Dagur - 18.11.1994, Síða 4
4 - DAGUR - Föstudagur 18. nóvember 1994
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1400 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓLAFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir).
LJÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
-----LEIÐARI------------------------------------------------------------------------------
Þrengingar á „ári fjölskylduimar“
Það var vel til fundið að tileinka árið 1994 fjöl- tíma og laun hafa staðið í stað. Að vísu hafa
skyldunni og nefna það „ár fjölskyldunnar". Ým- vextir lækkað og bætt stöðu skuldugustu fjöl-
islegt hefur verið gert til þess að minna landslýð skyldnanna en vaxtalækkunin hefur hvergi nærri
á þetta ár og fjölskyldunni hefur verið gefin dugað tU þess að snúa dæminu við.
meiri athygli en oft áður. Þannig hefur „ár fjöl- Hrikaleg dæmi voru dregin fram í dagsljósið í
skyldunnar" að sumu leyti náð tilgangi sínum. Kastljósi sjónvarpsins á dögunum af skulda-
stöðu heimilanna í landinu en því miður er það
Stjórnvöld hafa hins vegar, að því er virðist, svo að mörg önnur sambærUeg dæmi eru úti í
ekki munað eftir „ári fjölskyldunnar". Fjárhags- þjóðfélaginu. Fólk lifir við sultarmörk í stórum
leg staða hennar er verri og ótryggari en um stíl, ekki síst atvinnulaust fólk, aldraðir og öryr-
langa tíð og verði ekkert að gert er illt í efni. í kjar, og á varla fyrir nauðþurftum hvað þá að
þessu er ábyrgð stjórnmálamannanna mikil. launin dugi til þess að lækka skuldirnar. Þessi
Nú þarf engum að koma á óvart að fjármál bolti veltist því áfram og dæmið verður erfiðara
fjölskyldna í landinu skuli í stórum stíl vera kom- með hverjum mánuðinum.
in í verstu ógöngur. Álögur á almenning í land- Það er bláköld staðreynd að laun í þessu landí
inu hafa aukist gífurlega á undanförnum árum. eru allt of lág til þess að fjölskyldan geti staðið
Skattar voru færðir af fyrirtækjum yfir á almenn- við allar skuldbindingar sínar. Og það er heldur
ing, þjónustugjöld í heilbrigðiskerfinu hafa ekki til þess að létta fólki róðurinn að stjórnvöld
hækkað, persónuafslátturinn hefur lækkað, eru sí og æ að eyðileggja fjárhagsáætlanír fólks
skattprósentan hefur hækkað, vaxtabætur hafa með vafasömum aðgerðum. Hvaða afleiðingar
lækkað, barnabætur hafa lækkað og svo mætti skyldi síðasta ákvörðun um vaxtahækkanir í
áfram telja. Allt hefur þetta gert það að verkum húsnæðislánakerfinu hafa haft fyrir fjölda fbúða-
að staða fólks, ekki síst fjölskyldufólks, hefur kaupenda? Svarið er einfalt; fótunum var kippt á
versnað stórlega. Og þetta hefur gerst á sama einni nóttu undan fjölda fólks.
Um myndgremitigartækni
Hefói grein þessi verið skrifuð
fyrir nokkrum árum, hefði fyrir-
sögn hennar væntanlega verið
„Um röntgengreiningu", svo ná-
tengd er sérgrein þessi innan
læknisfræðinnar nafni Wilhelms
Konrad Röntgen og uppgötvun,
sem hann gerði nánast af tilviljun
fyrir hartnær 99 árum, þann 8.
nóvember 1895. Hann var pró-
fessor í eólisfræói og síðar rcktor
háskólans í Wiirtzburg í Þýska-
landi. Hann var aó rannsaka eigin-
leika bakskautsgeisla (rafeinda) í
rafeindalampa þegar hann upp-
götvaði aðra tegund geisla, sem
komu frá rafeindalampanum og
gátu fengió efni til aö flúrljóma,
smugu gegnum ýmis efni og þegar
hann bar höndina milli lampans
og flúrljómandi plötu komu í ljós
á plötunni útlínur handarbeinanna.
Hann sökkti sér niður í rannsóknir
þessara geisla, sem hann kallaði
X-geisla og í lok desember sama
árs haföi hann lokið vió handrit aó
grein um eiginleika geislanna,
sem í flestum Evrópulöndum eru
við hann kenndir og kallaðir
Röntgengeislar, en í enskumæl-
andi löndum X-Rays. Fyrir upp-
götvun sína hlaut hann verðlaun
Nóbels þegar þau voru í fyrsta
sinn veitt fyrir afrek í eðlisfræði
árið 1901.
Röntgen áttaði sig fljótt á hag-
nýtu gildi uppgötvunar sinnar, en
aórir héldu áfram þróun þessarar
nýju tækni til notkunar í læknis-
fræði og í byrjun þessarar aldar
var víða farið að nota röntgentæki
á sjúkrahúsum.
Til Islands barst þessi nýja
tækni árió 1914, Röntgenstofnun
Háskólans var stofnuð 1. janúar
þaó ár, en brautryðjandinn á þessu
sviði var Gunnlaugur Claessen
Iæknir og er saga röntgenfræða á
Islandi nátengd nafni hans. Eftir
hann liggur m.a. kennslubók rituð
á dönsku, sem gefin var út 1940
og notuð til kennslu í greininni á
Norðurlöndum.
Fyrstu röntgentækin á Islandi
voru tekin í notkun í apríl 1914 og
var hægt að nota þau bæói til
gegnumlýsingar og til myndatöku
á glerplötur, en fyrsta gegnumlýs-
ingin í tilraunaskyni var gerö á
trésmið sem vann við uppsetningu
tækjanna. Oflun rafmagns fyrir
tækin var ýmsum vandkvæðum
bundin þar til rafstöðin við Elliða-
ár tók til starfa sumarið 1921. í
byrjun var notagildi röntgentækn-
innar fyrst og fremst á sviði grein-
ingar og eftirlits meðferðar bein-
brota og sjúkdóma í beinum og til
greiningar ýmissa aðskotahluta en
fljótlega var einnig farið að röntg-
enrannsaka hin ýmsu líffæri í
brjóstholi og kviðarholi. Þegar
röntgentæknin barst til íslands var
berklaveikin algengasti alvarlegi
smitsjúkdómurinn á Islandi og ein
algengasta dánarorsök ungs fólks.
Þeir sem nú eru mióaldra og eldri
muna vel eftir baráttunni viö
berklana og hvernig gegnumlýs-
ingu var beitt við berklaleit og eft-
irlit. A fjórða áratugnum var jafn-
vel farið meó farandröntgentæki
um landið til berklaleitar og í raf-
magnslausum sveitunum var bíl-
vél látin knýja rafal fyrir röntgen-
tækin.
Smám saman þróuðust bæði
tækin og tæknin og notkunarsvið
röntgengreiningar víkkaði. Til
sögunnar komu ýmis geislaþétt
efni, sem nota mátti sem skugga-
efni til rannsókna ýmissa líffæra-
kerfa svo sem meltingarfæra,
þvagfæra, taugakerfis og blóðrás-
ar. Auk röntgentækninnar sjálfrar
hafa aórar myndgreiningaraðferðir
komið til sögunnar og unnió sér
fastan sess í rannsóknastarfsemi.
Má þar fyrst nefna ómtækni
(einnig nefnd sónar) þar sem há-
tíðnihljóðbylgjur eru sendar inn í
líkamsvefina og endurvarp þeirra
notað til að byggja upp mynd. Sú
tækni er hliðstæð bergmálsdýptar-
mælum og fiskileitartækjum
skipa. ísótópaskanni notar
skammlífan geislavirkan ísótóp
sem oftast er bundinn buröarefni
sem leitar til ákveðinna líffæra
Björn segir í grcin sinni að röntgen-
grcining sé nátengd nafni Wilhclms
Konrad Röntgen.
svo sem nýrna eða til vefjamein-
semda svo sem meinvarpa í bein-
um, en þannig sjást þau mun fyrr
en á venjulegri röntgenfilmu.
A áttunda áratugnum komu
tölvusneiðmyndatækin til sögunn-
ar en þar stýrir tölva röntgentæk-
inu, safnar mælingagögnum og
býr til úr þeim þverskurðarmynd
af viðkomandi líffæri eða líkams-
hluta, sem skoða má á skjá og
færa yfir á filmu. Hverri einstakri
mynd má líkja vió sneið úr brauð-
hleif sem hefur ákveðna þykkt,
oftast 2-10 mm en sneiðafjöldi í
algengum rannsóknum getur verið
í bilinu 5 til 40 eða jafnvel fleiri.
Þessari tækni hefur fleygt fram og
myndgæði og hraði rannsókna
aukist með hverri nýrri kynslóð
tækja.
Nýjasta stórbyltingin á sviði
læknisfræóilegrar myndgreiningar
var tilkoma segulómunar, en hún
byggir á seguleiginleikum vetnis-
atóma líkamans þegar honum er
komið fyrir í mjög sterku segul-
sviði (0,5-4 Tesla). Gagnasöfnun
og uppbygging mynda er gerð
með tölvu og myndunum svipar
að mörgu leyti til tölvusneið-
mynda. Eitt segulómtæki er til á
íslandi og er það á Landspítalan-
um.
Tækjabúnaður röntgendeilda er
mjög dýr og má segja að verð-
mæti röntgentækis til myndatöku
og skyggningar sé sambærilegur
vió stóra íbúó eða raðhús, ómtæki
kosti svipað og raðhús, ísótópa-
skanni svipað og gott einbýlishús
og tölvusneiðmyndatæki líkt og
tvö slík eða meira, en segulóm-
tækið eins og heil raðhúsalengja.
Röntgendeild F.S.A. flutti í
nýtt húsnæði fyrir fjórum árum og
þá var tækjabúnaður að mestu
endurnýjaður og má segja að
deildin sé vel búin tækjum, tvær
stofur eru búnar tækjum til
skyggningar, og gefur önnur
þeirra kost á takmörkuðum æða-
rannsóknum. Þá var einnig sett
upp tölvusneiðmyndatæki sem
hefur reynst mjög vel og hafa með
því verið geróar nær 3000 rann-
sóknir. Endurnýjun ómtækis og
ísótópaskanna er þaö sem deildina
vantar helst til þess að gegna vel
hlutverki sínu á stofnun sem rekur
svo fjölþætta starfsemi með nú-
tímalegu sniði.
Athugasemd vegna greinar Ragnars Jóhanns
Jónssonar varðandi Hótel Húsavík hf.
í framhaldi af viðtali vió undirrit-
aðan í Degi hefur fyrrverandi
stjórnarmaður Hótels Húsavíkur,
Ragnar Jóhann Jónsson, séð sig
knúinn til að setja orð á blað.
Astæðan er hið slæma rekstrarár
1993 en þá var Hótel Húsavík gert
upp með um 11 milljóna króna
tapi.
Þar skrifar hann: „Ekkert af
tapinu má rekja til gjörða fyrri
stjórnar og eigenda." og „Hluti af
tapi ársins 1993 er vegna erfiós
umhverfis en megnið er tilkomið
vegna stefnubreytingar nýrra eig-
enda.“
Ekki ætla ég að munnhöggvast
vió hann á þann veg sem hann
gerir að öðru leyti en óska eftir að
neðanskráð komi fram:
1. Undirritaður ásamt Birni
Hólmgeirssyni keyptu meirihluta
hlutabréfa hótelsins í júní á síðasta
ári. Aðalfundur sem og stjórnar-
skipti fóru fram 23. júní. Ragnar
Jóhann sat í stjórn og rekstrar-
nefnd fram að þeim tíma.
2. Undirritaður tók við hótel-
stjórastöðu 1. október sama ár.
3. Sala gistirýmis sumarsins
1993 hefði átt að fara frarn að
stærstum hluta í ágúst-október
1992. Þetta þekkja þcir sem í
greininni eru.
4. Á árunum frá 1990 til 1993
dróust tekjur félagsins saman um
20% á verólagi ársins 1993 eða
um rúmar 14 milljónir króna.
5. Nýting gistirýmis á árunum
1990-1993 dróst saman um 33,6%
6. Gífurlegt viðhaldsverkefni
sem Ragnar Jóhann hefur eftir
mér fór að stærstu leiti fram á
vetrarmánuðum 1994 og hefur þar
meó ekkert með uppgjörsárið
1993 að gera. Viöhaldsvcrkefni
ársins 1993 (endurbygging kaffit-
eríu) fór fram á haustmánuðum
1993 en var eignfært og hefur því
heldur lítió sem ekkert með rekstr-
arafkomu ársins 1993 að gera.
Stefnubreyting nýra eigenda hafði
því ekki náð fram.
Það að það tap sem myndaðist
þegar Ragnar Jóhann sat í stjórn á
árinu 1993 orsakist eingöngu af
umhverfi hans er athyglisvert.
Og skrýtið að fara fram á að und-
irritaður axli ábyrgð á sama tíma.
Aðrar aðdróttanir í niinn garó
hljóta að vera settar fram í reiði og
eru ekki svaraverðar.
Páll Þór Jónsson
hótelstjóri, Hótel Húsavík.
Árlegur fjöldi rannsókna er um
17000 og er þá meðtalin leitar-
starfsemi á vegum Krabbameins-
félags Akureyrar og nágrennis, en
á vegum þess er konum á aldrin-
um 40-69 ára boðin þátttaka í
hóprannsókn á brjóstum til leitar
krabbameins á byrjunarstigi og
hefur þátttaka verið allgóð, en
mætti þó aukast.
Við röntgendeild F.S.A. eru um
16 stöðugildi, þar af eru þrjár
stöður röntgenlækna.
Björn Sigurðsson.
Höfundur er sérfræðingur á röntgendeild Fjóró-
ungssjúkráhússins á Akureyri.