Dagur - 22.10.1994, Side 20

Dagur - 22.10.1994, Side 20
Akureyri, Iaugardagur 22. október 1994 Norðurland eystra: Þjóðarflokkurinn og Jóhanna í eina sæng? Undanfarið hafa þær sögur gengið ijöllunum hærra að Þjóðarflokkurinn í Norðurlands- kjördæmi eystra íhugi að bjóða fram með væntanlegu framboði Jóhönnu Sigurðardóttur fyrir Alþingiskosningarnar á næsta ári. Arni Steinar Jóhannsson, oddviti Þjóðarflokksins á Norð- urlandi eystra í síðustu kosning- um, vildi þó ekki staðfesta þetta í gær. í dag fundar stjóm og kjör- dæmisráö Þjóóarflokksins á Akur- eyri. Þar vcrða komandi Alþingis- kosningar örugglega til umræðu og sagði Arni Steinar að væntan- lega yrði eitthvað aó frétta eftir þann fund. „Menn ræða margt í pólitík og þaö hafa komið fram hugmyndir um samstarf bæði við Jóhönnu og aðra,“ sagði Árni Steinar. I síðustu Alþingiskosningum buðu Þjóðarflokkurinn og Flokkur mannsins fram saman á Noröur- landi eystra með Árna Steinar í efsta sæti. Þá fékk framboðið 1067 atkvæði eða 6,7%. Mióað við það er ekki ósennilegt að hugsanleg samfylking með stjórn- málaafli Jóhönnu Sigurðardóttur gæti átt góðu gengi að fagna, en skoðanakannanir undanfarið hafa gefið til kynna mikinn stuðning við framboö Jóhönnu. HA Loðskinn hf. á Sauðárkróki: Gærur fluttar inn frá Ástralíu Þegar Skinnaiðnaður hf. á Akureyri keypti hlut Slátur- félags Suðurlands í Loðskinni hf. á Sauðárkróki fyrr í haust fylgdi með að Skinnaiðnaður fær allar gærur sem til falla hjá SS næstu 6 ár. Loðskinn hf. hafði áður fengið helming sinna gæra frá SS og missti með þessu helming hráefnis síns til Skinna- iðnaðar á Akureyri. Síðan þá hafa stjórnendur Loðskinns hf. leitað allra leiða til öflunar meira hráefnis og eru nú að flytja inn gærur frá Ástralíu. Aó sögn Birgis Bjarnasonar, framkvæmdastjóra Loóskinns hf„ er magnið ekki mikið aó þessu sinni eða um 4000 gærur. Þær eru aö hans sögn ólíkar þcim íslensku og því verður í raun um aóra framleiðsluvöru að ræða þó með- höndlunin sé eins. Birgir sagði menn enn vera aö svipast um eftir meira hráefni og væru allir möguleikar skoðaóir í því sambandi. Einnig hafa verið í gangi viðræður milli Loðskinns og Skinnaiðnaóar um hugsanlega sameiningu eöa samvinnu en ekk- ert nýtt er aö frétta af þeim vett- vangi að svo stöddu. Stjórn Loð- skinns hf. hafnaói sem kunnugt er sameiningartilboði frá Skinnaiðn- aði á dögunum. HA Þetta reisulega hús fyrir starfsemi cldri borgara í Ólafsfirði cr á flatanum vestan við Hótel Ólafsfjörð. Mynd: Óþh Olafsfjörður: Tiéver byggir hús fyrir Félag aldraðra NNANHÚSS- MÁLNINC 10 lítrar frá kr. 3.990,- Qkaupland hf. Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565 Tréversmenn í Olafsfirði vinna kappsamlega þessa dagana að byggingu húss fyrir HELGARVEÐRIÐ dag er sem kunnugt er fyrsti vetrardagur. Veðurguðirnir hafa af því tilefni ákveðið að koma með norðanátt um helgina og eft- ir spánni aó dæma ættu rjúpna- skyttur að fara sér hægt. Norðan strekkingur verður í dag. Á sunnudag og mánudag verður áfram norðanátt, nokkuð hvöss austan til, meó éljagangi um norðanvert landið og allt að 6 stiga frosti. Félag aldraðra í Ólafsfirði. Hús- ið er á flatanum vestan Hótels Ólafsfjarðar. Félag aldraóra í Ólafsfirði byggir húsið en Ólafsfjaróarbær er í ábyrgð gagnvart framkvæmd- inni. Tréver hf. í Ólafsfirói er verk- taki við húsió og var tilboðsupp- hæð nálægt 14 milljónum króna í alútboði, samkvæmt upplýsingum sem fengust á bæjarskrifstofunni í Ólafsfirði. Áfram verður unnið í húsinu í vetur og er gert ráð fyrir að afhenda það fullbúið síðla vetr- ar. Þetta hús mun gjörbreyta allri aðstöðu fyrir starf eldri borgara í Ólafsfirði, en þeir hafa haft að- stöðu í safnaðarheimilinu. óþh RAFTÆKI [ MIKLU ÚRVALI Vöfflujárn frá 4.880,- Straujárn frá 2.455,- 0KAUPLAND HF. Kaupangi v/Mýrarveg, sími 23565

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.