Dagur - 08.07.1994, Qupperneq 10
10 - DAGUR - Föstudagur 8. júlí 1994
ÍÞRÓTTIR
HALLDÓR ARINBJARNARSON
Trópídeildin:
„Þeir spiluðu rosalega vel“
- sagði Sigurður Lárusson, þjálfari Þórs, eftir 4:2 sigur á KR
Það voru á milli 1500 og 1600
manns sem sáu bráðskemmti-
iegan Ieik Þórs og KR í Trópí-
deildinni í knattspyrnu. Leikið
var við bestu hugsanlegar að-
stæður á Akureyrarvelli í gær-
kvöld og þar virðast heimamenn
kunna sérlega vel við sig. Loka-
tölur urðu 4:2 eftir að Þór hafði
komist í 4:0.
Auðvitaö er ég mjög ánægður.
Við fengum að vísu á okkur tvö
klaufaleg mörk en strákarnir spil-
uðu vel - rosalega vel,“ sagði Sig-
urður Lárusson, þjálfari Þórs, eftir
að lið hans hafði sigrað KR 4:2 í
gærkvöld. Þórsarar spiluðu leikinn
afar skynsamlega, léku afburða
góðan varnarleik og nýttu mark-
tækifæri til hins ítrasta.
Þórsarar komust í 3:0 strax í
fyrri hálfleik. Fyrst skoraði Bjami
Sveinbjömsson á 13. mín. úr víti
eftir að brotið hafði verið á hon-
um, þá Lárus Orri Sigurðsson með
skalla á 41. mín. eftir aó KR hafði
sótt án afláts um nokkurt skeið og
loks Dragan Vitorovich á 44. mín.
Fyrri hálfleikur var talsvert
daufari og enn skoruðu Þórsarar á
69. mín., nú Ámi Þór Ámason af
stuttu færi eftir fyrirgjöf Vitoro-
vich. Staðan var nú oróin 4:0 og
mörk James Bett og Hilmars
Bjömssonar með rúmlega mínútu
millibili, á 78. og. 80 mín., breyttu
engu um úrslitin.
KR-ingar áttu sín færi í leikn-
um og þau þó nokkuð mörg. Hins
vegar varði Olafur Pétursson eins
og berserkur og Þórsvörnin var af-
ar traust sem fyrr segir. Bestir í
liði Þórs voru Olafur Pétursson,
þó annað markió skrifist raunar á
hann, Lárus Orri og Vitorovich,
en annars er afar erfitt að taka ein-
hvem út úr jöfnu liði. Hjá KR var
Einar Þór Daníelsson sprækastur.
Lið Þórs: Ólafur Pétursson, Ámi Þór
Ámason, Birgir Þór Karlsson, Láms Orri
Sigurðsson, Páll V. Gíslason, Dragan Vi-
torovic, Guómundur Benediktsson, Júlíus
Þór Tryggvason (Hlynur Birgisson 83.
mín.), Bjami Sveinbjömsson, Þórir Ás-
kelsson og Ormarr Örlygsson.
Lið KR: Kristján Finnbogason, Óskar
Þorvaldsson, Izudin D. Dervic, Þormóóur
Egilsson, James Bett, Rúnar Kristinsson,
Tómas Ingi Tómasson (Sigurður R. Eyj-
ólfsson 74. mín.), Einar Þór Daníelsson,
Tryggvi Guðmundsson (Hilmar Bjöms-
son 74. mín.), Heimir Guðjónsson og
Salih Heimir Porca.
Dómari: Guómundur Stefán Maríasson.
Línuverðir: Bragi V. Bergmann og
Magni Bjömsson. Gott tríó.
Knattspyrna, 2. deild karia:
KA mætir ÍR
í kvöld kl. 20.00 mætast á Akur-
eyrarvelli 2. deildar lið KA og
IR í knattspyrnu. Afar mikil-
vægt er fyrir bæði lið að fara að
hala inn stig þar sem gengi
þeirra hefur ekki verið sem best
í sumar.
KA hefur aóeins unnið einn
leik á heimavelli í sumar og það
var í 1. umferðinni gegn Selfyss-
ingum. Liðið hefur sýnt- ágæta
leiki inn á milli í sumar og aó
ýmsu leyti verió óheppið að ná
ekki fleiri stigum. Það var einmitt
um þetta leyti sl. sumar sem liðið
hrökk í gang með eftirminnilegum
hætti, þá á Akureyrarvelli og e.t.v.
gerist það aftur í kvöld. Vonandi
notar fólk veðurblíðuna til að fjöl-
menna á völlinn og sjá skemmti-
lega knattspyrnu.
íþróttir
helgarinnar
ALMENNINGSHLAUP:
Þorvaldsdalsskokkið á sunnud.
11.00
GOLF:
Jaðarsvöllur:
Akureyrarmót klárast á laugardag.
KNATTSPYRNA:
Föstudagur:
2. deild karla:
KA-ÍR kl. 20.00
3. deild karla:
Dalvík-Höttur kl. 20.00
Haukar-Tindastóll kl. 20.00
Völsungur-Fjölnir kl. 20.00
4. deild C-riðill:
SM-Magni kl. 20.00
KS-Þrymur kl. 20.00
Laugardagur
1. deild kvenna:
Höttur-Dalvík kl. 14.00
2. deild karla:
ÞrótturR.-Leifturkl. 14.00
4. deild C:
Kormákur-Hvöt kl. 14.00
HSÞ-b-Geislinn kl. 14.00
KÖRFUBOLTI:
Laugardagur
Götubolti á Siglufirói.
Sunnudagur:
Götubolti á Akureyri við Hamar
kl. 11.00
Staðan
- Trópídeildin
Valur-UBK 1:3
Stjarnan-FH 1:1
Fram-ÍBV 2:2
ÍA-ÍBK 0.2
Þór-KR 4:2
ÍA 8521 14: 4 17
FH 852 1 7: 317
KR 8323 13: 7 11
ÍBK 825 1 12: 711
Þór 8 24 214:10 10
Fram 8 15213:14 8
ÍBV 8 1 52 6: 8 8
Valur 8224 8:16 8
UBK 8 2 24 8:20 8
Stjarnan 8 05 3 6:12 5
Almenningshlaup á
sunnudaginn:
Þorvaldsdalsskokkið
Eins og greint var frá í Degi í
síðustu viku fer fram nýstárlegt
almenningshlaup nk. sunnudag,
10. júlí. Hlaupið verður eftir
endilöngum Þorvaldsdal. Dalur-
inn er opinn í báða enda, opnast
norður á Árskógsströnd og suð-
ur í Hörgárdal.
Hlaupió er ætlað öllum sem
treysta sér til að komast umrædda
vegalengd, 23 km, á innan við 5
klukkustundum, en það ætti að
vera vel viðráðanlegt flestum
þeim sem eitthvað hreyfa sig
reglulega.
Skokkið hefst kl. 11.00 við
Fomhaga í Hörgárdal (þjóóvegur
815) og endar við Árskógssrétt.
Skráning við rásmark hefst kl.
10.00 og þar skal greiða 300 kr.
þátttökugjald. Allar nánari upplýs-
ingar veitir Bjami E. Guóleifsson
Möðruvöllum s. 96-24477/
96-26824.
Lárus Orri Sigurðsson er hér að skora annað mark Þórs í leiknum með
skalla eftir laglegt samspil Þórsara upp kantinn. Sérlega fallcgt mark.
Mynd: Robyn.
Mjólkurbikarkeppni kvenna í knattspyrnu:
ÍBA í undanúrslit
- ásamt UBK, KR og Val
Átta liða úrslit í Mjólkurbikar-
keppni kvenna fóru fram í
fyrrakvöld. Eftir þá leiki var
ljóst að 2. deildar lið ÍBA frá
Ákureyri mun leika í undanúr-
slitum við UBK, KR eða Val, en
þessi 3 lið komust einnig áfram.
Ekki er ljóst hvenær dregið
verður um hvaða lið leika sam-
an í undanúrslitum en væntan-
lega verður það ekki fyrr en að
loknum 16 liða úrslitum karla í
lok næstu viku.
Annarrar deildar lið IBA lagði
Sindra 3:0 á Homafirði. Að sögn
Hinriks Þórhallsonar þjálfara ÍBA
barðist lióið vel og skoraði öll
mörkin í fyrri hálfleik. Fyrst Þor-
björg Jóhannsdóttir eftir um 7
mín. leik, þá Ragnheiður Pálsdótt-
ir og loks Ingibjörg Olafsdóttir.
Tvö lið af Noróurlandi voru í
eldlínunni í fyrrakvöld. Annarrar
deildar lið Leifturs fékk Val í
heimsókn til Olafsfjarðar en Leift-
ur hefur ekki fyrr komist þetta
langt í bikarkeppninni. Þátttöku
liðsins er þó lokið að þessu sinni
því Valur vann stórsigur, 17:0. I
hinum leikjunum tveimur urðu úr-
slit þau að UBK lagói Stjörnuna
2:0 og KR vann Hött 5:1.
Götukörfubolti:
NBA 3 á 3
Körfuknattleikssambandið
mun standa fyrir 3 á 3 götu-
boltamótum á Norðurlandi á
næstu dögum. Mót af þessu
tagi eru haldin um alla Evr-
ópu á vegum NBA deildarinn-
ar í samvinnu við viðkomandi
körfuknattleikssambönd. Mót-
in hér á landi eru i samvinnu
við Skeljung hf, Pepsi og Nike.
Mótið á Akureyri verður nk.
sunnudag við Hamar, félags-
heimili Þórs og hefst kl. 11.00.
Keppt er í 4 aldursflokkum karla
og kvenna, 12 ára o.y., 13-14
ára, 15-16 ára og 17 ára o.e.
Einnig verður boðið upp á víta-
og 3ja stiga skotkeppni. Verð-
laun verða veitt sigurvegurum í
hverjum flokki svo og í skot-
keppnum. Þátttökugjald er að-
eins 500 kr. á leikmann og
skráning í mótið á Akureyri fer
fram hjá Hrannari í s. 11061.
Fyrsta mótið norðanlands var
í gær á Húsavík, í dag verður
keppt á Dalvík, á laugardaginn á
Siglufirði, Akureyri á sunnudag-
inn, Sauðárkróki á mánudaginn,
Laugabakka Miófirði á þriðju-
daginn og Blönduósi á miðviku-
daginn nk.
Landsmótsfarar UMSE:
Fundur á Þelamörk
Nk. sunnudagskvöld 10. júlí
verður fundur í íþróttahúsinu
að Þelamörk með öllum lands-
mótsförum UMSE. Hefst hann
kl. 20.00 og eru allir sem fara
á Landsmótið á Laugarvatni í
næstu viku eindregið hvattir
til að mæta.
Á fundinum munu forsvars-
menn UMSE veita allar upplýs-
ingar varðandi Landsmótið, s.s.
varðandi brottför, ferðatilhögun,
kostnað o.fl. og fyrirspumum
veröur svarað. Fundurinn er
kjörið tækifæri fyrir hina vösku
keppnissveit UMSE að stilla
santan strengina fyrir þessa
mestu hátíö ungmennafélaganna
en á síóasta Landsmóti varð
UMSE í 3. sæti þeirra félaga
sem þátt tóku. Dreift veróur nýj-
asta tölublaði Skinfaxa þar sem
m.a. er að finna spá valinkunnra
einstaklinga um einstakar grein-
ar á mótinu. Á eftir er síðan til-
valið að slappa af í sundlauginni
og heita pottinum.
UMSE kcppir að þessu sinni
í frjálsum íþróttum, knattspyrnu
og blaki karla, bridge, skák, og
starfsíþróttum.
Akureyrarmaraþon
23. júlí 1994
- æfingaáætlun eftir
Sigurö P. Sigmundsson
2. vika
Þá er komið að öðrum hluta æf-
ingaáætlunarinnar eftir Siguró P.
Sigmundsson sem ætluð er þeim
sem hyggja á þátttöku í annarri
af tveimur styttri vegalengdum
Akureyrarmaraþons síðar í mán-
uðinum. Fyrsta vikan birtist í
síðasta helgarblaði.
Á annarri viku eykst æfinga-
álagió lítillega. Hafa skal í huga
aö ef eymsli gera vart við sig er
rétt aó slá aðeins af. Þcir sem
stefna á 10 km ættu að taka eina
hraðaæfingu í vikunni. Svokall-
aður fartleikur er gott fyrirkomu-
lag, en þá er skokkað rólega eða
gengið og hlaupió til skiptis.
Viðkomandi ræður þá vega-
lengdinni og hvíldinni milli
spretta. Ágætt er að mióa vió 70-
120 m hraðaaukningar til að
byrja með og fara aldrei á há-
markshraða. Sprettimir eiga að
vera afslappaðir.
HlauparmnAA
4 km 10 km
sun. 5 km 7km
mán. 3 km 4 km
þri. Hvíld Hvíld
mið. 4 km 5 km
fim. Hvíld Hvíld
fös. 3 km 4 km fartleikur
lau. Hvíld Hvíld
Alls 15 km 20 km