Dagur - 15.10.1994, Side 7
Laugardagur 15. október 1994 - DAGUR - 7
'B
ákveöinn lokapunktur á tiltekinni
hugmyndavinnu, sem þó endar í
raun aldrei, það verða engin enda-
lok. Svo er mikilvægt fyrir mynd-
listarmann að fá áreiti á verk sín,
viðbrögð frá þeim sem sækja sýn-
inguna og sum verk kristallast ekki
fyrr en þau eru sett fram fyrir
fólk.“
- Er það þannig með sýninguna
þína í Listasafninu hér?
„Vissar hugmyndir, sá hluti sem
eru hugmyndir urn almennings-
garða, eru þess eðlis að í þeim er
viss ögrun gagnvart málverkinu.
Eg stilli upp módeli annarsveg-
ar og málverki hinsvegar af svip-
aðri fyrirmynd. Þar með er ég að
reyna aó fá sýningargesti til að
horfa á málverkið bókstaflega í
tengslum við módelið, sem frum-
vinnu að einhverju sem á þess
vegna að gera í raunveruleikanum.
Garði sem verói gerður. Þá er ég
að tengja málverk vissu notagildi
sem í raun hefur verið ýtt til hliðar
segi að hugmyndin sé það sem
skiptir öllu er auóvitað nauðsynlegt
að ráða yfir ákveðinni tækni til aó
framkvæma það sem hugmyndin
bióur um.“
- Snúast málverkin þín þá um
hugmyndir?
„Hver myndlistarmaður setur
sig í visst samhengi innan mynd-
listarinnar, sögunnar og umræð-
unnar um listina. Þetta samhengi er
það sem setur kröfur á mig um að
hugsa verkin mín út frá ákveðinni
hugmynd. Þessi verk sem ég sýni
nú sýna vissa hluti eða fyrirmyndir
en þær eru valdar hugmyndarinnar
vegna til að túlka hana. Það væri
auðvitað hægt að snúa þessu við aö
mála hluti, fyrirmyndir, fyrirmynd-
anna vegna. Eg gæti málað eitt-
hvað allt annað en almennings-
garða en garóar eru val mitt, í
þessu tilfelli, til að setja fram
ákveðna hugmynd um málverk.“
- Almenningsgarður?
„Garður er lokaður heimur, eins
mJGMYND
frá hugmyndum um málverk, líkt
og sú fullyrðing að málverk megi
ekki vera skreytilist.
Hugmyndir, eins og þessi, krefj-
ast þess að þær séu settar fram. I
raun er ég að segja að málverk séu
ekki eitthvað sem byggir á raun-
veruleikanum heldur geti raun-
veruleikinn byggt á málverki. Að
málverk sé upphafið. Eg er að fara
í núllpunktinn aftur, upphafið."
- Eru málverkin þín einföld?
„Málverk eru yfirleitt mjög ein-
föld, það eru hugmyndimar sem
eru flóknar í málverkum. Enda er
það sem sést á yfirborói málverks
ekki það sem málið snýst um held-
ur allt það sem sést ekki. Eg vil
hafa málverkió mjög einfalt til aó
koma á framfæri hugmyndunum
sem að baki búa.
Eg hef ekki áhuga á að mál-
verkið sem slíkt, snúist um hand-
bragðið, pensilför eða einhverja þá
hluti sem draga athyglina frá hug-
myndinni sem verkið sýnir. Pens-
ilför og þess háttar sýna miklu
frekar tilfinningar málarans. I mín-
um huga kemur það málverkinu
ekki við, ég er ekki að koma sjálf-
um mér eða tilfinningalífi mínu á
framfæri í málverkum mínum.
Verk mín eru eðlilega í sífelldri
þróun frá stund til stundar, bæði
hvað varðar hugmyndir og tækni
eða handbragð. Þrátt fyrir að ég
og málverkið, lokaó kerfi innan
ákveðins ramma eða girðingar. Tré
eru fyrirmyndir sem allir þekkja og
eru einfaldar. Auk þess er garöur
sem mjög félagsfræðilegt fyrirbæri
og mikil umræða hefur átt sér stað
um garða eða græna reiti í okkar
þjóðfélagi. Þetta er samt ekki
pólitík.“
- En hinn hluti sýningarinnar,
þar sem þú fæst við málverkið án
almenningsgarðanna, hvað er vió-
fangsefnið þar?
„I þeim myndum er ég að fást
við klassíska sýn á málverkió, upp-
byggingin er öll út frá hefðbundn-
um hugmyndum um forgrunn,
miðgrunn, bakgrunn og svo fyrir-
myndina. Einskonar leikur með
þessi „grunnelement“ málverks-
ins.“
- Snýst málverkið um fyrir-
myndina?
„Nei, fyrirmyndirnar mínar eru
að túlka hugmynd ég er ekki að
túlka fyrirmyndir. Það er auðvitað
til í dæminu að túlka fyrirmyndir,
hluti eða upplifun mcó myndlist.
Eg gæti farið upp í Lystigarð og
málað margar fallega myndir en
það er einfaldlega ekki það sem ég
cr að fást við núna. Mér finnst þaó
ekki eins áhugavert eins og að l'ást
almennt við hugmyndina um mál-
verk og þá er engin tegund mál-
verks undanskilin.“ KLJ
„Það er
þessi opna
hugsun"
Sigurður Árni er um þessar mundir gestakennari
í Myndlistaskólanum á Akureyri.
Hvað leggur hann áherslu á við nemendur sína£
,/Átt titils"/„Untitled"
olía á striga
150x150cm 1994
Hitaveiturörin voru soðin saman í 20-25 m lcngjur og síðan borin á sinn stað. Á innfelidu myndinni cr Tryggvi Aðal-
björnsson að sjóða í miklum móð, ásamt Herði Harðarsyni.
snyrtihúsi Ferðafélagsins. Voru þar
að stærstum hluta á ferð vélsleða-
menn úr Eyjafirði en einnig menn
frá Ferðafélaginu. Lögð var um
400 m einangruð hitaveituleiðsla
úr svokallaðri Þórunnarlaug sem er
í norðvestur frá húsunum.
Þórunnarlaug er varla meira en
hola ofan í móhelluklöpp, um 2 m
á lengd og passleg fyrir einn mann
til aó liggja þar og láta fljóta yfir
sig. Sumir hafa talið að laugin sé
náttúruundur en fleiri hallast aó því
að hún sé gerð af mannahöndum
og bendir allt útlit hennar til þess. I
lauginni bullar upp 40-50 gráðu
heitt vatn í miklum mæli.
1 hinu merka riti, Landið þitt Is-
land, eftir Þorstein Jósepsson,
Steindór Steindórsson og Pál Lín-
dal, segir svo um Þórunnarlaug:
„Þjóðsögn er um það að Þórunn
á Grund [í Eyjafjarðarsveit] hafi
dvalist með fólki sínu við Lauga-
fell á meðan svartidauði gekk yfir
og hafi hún látið klappa laugarker-
ið í klöppina. Sá galli er á þessari
sögu að Þórunn fæddist fullri öld
eftir að svartidauði geisaði. Hins
vegar bendir hún til þess aó Grund-
armenn hafi talió sér land inn að
[Hofs]jökli. Önnur sögn nefnir
þessa húsfreyju Þórunni ríku á
Möðruvöllum en naumast munu
vera til heimildir um hana.“ I bók-
inni segir einnig að leifar fornra
mannvirkja hafi fundist á bakka
Laugarkvíslar við Laugafell sem
fom munnmæli telja frá áður-
nefndri Þórunni.
„í málverkum Sigurðar
Árna eru dularfull
tengsl milli þess sem
virðist vera og hins
sem birtist skyndilega.
Verk hans eru á stöð-
ugri ferð um þessi svið
myndhugsunar. Við
erum stödd hér í ríki
drauga og uppvakn-
inga. Hvert einasta
hlutlægt atriði er skilj-
anlegt og óskiljanlegt í
senn; stundum má
greina formið en ekki
merkingu þess, stund-
um er þetta á hinn
veginn. Við fyrstu sýn
virðast þessi málverk
afar kyrrstæð og stað-
föst en samt reynast
þau við nánari athug-
um tvísýn og efa-
blandin."
Bernard Marcade.
„Ég veit ekki hvernig á að kenna
myndlist og er hreinlega ekki viss um
að það sé hægt. Það er hægt að fara í
vélskóla og stýrimannaskóla og verða
ágætur skipstjóri en það kennir eng-
inn skipstjóra að verða fengsæll, það
lærir hann af sjálfum sér. Þannig er
það líka með myndlistarmanninn.
Það er hægt að kenna vissa tækni sem
er nauðsynleg og myndlistin er alltaf í
einhverskonar samtali við listasöguna
en það er bara brot af því sem mynd-
list snýst um, án þess að ég sé að gera
lítið úr tækninni. Ég held að margir
sem eru í myndlistarnámi séu með
ákveðnar hugmyndir um það hvað
það er að vera myndlistarmaður. Ég
get bent nemendum á að fyrirmyndir
eru ekki til í myndlist. Það sem þarf
er opin og frjó hugsun. Mér finnst
það mikið atriði fyrir framtíðina að
einhverjir af þeim sem eru menntaðir
sjónrænt geti unnið algjörlega
óbundnir. Arkitektar og Iandslags-
arkitektar eru menntaðir sjónrænt en
verða alltaf að taka tillit til einhverra
kvaða. Myndlistarmenn eru þeir fáu
sem í framtíðinni verða óbundnir við
sína sjónrænu sköpun og ég held að
það sér mjög mikiívægt fýrir vissa
þróun. En til þess að það verði meira
en naflaskoðun myndlistarmannsins
sjálfs verður þessi opna hugsun að
vera til staðar."
Ber stærri hópa
Segja má að hitaveituframkvæmd-
irnar hafi gengið vonum framar.
Rörin voru soðin saman í 20-25 m
lengjur við Hjörvarsskála og síðan
borin á sinn stað. Einnig var grafið
fyrir nýrri rotþró og lagt að henni
frá snyrtihúsinu. Reiknað er með
að hægt verói taka húsið í notkun
strax á næsta ári, í það minnsta að
hluta, að sögn Sigurðar Jónssonar,
formanns Feróafélags Akureyrar.
Til þessa hefur aðeins eitt vatns-
salerni vcrið í Laugafelli en meó
fjölgun þeirra batnar aðstaðan
mjög, ekki síst fyrir stærri hópa.
Staðurinn mun við þessar fram-
kvæmdir bera stærri hópa ferða-
fólks en áður og einnig sagði Sig-
urður nrenn gera sér vonir um að
vegurinn í Laugafell af Sprengi-
sandsleið við Fjórðungsöldu verði
bættur.
Þeir sem leið eiga unr Sprengi-
sand muni því kannski sækja
Laugafell heinr í meira mæli, jafn-
vel í stað þess að gista í Nýjadal,
og er heita vatnið, bæði í sundlaug-
inni og húsunum, mikið aðdráttar-
afl í því sambandi. HA