Dagur - 18.11.1994, Síða 5
Föstudagur 18. nóvember 1994 - DAGUR - 5
Dýrín í Hálsaskógi
á Sauðárkróki
Leikfélag Sauðárkróks frum-
sýndi sl. miðvikudagskvöld hið
sívinsæla fjölskylduleikrit Dýrin
í Hálsaskógi eftir Thorbjörn
Egner. Leikstjóri er Einar Þor-
bergsson.
Ekki þarf að hafa mörg orð um
Dýrin í Hálsaskógi. Þetta er citt af
þessum klassísku leikritum sem
alltaf á erindi til jafnt barna og
fullorðinna. Persónurnar eru öll-
um þekktar.
Persónur og leikendur í upp-
færslu Lcikfélags Sauðárkróks
eru:
Bakaradrengur - Guðrún Bryn-
leifsdóttir, Bangsamamma - Hall-
dóra Helgadóttir, Bangsapabbi -
Pálmi Ragnarsson, Bangsadreng-
ur - Gestur Hrannar Hilmarsson,
Broddi broddgöltur - Asdís Ás-
geirsdóttir, Uglan - Dagbjört Elva
Jóhannsdóttir, Elgurinn - Guðrún
Margrét Jökulsdóttir, Mikki rcfur
- Kristján Gíslason, Lilli klifur-
mús - Páll Friðriksson, Krákur -
Hrafnhildur Erlingsdóttir og Dag-
mar Snjólfsdóttir, Marteinn skóg-
armús - Styrmir Gíslason, Amma
mús - Elsa Jónsdóttir, Hérastubb-
ur bakari - Kristján Orn Kristjáns-
son, Lísa íkornabarn - Inga Dóra
Ingimarsdóttir, Tumi - Gunnar
Þór Andréssson, Pétur - Sigurlaug
Dóra Ingimundardóttir, Maðurinn
- Gunnar Bragi Sveinsson, Konan
- Elva Björk Guðmundsdóttir,
Habakúkk - Unnur Ólöf Halldórs-
dóttir og Húsamús - María Gréta
Ólafsdóttir.
Leikstjórinn Einar Þorbergsson
er fæddur og uppalinn í Reykjavík
en býr nú á Húsavík. Einar út-
skrifaðist frá Lciklistarskóla Þjóð-
leikhússins árið 1972 en jafnframt
stundaði hann nám vió Listdans-
skóla Þjóðleikhússins um tíu ára
skeið. Kennaraprófi lauk Einar frá
Kennaraskóla Islands árið 1973.
Einar steig fyrst á svið hjá
Þjóðleikhúsinu 1963 og hefur
hann síðan leikið og dansað í
fjölda sýninga. Leikstjóraferil sinn
hóf hann 1970 með uppsetningu á
Ys og þys út af engu eftir William
Shakespeare hjá Kennaraskólan-
um. Síðan hefur Einar leikstýrt á
fjórða tug sýninga hjá áhuga-
mannaleikfélögum víðs vegar um
land en ennig hefur hann verið
danshöfundur á nokkrum sýning-
um.
Um lýsingu í sýningunni sjá
þeir Atli Þorgeirsson og Árni
Björnsson. Aðstoðarleikstjóri cr
Unnur Ólöf Halldórsdóttir og
Hilmar Sverrisson stjórnar tónlist-
arflutningi.
Næstu sýningar á Dýrunum í
Hálsaskógi eru í kvöld, föstudag,
og á sunnudag. óþh
Helga Árnadóttir og Ósk Jónsdóttir í Nafnlausu búðinni.
Mynd: GG
Mikið að gera í Nafh-
lausu handverksbúðinni
Handverkshópur á Dalvík, sem
skipaður er 20 konum frá Dal-
vík hefur undanfarna mánuði
rekið sölugallerí við Skíðabraut
á Dalvík. Verslunin er opin alla
daga frá klukkan 14.00 til 18.00
og einnig á laugardögum frá
klukkan 13.00 til 16.00
Fyrirhugaður er stofnfundur fé-
lags handvcrkafólks á Dalvík og
nágrenni í dag, þirðjudaginn 15.
nóvember og er hann haldinn í
versluninni. Að sögn Helgu Árna-
dóttur, hafa handverkskonur
skipst á um að afgreiða í verslun-
inni en viðtökur hafa verið framar
björtustu vonum. I versluninni má
m.a. fá vörur úr kcramik og postu-
líni ásamt sauma- og prjónavör-
um. GG