Dagur - 22.10.1994, Síða 9
Laugardagur 22. október 1994 - DAGUR - 9
í gamla húsmæðraskólanum að Laugalandi í
Eyjafjarðarsveit hefur um nokkurt skeið verið
rekið þróunarsetur sem hefur það hlutverk að
vera handverksfólki til ráðgjafar við þróun
handverks frá hugmynd til söluvöru. Þróunar-
setrið var stofnað af Ataksverkefninu Vaka og
þjónustusvæði j)ess náði yfir fjóra hreppa í ná-
grenninu. I vor tók Iðnþróunarfélag Eyja-
fjarðar við ábyrgð á þróunarsetrinu og við
þær breytingar stækkaði þjónustusvæði set-
ursins. Nú er þróunarsetrið ætlað öllum þeim
sem búa á svæðinu frá og með Olafsfirði og
allt austur að Stórutjarnaskóla í Ljósavatns-
skarði. Handverksfólk af öllu þessu svæði er
velkomið í Laugaland og þar taka þær Bryndís
Símonardóttir verkefnisstjóri þróunarseturs-
ins og Lydía Helgadóttir á móti gestum og er
boðnar og búnar að veita hvers kyns aðstoð.
- Hvers konar aðstoð getur
handverksfólk fengið í þró-
unarsetrinu, Bryndís?
„I fyrsta lagi er hér í húsinu
vinnuaöstaða fyrir handverksfólk,
gullkorn. Þó þaó verði ekki nema
einn af hundrað handverksmönn-
urn sem getur skapað sér fulla at-
vinnu af handverki í kjölfar þess-
arar bylgju þá er það gott út af
fyrir sig. Það er hins vegar ljóst að
◄ „Það voru einmitt svona lopa-
peysur með þessu mynstri sem
voru prjónaðar fyrir ístex,“ segja
Bryndís og Lydía.
Núna í sumar gerðist þróunar-
setrið svo tengiliöur milli Istex og
handprjónakvenna í Eyjafirði
Konumar tóku að sér að prjóna 9
peysu úr íslenskum lopa. Peysum
ar, sem allar voru eins, verða sýn
ingareintök í Bandaríkjunum ei
þar er verið aó setja á markai
pakka með munstri af peysunni og
iopanum í hana. Ef til vill verður
um meira samstarf af þessu tagi
að ræða í vetur.
Þróunarsetrið hefur einnig
kornið einstaklingum sem hafa at-
vinnu af handverki til hjálpar á
ýmsan hátt.“
- Hvers konar aðstoð hafa
einstaklingar sótt hingað?
„Vió höfum til dæmis getað að-
stoða handverksfólk í samskiptum
við útlönd. Pantað verkfæri og
varning frá útlöndum, sent pantan-
ir út og séó um samskipti við er-
lend fyrirtæki. Einnig höfum við
séð um styrkumsóknir, bókhald,
samband vió hönnuói og öflun
hráefnis fyrir handverksfólk."
- Getið þið aöstoðað hand-
verksfólk í sambandi við
hönnun?
„Við erum ekki hönnuðir
hvorki ég né Lýdía en við getum
haft milligöngu um hönnun og út-
vegaó hönnunaraðstoó eða starfs-
Þróunarsetur á Laugalandi í Eyjafjarðarsveit:
Handverk - atvinna eða áhugamál?
hér er vefnaðarstofa, prjónastofa
og aðstaða til sauma. Hér hefur
einnig verið smíðastofa en hún
hefur nú um tíma vikið fyrir vefn-
aðarverkefni.
I öðru lagi býður setrió upp á
námskeið fyrir fólk sem vill auka
við þekkingu sína í ákveónu hand-
verki til að geta þróaö verkið
áfram og síðar skapaö sér atvinnu
af því.
I vetur hefur verið ákveðið að
halda námskeið fyrir vant prjóna-
fólk í prjónatækni, saumanám-
skeió, vefnaðarnámskeið og fleira.
Hér eru einkum haldin framhalds-
námskeið fyrir handverksfólk
fremur en byrjendanámskeiö í
handverki.
I þriðja lagi er hér vísir að
handverksbókasafni og ég vil sér-
staklega benda þeim sem hafa
áhuga á handverki að koma og líta
á bókasafnið og skoða aðstöðuna
hér um leið.
- Eru það cinkum konur,
sem nýta sér þessa aðstöðu?
„Já, meirihlutinn eru konur en
ég vil taka það fram að þróunar-
setrið er svo sannarlega ætlað
bæði konum og körlum. Ég vil
líka hvetja ungt fólk og unglinga
til að koma hingað til okkar. Ungt
fólk hefur oft áhuga á handverki
en vantar herslumuninn til að
hefja handverksvinnu. Ef til vill
getur heimsókn hingað orðið upp-
hafió að handverki sem síðar
verður atvinna. Það er ekkert síður
ungt fólk sem á í erfiðleikum meö
aö fá vinnu en cldra fólk þannig
að þörfin fyrir nýja atvinnusköpun
er allstaðar fyrir hendi.“
- Nú hefur verið mikill
vöxtur í handverki á síðustu
árum, sérstaklega meðal
kvenna. Teljið þið raunhæft
að ætla að handverk þróist
sem atvinna eða verður það
fyrst og fremst áhugamál?
„Ég tel að úr þessari miklu
handverksbylgju, sem fór af stað á
árunum 1991-1992, séu að detta
það verða ekki allir. Það verður
ekki nema lítið brot handverks-
fólks sem getur haft sitt lifibrauö
af handverki. Stór hópur mun hafa
handverk sem nokkurskonar auka-
búgrein og hjá öðrum verður
handverkið fyrst og fremst áhuga-
mál.“
- Þróunarsetrið þjónar
fyrst og fremst handverks-
mönnum, sem ætla sér að
hafa atvinnu af handverki
er ekki svo?
„Jú, það er rétt, en ég vil taka
það fram að allir þessir hópar eiga
jafnan rétt á sér. Það er jafn mikil-
vægt að vinna að handverki sem
sínu áhugamáli og taka þátt í starfi
handverksfólks af félagslegum
ástæðum eins og að vinna að
handverki sem atvinnu. Starfsemi
þróunarsetursins miðar hinsvegar
að stuðningi við atvinnuskapandi
handverk.“
- Hverjir eru það sem ná að
skapa sér atvinnu af hand-
verki?
„Þegar handverksbylgjan fór af
stað kom á markaðinn mikið af
ýmiskonar handverki. Allt þótti
gott og mikil jákvæðni var ríkj-
andi. En núna hafa kröfur neyt-
enda aukist. Almenningur hefur
scð svo mikið handverk á síðustu
árum að nú er farið að flokka
handverk; er um góða muni aó
ræða eóa ekki?
Þetta er einfaldlega eðlileg þró-
un og á þennan hátt verður lögmál
markaðarins til þess að hæfasta
handverksfólkið fær tækifæri til
að vinna vió að framleiða vöruna
sína.“
- Það eru þá þeir hæfustu
sem fá eitthvað í aðra hönd?
„Það gildir vissulega sama lög-
málió í handverki eins og öðrum
störfum. Þeir sem eru áhugasamir,
þrautseigir, hugmyndaríkir og
hæfir ná árangri. En þetta er líka
afstætt, það getur verið ómöguleg-
ur handverksmaður sem fær ein-
mitt snjalla hugmynd sem virki-
lega á erindi á markaöinn. Hann
þarf þá að komast í samband við
gott handverksfólk, til dæmis með
aðstoð okkar í þróunarsetrinu.
Til aó árangur náist þurfa bæði
hugmyndirnar að mununum og
handverkið að vera gott. Það þarf
líka feikna góða sjálfsmynd til að
keyra í gegnum þessa handverks-
bylgju og ná árangri. Það háir
mörgum handverksmönnum að
handverkið er eitthvað sem þeir
sinna fyrst þegar öðrum störfum
er lokió. Þeir eru handverksmenn
svona hálft í hálft enda er viss
áhætta að fara út í handverk af
fullum krafti. Þá þarf að fóma
einhverju ööru og gefa sér virki-
legan tíma.“
- Nú eru handverkshópar
að störfum víða um sveitir.
Telur þú það vænlegt form
til árangurs í handverki?
„Já, handverkshópamir eru
mjög mikilvægir, jafnvel þó það
séu ekki nema tvcir, þrír í tíu
manna hópi sem vinna handverk
sem selst þá eru allir handverks-
mennirnir í hópnum mikilvægir.
Það er þetta félagslega sem er svo
mikilvægt. Það er mikilvægt fyrir
alla sem hafa áhuga á handverki
að koma saman hvort sem er verió
að vinna söluvöru eða ekki. I hóp-
unum verða oft til hugmyndir og
uppbygging á sér stað sem ckki
yrði ef hver handverksmaður sæti
í sínu horni.
Þaö er hinsvegar þróunarseturs-
ins að styrkja þá einstaklinga cða
hópa sem eru með verkefni sem
eru líkleg til að verða atvinnu-
skapandi."
- Getur þú nefnt mér dæmi
um slík verkefni sem þróun-
arsetrið hefur unnið að?
„Eftir að vefnaðamámskeiði
lauk í vor ákváðu nokkrar konur
úr þeim hópi að hefja framleiðslu
á handofnum svuntum vió ís-
lenska þjóðbúninginn. En til þessa
hefur verið erfitt að fá ofnar
svuntur keyptar við íslenska bún-
inginn. Hópurinn er nú að hefja
framleióslu og hcfur aðsetur í þró-
unarsetrinu. Þuríöur Kristjánsdótt-
ir frá Ytri- Tjörnum í Éyjafirði,
fyrrverandi vefnaðarkennari í
Húsmæðraskólanum hér, kenndi á
námskeiðinu ásamt Sveinu Björgu
Jóhannesdóttur. Þekking Þuríðar
varð til þess að okkur tókst fljót-
lega að vefa nokkuð vandaðar
svuntur. Þuríöur ætlar að vera
vefnaðarhópnum til leiðbciningar
og það skiptir sköpum, hún verður
faglegur ráðgjafi hópsins.
þjálfun í viókomandi handverki."
- Hvað kostar það fyrir
handverksfólk að nýta sér
þjónustuna hér?
„Þróunarsetrið er ríkisstyrkt og
þjónustan hér kostar handverks-
menn ekki neitt. Hér er opið alla
virka daga frá klukkan tíu til tvö
og ég vil nota tækifærið til að
hvetja handverksfólk til að sækja
okkur heim og nýta sér þá þjón-
ustu sem viö getum boðió hér á
Laugalandi,“ sagói Bryndís. KLJ
Samstarfshópiirinn
HAGAR HENDUR
verður með sölusýningu í Blómaskálanum
Vín á laugardag og sunnudag (opið kl. 12-19)
og síðan allar helgar til jóla.
Verið velkomin.
*
Blómaskálinn minnir á haustlaukana, blóm-
in, kaffið að ógleymdum ísnum vinsæla.