Dagur - 10.09.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Laugardagur 10. september 1994
FRÉTTIR
Félagslegt íbúðahverfi í Giljahverfi á Akureyri:
Vistgötur og smáar húseiningar
Sagt hefur verið frá því í Degi
að dómnefnd hefði valið tillögu
að skipulagi félagslegs íbúða-
hverfts í Giljahverfi III á Akur-
eyri.
Fjórar tillögur bárust en það
var tillaga Arkitekta- og verk-
fræðistofu Hauks í Kaupangi sem
varð fyrir vaiinu. Tillöguna unnu
arkitektarnir og systurnar Fanney
Hauksdóttir og Anna Margrét
Hauksdóttir.
En hvernig eru þessar skipu-
lagstillögur og hversvegna urðu
einmitt þær fyrir valinu?
Um er að ræða 72 íbúðir í smá-
um húseiningum. Fiestar eru
þriggja herbergja eða 34, tvær eru
fimm herbergja, 18 íbúðir eru
tveggja herbergja og jafnmargar
fjögurra herbergja. Húsin eru öll
í ályktun sem stjórn Fiskifélags
íslands samþykkti sl. þriðjudag
Skagafjörður:
Ung kýr bar
þremur kálfum
Það bar til tíðinda á bænum
Skúfsstöðum í Hjaltadal í
Skagafirði í byrjun vikunnar að
kýrin Huppa bar þremur kálf-
um. Það er afar sjaldgæft að kýr
eignist þrjá kálfa en Huppa er
mjög frjósöm og í fyrra þegar
hún var kvíga, bar hún tveimur
kálfum. Þetta kemur fram í
Feyki.
Kálfarnir lifðu allir þrír og eru
ásamt móðurinni við bestu heilsu.
Tveir kálfanna eru 18,5 kg á
þyngd og sá stærsti 20 kg og
þykja þetta mjög stórir kálfar mið-
að vió fjölbura. Þaó má með sanni
segja aó þær séu frjósamar kýrnar
á Skúfsstöðum, því í sumar bar
fyrstakálfskvígan Branddís tveim-
ur kálfum.
Sigurður Þorsteinsson, bóndi á
Skúfsstöðum, segir m.a. í samtali
við Feyki, að ekki sé talið heppi-
iegt gagnvart nytinni að kýr beri
tveimur kálfum, sérstaklega ungar
kýr. Það viróist ekki hafa komið
viö Huppu því hún mjólkaði ríf-
lega 6000 lítra í fyrra og er það
vel yfir meðallagi. KK
tveggja hæða nema tveir tumar
sem eru þriggja hæóa. í hverju
húsi eru 2-4 íbúðir sem allar hafa
sér inngang.
Hverfið er byggt upp kringum
fjórar vistgötur og við hverja vist-
götu eru íbúðir af öllum stærðum.
Þess vegna, segir í mati dómnefnd-
ar, er auðveit að byggja hvern
áfanga, hús við eina vistgötu, fyrir
sig en bjóða jafnframt upp á allar
stærðir af íbúðum. í tillögunni seg-
ir að vistgötur séu vel til þess falln-
ar að skapa góða stemmningu í
hverfinu. I þeim verða hraðahindr-
anir og út frá götunni bílastæói
sem eru aðskilin meö gróóri. I til-
lögunni segir að bílastæðin séu ná-
lægt útidyrum viðkomandi íbúóar
og því losni íbúamir við langar
göngur með smáböm og innkaupa-
ef ríkisstjórnin hvött til þess að
beita sér fyrir því að haldin verði
á vettvangi Sameinuðu þjóð-
anna ný ráðstefna um Sval-
barða. Til ráðstefnunnar verði
kallaðir fulltrúar þeirra 42
þjóða, sem aðild eiga að Sval-
barðasamkomulaginu til að
ræða framtíðarskipan mála
varðandi Svalbarða, svo sem
hvort Norðmönnum verði áfram
falið að hafa umsjón með Sval-
barða.
Fiskifélagið álítur að löngu sé
orðió tímabært aö Svalbaróasam-
komulagið, sem gert var 1920,
verði tekið til gagngerðar end-
urskoóunar og óþolandi að sá
sameigendanna, þ.e. Noregur, sem
falin var umsjón Svalbarða fyrir
hönd sameigendanna, skuli hafa
slegið eign sinni á Svalbarða.
Hafa Norðmenn ráðstafað veiði-
heimildum við Svalbarða sem
sinni einkaeign og beitt skotvopn-
um ef því er aó skipta gagnavart
skipum sem farið hafa inn fyrir
lögsögu Svalbarða. Þá hafi legið
við eigna- og manntjóni, þegar
norskir varðskipsmenn hafa farið
offari í störfum.
I lok ályktunarinnar segir að
fyrir löngu sé fullljóst orðið aó
Norðmenn hafa engan áhuga á að
ræða vió sameigendur sína að
Svalbarða um málefni eyjanna. Af
þeim sökum verði frumkvæðið að
koma frá öðrum. GG
poka. Hvert hús hefur sína afmörk-
uðu lóð og möguleiki er á því að
hver íbúð hafi sinn eigin afmark-
aða gróðurreit. Milli húsaþyrping-
anna eru græn svæði. Þar eru leik-
svæði, göngustígar og svæði til
ræktunar. Samkvæmt tillögunni
þurfa íbúar hverfisins ekki aó fara
yfir götu til að sækja skóla, leik-
„Það er ótti í mönnum því þeir
vita ekki hvað tekur við ef
grunnskólinn verður fluttur yfir
til sveitarfélaganna. Það eru
margir linútar óhnýttir og óljóst
hvað tekur við. Því eru menn
kvíðnir og eru jafnvel að mynda
sér túlkanir á þessum tillögum,
en í raun hafa þær verið illa
kynntar af þeim sem leggja þær
fram og menn því að geta sér til
og búa til skilgreiningar sem
ekki eiga við. Það er ekki óeðli-
legt að menn séu kvíðnir meðan
þetta er ekki á hreinu en stefnt
en að þessum flutningi 1. ágúst
1995. Menn eru að falla á tíma
skóla eða hverfisverslunina.
Allar íbúðirnar nema fjórar hafa
þrjár eða fjórar gluggahliðar. Þær
eru því að mati dómnefndar bjart-
ar, enda gluggar í öllum vistarver-
um. Sér þvottahús og geymsla er í
öllum íbúðunum. I tillögunni er
skýrt frá því að reynt sé aó koma í
veg fyrir aö ónæði skapist af ná-
ef það á að ganga eftir. Um ára-
mót þarf að vera búið að segja
upp kennurum og starfsfólki og
auglýsa eftir nýjum mönnum og
semja um kjör þeirra. Menn eru
með ákveðinn uppsagnarfrest
hjá ríkinu, nýr vinnuveitandi á
að taka við og ég veit ekki hvort
ríkið er tilbúið til að greiða ein-
hverjar milljónir í biðlaun,“
sagði Sveinbjörn M. Njálsson,
aðstoðarskólastjóri Dalvíkur-
skóla, en hann var kjörinn for-
maður BKNE á aðalfundi fé-
lagsins að Laugum sl. mánudag.
Aðrir í stjórn voru kjörnir:
Brynhildur Þráinsdóttir, Hafra-
grönnum til dæmis með því að
hafa engar svalir eða verandir sam-
liggjandi og með því að komast hjá
því að láta íveruherbergi liggja
saman við skilvegg milli íbúóa,
sameign er í lágmarki. Myndir
segja meira en mörg orð og er því
vísað til meðfylgjandi teikninga.
lækjarskóla, varaformaóur, Tómas
Lárus Vilbergsson, Glerárskóla,
Rósa Dóra Helgadóttir, Gagn-
fræðaskóla Akureyrar og Mann-
freð Lemke, Stórutjarnaskóla,
meðstjómendur.
„Það uröu miklar umræóur á
fundinum og einsýnt að það verð-
ur að halda sérstakt málþing um
það sem brennur á mönnum. Það
var mikið rætt um tillögu um nýja
menntastefnu og anda hennar.
Vísað var frá tillögu stjórnar um
að fagna lengingu á árlegum
starfstíma grunnskólas. Efnislega
voru fundarmenn þó sammála til-
lögunni, ef tími sem myndaðist
við lengingu yrði notaður til þess
sem við höfum ekki getaó sinnt
nægilega vel, t.d. umhverfis-
fræðslu og náttúrufræðslu, en ekki
til að taka við boxi úr framhalds-
skólanum,“ sagði Sveinbjörn.
Á fundinum var samþykkt
ítrekun á samþykkt fulltrúaþings
KÍ m.a. um kröfu á aó stjórnvöld
geri sér grein fyrir því hvernig þau
ætla að tryggja jafnrétti til náms
og nám vió hæfi hvers og eins ef
allur kostnaður af rekstri grunn-
skólans verði fluttur til sveitarfé-
laganna.
Einnig tók fundurinn heilshug-
ar undir kjaramálaályktun fulltrúa-
þings KÍ, en áréttaði enn fremur
að tafarlaust þyrfti að ganga til
samninga við kennara um breyttan
vinnutíma og hærri grunnlaun.
Verði ekki raunhæfar samninga-
vióræður komnar á innan mánaðar
verði efnt til vinnustaðafunda í
skólum landsins.
Aðalfundurinn fagnaði tilkomu
náms í uppeldis- og kennslufræð-
um við Háskólann á Akureyri og
fundurinn hvetur KI og stjóm
BKNE að auka kynningu á stéttar-
félaginu. IM
Húsið Þórshamar fíutt
Hjónin Aðalgeir Egilsson og Elísabet Bjamadóttir, Mánárbakka á Tjömesi,
keyptu nýlega til brottflutnings Þórshamar, gamalt timburhús aó Skálabrekku 21
á Húsavík. Húsið hefur nú verið flutt að íbúðarhúsinu á Mánárbakka og hafa
hjónin hug á að nýta það fyrir safn, en þau em latidskunnir safnarar og eiga
nokkur skemmtileg söfn af ýmsu tagi. Fyrirferóarmest er byggðasafn sem Elísa-
bet hefur komið haganlega fyrir í kjallara íbúðarhússins, en nú er orðið mjög
þröngt á því. Kristbjöm Oskarsson tók þessa mynd er Þórshamri var lyft af
gmnni sínum fyrir flutninginn á Tjömesið. IM
Haldin verði ráð-
stefna um Svalbarða
KLJ
Aðalfundur BKNE:
„Menn eru að falla á tíma“
- segir Sveinbjörn M. Njálsson, nýkjörinn formaður BKNE,
um flutning grunnskólans til sveitarfélaganna