Dagur - 22.10.1994, Qupperneq 15
!
UTAN LANPSTEINANNA
Laugardagur 22. október 1994 - DAGUR - 15
UMSJÓN: SÆVAR HREIÐARSSON
Þær urðu ríkar með því að sýna
tískuföt en fyrir ofurfyrirsætur
er það ekki nóg. Þær verða
ávallt gráðugri í frægó og frama og
einfaldasta leiðin til þess að komast í
sviðsljósið er að hncyksla fólk. Sam-
keppnin er mikil og nú er svo komið
að þær sýna gjarnan naflann við hvert
tækifæri og flagga „óvart“ berum aftur-
enda framan í ljósmyndara. Sú sem hefur
gengið einna lengst í þessum efnum er að
sjálfsögðu Naomi Campbell sem gjam-
an mætir í gleðskap í mjög efnislitl
um klæðum og reynir að hafa sig
mikið í frammi. Hún á þó í
óvæntri samkeppni um athygli
vió móður sína, VALEKIE
CAMí*tlELL- Sú er 43 ára en
lítur út fyrir að vera helm-
ingi yngri og er ófeimin
við að sýna á sér líkam-
ann, ekki síðut en dóttirin.
Allt síðan Naomi komst á
forsíður tískublaðanna hefur
Valerie verið óstöðvandi við
að vekja athygli á sjálfri sér
og ótal viðtöl og myndir hafa
birst af henni í blöðum. Fyrir
skömmu var haldin veisla til
heiðurs Naomi þar sem hún var
að gefa út sína fyrstu skáldsögu
og þar náði Valerie að stela sen-
unni. Hún mætti of seint í veisl-
una og skartaði styttra pilsi en
dóttirin og ljósmyndarar höfðu
mun meiri áhuga á að taka mynd-
ir af henni heldur en tísku-
drottningunni.
Valerie Campbell þykir hafa haidið sér
vei við og ber þess ckki merki að hún sé
komin á fimmtugsaldurinn.
ehiiii til VHNOimw
■ ^að kom til slagsmála á krá einni í Brighton
;^á Englandi fyrir skömmu. Rokkarinn Van
A Morrison og lcikarinn RICHAkD GERE
voru eitthvað ósáttir og voru hnefarnir látnir
ráöa. Þeir voru að skemmta sér saman og Gere
fór fögrum orðum um gjafvaxta líkama kærustu
rokkarans. Morrison sætti sig illa við þaó enda
skapstór meö eindæmum og eftir að hafa skipst á
fúkyrðum reyndu þeir með sér í hnefaleikum.
Gere er búddatrúar og trúir ekki á ofbeldi enda
er hann sagður hafa verið undir i slagsmálunum
og hvarf hann hljóður af vettvangi eftir nokkur
högg. Umboðsmaður hans hefur neitað að at-
burðurinn hafi átt sér stað en vitni voru að slags-
málunum og voru nteira en fús til að lýsa atburð-
arrásinni fyrir fréttamönnum.
Hðtín blómötrar þjá
9lv 00 Hndreu
\Töðvafjallið SLY STALLONE hefur verið illa svikinn af
f kvenmönnum undanfarin ár og farið úr einu ástarsam-
bandinu í annað. Hann hefur ekki verið feiminn við
að segja fjölmiðlum frá hrakförum sínum í þessu efni og
lýsti því yfir fyrr á þessu ári að hann hefði ckkert með
nýja konu að gera. Eitthvað hefur breyst í honum tónn-
inn eftir að hann hitti austurríska fyrirsætu í London
fyrir skömmu. Hún heitir Andrea Wieser og er
meira en helmingi yngri en hann. Þau hittust á
frumsýningu myndarinnar True Lies í Bretlandi
en hann býr þar þessa dagana meðan verið er
að taka myndina Judge Dredd. Hann segist
hafa fundið ástina að nýju og geti nú treyst
konum á nýjan leik. Hugsanlega mun ég
aldrei giftast aftur en það þýðir ekki aö ég
geti ekki verið ástfanginn af einhverri. Eg vil
ást í líf mitt. Eg vil gjarnan eignast fleiri
böm og mig langar að eignast þau með
einhverri sem vill deila lífi sínu með
mér. Eg veit ekki hvert þetta samband
stefnir en ég veit þó aó ég skemmti mér
konunglega og finnst ég vera unglingur á
ný, sagði Stallone við blaðamenn um
samband sitt við hina 22 ára fegurðardís.
Ciadys og Jean-
Claude Van Dammc á
meðan alit lék i lyndi.
ínni
/TTJ elgíski kraftakarlinn JEAM-
«#< CLAUDE VAN DAMME er
JLM vanur að berja illilega á
mönnum á hvíta tjaldinu en sjálfur
segist hann vera mikill ljúflingur í
daglegu lífí. Eitthvað gengur hon-
um þó erfiðlega að halda í eigin-
konurnar og þær eru nú orðnar tjór-
ar sem hafa sagt skilið við hann.
Honum finnst þaö þó ekki neitt til-
tökumál og segir að allt sé í góðu
milli hans og fyrrverandi eiginkvenna
og enn sé hann mikill vinur þeirra allra.
Þriðja eiginkonan hans heitir Gladys Port-
ugues og áttu þau sarnan tvö börn. Þat
skildu á síðasta ári eftir aó hún komst að ‘
ástarsambandi kappans við næstu eigin-
konu hans, Darcy LaPier. Van Damme
var með mikið samviskubit yfir því
hvernig hann hafði leikið Gladys og j '
réð handa henni dýran og virtan
skilnaðarlögfræðing til að hún
fengi sem mest út úr skilnaðnum.
„Nú óska ég þess eins að hún
finni sér aftur finan eiginmann,“
sagði Van Damrne urn þessa góð-
mennsku sína.
Jane March og Bruce Willis
reyndu ýmislegt í myndinni
The Color Of Night.
IIJOM-
\mm-
MIDL-
j
mm
H
örkutóliö 3RUCE
WILLIS lék fyrr á ár-
inu í myndinni The
Color Of Night ásamt leikkonunni ungu Jane March þar sem funheitar ástarsenur
eru notaðar til aö kveikja áhuga áhorfenda. March óttaðist mjög að sögur um ást-
arsamband þeirra færu af stað í fjölmiðlum og sendi eiginkonu meðleikarans,
Demi Moore, bréf löngu áður en tökur hófust þar sem hún sagði að allar slíkar
sögur væru uppspuni og hún heföi ekki áhuga á að stela frá henni karlinum. Þeg-
ar nokkuð var liðið á gerð myndarinnar varð March síðan ástfangin en ekki af
mótleikaranum. Hún tók saman við framleióenda myndarinnar, Carmine Zozz-
ora, og þremur mánuðum síóar voru þau gift. Hún þakkar Bruce og Demi fyrir
hversu fljótt þau náðu saman. „Þau höfðu mikinn áhuga á að við giftum okkur
sem fyrst,“ sagði hún eftir að hafa gengið í það heilaga. „Þetta var mjög heill-
andi, miklu rómantískara en það sem geróist í myndinni," sagði Willis, sem er
góðvinur framleiðandans, um samband meðleikara síns. Sögur herma að Demi
Moore hafi ekki viljað taka neina áhættu og viljað gifta stúlkuna sem fyrst til aó
hún nældi ekki í hennar karl.
Ljúflingur
innst