Dagur - 28.06.1994, Page 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 28. júní 1994
FRÉTTIR
Frá Reiðskóla
Hestamannafélagsins Léttis
og íþrótta- og tómstundaráði
Nokkur pláss laus tímabílið 18.-29. júlí.
Upplýsingar og innritun á skrifstofu íþrótta- og
tómstundaráðs, Strandgötu 19 b, sími 22722.
Mjólkursamlag KEA tekur í notkun
rafskautsketil til gufuframleiðslu
- verður einnig nýttur til upphitunar fyrir Hita- og vatnsveitu
í kvöld kl. 20.30 veróur ís-
lenskt efni í tali og tónum í
Minjasafnskirkjunni á Akur-
eyri. Þau Rósa Baldursdóttir
og Þórarinn Hjartarson liafa
tekió santan efnió og flytja
þaö. Miöaó cr viö aö crlcndir
lcrðamenn geti notið dagskrár-
innar og veröur hún flutt tvisv-
ar í viku í suinar, á þriðjudög-
um og fimmtudögum.
Nokkrar myndlistarsýningar
eru nú í gangi. Á morgun lýkur
sýningu á vcrkum Jóhanncsar
Kjarvals og Ásmundar Sveins-
sonar. í Deiglunni sýnir Dröfn
Friðfinnsdóttir grafíkverk og
Laufey M. Pálsdóttir sýnir
vcrk í verslunarglugga KEA í
göngugötunni, cn þar verður
skipt um verk vikulega.
AKUREYRARBÆR
Á fóstudaginn tók Mjólkursam-
lag KEA í notkun rafskautsketil
til framleiðslu á gufu. Um leið
hófst samstarf Mjólkursamlags-
ins og Hita- og vatnsveitu Akur-
eyrar því gufuorka frá katlinum
verður m.a. nýtt til upphitunar
á vatni á bæjarkerfi veitanna.
Rafskautsketillinn kostar meö
öllu um 20 milljónir kr. en hann er
gerður fyrir 11 kv spcnnu og getur
afkastað 8 mv á 10 bara þrýstingi.
Með gangsetningu hans hverfur
Mjólkursamlagið frá notkun á olíu
til gufuframleiðslu. Notast hefur
verið vió olíu allt frá stofnun
Mjólkursamlagsins, árið 1927, en
í staó hennar kemur nú innlendur,
Gífurleg aðsókn á
Wayne’s World 2
Gífurleg aðsókn var um helgina
á gamanmyndina Wayne’s
World 2 í Borgarbíói á Akur-
eyri. Islandsfrumsýning var á
myndinni sl. föstudag í Borgar-
bíói og Háskólabíói. Frumsýn-
ingargestum var boðið upp á
grillmat og kunnu þeir vel að
meta þessa nýbreytni.
Jóhann Norðfjörð, sýningar-
stjóri Borgarbíós, sagði að um
helgina hafi á annað þúsund
manns séð Wayne’s World 2, sem
er ekki ósvipuð aðsókn ög fyrstu
sýningarhelgi Júragarðsins. Jó-
hann sagði að ef þessi góða aó-
sókn héldi áfram mætti gera ráð
fyrir að aðsóknarmetið yröi slegið.
Þess má geta aó umsögn unt
myndina er á blaðsíðu 4. óþh
Þessi mynd var tekin fyrir utan Borgarbíó sl. fóstudag þcgar Wayne’s
World var frumsýnd. Frumsýningargcstum var boðið upp á grillmat.
Mynd: Robyn.
Framkvæmdastj. Héraösnefndar Eyjafjarðar:
Björk ráðin
Björk Guðmundsdóttir hefur
verið ráðin framkvæmdastjóri
Héraðsnefndar Eyjafjarðar.
Björk er Akureyringur og er
fædd árið 1961. Hún er tölvun-
arfræðingur frá Háskóla íslands
1985 og viðskiptafræðingur af
rafreiknisviði frá Háskóla ís-
lands 1987.
Björk hefur áður starfað hjá
Landsbanka íslands á Selfossi,
Pósti og síma, Dansk Esso a/s í
Kaupmannahöfn, Tölvumiðstöð-
inni hf. í Reykjavík og er nú fjár-
málastjóri Verkmenntaskólans á
Akureyri. Eiginmaður Bjarkar er
Dan S. Brynjarsson, hagsýslustjóri
Akureyrarbæjar.
Ákvöróun um ráðningu fram-
kvæmdarstjóra Héraðsnefndar
Eyjafjarðar var tekin í fyrri viku
cn átta umsóknir bárust um stöó-
una. Staða framkvæmdastjóra
Héraðsnefndar Eyjafjarðar, sem er
ný staða, nemur nú hálfu stöóu-
gildi. Ekki fengust upplýsingar
um nöfn annarra umsækjenda. GT
Enn einn bíil veltur í drullusoppunni á Tjörnesvegi:
„Ekki mönnum bjóðandi
aðakaí
þessu
- segir Hreiðar Hreiðarsson, lögreglumaður
„Guðs lán að við erum ekki öll dauð,“ sagði Bogi Pétursson
Jeppabifreið valt 1,5 km austan
viö Mánarbakka á Tjörnesi um
kl. 14 á laugardag. I bílnum var
Bogi Pétursson á leið með sex
börn til sumardvalar að Ástjörn
í Kelduhverfi. Börnin sakaði
ekki en Bogi fann fyrir eymslum
í baki. Lögreglan telur bílinn
ónýtan og mildi að fólkið slapp
án frekari meiðsla.
Rigning var á laugardag en þá
vcrður leir sem borinn hefur verið
í veginn mjög háll. Jeppinn valt í
beygju sem er vió tvískipta blind-
hæó á veginum. „Það var þykk
leðja á veginum, við vorum á
blankskóm og sukkum tvær
tommur í drulluna. Á miðjum
veginum var aðeins troðió, en um
leió og komið var út fyrir hjólfarið
fljóta bílarnir, kerra var aftan í
jeppanum og hún hefur vafalaust
veriö til vandræða. Jeppinn valt á
mógrýti austan vcgarins og stöðv-
aóist á hjólunum, sagði Hreióar
Hrciðarsson, lögreglumaður á
Húsavík sem kom á slysstað.
„Þetta er alveg skelfilegt. Þaó
verða þama 2-3 veltur á hverju
sumri. Á 10-15 km kafla er allt
vaðandi í drullu og ekki mönnum
bjóðandi aó aka í þessu. Það er
margbúið að hafa samband við
Vegagerðina og biðja um úrbætur,
en það skeóur ekkert. Stöðugt er
verió að safna upplýsingum um
hvar mesta slysatíðnin er, en ég
skil ekki til hvers þegar svona
vegarspotti er ekki lagaður. Sama
efni hefur verið notað á fleiri stöð-
unt í sýslunni, t.d. á Mývatnsheiði
og þar er sama dýið. Það er nóg af
dauðsföllum í umferóinni og alltaf
verió að tala um að draga úr slysa-
hættu, en svo er ekkert gert í að
laga svona slysagildrur “ sagði
Hreiðar í samtali við Dag.
„Það var fyrir stuttu búió að
hefia og rykbinda veginn og hann
hafði ekki náð aó þorna almenni-
lega. Ég skoóaói í rnorgun staóinn
þar sem bíllinn fór út af, vegurinn
er vel breiður en bíllinn hefur
vafalaust lent út í kantinum og
skrikaó í aurnurn," sagði Svavar
Jónsson, rekstarstjóri Vegagerðar-
innar á Húsavík. Svavar sagði að
ekki væri fyrirhugað að skipta um
ofaníburð í Tjörnesveginum í
sumar. Ekki væri til annaó efni til
ofaníburðar á Tjörnesi svo llytja
þyrfti efni í veginn langar leiðir
að.
„Það þyrfti aó byggja upp og
malbika veginn, það er það eina
raunhæfa í stöðunni. Vegurinn
hefur oft komist á áætlun, en alltaf
farið út af hcnni aftur,“ sagði
Svavar.
„Það er guðs lán að vió erum
ekki öll dauð. Ef til er kraftaverk
þá var það að börnin skildu öll
geta gengiö út úr bílnum eftir velt-
una. Ég hef ekið til Ástjarnar í 48
ár, en aldrei lifað eins skelfilegan
dag. Ég vona bara að ráðamenn
taki við sér .og láti laga vcginn,"
sagói Bogi Pétursson. IM
í gærmorgun lögðu þær Jónína Kristín Ingvarsdóttir og Sigrún Gísiadóttir,
af stað frá Akureyri álciðis í Stykkishólm á rciðhjólum. Þær stöiiur ætiuðu
að hjóla í Varmahlíð í Skagafirði í fyrsta áfanga cn rcikna með að ná á leið-
arcnda á föstudagskvöld cf allt gengur að óskum. Vegalcngdin cr um 360
km. Þegar á Snæfcllsncsið er komið, hafa þær cinnig áhuga á því að fara
upp á jökulinn cn þó ekki á reiðhjólunum. Jónína og Sigrún verða að teljast
vanar að ferðast á reiðhjólum, því að á svipuðum tíma í fyrra hjóiuðu þær
frá Eskifirði tii Akureyrar, um 320 km leið. Mynd: Robyn.
umhverfisvænn orkugjafi. For-
sendur þessara breytinga er samn-
ingur Rafveitu Akureyrar við
Landsvirkjun um kaup á umfram-
orku en í kjölfar hans hefur
Mjólkursamlagið gert samning við
Rafveitu Akureyrar um notkun
þessarar umframorku til aldamóta
hið minnsta.
Ketillinn er að öllu leyti íslensk
hönnun og framleiðsla. Vélsmiðja
Orms og Víglundar í Hafnarfirði
sá um aó smíða hann og koma fyr-
ir með tilheyrandi búnaói en Raf-
tákn hf. á Akureyri vann útboös-
gögn og sá um eflirlit meö fram-
kvæmdinni ásamt starfsmönnum
Mjólkursamlagsins. I sumar verö-
ur unnið að nauðsynlegum teng-
ingum fyrir Hita- og vatnsveituna
og sér Verkfræðistofa Noróur-
lands um hönnun fyrir þær fram-
kvæmdir. JHB
Ari Rögnvaldsson starfsmaður Hita- og vatnsveitu Akurcyrar og Þórarinn
E. Sveinsson, mjólkursamlagsstjóri, fyrir framan nýja rafskautsketilinn sem
cr engin smásmíði. Mynd: JHB