Dagur - 04.06.1994, Blaðsíða 18
18 - DAGUR - Laugardagur 4. júní 1994
POPP
MAÚNÚ5 CEIR CUPMUNDSSON
Upprísu og endurkomuæði
- Þrjár ofursveitir bætast í hópinn
Á þessu ári hefur haldið áfram
sú gengdarlausa árátta „fráfall-
inna“ frægðarsveita aó rísa
upp frá dauðum, oftar en ekki í
sínum upprunalegu myndum.
Ástæóan er auóvitað fyrst og
fremst sú aó tónlistarunnendur,
bæði af eldri og yngri kynslóð-
inni, hafa tekið þessum gömlu
hetjum opnum örmum og
flykkst á tónleika þeirra og
keypt nýjar plötur frá þeim, ef
því hefur verið að skipta. Hefur
því hreint æði gripið um sig
meðal gamalla garpa er þeir
sjá fram á að geta endurheimt
forna frægó sína og fúlgur.
Dæmi nú þegar á þessu ári um
endurkomu eða upprisu eru
Pink Floyd, Plant og Page,
reyndar á nýjum grunni (en
sennilega líka sem Led Zep-
pelin seinna í þessum mánuði)
og Traffic, en Steve Winwood
hefur endurvakió hana og hef-
ur hún nú sent frá sér plötuna
Far from home. Gamla ný-
bylgju/pönksveitin Killing joke
hefur líka verið stofnsett á ný í
sinni upprunalegu mynd og er
ný plata £ó koma frá henni.
Síðan eru svo þrjár heimsfræg-
ar rokksveitir aó bætast í þenn-
an hóp endurkomuæðis, sem
eru þó reyndar komnar mis-
jafnlega langt á veg meó þaó.
Eagles
Ásamt Creedence clearwater
revival er The Eagles líklega
ein vinsælasta sveitarokksveit
Bandaríkjanna í sögunni og
þótt víóar væri leitaó. Með þá
Don Henley og Glenn Frey í
fararbroddi, naut hljómsveitin
gríðarlegrar hylli á seinni hluta
áttunda áratugarins og var þá í
raun ein sú allra sigursælasta í
heiminum. Lög eins og Hotel
California, Best of my love og
Take it Easy eru dæmi um vel-
gengnina en þau voru öll topp-
lög. Eagles hætti hins vegar á
hátindi frægðar sinnar árið
1980 og hafa þeir Frey og
Henley gert þaó gott á eigin
vegum síóan. Henley sendi t.d.
frá sér nýtt lag fyrir stuttu, sem
kallast Sit down, you are rock-
ing the boat. í vor bárust hins
vegar fréttir af því aó hugsast
gæti að Eagles kæmu saman á
ný. Það varð að veruleika fyrir
viku, en þá hóf sveitin tónleika-
ferö um Bandaríkin. Herma
fregnir aó hún hafi byrjaó með
glæsibrag.
Queen
Eftir aó Freddy Mercury lést úr
alnæmi 24. nóvember 1991,
töldu menn næsta víst aó dag-
ar Queen, einnar vinsælustu
hljómsveitar seinni ára, væru
taldir. Hljómsveitin væri ein-
faldlega ekki söm án söngvar-
ans Freddy og vart hægt aó
hugsa sér hana án hans. Þeir
þrír eftirlifandi meðlimir Queen,
Brian May gítarleikari, Roger
Taylor trommuleikari og John
Deacon bassaleikari, virtust
heldur ekki hafa hug á því að
starfa áfram. Að vísu komu
þeir fram sem Queen, ásamt
fjölda frægra gesta á Wembley
Eagles, sem nú hefur verið endurreist, hefur fengið góðar viðtökur á ný-
byrjaðri tónleikaferð sinni.
Brian May er nú ásamt hinum
tveimur eftirlifandi meðlimum Que-
en að vinna upptökur fyrir nýja
plötu.
20. apríl 1992 á minningartón-
leikum um Freddy, eins og
frægt varó, en síðan ekki sög-
una meir. Eóa þar til nú að
heyrst hefur aó þeir þrír hafi
verió saman í hljóðveri við upp-
tökur. Þó mun ekki vera um
glænýtt efni aó ræða, heldur
efni sem Freddy hafði verió að
vinna með þeim allt fram í and-
látió. Þá verður aó teljast lík-
legt aó endurkoma Queen ein-
skorðist vió þessa vinnu við aó
koma upptökunum á plötu, en
það er annars allt á huldu.
Sem kunnugt er hefur Brian
May starfrækt eigin hljómsveit
síóustu tvö árin og gert meó
henni tvær plötur, en hinir aó
mestu haft hljótt um sig. Roger
Taylor var þó á dögunum aó
senda frá sér lagið Nazis 1994,
sem vakió hefur athygli. Meira
um Queen þegar frekari fregnir
berast.
Whitesnake
Þriðja hljómsveitin sem um
ræðir er Whitesnake, sem hef-
ur verió í dái í rúm fjögur ár. Nú
hins vegar, í kjölfar þess að
plata meó vinsælustu lögum
hljómsveitarinnar veróur gefin
út 4. júlí næstkomandi, á þjóó-
hátíðardegi Bandaríkjamanna,
er hún aó vakna til lífsins á ný
og ætlar í mikla tónleikaferó í
sumar. Þaö er sem fyrr David
Coverdale söngvari sem leiöir
Whitesnake, en annars er lió-
skipanin nokkuð breytt enn
eina ferðina. Þeir Rudy Sarzo
bassaleikari og Adrian Vand-
enberg gítarleikari eru þó enn
meó frá því síðasta plata, Slip
of the tongue, kom út árió
1989, En trommarinn Tommy
Aldridge og gítargoóið Steve
Vai eru horfnir á braut. í þeirra
staó koma Danny Carmassi,
sem áóur trommaói meó Heart
og líklega gítarleikarinn Warren
De Martini, sem var í Ratt sál-
ugu. Safnplatan mun geyma
14 lög frá frægðarferli Whites-
nake auk þess sem ekki er
loku fyrir það skotið aó einhver
ný lög fylgi með. Ef vel gengur
mun ný plata væntanlega vera
smíðuó á næsta ári.
Á þessu má sjá aó lítið lát
ætlar að verða á endurkomum
eldri ofursveita.
rósí
- Hallur Ingólfsson aftur á ferð
Hljómsveitin Þrettán á alla athygli skilið fyrir plötu sína Salt.
Nýja platan með rokkgreif-
unum „öidnu" I Rolling
stones mun bera titilinn
Voodoo lounge og kemur út
12. júlí. Verður þetta fyrsta
hljóðversplata hljómsveitarinn-
ar slóan Steel wheels kom út
árið 1989. Til að fylgja útgáfu
plötunnar eftir, ætla þeir Jag-
ger og félagar að halda ( enn
eina heimsreisuna, sem standa
mun í heilt ár. Á ferðalaginu
munu ekki ómerkari listamenn
en Lenny Kravitz, Stone
temple pilots og nýstirnin í Co-
unting crows hita upp fyrir þá.
rslabelgirnir margvinsælu
f bresku hljómsveitinni
Madness, hafa hug á að láta
heyra I sér enn á ný í haust.
Ætla þeir m.a. að halda tón-
leika í Finsburygarðinum í
London 6. ágúst. Ekki er hins
vegar vitað hvort ný plata sé I
bígerð.
Kvennarokkssveitin L7 send-
ir frá sér nýja plötu, Hungry
for stink, 12. júlí. Sveitin sló
hressilega I gegn með síóustu
plötu sinni, Bricks are heavy,
þannig að spennan fyrir þeirri
nýju er töluverð, en hún er sú
fjórða I röðinni frá stúlkunum.
Spin doctors, sem aldeilis
hafa gert það gott, nú slð-
ast með útgáfu sinni á Cree-
dence clearwater revivallaginu
Have you ever seen the rain I
kjölfar vinsælda á eigin lögum
eins og Little miss can’t be
wrong af plötunni Pocket full of
cryptionary, hyggjast nú fylgja
velgengninni frekar eftir með
nýju lagi sem kallast Cleopatr-
as cat. Ný plata er svo einnig I
deiglunni.
Arió 1992 komu út hér á landi tvær
ansi merkilegar rokkplötur I kraft-
meiri kantinum, meó hljómsveitun-
um Exizt og Bleeding volcano. Auk
þess að geyma góðar lagasmíóar
vakti það ekki hvaó síst athygli vió
þessar plötur hversu vel þær voru
unnar, yfirbragó þeirra þótti bæði
fagmannlegt og vandað. Reyndar
höfðu gagnrýnendur sumir hverjir
þá skoðun að hljómur Bleeding
volcano væri ekki nógu góður, en
sú fullyrðing var að mínu mati ekki
alls kostar rétt né nógu vel rök-
studd. Hins vegar urðu örlög þess-
ara hljómsveita þau, þrátt fyrir góó
sköpunarverk, að leysast upp, en
þó með ólíkum hætti og ástæóum.
Exizt mun hafa hætt aó manni
skilst I kjölfar misheppnaðar utan-
ferðar, en Bleeding volcano var
lögð nióur vísvitandi meó annaó I
huga.
Umbreyting
Það er þó e.t.v. réttara aó tala um
aó Bleeding volcano hafi um-
breyst, frekar en aó hljómsveitin
hafi verið lögð niður. Prímusmótor
hennar og skapari, Hallur Ingólfs-
son trommuleikari, gítarleikari og
nú einnig söngvari með meiru,
ákvaó einfaldlega, m.a. vegna
breyttra aðstæóna aó skipta um
nafn á henni. Kallast hljómsveitin
nú XIII, Þrettán og er tríó, en Ble-
eding volcano var kvartett. Meó
Halli eru I Þrettán þeir Eiríkur Sig-
urðsson gítarleikari, sem einnig
kom við sögu hjá Bleeding volcano
og Jón Ingi Þorvaldsson bassa-
leikari. Hefur nú þetta hljómeyki
Halls, ef svo má að orði komast,
sent frá sér sína fyrstu plötu, sem
nefnist því margræða nafni Salt.
Kom platan nánar tiltekió út 13.
maí síðastliðinn og inniheldur 13
lög, sem væntanlega er I sam-
ræmi við nafnið á sveitinni og skír-
skotar auðvitaó til hjátrúarinnar
kringum þá tölu. (sem ekkert er aó
marka, ekki satt?) Þaó var þó á
fyrri hluta siðasta árs sem upptök-
urnar fóru fram, vió óvenjulegar
aóstæóur I vöruhúsi I Hafnarfirði,
meó einföldu en góóu upptöku-
tæki. Var það þá ekki Ijóst hvort
um útgáfu yrði aó ræða, en útkom-
an varó svo góó aó Hallur varó aó
eigin sögn aó koma henni frá sér.
Niðurstaðan er sem sagt komin I
líki Salt á vegum Spor útgáfunnar.
Verk þúsundþjalasmiðs
Eins og áóur sagói er Þrettán, eins
og Bleeding volcano, fyrst og
fremst hljómsveit eins manns,
Halls Ingólfssonar. Hafi fjölhæfni
einhvern tímann átt vel vió, þá
gildir þaó svo sannarlega um Hall.
Hann lætur sér ekki bara nægja aö
syngja og spila á gítar, bassa,
hljómborð og trommur á plötunni,
sem út af fyrir sig væri kapp nóg
fyrir flesta, heldur semur hann
einnig öll lög og texta, hljóóblandar
plötuna og síðast en ekki síst
hannar hann ytra sem innra útlit
hennar. (Myndin sem prýðir hana
þykir einkar falleg). Því er vart
annaó hægt að ætla en aö á ferð-
inni sé sannkallaður þúsundþjala-
smiður og það sem meira er, Halli
ferst verkið á allan hátt mjög vel úr
hendi.
í framþróun
Eftir aó hlustað hefur verió ítarlega
á Salt, sem byggó er upp á kraft-
góðu og seiómögnuðu rokki á köfl-
um, (öðruvísi veróur hún ekki með
góðu dæmd), fer þaó vart á milli
mála aó Hallur er I framþróun sem
tónlistarmaóur og er að gera hluti
á alþjóðlegum mælikvarða. Það
gilti reyndar líka um Bleeding volc-
ano- plötuna Damcrack, en nú eru
lagasmíðarnar þroskaðri, I heild
beinskeyttari og hljómurinn jafnvel
ennþá betri á Salt en á henni, sem
þó eins og áður sagði var mjög
góó. Virkar platan vel jöfn og þétt
út I gegn, en sem fremst meóal
jafningja má nefna lög eins og
Thirteen, Ghost, Family affairs,
Crime og Cat. Salt er því rós í
hnappagat Halls og félaga sem og
íslensks rokks.