Dagur - 10.09.1994, Síða 4
DAGUR - Laugardagur 10. september 1994
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI,
SÍMI: 96-24222 • SÍMFAX: 96-27639
ÁSKRIFT M. VSK. KR. 1400 Á MÁNUÐI • LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
GRUNNVERÐ DÁLKSENTIMETRA 765 KR.
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN: GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavlk vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON,(íþróttir),
LJÓSMYNDARI: ROBYN ANNE REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
Vakandi á götunum
Grunnskólarnir í þéttbýlisstöðum landsins
eru nú sem óðast að hefjast, ærsl og störf
barnanna í sumar að baki. Við tekur dimmt
og drungalegt skammdegið þar sem börnin
þurfa oft á tíðum að takast á við válynd
veður og hættulega bílaumferð. í tilefni
þess að fjöldamörg börn eru nú að fara í
fyrsta skipti í skólann blés Umferðarráð sér-
staklega í lúðra í vikunni til að brýna fyrir
ökumönnum að taka tillit til þeirra á götun-
um.
„Það læra börnin sem fyrir þeim er haft,“
segir á góðum stað og í umferðinni gildir sú
regla ekkert síður. Tillitssamir og varfærnir
ökumenn geta verið góðir kennarar fyrir
þessa ungu vegfarendur því á þessum aldri
eru þau að læra allan sólarhringinn, ekki að-
eins þær klukkustundir sem setið er á
skólabekk. Að sama skapi vaknar athygli
þeirra strax þegar þau hafa fyrir augunum
svörtu sauðina í umferðinni. Þessir svörtu
sauðir brengla þær undirstöðureglur í um-
ferðinni sem börnunum hafa verið kenndar
áður en þau leggja af stað í fyrstu skóla-
ferðina, ein síns liðs.
í raun og sanni ætti ekki að þurfa að
minna ökumenn á að taka tillit til
skólabarnanna þegar þau koma út á göt-
urnar á haustin. Sú hugsun á alltaf að vera
efst í huga ökumanna að þeir fara með
mikla ábyrgð og geta valdið óbætanlegum
hörmungum og tjóni með gáleysislegu
háttalagi í umferðinni. Umferð gangandi
fólks, barna og fullorðinna, og ökutækja
getur vel farið saman þegar varúðin er höfð
í fyrirrúmi. Sífellt þarf að minna okkur sem
setjumst undir stýri á þessar ökumanns-
reglur og því er starf Umferðarráðs nauð-
synlegt og árangursríkt þó erfitt sé að setja
mælistiku á þann árangur. Verum vakandi á
götunum.
TÓNLIST
I UPPAHALDI
Tómas og Ingunn taka upp plötu
- í nýju hljóðveri Kristjáns Edelstein á Akureyri
Ingunn Gylfadóttir, Tómas Hermannsson og Kristján Gdclstcin (sitjandi) í
nýju hljóðvcri þcss síðastnefnda. Mynd: GT
Tómas Hermannsson og Ingunn
Gylfadóttir, sem vöktu fyrst at-
hygli í Eurovision-keppni Sjón-
varpsins 1993, eru þessa dagana
að taka upp hljómplötu sem á
að koma út fyrir næstu jól. Plat-
an er tekin upp í nýju hijóðveri í
eigu tónlistarmannsins Krist-
jáns Edelstein á Akureyri.
Tómas og Ingunn sendu tvö lög
í fyrrnefnda Eurovision-keppni og
komust þau þæði í úrslit. Lögin,
sem hétu „Ég bý hér enn“ og
„Brenndar brýr,“ náðu vinsældum
og voru mikið leikin í útvarpi í
kjölfarið.
Tíu af lögunum, sem nú er ver-
ið að taka upp, eru eftir Tómas og
Ingunni og tvö eftir Kristján Edel-
stein. Hann sér jafnframt um út-
setningar og upptökustjórn en
samstarf þeirra þriggja hófst með
Iögunum tveimur í Eurovision.
Ingunn samdi að auki einn texta
en aðrir textahöfundar eru Þor-
valdur Þorsteinsson, Sjón, Ingólf-
ur Steinsson, Oddur Bjarni Þor-
kelsson og Sverrir Páll Erlends-
son.
„Ég veit ekki hvað maóur á að
segja. Þetta er í rólegri kantinum,
ekki mikið um sumarsmelli,"
sagði Ingunn, aðspuró um tónlist-
ina á plötunni. „Þetta eru persónu-
leg lög, öll samin eftir miðnætti,"
bætti Tómas við.
Tómas og Ingunn eru 23 og 25
ára, hann frá Akureyri og hún frá
Reykjavík. Þau kynntust fyrir
tveimur árum og fóru fljótlega að
semja saman lög. „Það hefur verið
draumurinn aó gefa út plötu og
svo veróur að koma í ljós hvort
einhver nennir aó hlusta. Það er
óþolandi aó láta lögin safnast upp
og geta ekkert gert við þau. Ing-
unn var ekki alveg til í þetta í
byrjun en mér tókst að tala hana
til á endanum," segir Tómas.
Þegar hefur veriö rætt vió einn
útgefanda en allt eins gæti farið
svo að Tómas og Ingunn gæfu
plötuna út sjálf. Því fylgir umtals-
verð fjárhagsleg áhætta en þau eru
til í slaginn. „Við kaupum þá ekki
íbúð alveg á næstunni en í staóinn
verður Tommi kannski til friðs í
smátíma,“ sagði Ingunn. „Ef við
förum illa út úr þessu getur maóur
huggað sig við að það var út af
þessu en ekki einhverju öðru. En
auðvitað vonum við að einhverjir
hafi áhuga á aó kaupa plötuna,"
sagði Tómas.
Upptökur eru nýlega hafnar.
Búið er að taka upp svokallaða
grunna að öllum lögunum og
söngur Ingunnar er langt kominn.
Það eru engir aukvisar sem leggja
þeim skötuhjúum iiö við hljóð-
færaleikinn, Kristján leikur sjálfur
á gítar og hljómborð og félagar
hans úr hljómsveitinni Alvörunni,
Jóhann Asmundsson og Sigfús
Ottarsson, á bassa og trommur. Þá
mun Einar Pálsson leika á hom og
trompett.
Góður grundvöllur fyrir
hljóðveri á Akureyri
Plata Tómasar og Ingunnar er
fyrsta verkefnió í nýju hljóðveri
Kristjáns Edelstein. Þaó er 16
rása, stafrænt (digital), og verður á
heimili hans til að byrja með en
síðar er ætlunin aó færa út kvíarn-
ar.
„Þetta er vissulega dýrt en ég
held aö það sé engin óþarfa bjart-
sýni að ráöast í þetta,“ segir Krist-
ján. „Þaó hefur ekkert stúdíó verið
hér í bænum um tíma en þær fyrir-
spurnir sem ég hef þegar fengið
og sá fjöldi tónlistarmanna sem
hér er starfandi benda til að góður
grundvöllur sé fyrir þessu. Norð-
lenskir tónlistarmenn flykkjast í
stórum stíl til Reykjavíkur að taka
upp og því lýlgir bæði fyrirhöfn
og mikill kostnaður. Ég held að
menn taki því almennt fagnandi
að losna vió þau ferðalög.“
Kristján hefur að undanfömu
reynt að afla fjármagns til
áframhaldandi uppbyggingar og
bíður m.a. svara frá opinberum
aóilum. „Ég vona bara aó þau
verði jákvæð. Þörfin fyrir þessa
þjónustu er tvímælalaust fyrir
hendi og ég sé enga ástæóu til að
menn kaupi hana sífellt í Reykja-
vík,“ sagði Kristján Edelstein.
JHB