Dagur - 10.09.1994, Síða 15
UTAN LANDSTEINANNA
Laugardagur 10. september 1994 - DAGUR - 15
UMSJÓN: SÆVAR HREJÐARSSON
Sylvcstcr Stallone var fljótur að fá lcið á Sharon
Stone.
HARON STONS og SYLYESTER STALLONE leiða saman hesta sína í
myndinni The Specialist og þar fá líkamsburóir beggja aó njóta sín
til hins ýtrasta. Samkvæmt fréttum af myndinni þá eru þau langtím-
um saman í ástarleikjum og taka létta sveiflu í sturtunni, á gólfinu, í
rúminu og jafnvel neóansjávar. í myndinni leikur Sharon dömu sem
ræóur leigumoröingja til aó útmá mafíu, sem áöur hafói myrt fjöl-
skyldu hennar. Sly leikur moröingjann og ef marka má fréttir af viss-
um atriðum í myndinni þá fær hann ríkulega borgaö fyrir ómakió.
Sjálfur vill hann ekki gera mikió úr ástarsenunum. „Þetta er eins og
meó uppáhalds matinn. Fyrstu þrjú, fjögur skiptin er hann frábær.
Eftir það líður manni illa og þaó er hreinasta martröó.“
O.J. Simpson hefur bæst óvæntur liðsauki.
mmm
g hef tekið Guð inn í líf mitt og er í hans höndum. Nú er réttað
yfir lífi mínu og ég hef HANN við hlið mér.“ O.J. SIMPSON
segist vera „frelsaður“ í fangelsi og það hefur hjálpað honum
að komast yfir þunglyndið, sem ógnaði lífi hans um hríð.
Hann trúir því statt og stöðugt að hann muni verða sýknaður af
ákærum um morðið á fyrrverandi eiginkonu sinni og elskhuga
hennar. Þessa dagana heldur O.J. á biblíu hvert sem hann fer
nema í réttarsalinn þar sem honum er það óheimilt. Samkvæmt
nýjustu heimildum úr fangelsinu er O.J. sem allt annar maóur
síðan hann fékk Guð í lið með sér. Hann var niðurbrotinn
maður fyrst eftir að honum var stungið í steininn en eftir aö
hann fann að frelsarinn var genginn í lið með honum hefur
hann fengið lífsviljann á ný.
ríírúö
teupsniittin
kautakonan umdeilda
TOMYA HARDING
hefur verið að reyna
fyrir sér í kvikmynda-
leik að undanförnu en
hún fékk heldur óþægi-
legan forsmekk af
þeirri starfsgrein fyrir
skömmu. I nýjasta
tölublaði mánaóar-
ritsins Penthouse var
8 síðna myndasyrpa
af henni og fyrrum
eiginmanni hennar, Jeff
Gillooly, í eldheitum ást-
arleik á brúðkaupsnóttinni.
Myndir þessar voru teknar af
myndbandsspólu sem þau tóku
Tonya Harding þykir skara framúr
í rúminu.
af sjálfum sér í rúminu og Gillooly
seldi blaðinu til birtingar. Harding er
sögö mjög miður sín yfir birtingu
myndanna og hyggur á skaðabótamál.
Talsmenn blaðsins segja að frammi-
staða hennar í rúminu sé ekki síðri en
á skautasvellinu og hefði sennilega
dugað til gullverðlauna á Olympíu-
leikunum.
Verður Gcena Davis draugur í
næstu mynd?
yndin Thelma And Lou-
ise naut mikilla vinsælda
ásínumtímaogfram-
leiðendur myndarinnar
stórgræddu á gerð mynd-
arinnar. Þær GEENA
DAYIS og SUSAN SAXAN-
DON vöktu mikla athygli
sem tvær léttruglaðar
húsmæður á flótta undan
laganna vörðum. Nú
vilja framleiðendur
myndarinnar gera fram-
haldsmynd um þær stöll-
uroghafaboðiðþeim
háar fjárhæðir fyrir að
leika saman á ný. Þetta
boð kom nokkuð flatt
upp á Davis og Sarandon
þar sem persónur þeina
frömdu sjálfsmorð í lok
fyrri myndarinnar en
framleiðendumir deyja
ekki ráðalausir og segja
að þær geti snúið aftur
sem draugar í framhalds-
myndinni.
Madonna cr ckki óvön því að fækka fötum.
Fórnaði
likammum
Elle MacPhcrson var ckki Icngi að vinna af sér aukakílóin.
Cfurfyrirsætan ELLE MAC-
PHERSON, sem oftast gengur
i undir nafninu „líkaminn",
| fómaði hinu fullkomna vaxt-
1 arlagi fyrir kvikmyndina
■ Sirens og bætti á sig tæpum
1 10 kílóum. Þetta gerði hún
1 til þess aó hún væri ekki
1 „of fullkomin“ þegar hún
lék í myndinni. Hún var
1 þó ekki lengi að ná kíló-
I unum af sér aftur eftir aö
1 tökum lauk og
I þykir jafnvel fallegri en
I áóur. „Ég var ekki eins
I kynæsandi og fötin pöss-
1 uöu ekki á mig en mér
jf fannst ekkert rangt viö að
m vera of þung. Ég fór aftur í
■ líkamsrækt og fór á prótín-
í ríkan megrunarkúr og allt í
' einu birtist þessi lögulegi
líkami,“ segir Elle hæstánægó
með árangurinn.
adonna mun fá um 300 milljónir fyrir að leika fatafellu í
væntanlegri mynd sem ber nafnið Showgirls. Þessi 35 ára
söng- og leikkona mun leika eina af þremur dansmeyjum
sem vinna fyrir sér á sóóalegri næturbúllu en þær dreym-
ir um að slá í gegn í Hollywood. MADOMMA hefur heim-
sótt nokkrar striplbúllur í New York og Florida aö und-
anfömu til að kanna tilburði stúlkna í þessum geira en
maður hefði haldið að hún væri öllu vön í þessum efnum.
Hún er sögð hlakka mikið til að fást við þetta verkefni og
kvíðir því ekki að fækka fötum. Myndin mun kosta um
2,5 milljarða í framleiðslu og handrit hennar skrifar Joe
Eszterhas^ sem einnig gladdi bíógesti með margbrotnu
handriti á Basic Instinct.
FÆKKARFÖTUM