Dagur - 28.06.1994, Síða 6

Dagur - 28.06.1994, Síða 6
6 - DAGUR - Þriðjudagur 28. júní 1994 VINNINGAR fjOldi VINNINGSHAFA UPPHÆÐÁHVERN VINNINGSHAFA 1. 5aí5 0 1.730.825 2. 4af5^ W~2 150.318 3. 4af5 58 8.941 2.136 Heildarvinningsupphæð þessa viku: 3.759.015 Alþjóðleg hunda- sýníng í í þrótta- höUinni á Akureyri Árleg hundasýning Hunda- haldin í íþróttahöllinni á ræktarfélags íslands var Akureyri sl. sunnudag. upplýsingar:sImsvahi91 -681511 lukkul!na991002 Ráöhústorgi 5, 2. hæð Gengið ínn frá Sklpagötu Sími 11500 Á söluskrá Ægisgata, Dalvík: 4ra herb. einbýlishús á einni hæð ásamt stórum bllskúr, samtals um 165 Im. Fjólugata: 4ra-5 herb. íbúð á 2. hæð um 113 fm. Eign i mjög góðu lagi. Skipti á 3ja herb. á Brekk- Hrísalundur: 3ja herb. endaíbúð á 3. hæð um 76 fm. Hagstætt verð. laus fljótlega. Brekkugata: Mikið endurnýjað 5-6 herb. einbýlishús, samtals um 169 fm. Eignin er f mjög góðu lagi. Einholt: Mjög gott 5-6 herb. einbýlishús á pöllum um 162 fm. Laust eftir samkomulagi. Kjalarsíða: 3ja herb. íbúð á 1. hæð - gengið inn af svölum. Stærð 77 fm. Laus fljótlega. Skarðshlíð: Mjög góð 4ra herb. endalbúð á 2. hæð um 116 fm. Laus fljótlega. FASTEIGNA & || SKIPASALA Z/SSl NORÐURLANDS íf Ráöhústorgi 5, 2. hæö gengið inn frá Skipagötu Opiö virka daga frá kl. 9.30-11.30 og 13.15-17. Sölustjóri: Pétur Jósefsson Lögmaður: Benedikt Ólafsson hdl. Litli og stóri! Að þessu sinni var sýning- in alþjóðleg og gafst hundun- um kostur á aó keppa um stig til alþjóðlegs meistara. Þessi sýning í íþróttahöll- inni var fyrsta alþjóðlega hundasýningin á Islandi og jafnframt var hún afmælis- sýning Hundaræktarfélags ís- lands, sem fagnar aldarfjórð- ungs afmæli á þessu ári. Dómarar á sýningunni voru þau Ebba Aalegaard frá Dan- mörku og Henrik Lövgren frá Svíþjóó. Sýndir voru ríflega 100 hundar af 25 tegundum. Danski dómarinn Ebba Aalegaard Icggur mat á hundana frá öllum hugsan- iegum hliðum. Á fullri ferð á sýningargólfinu. Fjær fylgist Henrik Lövgren, dómari, með. Myndir: Robyn. „Hvenær skyidi röðin koma að mér?“ Martasýnírí Safnaðar- heimilinu Marta María Hálfdánardóttir, glerlistakona, sýnir og kynnir um þessar mundir sjö járn- og gler- verk, sem hún kallar Bláu línuna, í Safnaöarheimili Akureyrarkirkju. Verkin eru flcst unnin á þessu á ári. Safnaðarheimilið er opió alla daga frá kl. 8 til 18. Kvennadúett á Dalvík vær sópransöngkonur, Halla Soffía Jónasdóttir og Fríður Sigurðardóttir, efndu til tónleika í Dalvíkurkirkju föstudaginn 24. júní. Undirleikari þeirra var Kári Gestsson, píanó- leikari. Þessir tónlistarmcnn hafa áður sótt Dalvík heim, eða árið 1992. Tengsl þeirra við bæinn eru mikil, þar sem Halla Soffía og Kári eru bæöi Dalvíkingar. A efnisskrá tónleikanna voru mest íslensk lög, en fáein crlend. BSA M. Sölu- og þjónustuumboð fyrir: Mercedes-Benz Bílaverkstæði Bílaréttingar Bílasprautun Bílavarahlutir Laufásgötu 9 • Akureyri Símar 96-26300 & 96-23809 sbgyKi Flest voru fíutt sem dúettar en hvor söngkona um sig flutti þrjú einsöngslög. A efnisskránni voru átján lög. Túlkun í dúettunum var yfir- leitt í góðu lagi. Söngkonurnar beittu verulegum innileika jafnt í raddbeitingu sem fasi og gættu fulls hófs. Raddir þeirra féllu al- mennt vel saman og eftirtektar- verðir voru vel breiðir og fullir lágtónar, sem skiluóu sér fagur- lega. Þá voru háir tónar einnig yfírleitt góðir og óþvingaóir. Sam- stilling raddanna í styrk var einnig í flestum tilfellum í góðu lagi, en þó brá fyrir, að neðri rödd heföi mátt hafa beitt sér heldur nfeira. Hljómar voru almennt í góðu lagi. Nokkuö var samt um rennsli af tóni, sem gat af sér óhreinan hljóm á meóan stóö. Þá komu fyr- ir ójafnar innkomur og lok, sem spillti heildarsvip dálítió. Loks voru smá styrkleikabreytingar, til dæmis á einstökum tónum, ekki samhæfðar sem skyldi, sem olli óróleikablæ. Sem dæmi um vel flutta dúetta má nefna „Fagurt er á sumrin“ eft- ir Þórarinn Guömundsson við ljóð Kristjáns Jónssonar og „Hrísluna og lækinn“ eftir Inga T. Lárusson við ljóó Páls Olafssonar. Halla Soffía Jónasdóttir hefur góða rödd, sem hún hefur jafnan vel á valdi sínu. Hún er opin og hefur góóa breidd á öllu raddsviö- inu. Bciting raddarinnar er allvel öguó, þannig aó hún nýtir til dæmis ekki styrkrokur á háum tónum, sem gætu stangast á vió aöra þætti í flutningi cinstakra laga. TÓNLIST % HAUKUR AGUSTSSON SKRIFAR Halla Soffía söng ein þrjú lög. Best tókst henni í laginu „Svarta rosor'* eftir Sibelius við ljóö eftir Hrnst Josephson, þar sem hún söng af ríkri og hófsamri tilfinn- ingu. Einnig var margt vel gert í laginu „Flickan kom ifrán sin alsklings möte“ eftir Sibelius viö Ijóó J. L. Runebergs, en hvað la- kast tókst til í laginu „I fjarlægó" eftir Karl O. Runólfsson viö ljóó Valdimars H. Hafstaðs, en þar kom fram nokkur óhófsemi í túlk- un og einnig smágallar í raddbeit- ingu. Fríður Siguróardóttir hefur tals; vert mikla rödd og áheyrilega. I henni er hins vegar nokkur spenna, sem kemur fram í titringi og nokkrum óstyrk, til dæmis í innkomum mcö litlum styrk. Fyrir bregóur einnig rennsli af tóni og nokkuó óhófíegrar styrkbeitingar vió t.d. háa tóna. Fríóur ílutti þrjú lög ein. Bcst tókst henni í laginu „Hvis du har varme tanker" eftir Hakon Bötte- sen vió Ijóö Helenu Nyblom. Fríó- ur flutti lagió af innileika og fín- lega. í fíutningi gætti afa lítió þeirra galla, sem á hefur verió minnst. Þó spillti nokkuö kraft- söngur á hæstu tónum. Hin lögin tvö, sem Fríður flutti ein, voru „Vögguljóó" eftir Sigurö Þórðar- son við ljóö Benedikts Þ. Grön- dals og „Minning“ eftir Markús Kristjánsson viö ljóó Davíös Stef- ánssonar. Kári Gestsson, píanóleikari, lék af prýöi undir söng Höllu Soffíu og Fríðar. Leikur hans var ætíð vió hæfi hvaö styrk og áferó snerti. Hann átti því ekki lítinn hlut í því aó gera tónleikana í Dal- víkurkirkju ánægjulega, sem þeir og voru, þrátt fyrir þá galla, sem fram hafa verið taldir. Tónlistar- mennirnir voru klappaðir upp í lokin og fluttu tvö aukalög fyrir þakkláta áheyrendur sína.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.