Dagur - 08.07.1994, Blaðsíða 7

Dagur - 08.07.1994, Blaðsíða 7
Föstudagur 8. júlí 1994 - DAGUR - 7 Aron kvaðst ekkert hræddur, en það er líklega vissara að halda sér fast. Ratleikur í skóginum í uppsiglingu KJAFNASKÓGUR - útivistarsvæðí Akureyrínga - Veórið hefur verið hálf einkenni- legt undanlarna daga, ýmist þoka eða heiðskírt með mengunarmistri frá Evrópu. Þegar þokunni hefur létt, hefur fólk flykkst út til að njóta góða veðursins, þá er ekki amalegt að geta skroppið út í Kjarnaskóg, þar sem skipulagður hefur verið sælureitur fyrir Akur- eyringa. Blaðamaður brá sér þang- að nú í vikunni, þegar sól skein í heiði og rakst þar m.a. á krakka í leikja- og sportskóla KA. Kjarnaskógur, útivistarsvæöi Akureyringa, verður fallegri meö hverju árinu og er með ólíkindum að þarna hafi ekki verið svo mikið sem ein planta fyrir 40 árum síðan þegar skógræktarfélag Eyfirðinga hóf að setja niður plöntur. Gróður- sett var á svæðinu frá 1952 til 1974, en þá gerði Skógræktarfé- lagið samning við Akureyrarbæ um skipulagningu útivistarsvæðis í Kjarna. Síðan hefur verið unnið við aó koma svæöinu í núverandi horf. Byrjað var á lagningu trimmbraut- ar árió 1976, leiktækin hafa starfs- menn skógræktinnar síðan hannað sjálfir, t.d. dekkjarennibrautina sem er líklega vinsælasta tækið. Grillaðstöðu hefur verið komið fyrir í Kjarnaskógi, sem hópar fólks hafa nýtt sér. Að sögn Hallgríms Indriðason- ar, framkvæmdastjóra skógræktar- félags Akureyrar hefur aðsókn að svæðinu margfaldast nú síóustu árin og hefur hún aldrei verið meiri en nú í sumar samkvæmt umferðatalningu á vegum skóg- ræktarinnar. Sagði Hallgrímur að hátt í 200.000 manns hefðu komið í skóginn á síðasta ári. Ljóst er að Akureyringar auk annarra lands- manna kunna aö meta þetta gróð- ursæla útivistarsvæói sem liggur vió bæjardyrnar. ÞÞ Hulda María, Anna og Anna toku skyrt fram að þær væru í sportskólanum, litlu börnin væru í leikjaskólanum. Gönguklúbbur í sólbaði Blaðamaður rakst á hóp fongulcgra kvcnna mcð krakkaskara í kringum sig. Þær kváðust vcra saman í gönguklúbbi, en þær væru reyndar duglegastar að ganga á veturna.Yfir sumartímann væri allri orku eytt í börnin. Þær hcita, tal- ið frá vinstri: Harpa, Sigrún Jóns, Fjóla, Anna Lísa og Sigrún Björk. „Skógarnir okkar“: Opinn dagur í Vaglaskógi á morgun kl. 14-17 Yfírskrift dagsins „Skógarnir okk- ar“ er til að minna almenning á að ríkisskógarnir eru sameign þjóðar- innar og að Skógrækt ríkisins vill kynna margháttaða starfsemi stofnunarinnar og fjölbreytileika íslensku skóganna. Starfsmenn Skógræktar ríkisins á Vöglum og Skeljungsbúðimar á Akureyri bjóóa fólk velkomið á opna daginn, þar sem ýmsir þættir starfseminnar verða kynntir, s.s. kurlvinnsla, kolagerð, viðar- vinnsla, nýhafin lerkifrærækt kynnt af dr. Þresti Eysteinssyni fagmálastjóra Skógræktar ríkisins, gróðursetningar-, grisjunar- og skógræktaráhöld kynnt og gengið verður um trjásafnið á klukkutíma fresti undir leiðsögn Siguröar Skúlasonar skógarvarðar. Hand- verksmenn kynna framleiðslu sína, leikföng úr tré og ýmsar aðr- ar trévörur s.s. skreytingarefni. 25% afsláttur verður veittur af ýmsum tegundum garðplantna í tilcfni dagsins. Landslagsarkitektinn Andri Sigurjónsson frá Teiknistofu Hall- dórs Jóhannssonar á Akureyri sýnir ýmsar hugmyndir unt skipu- lag útisvæða og gefur góð ráð og leiðbeiningar um skipulag um- hverfis við sumarbústaði og fleira frá kl. 14 til 16. Kjarnafæði sf. á Akureyri býó- ur upp á grillpylsur og Egill Skallagrímsson gefur pepsidrykk. (Fréllalilkynning) Vinningstölur miövikudaginn: 06.07.1994 FJÖLDI VINNINGA 884 EB Uinningur: UPPHÆÐ ÁHVERN VINNING 41.360.000 352.613 92.351 1.799 216 BONUSTOLUR T 27 43 Heildarupphæð þessa viku: 42.621.365 á Isl : 1.261.365 UPPLYSINGAR, SÍMSVARI 91- 68 15 11 LUKKULÍNA 99 10 00 - TEXTAVARP 451 6IRT MEÐ FYRJRVARA UM PRENTVILLUR fór til Noregs Kynninq á Knorr-sópum oq salatdressinqu í KEfl Oettó o? íflatbæ Húsavík í daq föstudaq, eftir hádeqi Pað er þetta með bilið milli bíla...

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.