Dagur - 29.11.1994, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 29. nóvember 1994
FRÉTTIR
Grenjaöarstaöarprestakall:
EinhugUr um aö kalla
sr. Sigurö Ægisson
Fundur aðal- og varamanna í
fjórum sóknum Grenjaðarstað-
arprestakalls var einhuga um að
kalla sr. Sigurð Ægisson, sem er
prestur í Norður-Noregi, til að
gegna Grenjaðarstaðarpresta-
kalli til næstu Qögurra ára.
Fundurinn var haldinn um
helgina og þar var samstaða um
að óska þess að sr. Magnús G.
Gunnarsson á Hálsi yrói settur
prestur í Grenjaðarstaðarpresta-
kalli þar til í vor er sr. Sigurður
getur tekið til starfa. Sr. Magnús
hefur þjónað Grenjaóarstaðar-
prestakalli og er settur prestur þar
till.des. nk. IM
Síldaraflinn kominn
í 100 þúsund tonn
Sfldaraflinn var á fimmtudag
kominn í liðlega 100 þúsund
tonn en leyfilegur hámarksafli á
vertíðinni er 127 þúsund tonn.
Samkvæmt rannsóknum Haf-
rannsóknastofnunar er aðallega
um árgangana 1988 og 1989 að
ræða, en einnig má gera ráð fyr-
ir að eitthvað af árganginum
1991 sé í veiðinni, en það er
mjög sterkur árgangur. Gert var
ráð fyrir að árgangurinn 1990
væri lélegur en í úttekt sem gerð
var í janúar 1994 kom í ljós að
hann er um 700 milljónir tonna,
eða allsterkur.
Búió er aó salta í 107 þúsund
tunnur, þar af í 28 þúsund tunnur
af flökum og bitum. Mest hefur
verið saltað á Hornafirði, 29 þús-
und tunnur, en hjá einstaka stöðv-
um hefur verið mest saltað hjá
Síldarvinnslunni á Neskaupstaó,
eóa 28 þúsund tunnur. Síðan kem-
ur Seyðistjörður meö 14 þúsund
tunnur og Eskifjörður 12 þúsund
tunnur, aðrir staöir vcrulega
minna. A sama tíma í fyrra nam
síldarsöltun 57 þúsund tunnum, en
á allri vertíðinni 96 þúsund tunn-
um. Söltunin nú er því orðin um
12% meiri en á allri síðustu vertíð.
GG
Heilsufar Eyfiröinga um þessar mundir:
Dæmigert fyrri hluta vetrar
I lok hvers mánaðar taka heilsu-
gæslustöðvar á landinu saman
skýrslu um tjölda tilfella smit-
sjúkdóma o.fl. Að sögn Magnús-
ar Ólafssonar, yfirlæknis á
Heilsugæslustöðinni á Akureyri,
er tíðni þessara sjúkdóma í októ-
ber nokkuð dæmigerð fyrir það
sem gerist fyrri hluta vetrar.
I skýrslunni frá Heilsugæslu-
stöðinni á Akureyri fyrir október
kemur fram að 647 leituðu til
læknis vegna kvels, hálsbólgu og
bronkítis, 148 vegna magasjúk-
dóma, 20 vegna strcptókokkaháls-
bólgu, 17 vegna lungnabólgu, 15
vegna kláðamaurs, 6 vegna
hlaupabólu en annaö er minna.
Það sem af er þessum máuði
sagðist Magnús telja aó tíðnin
væri svipuö, þó sennilega væri
ástandið heldur skárra. Um það
væri þó erfitt að segja fyrr cn búið
væri aó taka tölurnar saman. HA
Sigurlaun í Bautamóti afhent
Sigurlaun í Bautamóti Bridgefélags Akureyrar voru afhent í síðustu
viku. Mótið var tvímenningur og stóó yfir í tjögur spilakvöld. Sigur-
vegarar urðu þeir Hermann Tómasson og Asgeir Stefánsson og
standa þeir fyrir miðri mynd. Til hægri eru Þórarinn B. Jónsson og
Páll Pálsson, sem urðu í öðru sæti og til vinstri Ævar Armansson og
Sverrir Þórisson, sem urðu í þriója sæti. A innfelldu myndinni er
Magnús Magnússon meó bikar, sem hann fékk afhentan við sama
tækifæri. Bridgesamband íslands gaf Bridgefélagi Akureyrar þennan
glæsilega grip í tilefni 50 ára afmælis BA á árinu og skildi hann af-
hentur cfnilegasta spilara félagsins hverju sinni til varðveislu.
KK/Myndir: GG
Kveikt var á fyrsta aðventukertinu sl. sunnudag.
Mynd: Robyn
Gerð brimvarnargarðs við Dalvíkurhöfn á undan áætlun:
Gijót komið í 150 metra af alls
320 metra löngum garöinum
- verktaki áætlar verklok í maí
Gerð brimvarnargarðs við Dal-
víkurhöfn gengur samkvæmt
áætlun sem verkstjórinn, Hall-
dór Ingólfsson, gerði en mun
hraðar en verkáætlun Vita- og
hafnamálastofnunar gerði ráð
fyrir. Verktíminn er til 15. októ-
ber 1995 en ef áætlun Halldórs
Ingólfssonar gengur eftir verða
verklok í maímánuði 1995. Hall-
dór segir að ekkert bendi til ann-
ars en sú áætlun muni standast,
svo framarlega sem vetrarveður
trufli ekki akstur frá Hálshöfða,
sunnan Dalvíkur, með grjót í
uppfyllinguna.
Gert var ráð fyrir að afköst á
úthaldi, sem er 11 dagar, þ.e. frá
mánudegi til fimmtudags í vik-
unni þar á eftir, yrðu um 9 þúsund
rúmmetrar, og það hefur náðst.
Farnar eru um 130 ferðir á dag en
um aksturinn sjá 9 bílar, fjórir
vagnar og fintm vörubílar en
hringurinn sem þarf að aka er um
17,3 km. Þrír bílanna eru frá verk-
takanum, fimm frá Dalvík og einn
frá Ólafsfirói. I lok hvers úthalds
cr tekið þriggja daga frí.
Lokió er við að dæla grús undir
brimvarnargarðinn, alls 30 þúsund
rúmmetrum, og lokið er við að
aka um 30 þúsund rúmmetrum af
grjóti af 105 þúsund rúmmetrum
sem áætlað er að l'ari í brimvarn-
argaróinn. Halldór segir að efnið
sem tekið sé á Hálshöfða sé „and-
skotanum harðara“ og því mjög
heppilegt í garðinn. Lokið er vió
að aka grjóti í beina kaflann á
brimvarnargarðinum sem er 150
metrar, og er verið að aka grjóti í
beygjuna, en alls veróur garðurinn
320 metra langur. Þessi nýi brim-
varnargarður mun kyrra mjög út-
hafsölduna í Dalvíkurhöfn og gcra
alla viðlegu og landanir öruggari í
verstu vetrarvcðrum. GG
Betra að vera tíman-
lega með jólapóstinn
Nú þegar jólamánuðurinn geng-
ur senn í garð, er vert að fara að
huga að síðustu skiladögum á
jólapóstinum til vina og ættingja
erlendis.
Póstur og sínii gefur upp
ákveðnar dagsetningar á pósti til
útlanda og sé farið eftir þeim á að
vera tryggt að sendingin skilar sér
til viðtakanda fyrir jól. Sem kunn-
ugt er hægt að velja um A- eða B-
póst og er A-pósturinn fljótari í
förum.
Norðurlönd:
Síðasti skiladagur á A-pósti er
19. des og 7. des á B-pósti og böggl-
um sem fara í fiug þarf að skila 7.
des.
Evrópa utan Norðurlanda:
A-pósti þarf að skila í síðasta lagi
16. des. og B-pósti 2. des. Bögglum
í fiug þarf að skila 5. des.
Austurfylki Bandaríkjanna:
A-pósti þarf að skila 13. des. en
síðasti skiladagur B-pósts var 28.
nóv. Bögglum í fiug þarf að skila í
síðasta lagi 5. des.
Vesturfylki Bandarikjanna og
Kanada:
A-pósti þarf að skila í síðasta lagi
9. des., skildagur B-pósts var 28.
nóv. og fiugpósti þarf að skila 5.
des.
Önnur lönd:
A-pósti þarf að skila 13. des. og
bögglapósti í síaðsta lagi 2. des.
Skiladagur B- pósts er liðinn.
Varðandi póst innanlands þá
eru ekki gefnar upp lokadagsetning-
ar, en reynt er að koma öllu út fyrir
jól sem nokkur möguleiki er á. HA
Husavik:
Mærudagar i vor
Mærudagar nefnist mennigar-
og listahátíð, sem haldin var í
sumarbyrjun á Húsavík og
ákveðið að gera að árlegum við-
burði í bæjarlífinu.
Fyrstu Mærudagamir þóttu tak-
ast afburða vel og var aösókn góð
á dagskrárliði þeirra. Mærudags-
nefnd hélt fund sl. fimmtudags-
kvöld og skilaði af sér til næstu
mærudagsnefndar, en í hana hafa
verið tilnelndar þær Elín Jónas-
dóttir og Hallfríður Jónasdóttir.
Mærudagar munu hefjast að
kvöldi síðasta vetrardags í vor,
eins og í fyrra.
A lund nefndarinnar komu Aó-
alsteinn Baldursson og Olafur
Júlíusson, sem að undanförnu hafa
viðrað hugmyndir atvinnumála-
nefndar frá því á lyrra ári um að
halda sumarhátíó á Húsavík. Óska
þeir félagar eftir viðbrögðum
fólks og fyrirtækja við hugmynd-
inni, sem ekkert er til fyrirstöðu
meó að hrinda í framkvæmd ef
nægur áhugi er fyrir hendi og
heimamcnn tilbúnir að leggja
hönd á plóginn. IM