Dagur - 16.06.1994, Síða 15
Fimmtudagur 16. júní 1994 - DAGUR - 15
HALLDÓR ARINBJARNARSON
ÍÞRÓTTl R
Þór-Valur í kvöld:
Fyrsti leikur ársins á Akureyrarvelli
- vinna Þórsarar fyrsta sigurinn?
Starfsmcnn Akureyrarvallar hafa síðustu daga kcppst við að undirbúa völlinn og umhverfi hans fyrir átök sumars-
ins og í gær voru þeir m.a. að snyrta gangstíginn upp í stúkuna. Völlurinn kemur vel undan vetri og vonast knatt-
spyrnuáhugamcnn til að mörkin verði mikið notuð í kvöld. Mynd: jhb
Fyrsti leikur ársins á Akureyrar-
velli fer fram í kvöld. Þór tekur
á móti Val í Trópídeildinni og
binda heimamenn vonir við að
Þórsliðinu takist að vinna sinn
fyrsta sigur á tímabilinu. Leikur-
inn er mikilvægur fyrir liðin
enda hefur staða beggja oft verið
betri, Þórsarar í næst neðsta
sætinu eftir flmm umferðir með
þrjú stig en Valsmenn í því sjö-
unda með fimm stig.
Valsmenn hafa tapað síðustu
tveimur leikjum og aðeins unnið
einn það sem af er tímabilinu.
Þrátt fyrir slakt gengi eru margir
snjallir leikmenn í liðinu. Má þar
nefna helstu stjömu deildarinnar
um þessar mundir, Eið Smára
Guójohnsen, landsliðsmanninn
Guðna Bergsson, Steinar Adólfs-
son, Jón Grétar Jónsson, Sigur-
björn Hreiðarsson og síðast en
ekki síst Lárus Sigurðsson sem lék
í marki Þórs sl. tvö sumur.
„Við höfum ekki spilað nægi-
lega vel og eigum enn eftir að
sýna hvað býr í liðinu. Vió ætlum
að sýna það á Akureyri og verðum
að hafa öll stigin með okkur suð-
ur,“ sagði Lárus.
Þórsarar ætla sér eflaust að
hindra þessi áform Lárusar enda
stefna þeir hærra en byrjunin gef-
ur til kynna. Þeir sem til þekkja
vita aó stemmningin á Akureyrar-
velli er allt önnur en á völlum fé-
laganna, meó fullri virðingu fyrir
þeim, og búast má við Þórsurum
ljóngrimmum í kvöld.
Því má bæta við aö Þórsarar fá
góðan liðsstyrk innan skamms því
Arni Þór Arnason kcmur heini frá
Bandaríkjunum um helgina og
verður til í slaginn í næstu viku.
Þá er Hlynur Birgisson farinn að
æfa á fullu og er búist vió að hann
spili gegn KR á Akureyrarvelli 7.
júlí. JHB
Eyjólfur Sverrisson:
Besiktas og Nice
ræða við Stuttgart
Viðræður standa yfír milli
Stuttgart annars vegar og tyrk-
neska félagsins Besiktas og
franska félagsins Nice hins veg-
ar um kaup á landsliðsmannin-
um Eyjólfi Sverrissyni.
Eyjólfur hefur fengið tilboð frá
báðum þessum félögum og sam-
þykkt þau fyrir sitt leyti. Hann
segist nú bara sitja og bíða eftir
niðurstöðu úr viðræðum þessara
félaga við Stuttgart.
„Mér líst vel á bæði þessi félög
og treysti mér ekki til að gera upp
á milli þeirra. í sjálfu sér þekki ég
hvorki fótboltann í Frakklandi né
Tyrklandi en ég geri ráð fyrir að
þaó taki alltaf tíma til að aólaga
sig fótbolta í nýju landi, sama
hvar það er,“ sagði Eyjólfur.
Fleiri félög, bæði innan og utan
Þýskalands, hafa sýnt áhuga á að
fá hann í sínar raóir eins og fram
hefur komið. Þeirra á meóal er eitt
í Englandi. „Eg hef ekkert spjallað
við þessi félög að ráði. Ég bíð og
sé hvaö kemur út úr þcssu,“ sagði
Eyjólfur. JHB
Ingvar í tveggja
leikja bann
Ingvar Magnússon, Tinda-
stóli, var úrskurðaður í
tveggja leikja bann á fundi
aganefndar KSÍ t fyrradag.
Ingvar fékk leikbannió
vegna brottvísunar í leik gegn
Skallagrími á Sauðárkróki 10.
júní. JHB
Jaðar:
Mjólkurmót og
Jónsmessumót
Mjólkurmót verður haldið á
golfvellinum að Jaðri dagana
18. og 19. júní.
Leiknar verða 36 holur með
og án forgjafar. Aukaverðlaun
veröa veitt fyrir að vera næst
holu á par 3 brautunum og
lengsta upphafshögg á 3.
braut, eða Mjólkurbraut.
Skráningu lýkur kl. 19 á morg-
un.
Þá veróur Jónsmessumótið
haldið í kvöld og hefst þaó kl.
21. Leiknar verða 9 holur og er
búist við miklu gríni og fjöri.
JHB
Arnarholtsvöllur:
Opið kvenna-
mótígolfi
Opið kvennamót í golfi verð-
ur haldið á Arnarholtsvelli í
Svarfaðardal á sunnudaginn.
Leiknar verða 18 holur meö
og án forgjafar. Veitt verða
aukavcrðlaun fyrir bolta næst
holu á 3., 5. og 9. brautum.
Skráning fer fram í golf-
skálanum í síma 61204 kl. 18-
22 á morgun og föstudag og á
laugardag kl. 14-19. JHB
Akureyri:
Verðlaunaafhending
vegna lýðveldishlaups
í kvöld kl. 19.30 verða fyrstu
verðlaunin í lýðveldishlaup-
inu afhent í Sundlaug Akur-
eyrar. Það er bronsmerki til
þeirra sem náð hafa 30 dög-
um í hlaupinu.
A mánudaginn náðu fyrstu
menn þessum áfanga, þeir sem
hafa verið með frá byrjun og
nýtt sér alla daga. Til að fá
bronsmerkið þurfa þátttakend-
ur að greiða 100 kr. og fram-
vísa skráningarbókum til stað-
festingar. JHB
íþróttir helgarinnar:
Knattspyrna
Laugardagur:
1. deild kvenna:
Dalvík-Stjaman kl. 16
2. deild kvenna:
KS-ÍBAkl. 16
Tindastóll-Leiftur kl. 17
4. deild C:
HSÞ-b-Neisti kl. 14
KS-Hvöt kl. 14
Þrymur-Magni kl. 14
SM-Kormákur kl. 14
4. deild D:
Einherji-UMFL kl. 14
Sunnudagur:
2. deild karla:
Þróttur N.-KA kl. 14
Leiftur-HK kl. 14
3. deild:
BÍ-Dalvík kl. 14
Völsungur-Reynir kl. -14
Víðir-Tindastóll kl. 14
Frjálsar
Föstudagur:
Víðavangshlaup Dalvíkur
Sunnudagur:
Kvennahlaupið kl. 14.
Skúli Ágústsson sigraði í fyrsta Greifamótinu án forgjafar.
Golf:
Greifamótin hafin
Greifamótin í golfi eru hafin hjá
Golfklúbbi Akureyrar.
Skúli Agústsson hefur tekió
forystuna í karlaflokki án forgjaf-
ar en hann lék fyrsta hringinn á 38
höggum. Fylkir Þór Guðmunds-
son, Egill Orri Hólmsteinsson og
Sigurpáll Geir Sveinsson léku allir
á 39.
Fyrmefndur Fylkir Þór varð í
1 .-3. sæti í karlaflokki með forgjöf
á 33 höggum nettó ásamt þeim
Garpasund:
Tvær úr Óðni
til Danmerkur
Garpasundsnefnd SSÍ hefur val-
ið sjö manna hóp til að taka þátt
í garpasundmóti í Henning í
Danmörku í lok júlí.
Tvær konur úr Sundfélaginu
Oðni eru í hópnum, þær Karen
Malmquist og Helga Sigurðardótt-
ir. Aðrir eru Gunnar Friðriksson,
Steingrímur Davíðsson, Halldór
Kristiansen, Guðjón Guðnason og
Sveinn Þorsteinsson. JHB
Axeli Árnasyni og Kristjáni H.
Gylfasyni.
I kvennaflokki er aóeins leikió
með forgjöf og þar sigraði Karó-
lína Guðmundsdóttir á 32 höggum
nettó en Andrea Ásgrímsdóttir og
Halla Sif Svavarsdóttir léku á 37
höggum hvor. JHB
□□ ..— _
, ^-'-''@1 “□ *•□■ □□ “□“
a* Mri ’ a p q
17. júní
Kaffihlaðborð
til styrktar 3.-4.
flokks kvenna Þórs
í knattspyrnu verður
í Húsi aldraðra,
ki. 14-18.
Verð 500 kr.
10 ára og yngri 200 kr.
Allir velkomnir.