Dagur - 18.11.1994, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - Föstudagur 18. nóvember 1994
Aðaltölur:
Vinningstölur
16.11.1994
VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPH/EÐ Á HVERN VINNING
n - 2 23.480.000
G1 5 af 6 CÆ+bónus 1 2.862.855
a sa.6 2 126.147
El 4 af 6 223 1.799
r] 3 af 6 Cfl+bónus 807 213
BÓNUSTÖLUR
@(io}(5)
Heildarupphæð þessa viku;
50.648.217
á IsI.:
3.688.217
Jflfl/inningur: for til Danmerkur og Noregs
UPPtySINGAR, SIMSVARI 91- 6819 11
LUKKUtlMA 99 10 00 • TEXTAVARP 451
BIRT MEÐ FVRIRVARA UM PRENTVILLUR
þar sem geisladískar eru gersemi
Hafnarstræti 98 • 600 Akureyri • Sími 12241
'' A
y-
AUGLYSING
um umferð á Dalvík
Aó fengnum tillögum bæjarstjórnar Dalvíkur og sam-
kvæmt heimild í XII. kafla umferðarlaga nr. 50/1987
eru hér með eftirfarandi reglur ákveónar til bráðabirgða
um umferð á Dalvík:
1. Hámarkshraði á Skíðabraut, Hafnarbraut og Gunn-
arsbraut verður 35 km á klukkustund í stað 50 km.
2. Bifreiðastöóur eru bannaðar á Skíóabraut, Hafnar-
braut og Gunnarsbraut við austurbrún gatnanna.
3. Karlsrauðatorg austan Gunnarsbrautar (gata norðan
frystihúss) verður einstefnugata til austurs.
4. Sognstúni og Sunnutúni verður lokað fyrir gegnum-
akstri.
Fyrrnefndar breytingar á umferð verða gefnar til kynna
með umferðarmerkjum og merkingum.
Þessar breytingar á umferðarreglum gilda tímabundið
á meóan framkvæmdir standa yfir við hafnargerð á
Dalvík (efnisflutningar þungaflutningabifreiða um bæ-
inn) og áætluó verklok 15. október 1995. Falla þessar
reglur þá úr gildi.
Ákvæði auglýsingar þessarar taka gildi þegar í stað.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
16. nóvember 1994.
Elías I. Elíasson.
ENGINN Á AÐ SITJA
ÓVARINN I BÍL,
ALLRA SÍST BÖRN.
iiæ
IFEROAR
Hestaríkið var opnað í gær:
„Allt frá hóffjööur upp í hestakerru
í gær opnaði ný verslun að Óseyri 4 á Akureyri. Það
eru Helena Arnljótsdóttir og Gylfi Gunnarsson sem
standa að versluninni sem heitir Hestaríkið. Þar er
verslað með allt sem viðkemur hrossum og hesta-
mönnum en Gylfi er landsþekktur hestamaöur meö
ntikla reynslu bæði sem tamningamaður og keppnis-
maður.
„Hér fást allar hefðbundnar hestavörur á algjöru
bónusverði og á næstu vikum rnun vöruúrvalið aukast
enn frekar, sérstaklega í reiðfatnaði, skeifum og
gjafavörum fyrir hestaunnendur," sagði Gylfi. Auk
hefóbundinnar verslunarþjónustu tekur Gylfi í Hesta-
ríkinu að sér umboðssölu á hrossum.
Um helgina verður heitt á könnunni og meðlæti á
borðum, sannkölluó kaffistofustemmning í Hestarík-
inu og sagóist Gylfi vonast til að sjá sem flesta. „Hér
er upplagt fyrir hestamenn að hittast, líta á nokkrar
hestamyndir og spá í veturinn, hver veit nema að það
verði gerð nokkur hestakaup um helgina," sagói
Gylfi. KLJ
„Miðbæjarfyllibyttur“ í
„drykkjulátum“
Pétur Pétursson, heilsugæslulækn-
ir á Akureyri, hafói um það mörg
orð á hagyrðingakvöldi í Deigl-
unni á dögununt, sem nú er lands-
frægt orðið, að Dagur væri óþrjót-
andi uppspretta vísnagerðar á
Heilsugæslustöðinni á Akurcyri.
I Degi sl. þriójudag var frá því
greint að Jakob Björnsson, bæjar-
stjóri á Akureyri, hafi á ráóstefnu
um síðustu helgi kynnt átak gegn
„helgarástandinu“ í Mióbæ Akur-
eyrar og Dagur spurði; „Er ung-
lingadrykkja í miðbænum einn
Ijótasti bletturinn á bæjarbragn-
um?“ A þessari sömu ráóstefnu
söng hinn landsfrægi kór Heilsu-
gæslustöðvarinnar á Akureyri og
Dagur birti að sjálfsögðu mynd af
kórnum eins og meðfylgjandi úr-
klippa sýnir.
Þessi samsetning, rnyndin af
HAKA-kórnum og unglinga-
drykkjufyrirsögnin, varð auðvitað
til þess að helstu hagyróingar Ak-
ureyrar fóru af stað og strax á
þriðjudag urðu eftirfarandi kveó-
lingar til.
Hjálmar Freysteinsson, heilsu-
gæslulæknir yrkir fyrst:
Hávciði er hrópleg synd
sem hneykslun vekur ráðamanna.
Dagur birtir dökka mynd
af drykkjulátum unglinganna.
Pétur Pétursson, kollegi
Hjálmars á Heilsugæslustöðinni,
bætti um betur og afgreiddi málið
í formi limru:
Þó glaðbeitt um sumblið þau syngi
og saman glösunum klingi
þá sýnist mér varla
sœmandi að kalla
þau unglinga á öldrykkjuþingi.
Björn Þórleifsson er líka gefinn
fyrir að yrkja ef hann sér eitthvað
spaugilegt í Degi. Hans útlegging
á þessu máli var eftirfarandi:
Svo líta þá megi, sem lifa t synd
og lenda í óreglupyttum
birtist IDegi mikilvœg mynd
af miðbœjarfyllibyttum.
iði í fyrri-
argir bátar
á svæðið
Auk Vilhun AK cru IMnn-
|.ur Mt II A»«H »iK <l .1
•.i.T'linn cn «•<•• • • 1 l'l lil HMi-
uni 4 ir.'iA. Spil-> rr l.iM i xvo
clli cr viM .1*1 Iwrl viT'ti mt ln'
\ jM-vvum ».
iitin cr cAlilcfl »A li.Vivn »i' km
n .1 |ic'.v.ir vl'n'ir fn vcnjulrr* cr MAI|.l.i*li'
iirn luilkiri !•!• rri.l
Akureyrl:
Er unglingadrykkja í miðbænum einn
Ijótasti bletturinn á bæjarbragnum?
NVJAR BÆKUR
Sagan af Daníel
eftir Guðjón Sveinsson
Mánabergsútgáfan hefur sent frá
sér bókina Undir bláu augliti ei-
lífðarinnar, fyrsta bindið af Sögu
Daníels eftir Guðjón Sveinsson.
Á bókarkápu segir: Sagan ger-
ist að sumri til í litlu þorpi undir
lok síðari heimsstyrjaldar. Sorgin
er fylgifiskur stríðs. Daníel, sem
er níu ára, ntissir föður sinn og er
komið fyrir hjá ömrnu sinni og
frænda. Drengurinn á erfitt með
að sætta sig viö þessar breyttu að-
stæður sem hafa óvissu um fram-
tíðina í för með sér. Þungbær
reynsla skilur eftir þroskaðan ein-
stakling í sumarlok. Þrátt fyrir
mótlætið á Daníel sínar gleði-
stundir ásamt Nonna vini sínum
og þeir bralla ýmislegt saman eins
og barna er háttur. Margar eftir-
minnilegar persónur koma við
sögu og tíóarandanum er vel lýst.
Enginn asi er á neinu en þrátt fyrir
það veltur tilveran áfram í sínum
föstu skoróum. Þetta er fjöl-
skyldusaga sem höfðar jafnt til
unglinga sem fullorðinna.
Guöjón Sveinsson er búsettur á
Breiðdalsvík, en hann er fæddur á
Þverhamri í Breiódal árið 1937.
Hann sinnti ýmsum störfum áóur
en hann sneri sér nær alfarió að
ritstörfum urn miðjan áttunda ára-
tuginn, m.a. sjómennsku, kennslu
og búskap. Guöjón hefur aðallega
skrifað fyrir börn og unglinga.
Undir bláu augliti eilífðarinnar er
24. bók höfundar en fyrsta bók
hans kom út árið 1967. Auk þess
hafa sögur, ljóð og annað efni eftir
hann birst í ýmsum blöðum og
tímaritum. Guðjón hefur hlotió
vióurkenningu fyrir margar smá-
sögur sínar, m.a. frá Samtökum
móðurmálskennara og Ríkisút-
varpinu.
Lína langsokkur
ætlar tíl sjós
Lína langsokkur ætlar til sjós er
önnur bókin um Línu sem kemur
út í nýrri þýðingu Sigrúnar Árna-
dóttur. Sagan er eftir Astrid Lind-
gren og rnyndir eftir Ingrid Vang-
Nyman.
Hér má lesa um það þegar Lína
fór í tívolí, keypti sér 18 kíló af
brjóstsykri, tamdi hættulega
slöngu og handsamaði tígrisdýr.
Einnig lendir hún í skipbroti á
eyóieyju og ákveður að fara til
sjós með föður sínum, en þá Iíst
Tomma og Önnu ekki á blikuna.