Dagur - 18.11.1994, Side 16
Akureyri, föstudagur 18. nóvember 1994
Krossanes:
Framkvæmdir
viö grjótgarð í
fullum gangi
Fyrirtækið Suðurverk hf. er
að vinna við gerð grjótgarðs í
Krossanesi og eru notaðir til
þess grjótflutningabflar sem eru
engin smásmíði. Framkvæmdir
við verkið hófust í byrjun októ-
ber sl. og samkvæmt verksamn-
ingi á því að ljúka fyrir aprflok á
næsta ári.
Grjótgarðurinn verður 440 m
langur og í hann fara 46.000 rúm-
metrar af grjóti. Efnið er tekið í
námu rétt ofan Krossaness. Innan
við grjótgarðinn vcróur svo til 4
hektara uppfylling.
Auk þess að byggja grjótgarð í
Krossanesi, mun Suðurverk
byggja 13.000 rúmmetra skjólgaró
við flotkvína sem Akureyrarhöfn
hefur keypt og komió verður fyrir
norðan stóru skemmu Slippstöðv-
arinnar - Odda hf. Framkvæmdir
þar hefjast fljótlega. KK
Hálshreppur:
Óvenju margt
úr eftirleitum
Þetta hefur verið heldur meira
en vanalega á þcssum tíma,
ætli við séum ekki búnir að ná
einum 11 kindum sunnan úr af-
rétt að undanförnu,“ sagði Her-
mann Herbertsson, bóndi á Sig-
ríðarstöðum í Hálshreppi, en
menn þar í sveit hafa verið í eft-
irleitum síðustu daga. Fundist
hafa 5 fullorðnar kindur og 6
lömb. Sjö fundust á Timbur-
valiadal en 4 sunnan við Reyki,
yst á Bleiksmýrardalnum.
Talsvert mikill snjór er á afrétt-
inni að sögn Hermanns, jafnt yfir
öllu og svo djúpur að fé hefur ver-
ið alveg strand, ekki síst þar sem
einnig hefur hlaóist mikill snjór í
ullina. Notaðir hafa verió vélsleð-
ar til að ná kindunum, en þar sem
ekkert hefur rennt að gangi enn
sem komið er, þá er land einnig
erfitt yflrferðar á sleðum.
Hann bjóst ekki við að fleiri
feróir yrðu gerðar að svo stöddu.
„Auðvitað er aldrei hægt að úti-
loka að ein og ein kind sé eftir en
ég held að það sé ekki á áætlun að
fara meira.“ HA
Heftir þii smakkað
smokkfisk, langiiala, blálöngn eða tinclabýkkju?
Þessir fiskar eru á sjávarhlaðborði Bautans ásamt yfir 20 tegundum af
öðru sjávarfangi - Verð 1290 krónur
ATH! Barnahamborgari með frönskum eóa pizza fyrir börn á 200 kr.
Gildir á föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöldum
Endurbætur við Samkomuhúsið á Akureyri:
Hönnunarvinna
á næsta ári
Grjótflutningabílarnir sem notaðir eru við frarnkvæmdirnar í Krossanesi
eru engin smásmíði. Það er kannski cins gott, því alls fara um 46.000 rúm-
mctrar í grjótgarðinn, sem verður 440 m langur. Myndir: KK
Samkomuhúsið á Akureyri,
eitt fallegasta hús bæjarins
og óneitanlega eitt af andlitum
hans út á við, þarfnast umtals-
verðra endurbóta við. Þetta hafa
menn vitað í nokkurn tíma og
nú gæti styst í að hafist verði
handa. Ekki er þó búist við að
verklegar framkvæmdir hefjist á
næsta ári en hönnunarvinna
mun væntanlega fara í gang inn-
an tíðar.
„Aó öllum líkindum verður
ekki ráðist í neinar stórfram-
kvæmdir núna, heldur verður
reynt að gera þetta í gáfulegri
kantinum og „plana“ fyrst ná-
kvæmlega hvaó á aö gera og taka
það síóan í réttri röð, í staðinn fyr-
ir aó stökkva í eitthvað sem síðan
þarf kannski aó rífa aftur. A næsta
ári verður þetta því væntanlcga
hönnunarvinna fyrst og frernst,"
sagði Alfreð Gíslason, formaður
menningarmálanefndar Akureyr-
ar.
Starfsemi Leikfélags Akureyrar
veröur aó sjálfsögóu að taka miö
af því hvernig framkvæmdum
veróur háttaö og þar á bæ höfðu
menn gert sér vonir um að verk-
legar framkæmdir hæfust næsta
vor. Aö sögn Viðars Eggertssonar,
leikhússtjóra, var búió aó gera
ákveónar ráðstafanir til að jafnvel
Frystitogarar Skagstrendings í
loönufrystingu á Seyðisfirði
- Strandberg sf. mun annast flokkun loðnunnar
Þrjú stórfyrirtæki í sjávarút-
vegi hafa ákveðið að samein-
ast um loðnufrystingu á Seyðis-
firði og hafa í því markmiði
stofnað sameignarfélagið
Strandberg sf. Þetta eru fyrir-
tækin Skagstrendingur hf. á
Skagastönd, Bergur-Huginn hf. í
Vestmannaeyjum og Vestdals-
mjöl hf. á Seyðisfirði sem keypti
Alþýðubandalagiö:
íslandsrúta á Akureyri
Islandsrúta Alþýðubandalags-
ins kom til Eyjafjarðar í gær.
Með í för eru nokkrir af helstu
forystumönnum flokksins og
gangast þeir m.a. fyrir almenn-
VEÐRIÐ
Samkvæmt veðurútlitinu er
veðrabreyting að verða þess-
ar klukkustundirnar. Eftir frost-
stillur síóustu sólarhringana
snýst vindur nú til sunnanátta
og um leið hlýnar í veðri. Útlit
er fyrir að á Norðurlandi
vestra verði í dag sunnan
stinningskaldi með slyddu eða
rigningu. Um austanvert Norð-
urland verður gott veður fram-
an af degi en all hvasst og
rigning síódegis.
um stjórnmálafundi í Alþýðu-
húsinu í kvöld.
Eins og komið hefur fram hefur
forystusveit Alþýðubandalagsins
ferðast vítt og breitt um landið að
undanförnu og kynnt áherslur
ilokksins fyrir komandi alþingis-
kosningar. I gær var haldið út með
Eyjafirði vestanverðum og endað í
Ólafsfirót þar sem haldinn var al-
mennur stjórnmálafundur í gær-
kvöld.
I dag verður rútan á Akurcyri
og í kvöld kl. 20.30 hefst almenn-
ur stjórnmálafundur í Alþýðuhús-
inu. Ollum er heimill aðgangur að
fundinum en frummælendur á
honum verða Ólafur Ragnar
Grímsson og Svavar Gestsson.
í fyrramálið fer íslandsrútan til
Svalbarðseyrar og Grenivíkur og
ferðinni lýkur síðan í Eyjafjarðar-
sveit seinni part dagsins. KK
þrotabú loðnuverksmiðjunnar
Hafsfldar hf. á Seyðisfirði og
rekur nú loðnuverksmiðju þar
en auk þess er SR-mjöl hf. með
stóra og fullkomna loðnuverk-
smiðju á Seyðisfirði.
Þaó vcrða frystitogararnir Arn-
ar HU-l, Örvar HU-21 og Vest-
mannaey VE-54 sern munu frysta
loónu við bryggju á Seyóisfirði en
fljótlega verður hafist handa við
uppsetningu loðnuilokkara fyrir
skipin.
Óskar Þóróarson, skrifstofu-
stjóri hjá Skagstrendingi hf„ segir
að hugmyndin sé að staðsetja
flokkunarstöö í landi framan við
ioðnuverksmiójuna. Vinnsluhæf
loðna verður sett í kör en hratið
fer beint í verksmiðjuna. Körin
eru síðan hífð um borð í frystitog-
arana og loðnan heilfryst og þann-
ig cru togararnir eins og fljótandi
frystihús, bundin við bryggju.
„Það er alveg útilokað að skip-
in fái sjálf veiðileyfi og því er
gripið til þessa ráðs. Við treystum
á að loðnubátarnir landi frekar í
verksmiðju þar sem hún er flokk-
uð, enda tryggir þaó þeini hærra
verð fyrir loðnuna ef hluti farrns-
ins fer til frystingar. Við verðum
að vera í nánu samstarfi við
bræðslu því meginhluti farmsins
fer þangað. Frystigeta Arnars er
um 50 tonn á sólarhring, Örvars
um 30 tonn og Vestmannaeyjar
um 30 tonn þannig að samtais er
frystigetan liðlega 100 tonn. Á
þessari vertíð verður eingöngu um
hcilfrystingu að ræða, ekki
hrognafrystingu. Skipin veróa
ekki kölluð inn fyrr en fyrsti
loðnubáturinn er kominn undir
löndunarkranann. Skipin eru tilbú-
in til þessarar vinnslu en það gæti
kannski tekið um sólarhing að
sigla til Seyðisfjarðar," sagói Ósk-
ar Þórðarson.
Loðnan er svo stuttan tíma í
vinnsluhæfu ástandi að málið
snýst um það hversu mikið magn
er hægt að frysta af loðnu á
skömmum tíma sem er með rétta
hrognafyllingu fyrir Japansmark-
aðinn. Áuk þess að skapa verulega
rneiri verðmæti úr ioðnunni spara
togararnir fiskveiðikvótann á
sama tíma. GG
væri hægt aó rýma húsið seinni
part vetrar og er vorverkefni leik-
félagsins, „Þar sem djöflaeyjan
rís“, vel til þess fallió að sýna
annars staðar. Hins vegar er for-
vinna fyrir verkið þegar hafin og
leikmyndateiknarar og fleiri þurfa
að vita í hvaóa húsi verður sýnt.
Menn eru því í raun aö falla á
tíma og næstkomandi mánudag
veróur tekin ákvöróun um sýning-
arstað.
Enn á eftir að frumsýna þrjú
verk hjá LA í vetur og Eggert
sagði vel koma til greina að eitt-
hvert þeirra .verði sýnt annars
staðar en í Samkomuhúsinu, þar
sem verið gæti aó skörun á þeim
sé of mikil. HA
Snjóaði mikið
á Siglufirði
Ifyrradag setti niður mikinn
snjó á Siglufirði á mjög
skömmum tíma.
Að sögn lögreglunnar á Siglu-
firði voru götur hreinsaðar í bæn-
um í gær þannig aó ekkert var að
færi en sannarlega jólalegt yfir
bæinn að líta. „Við erum reyndar
ákafiega vel skóaðir en þetta voru
all margir sentimetrar sem bætti á
hjá okkur,“ sagði vakthafandi lög-
reglumaóur á Siglufirði. JÓH
Frábœrt
verð á
plastrimla-
gardínum
Stœrðir:
40x150-180x150
40x210-180x210
Sníðum eftir máli
KAUPLAND
Kaupangi • Sími 23565 "
INNANHÚSS-
MÁLNINC
10 lítrar
frá
kr. 3.990,-
KAUPLAND
Kaupangi ■ Sími 23565