Dagur - 18.11.1994, Side 9
Föstudagur 18. nóvember 1994 - DAGUR - 9
Helga Jónína Andrésdóttir í hlutvcrki Uglu og Guðmundur Karl Ellertsson í hlutvcrki ástmanns hennar, fcimnu
lögreglunnar.
Leikfélag Blönduóss:
Frumsýnir Atóm-
stöðina á morgun
Leikfélag Blönduóss frumsýnir á
morgun Atómstöðina eftir Hall-
dór Laxness í leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur. Leikstjóri er Inga
Bjarnason. Þetta er afmælissýn-
ing Leikfélags Blönduóss en það
heldur um þessar mundir upp á
50 ára afmæli sitt. Æfíngar hafa
staðið yfir síðan í Iok september
og koma 40-50 manns fram í
sýningunni.
Leikfélag Blönduóss ræðst
ekki á lágan garð með uppfærslu á
Atómstöðinni og það er vissulega
við hæfí. Atómstöðin er veróug
afmælisgjöf á hálfrar aldar afmæl-
inu.
Inga Bjarnason segir um Atóm-
stöðina í leikskrá að hún sé yndis-
legt verk. „Ég hcf áttað mig á því
á síðastliðnunr tjórum árum að ís-
lenskur veruleiki er okkur nær-
tækari á sviði áhugaleikhúsa. Það
þekkja allir þetta fólk, það þekkja
allir Uglu, hún er eins konar sam-
nefnari fyrir allt það scm er heil-
brigt og gott í Islcndingum. Ég
hef lagt mesta áherslu á fjöl-
Sýslumaðurinn á Akureyri
Hatnarstræti 107, 600 Akureyri,
sími 96-26900.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Frostagata 1b, A-hl 2, ásamt öllum
vélum og tækjum, Akureyri, þingl.
eig. Gísli Bogi Jóhannesson, gerð-
arbeiðandi Iðnlánasjóður, 23. nóv-
ember 1994 kl. 10.30.
Frostagata 3c, A-hl, ásamt vélum
og tækjum, Akureyri, þingl. eig.
Framtak - Ona hf., gerðarbeiðend-
ur Akureyrarbær, Búnaðarbanki ís-
lands, Hf. Ofnasmiðjan, Iðnlána-
sjóður og íslandsbanki hf., 23. nóv-
ember 1994 kl. 11.00.
Frostagata 3c, B-hluti, ásamt vél-
um og tækjunr,, Akureyri, þingl. eig.
Framtak - Ona hf., gerðarbeiðend-
ur Akureyrarbær, Búnaóarbanki ís-
lands, Hf. Ofnasmiðjan, Iðnþróun-
arsjóður og islandsbanki hf, 23.
nóvember 1994 kl. 11.30.
Tröllagil 14, íb. 1a, Akureyri, þingl.
eig. Örn Ragnarsson, gerðarbeið-
andi Byggingarsjóður verkamanna,
23. nóvember 1994 kl. 09.30.
Sýslumaðurinn á Akureyri,
17. nóvember 1994.
skyldu- og ástarsöguna. Hin pólit-
ísku hvörf í verkinu eru barn síns
tíma. Þá voru skilin skörp milli
kommúnista og kapítalista. Það
hefur margt breyst í okkar heims-
mynd auk þess sem við notum
núna snilldarlega leikgerð Bríetar
Héðinsdóttur sem lcggur meiri
áherslu á persónu Uglu heldur cn
pólitíkina. Það eru til tvær leik-
gerðir af Atómstöðinni en Bríet
gerir hlut Uglu mun meiri en hin
gerðin og ég veit ekki betur en aó
hún sé stærsta kvenrullan sem til
er í íslenskum leikbókmenntum.
Um leið cr kvenréttindahugsun
sögunnar langt á undan sínum
tíma. Ugla vill vera sjálfstæður
einstaklingur, „hvorki kauplaus
ambátt eins og konur þeirra fá-
tæku né keypt maddama eins og
konur þeirra ríku". Ugla er hin
frjálsa kona.“
Með hclstu hlutvcrk í sýning-
unni fara: Ugla: Helga Jónína
Andrésdóttir. Búi Árland: Sturla
Þórðarson. Frú Árland: Kristín
Guðjónsdóttir. Organistinn: Bene-
dikt Blöndal. Móðir organistans:
Kolbrún Zophóníasdóttir. Kle-
ópatra: Guðrún Pálsdóttir.
Aðstoóarleikstjóri er Ragnheið-
ur Þorláksdóttir, um búninga sér
Unnur Kristjánsdóttir, Ingimar
Einarsson sér um hljóö og Ingvar
Björnsson hannar lýsingu. óþh
Handverksfólk
á Norðurlandi eystra
Handverk - reynsluverkefni stendur fyrir fundi
næstkomandi laugardag, 19. nóvember, kl. 13.00 á
Hótel Húsavík.
Dagskrá:
1. Kynning á Handverki - reynsluverkefni,
Helga Thoroddsen.
2. Hvernig kem ég vöru minni á markað?
Elín Antonsdóttir.
3. Frá hugmynd til söluvöru, Petrea Hallmannsdóttir.
4. Kynning á Þróunarsetrinu á Laugalandi,
Bryndís Símonardóttir.
5. Umræður.
Allt áhugafólk um handverk er hvatt til að fjöl-
menna á fundinn.
MARKAÐSFULLTRUI
lönfyrirtæki á Akureyri óskar eftir að ráða mark-
aðsfulltrúa til þess að skipuleggja og fylgja eftir
markaðsstarfi erlendis og innanlands.
Viðkomandi þarf að hafa alhliða góða menntun sem
nýtist í þessu starfi, getað starfaö sjálfstætt og hafa að
auki góóa kunnáttu í ensku og einhverju Norðurlanda-
málanna.
Skriflegar umsóknir sendist fyrir 29. nóvember nk. til
Endurskoðun og reikningsskil hf., Ráðhústorgi 3, 600
Akureyri.
1= Endurskoðun & Reiknincsskil hf.
IHIiHHIIIIHHIIIHIÍIHHHHIIIiÍlHHimffif
HOTEL KEA
páH ósk*
00 Mittjónamœrinqarnir
á stórdansleik laugardagskvöld
Laugardagstilboð:
Kryddlegin hörpuskel.
Grísalundir í salthnetuhjúp.
Pistasíuterta.
Verð kr. 2.800.
Til árshátíðanefnda fyrirtækja, félaga og stofnana:
Nú er rétti tíminn til að panta sal fyrir árshátíðina.
Bjóðum glæsilega sali fyrir 10-250 manna hópa.
Allar nánari upplýsingar hjá veitingastjóra i síma 22200.
Vinsæla villibráðarkvöldið okkar verður 26. nóv.
ádansle*
kr.900
lÍHIIIIIHIIIIIIIIHHfifillllllHHIIHHHH
HIIIIIHHHHHHHHHHHHHHIHHHHÍIIIIIIIHHHHHHHHÍIIIllllllHHHHHHIfififig