Dagur - 08.07.1994, Blaðsíða 3
FRETTIR
Föstudagur 8. júlí 1994 - DAGUR - 3
Utvegur 1993 er kominn út:
Síðasta ár annað mesta
aflaár íslandssögunnar
- þorskafli enn minnkandi og verð lækkandi - loðnan
hefur mest áhrif á aflamagnið
Útvegur 1993, rit Fiskifélags ís-
lands er komið ut. Þar kemur
m.a. fram að heildarafli iands-
manna á síðasta ári að undan-
skildum veiðum á fjariægum
miðum, var 1.700 þúsund tonn
og var árið þannig annað mesta
aflaár Islandssögunnar, sé
eingöngu litið á heildarafla-
magn. Verðmæti heildaraflans
var 49,5 milljarðar króna.
Um 55% aflans var loðna, enda
hefur loönuafli langmest áhrifin á
heildaraflamagn ár hvert en verð-
mæti loðnuaflans nam einungis
7% af verómæti heildarafla.
Þorskafli er enn minnkandi milli
ára og verð er einnig lækkandi.
Ysuafli hefur aukist en verð er
lægra en það hefur verið á seinni
árum.
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Bæjarráði hcfur borist erindi
frá Jóni Amjrórssyní, Kamba-
gerði 7, þar sem hann kynnir
hugmynd sína um að á Akur-
eyri verði komið upp „Litla ís-
landi“ til afþreyingar fyrir
heimamcnn og gcsti. Bæjarráð
samþykkti að vísa erindinu til
atvinnumálanefndar.
■ Valgeróur Bjamadóttir, jafn-
réttis- og fræóslufulltrúi kom á
fund bæjarráós í gær, ásamt
nýráðinni vcrkefnisfreyju,
Guðrúnu Pálínu Guðmunds-
dóttur og gerði grein fyrir
könnun sem hún hefur gert á
leiguhúsnæði fyrir Mennta-
smiöju kvenna. Bæjarráð
heimilaði að gcngið yrði til
samninga við Kaupfélag Ey-
firðinga um lcigu á húsnæði á
4. hæð í Hafnarstræti 95.
■ Bæjarráð tók fyrir hug-
myndir yfirverkfræðings
tæknidcildar unt cndurskoðun
gatnagcrðaráætlunar 1994, sem
kynntar voru á síðasta fundi
bæjarráðs. Bæjarráö gerói
nokkrar breytingar á tillögum
yfirverkfræðings og samþykkti
þær þannig. Óráðstafað af
framkvæmdalé til gatnagerðar
verður nú kr. 2.010 þús.
■ Bæjarráð samþykkti í gær
tillögu frá tæknideild um fram-
kvæmdir í Aðalstræti sunnan
Duggufjöm 2, í því skyni að
draga úr aksturshraöa í göt-
unniv
■ Á fund bæjarráðs kom
starfsmannastjóri og upplýstu
hann og yfirverkfræðingur
bæjarráð um aó unnt yrði að
útvega öllu skólafólki á aldrin-
um 17-25 ára, sem um hefir
sótt, atvinnu í 6 vikur í sumar.
■ Á fundi bæjarráðs var lögð
fram til kynningar áskomn til
ríksstjómar og Alþingis, sem
stjóm Sambands íslenskra
sveitarfélaga samþykkti á fundi
sínum á ísafirði 4. júlí sl., um
að veita auknu fé til kennslu í
grunnskólum í fjárlögum næsta
árs. Jafhframt er óskað cftir
viðræðum við ríkisvaldið um
samvinnu og verkaskiptingu
ríkis og sveitarlélaga um fram-
kvæmd gmnnskólalaga og til
að koma á einsetnum skóla og
lengingu skóladags.
Minna veiddist af ufsa árið
1993 en árin tvö þar á undan, enda
var 1991 metaflaár. Verö á ufsa
var hins vegar lægra en verið hef-
ur. Karfi var eina tegundin þar
sem aflinn jókst að verðmæti milli
ára, bæói vegna aukningar afla-
magns og hærra verös.
Tæp 160 þúsund tonn aflans
fóru til sjófrystingar, séu veiðar á
erlendum miðum meótaldar en þar
veiddust samtals um 12 þúsund
tonn og var stærstur hluti þess afla
sjófrystur. Söltun hefur dregist
saman í samræmi við samdrátt í
aflamagni viðeigandi tegunda. Þá
hefur útfiutningur í gámum dreg-
ist saman og er nú um 50 þúsund
tonn.
Þá kemur frarn í Útvegi, að
meðalaldur fiskiskipafiotans er
17,2 ár og hefur hækkað um hálft
ár. Skráð vélarafl hækkaði örlítið
milli ára. Starfandi sjómönnum
hefur fjölgað lítillcga en fækkaði
áður nokkur ár í röð.
Útvegur hefur komið út árlega
á vegum Fiskifélags Islands frá ár-
inu 1977 en er fyrr á ferðinni í ár
en síðustu ár. Ritið er byggt á
gögnum sem Fiskifélagið safnar
og varóveitir og hefur það aó
geyma allar helstu upplýsingar um
veiðar og vinnslu landsmanna.
Hér er því um að ræða nokkurs
konar tölfræðibók sjávarútvegsins.
Útvegur er eingöngu seldur á
skrifstofu Fiskifélagsins (sírni
10500) og kostar kr. 3.000,- í
lausasölu. KK
Atvinnuleysisbætur eru skattskyldar:
Varasamt er að láta
maka nota skattkortið
Atvinnuleysisbætur eru skatt-
skyldar, enda þótt þær séu und-
ir skattleysismörkum. I>ess
vegna er varasamt fyrir at-
vinnulausa að láta maka njóta
skattkorts hans/hennar, því það
getur þýtt skatta eftir á sem oft
koma fólki í opna skjöldu, segir
í fréttatilkynningu frá ASÍ.
Alþýóusambandinu þykir rétt
að minna á reglur um skattgreiðsl-
ur atvinnulausra en samkvæmt
þeim greiða atvinnulausir tekju-
skatt og útsvar eftir á, nteð svip-
uðum hætti og var fyrir stað-
greiðslukerfi skatta. Það er hins
vegar talsvert algengt að maki
hins atvinnulausa nýti sér skatt-
kort hans eða hennar á meðan at-
vinnuleysiö varir og við því vill
ASÍ vara. KK
Landsmót hestamanna:
Frábær árangur
Gusts frá Hóli
í umfjöllun um iandsmót hesta-
manna á Gaddstaðaflötum við
Hellu í síðustu viku láðist að
geta um frábæran árangur
Gusts frá Hóli í Eyjafjarðar-
sveit, sem fékk hæstu einkunn
stóðhesta það sem af er sumri.
Gustur, sem Hrossaræktarsam-
band Eyfirðinga og Þingeyinga
á hlut í, fékk 9,01 fyrir hæfi-
leika, og 8,13 fyrir byggingu, að-
aleinkunn 8,57.
Þess má geta að Gustur er und-
an Gáska frá Hofsstöðum, sem
verið hefur nokkuó umdeildur
stóðhestur. Undan Gáska hafa
komið fieiri afbragðs hross og má
þar nefna Snældu frá Bakka í
Svarfaðardal, Kraka frá Helga-
stöðum og Hauk frá Hrafnagili.
Gáski kom fyrst fram á landsmót-
inu 1978 og stóð efstur fimm
vetra hesta. Síðan hefur hann ver-
ið í eigu Hrossaræktarsambands
Suðurlands. óþh
Sundlaug Akureyrar:
Rennibrautirnar
opnaðar
Nýju rennibrautirnar tvær í
Sundlaug Akureyrar verða opn-
aðar á morgun og einnig annar
heiti potturinn.
Þar meó lýkur eftirvænting-
arfullri bið flestra sundlaugargesta
af yngri kynslóðinni og væntan-
lega einnig margra af þeim eldri.
Önnur rennibrautin er 55 m löng
á morgun
en hin 11 m löng og 3 m breið,
sem gefur möguleika á samhliða
bruni. Auk sundlaugarinnar verð-
ur lóðin umhverfis hana opin og
þar eru ýmis leiktæki, s.s. mini-
golf, bílar o.fl.
Öðrum framkvæmdum, sem
staðið hafa yfir vió sundlaugina að
undanfömu, lýkur á næstu dögum.
JHB
„Skógarnir
okkar"
í tiiefni af
opnum degi
í Vaglaskógi
verða flestar garðplöntur seldar
með 25% afslætti
laugardaginn 9. júlí 1994.
Skógrækt ríkisins Vöglum.
Opnum í dag kl. 1 e.h. verksmiðjuútsölu
í Grænumýri 10.
Úrval af undir-og náttfatnaöi, jerseybolum,
svuntum og sloppum.
Ath! Opiö frá kl. 13-18 mánudaga til föstudaga.
iris sf., fataserð
Grænumýri 10, Akureyri.
Fyrir alla fjölskylduna
OPIÐ FRÁ KL. 08.00-22.00
Hljómsveitin
NAlVliVl
ásamt Júlíusi Guðmundssyni söngvara
í hörkustuði laugardagskvöld
☆ 'm' ☆
Bjóðum stóraukið úrval fiskrétta á nýjum
glæsilegum sérréttaseðli
HÓTEL
KEA
Sími22200