Dagur - 22.10.1994, Page 7

Dagur - 22.10.1994, Page 7
Vi en það var mikill misbrestur á því og það tafði auðvitað fyrir náminu þegar þau áttu að fara að lesa námsbækur. Eg kenndi fyrsta veturinn á Ar- skógsströnd en síðan á Dalvík og á bæjum hér í Svarfaðardal. Þá var farskóli á Dalvík sem stóð í sex mánuði. Hann lá niðri í einn mán- uð á vetri og þann mánuð kenndi ég í Svarfaðardal, ýmist á Auðnum eöa Urðum. En Þórarinn á Tjörn, sem kenndi mjög lengi hér í Þing- húsinu í Svarfaðardal, fór svo ann- an mánuð á þessa bæi og kenndi. Seinna voru svo fengnir sérstakir kennarar í dalinn. Ég var eini kennarinn í skóianum á Dalvík og kenndi allar greinar. Seinna hafði ég þó hjálparkennara. I skólanum var tveimur árgöngum kcnnt sam- an og bömin komu í skólann annan hvern dag. Ég er ekkert hrifinn af því, sem er verið að tala um nú, að lengja skólaárið. Að minnsta kosti á það ekki við í sveitunum. Lengra skólaár kemur einfaldlega í veg fyrir að bömin læri að vinna.“ Fátæktin „Ég fylgdist svo með því hvernig krökkunum sem ég kenndi vegnaði og hafði mjög gaman af því. Verst var að margir ágætlega góðir námsmenn höfðu ekki efni á því að fara í skóla, efnahagurinn var mis- jafn þá ekki síður en nú. Þeir voru fáir bændumir sem voru reglulega vel stæðir. Fjöldinn allur var bláfá- tækur á þessum fyrstu áratugum aldarinnar. Það urðu margir að leita til hrepps og þá var tekinn af þeim kosningarétturinn, ef þeir skulduðu hreppnum. Þannig var þaó nú í þá daga.“ Helgi er kominn á hundraðasta aldursár. Hann hefur aðeins einu sinni lent á sjúkrahúsi. Var skorinn upp við botnlangabólgu. Hann gengur um úti við, les, horfir á sjónvarp og fylgist með því sem er að gerast bæði innan sveitar og utan. Hverju þakkar hann þessa góðu heilsu? „Ég hef líklega verið svona vel gerður í byrj- un og má þakka guði fyrir það. Én ég tel að það sé einkum þrennt sem hefur stuðlað að því hvað ég hef haldið góðri heilsu. Það er í fyrsta lagi hreyfingin, í öðru lagi að lifa heil- brigðu lífi, nota hvorki áfengi né tóbak, og í þriðja lagi og ekki síst það sem ég kalla jafn- vægi hugans. Að eiga andlega ró og láta hvorki sorg né gleði ná tökum á sér heldur gæta jafnvægis og halda sínu striki." „Einstaklingurinn get- ur gert ýmislegt til að bæta og fegra lífið en hann gerir það ekki með því að vera sí- kvartandi og kvein- andi." ég væri fluttur í Þverá. Ég hljóp á milli en ég hafði herbergi á Dalvík og gisti oftast þar á virkum dögum en ég var ekki lengi að hlaupa á milli. Mér var létt um að hlaupa. Ekki man ég hvað ég þurfti langan tíma til að fara á milli en ég var fljótur. Ég hætti að kenna þrettán árum eftir að ég flutti í Þverá vegna þess að þá var svo erfitt að fá fólk til Þverá í Svarfaðardal. Bóndi á Þverá „Fyrstu árin sem ég var við kennslu bjó ég á Völlum en árið 1930 flutti ég hingað að Þverá með konu minni. Ég var með bú sam- hliða kennslunni bæði á Völlum og hér á Þverá og hef alltal' haft nóg að gera. Maóur hefur alltaf haft nóg aó gera ef maður hefur viljað þaö, nennt því. Ég var nteð eina kú og 20-30 ær á Völlum. Arið 1930 kcypti ég Þverá. Ég átti ekki grænan eyri en jörðin kostaði sex þúsund. Ég varð að fá kaupverðið allt lánað hjá spari- sjóðnum og seljandanum. Eftir að ég kom í Þverá hafói ég strax nokkrar kýr og fleiri kindúr en áð- ur, hér var líka hluti af túninu býsna sléttur.“ Hljóp milli staða og starfa „Ég hélt áfram kennslu á Dalvík þó landbúnaðarvinnu. Þá var ekkert atvinnuleysi eins og nú er. Ég hætti í raun kennslunni sárnauðugur.“ / A kaupfélagsfundum í fímmtíu ár „Einu sinni var ég á leiðinni á fund á Akureyri, þaó var Byggingarfé- lagsfundur sem var á vegum Kaup- félagsins. Þegar ég kom til Dalvík- ur var báturinn sem ég átti far með farinn. Morguninn eftir lagði ég af stað fótgangandi og var kominn nógu snemma á fundinn. Mér var létt um að hlaupa. Ég sótti ansi marga fundi til Ak- ureyrar. Hér voru tvær Kaupfélags- deildir, önnur hér í dalnum og hin á Dalvík. Ég var deildarstjóri Svarfdæladeildar í nrörg ár, allt of lengi sjálfsagt, og sat þá Kaupfé- lagsfundi. Þeir eru nú orðnir marg- ir aðalfundir KEA sem ég hef set- Texti: Kristín Linda Jónsdóttir ið. Ætli ég hafi ekki farið fyrst upp úr 1930-1940 og ég fór síðast í hittifyrra. Ég hef líklega sótt flesta fundi í um fimmtíu ár.“ Að koma mjólkinni í verð „Þú spyró mig hver hafi verið helstu baráttumál okkar bændanna hér í Svarfaðardal þegar ég var að hefja búskap á Þverá. Það var nú æði margt. Það var náttúrulega að koma mjólkinni inneftir, það var mikið baráttumál. Að koma mjólk- inni í sölu á Akureyri en þaó var aldrei mjólkursamlag á Dalvík. Það var svo árið 1934 sem mjólkurflutningar hófust til Akur- eyrar. Til að byrja með var mjólkin aðeins flutt inneftir á surnrin éftir vegarslóöanum á bíl en svo allt ár- ió um kring. Mjólkin var ílutt með bát á vetuma ef landleiðin brást vegna ófærðar. Þetta voru oft erfið- ar feróir, mikilar svaðilfarir sem tóku langan tíma. En þctta skipti sköpum fyrir bændurna héma í dalnum, þá fóru þeir að fá reglu- legar tekjur af mjólkurinnlegginu. Landið hér í Svarfaðardal er líka betur fallið til kúabúskapar en sauðfjárræktar, dalurinn er svo grasgefmn. Svo var líka rnikið baráttumál að fá sláturhús á Dalvík en það var komið fyrir mína kaupfélagstíð.“ Þá komu dráttavélarnar í dalinn „Á vegum Búnaðarfélagsins var unnió aó því að fá dráttavélar í dal- inn. Hingað kom fyrsta vélin sem kölluð var Surtur árið 1931. Þetta var lítil og létt vél, sem var einkum notuð til jarðvinnslu, til að slétta túnin. Við komu vélarinnar tók jarðræktin mestu framförunum frá upphafí hér í dalnum. Seinna var keypt önnur miklu stærri vél, lík- lega var þaö árið 1949. Það vildi svo til að ég var í stjóm félagsins þegar báóar vélarn- ar voru keyptar. Ég hef nú sagt að hafi ég cinhvem tímann gert eitt- hvert gagn hér í dalnum þá hafi það verið í þessu efni, að stuóla aö ræktun. Þaö var ekki vafi á því að það fór að birta yfír þegar túnin voru sléttuð og stækkuð.“ Að gera gagn „Ég hef ferðast töluvert mikió inn- anlands, aldrei hef ég nú komið til útlanda. Ég hef haft mjög gaman af því að ferðast um sveitir og kynn- ast fólki. Mér hefur geðjast vel að fólkinu allstaðar. Það er aðalatriðið hjá flestum að geta gert eitthvað gagn og þaó er sá hugsunarháttur sem þarf aó ríkja. Einstaklingurinn getur gert ým- islegt til aö bæta og fegra lífió og hann gerir það ekki með því að vera síkvartandi og kveinandi. Þó að eitthvað komi nú fyrir mann, sem kemur nú fyrir alla meira og minna á lífsleiðinni, þá þarf maður að taka því rólega, það er um að gera. Það er til einskis að kvarta. Ég hef verið kosinn til ýmissa starfa bæði hér í sveitinni og utan hennar. Ég var lengi fulltrúi á Bún- aðarþingi og Stéttarsambándsfund- um bænda auk starfa á vegum Kaupfélagsins og Búnaðarfélagsins hér heima í héraði, auk þess tók ég þátt í starfi Ungmennafélagsins og Lestrarfélagsins. En ég hef ekki gert mikió gagn. Ég hef ekki verió nema meðalmað- ur ef ég hef þá náð því,“ sagði heiðursmaðurinn Helgi Símonar- son á Þverá. KLJ Laugardagur 22. október 1994 - DAGUR - 7 Óska eftir ab kaupa 2-3 tonn af skötu (ekki tindabykkju) Skatan má vera á hvaöa verkunarstigi sem er. Hæsta verö greitt fyrir góba vöru. Upplýsingar í vinnusímum 91-14364 og 13200, heimasími 91-672793, Óskar. KA heimilið v/Dalsbraut, sími 23482 Nýjar, frábærar perur. Munið vinsælu morguntímana. I íþróttasal eru örfáir tímar lausir Haföu samband KA heimilið sími 23482 Lifandi starf Starfið felst í samskiptum við fyrirtæki og stofnanir og er á sviöi sölu og þjónustu. Starfsmaðurinn (karl eða kona) þarf að hafa sjálfs- traust, frumkvæði og dugnað til að bera. Gott starfsumhverfi. Um er að ræða framtíðarvinnu. I umsókn skal m.a. greina frá aldri, starfsreynslu og skal vísað á einn til tvo umsagnaraðila. Skriflegri umsókn skal skilaó fyrir 26. október nk. Ath. Farið verður með umsóknir sem trúnaðarmál og öllum umsóknum verður svarað. Akoplast & POB Tryggvabraut 18-20, Akureyri. Björn Sigurðsson Húsavík AÆTLUN HÚSAVÍK - AKUREYRI - HÚSAVÍK Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös. Frá Húsavík 19:00 08:00 08:00 08:00 08:00 17:00 17:00 17:00 17:00 17:00 Frá Akureyri 07:30 07:30 07:30 07:30 07:30 15:30 15:30 15:30 15:30 18:30 HÚSAVÍK - MÝVATN - HÚSAVÍK Sun. Mán. Þri. Mið. Fim. Fös. Frá Húsavík 09:15 09:15 09:15 09:15 09:15 Frá Mývatni 10:30 10:30 10:30 10:30 10:30 Samtenging viö ferðir Norðurleiðar mánud.-, þriðjud-, fimmtud- og föstudaga. AFGREIÐSLUR: Húsavík: BSH hf., Héðinsbraut 6 (Shell), sími 4I260. Akureyri: Umferðarmiðstöðin, Hafnarstræti 82, sími 24442. Mývatn: Hótel Reynihlíð, Mývatnssveit, sími 44170. GÓÐA FERÐ!

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.