upplýsingar
ísíma 12080.
Sumarbúðir í Hamri:
Fjölbreyttur íþrótta- og leikjaskóli
í sumar, Iíkt og sl. sumar, verð-
ur íþróttafélagið Þór með
íþrótta- og leikjaskóla er nefnist
sumarbúðir í Harnri. Þessar
sumarbúðir eru fyrir börn fædd
1981-1988 og stendur hvert
námskeið í tvær vikur. Dagskrá
sumarbúðanna er samfelld frá
kl. 9.00-16.00 alla daga en gæsla
er frá kl. 8.00-17.00. í hádeginu
fá börnin heitan mat frá Greif-
anum. Einnig verður boðið upp
á hálfs dags námskeið frá kl.
8.00-12.00 eða 13.00-17.00.
Fyrsta námskeiðið hefst 6. júní
nk. og alls eru þau sex talsins.
Næsta hefst 20. júní, 4. júlí, 18.
júlí, 2. ágúst og 15. ágúst.
Iþróttaiðkun sumarbúðanna
veróur fjölbreytt því lögó er
áhersla á að börnin kynnist sem
flestum íþróttum og leikjum.
Markmiðió er að vekja áhuga á
íþróttaiðkun, sama hvaóa nafni
hún nefnist. Mest áhersla verður á
fótbolta, handbolta og körfubolta
en einnig verða kenndar frjálsar
íþróttir, bandy, fímleikar o.fl. Þá
verður farið í ratleiki, sund og
fleira mætti telja.
í Hamri er góð aóstaða fyrir
börn, íþróttasvæóið stórt og að-
gangur að íþróttahúsi Glerárskóla
og sundlaugin við lóóarmörkin.
Kappkostað verður að hafa sem
hæfasta leiðbeinendur og íþrótta-
kennararnir Páll Gíslason og Sig-
urpáll Árni Aðalsteinsson munu
leiða starfsemina.
Þátttökugjald er 9.900 kr. fyrir
hvert 10 daga námskeið og 8.900
fyrir 9 daga. Innifalið eru allar
ferðir og heitur matur í hádeginu.
Innritun fer fram í Hamri alla
daga og þar fást nánari upplýsing-
ar í s. 12080.