Dagur - 04.06.1994, Qupperneq 20
Fiskiðjan Skagfirðingur á Sauðárkróki:
Þýskir togarar búnir að landa 500 tonnum
- „Munar um hvern skipsfarm,“ segir formaður Verkamannafélagsins Fram
Að undanförnu hafa þýskir
ísfísktogarar landað um 500
tonnum af þorski hjá Fiskiðj-
unni Skagfírðingi á Sauðárkróki
og samið hefur verið um löndun
á 500-600 tonnum tii viðbótar í
júní. Jón Karlsson, formaður
Verkamannafélagsins Fram á
Sauðárkróki, segir þetta vissu-
lega hafa áhrif til hins betra á
atvinnuástandið á staðnum en
framkvæmdastjóri Skagfírðings
segir að þrátt fyrir þetta muni
fyrirtækið ekki geta veitt nema
örfáum úr röðum skólafólks
vinnu í sumar.
Þaó er útgerð í Bremen, Klaus
Hartmann, sem gcrir út togarana
sem landaö hafa á Króknum en
þcir hafa veriö aó veiöum í Bar-
entshafinu. Einar Svansson, fram-
kvæmdastjóri Skagfiróings, segir
aó unnið hafi verið aó málinu frá
því í desember í tengslum vió við-
skipti fyrirtækisins í Þýskalandi.
„Þarna erum viö að fá hráefni eftir
tiltölulega stuttan vciðitíma sem
cr sambærilegt að ferskleika vió
þann íslcnska fisk sem vió höfum
verið að fá. Þaó gefur okkur mun
mciri vinnslumöguleika aö fá fisk-
inn ferskan cn ekki lrosinn og létt-
ir verulega á næstu mánuðina þeg-
ar þorskkvótinn er búinn.“
Einar sagói ekki ósennilegt að
framhald yrói á þessum vióskipt-
um og hann vissi ekki betur en
þýska útgeróin hefói fullan hug á
því. „Viö eigum eftir aó sjá betur
hvcrnig þessi fiskur kemur út en
Allt fyrir garðin
í Perlunni við
□ KAUPLAND Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565
- íslenskt
og gott
Byggðavegi 98
Opið til ld. 22.00 alla daga
þetta er möguleiki sem vcrt er að
skoóa,“ sagói Einar.
Jón Karlsson, formaöur Verka-
mannafélagins Fram, segir
áhyggjur manna í vor ekki síst
hafa snúist um hráefnisskort í
fiskvinnslunni. „Þá var farið í aö
stytta vinnutíma og þetta greiðir
auðvitað úr því. Það munar um
hvern skipsfarm og verói fram-
hald á þessu breytir þaö talsverðu.
En þaó reynir á þaó þessa dagana
hvernig skólafólkinu gengur að fá
vinnu og best að segja sem minnst
á mcðan. Menn reyna þaó sem
þeir geta og ég veit aó bærinn
mun greiða fyrir því eftir fremsta
megni aó þetta fólk fái vinnu,“
sagöi Jón Karlsson. JHB
Bjarni Friðriksson vann bronsið í júdó á Ólympíuleikunum áriö 1984 sællar minningar.
Nú keppir Bjarni stundum í Gullnámunni og lætur reyna á heppnina. Hann setur aö sjálfsögöu
stefnuna á Silfurpottinn eöa Gullpottinn eins og sönnum ^
keppnismanni sæmir. Þó svo aö hann fari ekki alltaf meö
sigur af hólmi þá veit hann aö málefniö er gott og allir íslendingar í I5 J 1 ® I til
njóta góös af öflugum háskóla.