Dagur - 04.06.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 4. júní 1994
FRÉTTIR
Hvammstangi:
Framsókn og „Pakkhús-
listi“ mynda meirihluta
- Valur Gunnarsson verður oddviti og
auglýst eftir sveitarstjóra
B-listi Framsóknarflokks og P-
listi fólks til eflingar atvinnu og
öryggi (svonefndur Pakkhús-
listi) náðu sl. fimmtudagskvöld
Nýbygging MA:
Viðræður við
SS-Byggi
Samningaviðræður eru hafnar
við SS-Byggi á Akureyri um ný-
byggingu Menntaskólans á Ak-
ureyri.
Eins og Dagur grcindi frá sl.
mióvikudag átti Fjölnir hf. lægsta
tilboðió í bygginguna þegar til-
boóin voru opnuð sl. þriðjudag, en
við yfirferð tilboðanna kom í ljós
rcikniskekkja í tilboði Fjölnis upp
á tæplega 30 milljónir króna. Þar
með átti SS- Byggir lægsta tilboö-
ió. Búið er að fara yfir öll tilboðin
í verkið og komu ekki fram
reikniskekkjur í öðrum tilboðum.
I ljósi þess hefur byggingar-
nefnd þegar hafið vióræður við
forráðamenn SS-Byegis og verður
þeim haldið áfram cftir hclgina.
- óþh
samkomulagi um myndun
meirihluta í hreppsnefnd
Hvammstangahrepps.
Listarnir hafa orðiö ásáttir um
að Valur Gunnarsson af B-lista
verói oddviti og Arni Svanur Guð-
björnsson, oddviti P-lista, veröi
varaoddviti. Akvcóið er að aug-
lýsa stöóu sveitarstjóra lausa til
umsóknar, en henni hefur Bjarni
Þór Einarsson gegnt á liðnu kjör-
tímabili.
Urslit kosninganna á Hvamms-
tanga uróu á þann veg að B-listi
fékk 119 atkvæði og tvo menn
kjörna, L-listi frjálslyndra borgara
98 atkvæði og einn mann kjörinn,
G-listi Alþýðubandalags og ann-
ars félagshyggjufólks 112 atkvæói
og einn mann kjörinn og P-listi 71
atkvæði og einn mann kjörinn.
P-listinn lenti í lykilaðstöóu vió
myndun meirihluta og átti hann
annars vegar viðræður vió B-lista
og hins vegar G-lista og L-lista.
Arni Svanur Guðbjörnsson,
cfsti maóur á P-lista, sagði í sam-
tali viö Dag að hann væri ánægður
með þessa nióurstöðu. „Eg get
ekki annað en verið ánægður með
þetta og ég er bjartsýnn á framtíð-
ina,“ sagði Arni. óþh
Þátttakendur á námskciöinu hiýða á mál frummælanda.
Mynd ÞI.
Tæplega 500
atvinnulausir á Akureyri:
Mikil
hreyfing
áfólki
1. júní voru 465 skráðir atvinnu-
lausir hjá Vinnumiðlunarskrif-
stofunni á Akureyri, 246 konur
og 219 karlar.
I lok apríl voru 540 skráóir at-
vinnulausir þannig að ástandið
hefur heldur lagast. Hins vegar er
mikil hreyfing á fólki, töluvert
margir fengu vinnu í síðustu viku
en eftir helgina fór aftur aó fjölga
á skrá. I gær voru t.d. 497 skráðir
atvinnulausir.
Nokkuð er af skólafólki á at-
vinnuleysisskrá og einnig er eitt-
hvað um skólafólk sem hefur
hvorki atvinnu né á rétt á bótum.
JHB
Iðntæknistofnun:
Námskeiði fýrir stjórnendur
fyrirtækja á Akureyri lokið
Björgunarþyrlumálið loks í höfn:
Super-Puma þyrla
með afísingarbúnaði
kostar 694 millj. króna
Ríkisstjórnin hefur samþykkt að
kaupa Super-Puma björgunar-
þyrlu fyrir Landhelgisgæsluna.
Nokkuð hefur dregist að gengið
yrði frá þessum kaupum þar
sem inn í umræðuna hafa bland-
ast kaup á gömlum þyrlum frá
bandaríska hernum auk fleiri at-
riða.
Með aukinni sókn íslenskra
togara á tjarlæg mið eykst þörf á
þyrlu sem hefur meira langdrægi
en sú scm fyrir er en þessi nýja
þyrla hefur flugþol allt út á 350
mílur frá landi. Nýlega varó slys á
miðunum á Reykjaneshrygg þar
sem þyrlan varó að bíða í rúma 6
tíma frá því aö slysiö átti sér stað
og þar til togarinn var korninn það
nálægt landi að hægt væri að
senda þyrluna á loft.
I sarnningnum er gert ráð fyrir
aó björgunarþyrlan verði afhent
innan 12 mánaða en hún kostar
694 milljónir króna sem er heldur
lægra verð en upphaflega var gert
ráð fyrir en inni í verðinu er gert
ráð fyrir afísingarbúnaði svo þyrl-
an er eins fullkomin og frekast er
kostur á. Hafsteinn Hafsteinsson,
forstjóri Landhelgisgæslunnar,
segir starfsmenn Gæslunnar hæst-
ánægða með tegundaval stjórn-
valda og nú verði snúið sér að
þjálfun flug- og tæknimanna. GG
Nýlega lauk námskeiði fyrir
stjórnendur fyrirtækja sem Iðn-
tæknistofnun stóð fyrir á Akur-
eyri í samvinnu við Iðnþróunarfé-
lag Eyjafjarðar. Nántskeiðið hófst
um miðjan febrúar og var sérstak-
lega sniðið fyrir stjórnendur minni
og meðalstórra fyrirtækja. Mark-
mið þess var að treysta rekstrar-
grundvöll fyrirtækjanna með auk-
inni þekkingu á nútíma stjórnun-
araðferðum og gera þátttakendur
meðvitaðri um hlutverk sitt sem
stjórnendur. Námskeiðinu var
slitið með fundi á Hótel KEA síð-
astliðinn miðvikudag þar sem
Hallgrímur Jónasson, fram-
kvæmdastjóri Iðntæknistofnunar,
og Sveinn Hannesson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka iðnaðar-
ins, ræddu við þátttakendur.
I erindi sínu sagði Sveinn Hann-
esson meðal annars aö öll uniræða
snúist unt sjávarútveg og á hvern
hátt auka megi hagræði einstakra út-
geróarfyrirtækja og fiskvinnslunnar.
Um aðrar greinar atvinnulífs sé
furðu lítið fjallað þótt þær standi
undir allt að 85% af landsfram-
leiðslunni. Því virðist þjóðin nokk-
uð sammála um að hún lifi á fiski
og ætli sér að lifa á fiski í framtíð-
inni. Sveinn ræddi gengismál einnig
nokkuð og sagði að ef starfsskilyrói
íslenskra fyrirtækja eigi að miðast
við þarfir sjávarútvegsins, þá sé
einnig verið að halda því fram að
aðrar atvinnugreinar verði að búa
við það raungengi sem sjávarútveg-
urinn þarfnist eða þoli á hverjum
tíma. Svcinn benti á að hlutur fisk-
iónaðar í landsframleiðslu hafi
hraðminnkað á umliðnutn árum og
ársverkum fækkað úr 10.200 niður í
6.400. Sveinn dró upp dökka fram-
tíðarsýn ef fiskveiðar yrðu fyrst og
fremst stundaðar af frystiskipum í
framtíðinni og varpaði frarn hvað
gerðist ef Norðmenn gætu á kom-
andi árurn greitt hærra verð fyrir
fisk en íslenskar vinnslustöðvar í
krafti aóildar að Evrópusamband-
inu. Við slíkar aðstæður myndi
sjávarútvegurinn færast á mjög fáar
hendur og fiskvinnslan að mestu
leyti úr landi.
Hallgrímur Jónasson fjallaði
meðal annars um útibú Iðntækni-
stofnunar á Akureyri og sagði til-
ganginn með stofnun þcss að veita
fyrirtækjum á Akureyri og um norð-
anvert landió betri þjónustu. Nánast
öll fyrirtæki á Islandi flokkuóust
sem lítil fyrirtæki ef miðað væri vió
Evrópustaðla en rneð þátttökunni í
Evrópska efnahagssvæðinu værum
við komin í beina samkeppni við
fyrirtæki á meginlandinu. Hallgrím-
ur sagði að mikill misskilningur
væri að meirihluti evrópskra fyrir-
tækja væri stórfyrirtæki, heldur teld-
ust urn 60% þeirra til smáfyrirtækja.
Hallgrímur sagði einnig að léleg
markaðsfærsla, skortur á fjármagni
og vandi við stjórnum væru helstu
vandaniál margra lítilla fyrirtækja.
Hlutverk Iðntæknistofnunar væri
meðal annars að leiðbeina stjórn-
endum fyrirtækja hvaó markaðslega
og tæknilega þætti varðar.
Fjölmargir leiðbeinendur önnuó-
ust kennslu á námskeiðinu en hún
var í formi fyrirlestra, verkefna og
umræðna. Meðal annars var fjallað
um vöruþróun og markaðsmál, fjár-
mál, stjómun og starfsmannahald
auk þess sem fjallaö var um gæða-
stjórnun og almenna stefnumótun í
rekstri fyrirtækja. Alls tóku 15
manns frá norðlenskum fyrirtækjum
þátt í námskeiðinu. ÞI
Ráðstefna um vannýtt sjávardýr og gróður:
Þörungar steinefnaríkasta
fæða sem völ er á
- um 3,5 milljónir tonna nýtt í heiminum í dag
Sumarbúðir
í Hamri
íþrótta- og leikja-
námskeið fyrir börn
6-13 ára verða
í Hamri í sumar.
Upplýsingar
í síma 12080.
A síðasta áratug voru yfír 3,5
milljónir tonna af þörungum
nýtt í heiminum. Stærstur hluti
þess kemur frá Asíu eða ríflega
tveir þriðju. Af þessari þör-
ungauppskeru er um helmingur
notaður til manneldis og nýta
Asíubúar megnið af þeirri fram-
leiðslu. í Asíu er allt að 95%
hráefnisins aflað með ræktun og
segir það mikið um þann þör-
ungaiðnað sem þegar er stund-
aður í þessum heimshluta. í
Japan er ræktun þörunga um
helmingur af öllu eldi sjávarlíf-
vera en heildareldi japönsku
þjóðarinnar er um ein milljón
tonna á ári hverju. Sá hluti þör-
ungauppskerunnar, sem ekki er
nýttur til manneldis fer til fram-
leiðslu á ýmiskonar efnum; eink-
um gúmmí- og kvoðuefnum og
fer stór hluti þeirrar efnavinnslu
fram í Evrópu og Bandaríkjun-
um en hráefnið er einkum sótt
til sæþörunga er vaxa villtir í
náttúrunni. Þessar upplýsingar
komu meðal annars fram á ráð-
stefnu um vannýttar tegundir
sjávardýra og sægróðurs er
haldin var á vegum Rannsókna-
stofnunar Háskólans á Akureyri
í gær.
Hér við land eru um tuttugu
tegundir þörunga er nýta má til
matar. Þá má auðveldlega nota
sem hvert annað grænmeti, þurrk-
aða í skyndifæði og einnig í
hverskyns súpur og sósur. Þörung-
ar eru hitaeiningasnauðir en eru
ríkir af ýmsum vitamínum - eink-
um steinefnum. Þörungur getur í
lifanda lífi safnaði í sig miklu
magni steinefna eöa allt að fjögur
þúsund sinnum meiri steinefnum
en eru í hafinu umhverfis hann. I
þörungum er einnig mikið joð,
einkunt í brúnþörungum og hafa
þeir verið notaðir á þeim svæðum
í heiminum þar sent skortur er á
joði. Kostur þörunga sern fæðu er
einkum hversu ríkir þeir eru af
steinefnum og ýsmum vitamínum
cn mörg þeirra efna, sem þörung-
arnir innihalda, eru oft fjarlægð úr
vestrænni fæðu. Bent hefur verið
á samband á milli langlífis Japana
og mikils þörungaáts þeirra en þar
í landi er algengt aó borða þör-
unga rneð hverri máltíð.
Aðalfyrirlesari á ráðstefnunni
var Kínverjinn Chen Jia Xin en
einnig fjölluðu íslenskir vísinda-
menn um möguleika á aukinni
nýtingu sjávargróðurs og sjávar-
dýra og markaðsntál afuróa þeirra.
Nánar verður sagt frá ráðstefnunni
hér í blaðinu á næstunni. ÞI
Chcn Jia Xin í ræðustóii á Hótcl
KEA í gær. Mynd: I>I
O HELGARVEÐRIÐ
Norðanáttin mun halda áfram
aó hrella Norólendinga fram á
sunnudag, með skúrum og
jafnvel slydduéljum fram eftir
laugardeginum. Á sunnudag
má búast við að létti til og vind-
ur snúist yfir í hæga sunnan-
eóa suðaustan átt. Hiti mun
fara vaxandi og þeir sem héldu
að um endurtekningu á fyrra
sumri yrði að ræða geta tekið
gleði sína á ný - í bili aó
minnsta kosti.