Dagur - 03.12.1994, Side 7

Dagur - 03.12.1994, Side 7
Laugardagur 3. desember 1994 - DAGUR - 7 Þemadagar í Glerárskóla: 50 ára afmæli íslenska lýðveldisins í Glerárskóla á Akureyri var hefóbundin stundaskrá lögó til hliðar síðustu dagana í nóvember og nemendur og kennarar skólans unnu aö þemaverkefninu, lýðveldis- árið, 50 ára afmæli íslenska lýöveldisins. Nemendur Glerárskóla eru 475 talsins í 1.-10. bekk og verkefnin voru mörg og mismunandi. Blaðamaður Dags fékk að skyggnast inn í kennslustof- umar í síöustu viku og það ríkti svo sannarlega vinnu- gleði í hverju skoti. KLJ Myndlistarmenn Síðuskóla voru að vinna með vcrk Scptcm-hópsins en hópurinn sýndi fyrst saman árið 1947 og hafði mikil áhrif á ísicnska myndlist. Hér er einn máiaranna að fást við stórt verk í anda Scpt-^ cm-hópsins. ^ Blaðamenn skóiablaðs Glcrárskóla, Ólafur, Tinna, Hrafnhiidur Ritstjórar 1. dcs. blaðsins, Hildur og Guðiaugur, og Rannveig að skipuleggja daginn. sem bæði cru í 10. bekk, voru önnum kafnir við að lesa prófarkir og raða niður efni í blaðið. Þennan kór mynda krakkar í öðrum bckk, þau voru að æfa lagið um lonní- etturnar fyrir 1. des. sýninguna. Skyldu allar dýratcgundirnar sem eiga heima á íslandi hafa búið hér frá ör- ófi alda? Þessi hópur komst að því að stari, stormmáfur, minkar og geitung- ar eru nýir Iandncmar á íslandi. Myndir: KLJ Hestar í Norðri: Kleinur, alveg kjörið að bjóða gcstum upp á kleinur á þjóðhátíðarári. Bak- arar skólans tylla sér niður ánægðir með afrakstur dagsins. Gísli á Hofi gefur út bækur um hrossaræktendur á Islandi Fyrir tveimur árum gaf bókaút- gáfa Gísla Pálssonar á Hofi í Vatnsdal út bók, sem ber nafnið Hestar í norðri, hrossabú og ræktendur í Skagafirði og Húnaþingi. Nú tveimur árum síðar eru Hestar í norðri orðinn fjögurra binda bókaflokkur, sem fjallar um hrossabú og ræktend- ur um allt Iand. Bækurnar fjórar eru gefnar út á þremur tungumálum, íslensku, ensku og þýsku og nú er unnið að þýðingu fyrstu bókarinnar í ritröð- inni á norska tungu. Onnur bókin í ritröðinni, Hestar í norðri, fjallar um hrossabú og ræktendur í Eyja- firði, Þingeyjarsýslum og Múla- sýslum en hún kom út árið 1993. A þessu ári komu svo út tvö bindi Hestar í norðri, hrossabú og rækt- endur í Skaftafellssýslum, Rang- árvallasýslum og Arnessýslum og Hestar í norðri, hrossabú og rækt- endur á Vesturlandi, ásamt nokkr- um ræktendum í Húnaþingi og Skagafirði. I þessari hringferð um landið, þar sem hrossaræktendur eru sóttir heim og kynntir, koma við sögu 340 ræktendur íslenska hestsins Hcstar í norðrí, fjórar litrikar bæk- ur frá Bókaútgáfunni á Hofi í Vatnsdal um hrossabú og ræktcnd- ur á Islandi. og bækurnar prýða um eitt þúsund myndir, þar af yfir þriðjungur í lit. Bækurnar eru í senn upplýs- inga- og kynningairit og heimild sem ekki lyrnist. I bókunum er ítarleg nafnaskrá yfir menn, hesta og ræktunarbú og kort af þeim landssvæóum sem bækumar fjalla um. A bókarkápu segir. „Bækurn- ar eru sígild fræðirit sem falla ekki úr gildi þó frægðarsól ein: stakra hrossa eða manna hnigi. í þeim eru ekki aðeins kynntir þeir sem þekktastir eru heldur sá stóri hópur íslendinga sem fæst viö hrossarækt." Bækumar eru prentaðar á vandaðan pappír hjá POB á Akur- eyri og eru eins og áður sagði ríkulega myndskreyttar, mynd í hverri opnu og nánast á hverri síðu. Að sögn útgefanda eru bækurn- ar vinsælar meðal hestamanna er- lendis og hafa verið seldar bæói austan hafs og vestan en mest er eftirspumin í Þýskalandi enda fjöldi íslenskar hesta til heimilis þar. Þrátt fyrir að Gísli hafi lokaö hringnum kringum landið lætur hann ekki deigan síga því nú þeg- ar er unnið að ritun næstu bókar fyrir íslenska og erlenda hesta- menn. Sú bók kemur út á næsta ári og mun meðal annars fjalla um hestanöfn, merkingu þeirra og sögu. KLJ Saga sýslunefndar Eyjafjarðarsýslu 1874-1989 í tveim bindum Höfundur þessa verks, Hjörtur E. Þórarinsson á Tjörn í Svarfaðardal, er ekki með öllu ókunnugur ritun sögulegs efnis á borð við það, sem hér lítur dagsins Ijós. Ungmennasamband Eyjafjarðar hefur tekið að sér að bjóða Eyfirðingum verkið til sölu og getur fólk hvort sem er sent pöntun til UMSE í pósthólf 136, 602 Akureyri eða hringt í síma 96-24011. Verði ritverksins er stillt í hóf því bæði bindin, samtals 1104 bls. með á sjötta hundrað mynda, kosta aðeins 8.000 kr.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.