Dagur - 18.11.1994, Síða 11
Föstudagur 18. nóvember 1994- DAGUR - 11
Svæðisskipulag fyrir miðhálendi íslands:
Reglur fyrir
samvinnunefnd
Umhverfisráðherra hefur í
Stjórnartíðindum gefið út reglur
fyrir samvinnunefnd um gerð
svæðisskipulags fyrir miðhá-
lendi íslands, en í henni eiga
sæti 13 fulltrúar.
Umhverfisráðherra skipar for-
mann nefndarinnar en héraðs-
nefndir Borgarfjarðarsýslu, Mýra-
sýslu, Vestur-Húnavatnssýslu,
Austur-Húnvetninga, Skagfirð-
inga, Eyjafjarðar, Suður-Þingeyj-
arsýslu, Múlasýslna, sýslunefnd
Austur- Skaftafellssýslu, héraðs-
nefndir Vestur-Skaftafellssýslu,
Rangæinga og Arnesinga skipa
hver um sig einn fulltrúa.
Hlutverk samvinnunefndarinn-
ar er að vinna að svæðisskipulagi
fyrir miðhálendi íslands og er við
það miðað að hún ljúki störfum
fyrirárslok 1997. óþh
Danshljómsveitir:
Grímur til liðs við Félaga
Ýmsar tilfærslur eiga sér nú stað
hjá Akureyrarhljómsveitunum.
Meðal annars eru breytingar hjá
hljómsveitinni Félögum.
Hljómsveitin Félagar er í raun
nýtt nafn á gömlum merg því við
mannabreytingar í haust var nafn-
inu breytt úr Dansfélagar í Félag-
ar.
Þá gekk Grímur Sigurösson
bassaleikari til liðs viö þá Brynleif
Hallsson, Jón Berg og Birgi Ara-
son en Grímur og Brynleifur eru
báðir fyrrurn liðsmenn hljómsveit-
ar Ingimars Eydal.
Grímur var spurður um ástæður
þess hvers vegna hann söðlaði um
og verkefni hjá danshljómsveitum
þessa dagana.
„Þegar þeir Félagar höfðu á
orói við mig aö þá vantaði bassa-
leikara ákvað ég aó ganga til liós
við þá þar sem mér fannst orðió
tímabært að breyta til eftir langan
og góðan tíma með Hljómsveit
Ingimars Eydal og síðan I. Eydal,“
sagði Grímur.
Með nýjum meðspilurum
breytast alltaf áherslurnar og yfir-
bragðið á tónlistinni, en í raun tak-
ast Félagarnir á viö allar gerðir
danstónlistar allt frá dunandi
harmonikkutónlist til heitustu
dægurlaganna á vinsældarlistun-
um.
„Þetta er stífur bransi að berjast
í en mér finnst samt aö eitthvaó sé
að glæðast yfir þessu eftir deyfð-
ina undanfarin ár. Framundan er
hvað besti tími ársins í spila-
mennskunni, sérstaklega þó tím-
inn eftir áramót þegar þorrablótin
og árshátíðirnar ráða ríkjum. Samt
sem áður er útlit fyrir talsverð
verkefni fram til jóla og er það
þakkarvert miðað við framboðiö
um þessar mundir," sagöi Grímur
Sigurðsson. JÓH
Hljómsvcitin Fclagar, cins og hún
er nú skipuð. Frá vinstri: Birgir
Arason, Jón Bcrg, Grímur Sigurðs-
son og Brynlcifur Hallsson.
◄
laugardag og sunnudag
Blandað hakk (nauta- 09 lamba-)
kr. 345 kg
Spaghctti 1 kg kr. 69
Appelsínur kr. 59 kg
Londonlamb kr. 595 kg
Skafís 2 lítrar kr. 339
Ópal kúlur 300 9 kr. 119
Barnagallabuxur st. 80-120
kr. 995
Flóru kókosmjöl 500 9 kr. 79
Laugardag kl. 14.00-18.00:
Kynning frá Kjötiðnaðarstöð KEA
XSrfiiknattleilísdeildar Wis
3 áþróííahöllinnl
Sunnudaginn 20. nóoember
fel 16.00
f
M glœsilegra uinninga fra Radiónciusí
28" Samsung síereo sjónuarp. hljómÍŒfejasamsÍŒða,
6Sm íarsími, myndbandsuppíöfeuDél, saumaoél,
myndbandsÍŒfei og margí margí fíeira.
Vinningar uerða íil sýnis í Radiónausí
14. nón. fil 10. nón.
Sunnudag:
ilmandi Bragakaffi
og yngstu viðskipta-
vinirnir fá ís.
Allir fá að bragða á Smarties,
Kit-Kat, Lion Bar og Mackintosh.
Nýtt kortatímabil
□aOÐB
Opið mánudaga til föstudaga kl. 12-18.30
Laugardaga kl. 10-18
Sunnudaga kl. 11-17
V f