Dagur - 16.06.1994, Page 3
Fimmtudagur 16. júní 1994 - DAGUR - 3
i-
FRETTIR
57 fangar á
Akureyri á sl. ári
Heildarfjöldi fanga í fangelsis-
deild lögreglustöövarinnar á Ak-
ureyri á siðasta ári var 57, en 64
árið á undan. Þetta kemur fram í
skýrslu Fangelsismálastofnunar
fyrir síðasta ár. Nokkrir fangar
voru gæsluvarðhaldsfangar og
fangar sem afplánuðu vararefs-
ingu. fésekta. Fram kemur í
skýrslu Fangelsismálastofnunar að
dagpeningagreiðslur til fanga voru
kr. 833.330, en vinnuframlag
þeirra felst í því að þrífa klefa og
sameiginlegar vistarverur. Við
fangelsið starfa fjórir fangaverðir
og er einn á vakt hverju sinni.
Dúnninn er í
minna lagi
„Varpið virðist ætla að verða í
meðallagi en dúnninn í hreiðrun-
um er hinsvegar í minna lagi af
hverju sem það stafar,“ segir
Rögnvaldur Steinsson, bóndi á
Hrauni, í samtali við fréttablaðið
Feyki á Sauðárkróki. „Þetta fór
frekar seint af stað. Við vorum
lengi vel lítið vör við fugl og mað-
ur var farinn að halda að varpið
yrði lítið þetta árió, en svo kom
hann allt í einu upp úr hvítasunn-
unni,“ segir Rögnvaldur í Feyki.
Örkin hans Nóa
gjaldþrota
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur úrskurðaó húsgagnaverslun-
ina Orkina hans Nóa á Akureyri
gjaldþrota. Hreinn Pálsson hrl.
hefur verið skipaður skiptastjóri.
Fyrsti skiptafundur verður 17.
ágúst nk.
Aðalskipulag
Blönduóss
auglýst
Bæjarstjórinn á Blönduósi og
skipulagsstjóri ríkisins hafa aug-
lýst eftir athugasemdum um til-
lögu að aóalskipulagi Blönduóss
1993-2013. Tillagan liggur
frantmi á bæjarskrifstofunni á
Blönduósi til 20. júlí nk. Athuga-
semdum skal skila á bæjarskrif-
stofuna fyrir 3. ágúst 1994.
Afli janúar-maí:
Ríflega 800
þúsund tonn
úr gullkistunni
Fiskimiðin eru gullkista íslend-
inga og þar geyma þeir gjaldeyr-
isforðann og ráðstöfunarféð. Á
tímabilinu janúar-maí á þessu
ári sóttu þeir samtals 814.119
tonn úr kistu þessari og fiskur sá
er tíukrónupeninginn prýðir er
þar gjöfulastur.
Loónuaflinn á tímabilinu var
545.751 tonn og botnfiskaflinn
238.327 tonn. Togarar höfðtí
125.342 tonn upp úr krafsinu, bát-
ar 662.829 tonn og smábátar
25.949 tonn, þar af krókabátar
13.169 tonn.
Heildaraflinn á Norðurlandi
eystra á umræddu tímabili var
96.385 tonn. Þar af veiddust
64.307 tonn af loðnu, 22.026 tonn
af botnfiski, 7.358 tonn af úthafs-
rækju og 1.167 tonn af inntjarðar-
rækju.
Togarar eiga 20.348 tonn af
aflanum á Norðurlandi eystra, bát-
ar 73.047 tonn og smábátar 2.989
tonn, þar af krókabátar 1.419
tonn. SS.
Lýöveldishátíð
á Akureyrí
17.-19. júní 1994
í sól og sumaryl
DA65KRAIN 17. /UNI
Hamarkotsklappir
08.25-08.30 Samhljómur kirkjuklukkna ó Akureyri.
09.00 Fónahylling skáta - Láðrasveit Akureyrar. Blómsveigur lagður að minnis-
merki 50 ára lýðveldis á Islandi við fánastöng Akureyrar.
09.10 Þjóðsöngurinn - Kórar Akureyrar- og Glerárkirkna.
09.15 Helgistund - sóknarprestar og kórar Akureyrar- og Glerárkirkna.
09.30 Ættjarðarlög - kórarnir.
09.35 Ávarp - formaður Lýðveldishátíðarnefndar, Sigurður J. Sigurðsson.
09.40 Ættjarðarlög - Lúðrasveit Akureyrar.
09.45 Ávarp Fjallkonunnar - Andrea Ásgrímsdóttir, nýstúdent frá VMA.
09.50 Ættjarðarlög - Lúðrasveit Akureyrar.
09.55 Lok hátiðarsamkomu á Hamarkotsklöppum.
Oddeyrarskóli
09.45 Blómabíll og hópakstur Bilaklúbhs Akureyrar.
10.30 Bilasýning opnuð.
Listhúsið Þing
14.00-22.00 Ljósmyndasýning Áhugaljósmyndaraklúbbs Akureyrar „Þá og nú".
Þessi merkilega sýning mynda, 50 ára og eldri, ásamt myndum frá þessu
ári teknum frá sama sjónarhorni, verður einnig opin 18. og 19. júní.
Deiglan, Grófargili
14.00-22.00 Sýning á munum og minjum tengdum Jóni Sveinssyni - Nonna, er
opin daglega kl. 14-22 dagana 15.-19. júni á vegum Zontaklúbbs Akur-
eyrar.
Kvenfélagið Baldursbrá, Glerárkirkju
14.00-19.00 Baldursbrá heldur upp á 75 ára afmæli sitt með veglegri handa-
vinnusýningu dagana 17.-19. júni og hlaðborði kl. 15.00-17.00 sömu
daga.
Sigrún Jónsdóttir kirkjulistakona mun kynna þjóðbúninga sina kl. 15.30.
Akureyrarflugvöllur
10.00-17.00 Útsýnisflug 17. júní með Vélflugfélagi Akureyrar frá Akureyrar-
flugvelli.
Torfunefsbryggja
14.00-18.00 Nökkvi, félag siglingamanna, býður börnum og fullorðnum í stutt-
ar siglingar á seglbátum frá Torfunefnsbryggju.
Lystigarður
Kynnir: Þórey Aðalsteinsdóttir.
■ 14.30 Skrúðganga frá Kaupangi við Mýrarveg niður Þingvallastræti og suður
Þórunnarstræti i Lystigarðinn með Lúðrasveit Akureyrar og fánabera í
fararbroddi.
14.55 Fallhlífastökkvari lendir með Lýðveldisfánann.
15.00 Ættjarðarlög - Karlakór Akureyrar-Geysir.
15.15 Þjóðdansar - danshópur Norræna félagsins.
15.30 Ávarp - Steinþór Heiðarsson, nýstúdent frá MA.
15.35 Töframaður og eldgleypir frá Bretlandi.
15.45 Gamanþátturinn „Blindi maðurinn og farlama maðurinn" eftir Dario Fo.
Sigurþór Heimisson og Dofri Hermannsson.
16.05 Ættjarðarlög - Lúðrasveit Akureyrar.
16.20 Samkomu lýkur i Lystigarði.
Göngugatan og Torgið
Kynnir: Þórey Aðalsieinsdófíir.
17.00 Eldri blásarasveit Tónlistarskólans.
17.25 Trúður og eldgleypir frá Bretlandi.
17.45 Leikþáttur: Landnemarnir Helgi magri og Þórunn hyrna kynnt á léttu nót-
unum - Sigurþór Heimisson og Dofri Hermannsson.
18.00-19.00 Dansleikur á Torginu. Hljómsveitin Amma Dýrunn.
21.00 Léttsveitin i góðri sveiflu.
21.25 Einsöngur - Orn Viðar Birgisson við undirleik Léttsveitar.
21.30 Dansleikur á Torginu - Hljómsveitin Hunang.
22.00 Harmonikuball í göngugötu - 20 manna hljómsveit.
01.00 Dagskrárlok.
DAÚSKRAIN 18. jUNI
Rangárvellir
10.00 •Fjölskyldurnar fjölmenna að Rangárvöllum til að gróðursetja jafn-
margar trjáplöntur og Akureyringar eru, gefnar af Útgerðarfélagi Ak-
ureyringa. Þetta fer fram í fallegu gili vestan Giljahverfis, við fjörugan
harmonikuleik.
11.00 #Hestamenn kynna glæsilegan nýjan skeiðvöll í nágrenninu.
Glerárþorp
13.00 Kassabílarall og skátatívolí í Glerárhverfi, milli Krossanesbrautar, Undir-
hlíðar og Skarðshlíðar.
Tryggvabraut
16.00 íslandsmeistaramót i spyrnu á Tryggvabraut. Bílaklúbbur Akureyrar sér
um mótið.
18.00 Dagskrárlok.
DACSKRAIN 19. JUNI
Rangárvellir
10.00 •Fjölskyldurnar fjölmenna að Rangárvöllum til að gróðursetja það sem
á vantar til að plönturnar verði jafnmargar Akureyringum. Þetta fer
fram við fjörugan harmonikuleik.
11.00 Akureyrarkirkja - guðsþjónusta.
Kjarnaskógur
12.00 Kvennahlaup Í.S.Í. í Kjarnaskógi. Skráning við Kjarnakot, ásamt afhend-
ingu á hlaupabol byrjar kl. 11.00 en verðlaun og svaladrykkur bíða við
endamark.
14.30 Drunur úr follbyssum Minjasafnsins minna á hátíðina.
15.00 •Útisamkoma í Kjarnaskógi fyrir alla fjölskylduna. Hátíðin blásin inn af
Blásarasveit æskunnar.
15.30 Fóstrur stýra leikjum og trúðurinn Skralli dansar með. Hestamenn kynna
hestaíþróttina og umhirðu hesta.
16.00 Leikþáttur: Landnemarnir Helgi magri og Þórunn hyrna kynnt á léttu nót-
unum. Sigurþór Heimisson og Dofri Hermannsson.
16.15 Tjarnarkvartettinn syngur.
16.30 Fóstrur stýra leikjum og trúðurinn Skralli leikur við hvern sinn fingur.
17.00 Bjöllukórinn og gamanmál.
17.30 Skátavarðeldur og leikir.
18.00 Risagrill - Starfsmenn hátíðarinnar kynda 10 grilltunnur á opnum svæð-
um, sem verða tilbúnar fyrir gesti að grilla fyrir sig og sína.
19.00 Dagskrárlok.
íþróttaskemman
20.30 Tónleikar Blásarasveitar æskunnar með fjölbreyttri dagskrá og frum-
flutningi hljómsveitarverks eftir 16 ára Akureyring, Davíð Brynjar Franz-
son. Lýðveldishátíðarnefnd býður frítt á tónleikana.
• Lýðveldishátíðarnefnd býður eldri borgurum í bíltúr
Sérleyfisbílar Akureyrar halda uppi áætlunarferðum á Rangárvelli
v/skógræktar og skeiðvallar sem hér segir: 18. og 19. júní farið frá
Versluninni Móasíðu kl. 09.30 og kl.l 0.30 og til haka kl. 12.30. Aðrar
biðstöðvar eru í þessari röð: Verslunin Síða, Verslunarmiðstöðin Sunnu-
hlíð, Esso Veganesti, Glerárgata við VÍS, suðurendi göngugötu, Shell
Kaupangi og Brauðgerð Kristjáns Hrísalundi. Þann 19. júní verður far-
ið í Kjarnaskóg frá Brauðgerð Kristjáns Hrísalundi kl. 14.30,15.30 og
16.30 og til baka kl. 15.00, 16.00,17.00 og 18.00. Nú er byrjað hjá
Brauðgerð Kristjáns við Hrísalund en síðan farið í Verslunina Móasíðu
og áætlun fylgt hér að framan.
LÝÐVELDISHATIPARNEFND AKUREYRAR