Dagur - 03.12.1994, Blaðsíða 8

Dagur - 03.12.1994, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Laugardagur 3. desember 1994 Fjólan - Áfangaheimili SÁÁ á Norðurlandi: Á stóra heimilið í Fjólugötunni vantar sófa, skápa og stóla Við Fjólugötu á Akureyri stendur reisulegt einbýlishús, heimili sem er ætlað ellefu karlmönnum sem eiga það sam- eiginlegt að vera óvirkir alkóhólistar. Nú búa þar tíu manns og tveir til viðbótar eru væntanlegir. Áfangaheimilið er rekið af Norðurlandsdeild SÁÁ en daglegur rekstur er flármagnaður með daggjöldum vist- manna og styrkjum frá opinberum aðilum. Fjólan er eina áfangaheimilið fyrri alkóhólista á Norðurlandi en þar dvelja menn allsstaðar að af landinu. Flestir íbúar Fjólunnar koma þangað að lokinni áfengismeðferð en þó er það ekki algild regla. Heimilið tók til starfa í júlí árið 1991 og forstöðumað- ur þess er Sæmundur Pálsson. Sæmundur er fyrrverandi sjó- maóur sem þekkir baráttuna við Bakkus af eigin raun en hann var fyrsti vistmaðurinn sem lauk hefóbundinni dvöl á Fjól- unni. Á Fjólunni rofaði til „Mér þykir mjög vænt um þetta heimili. Þegar ég kom hingað árið 1991 var ég eins langt leiddur alkóhólisti og mögulegt er að veröa og átti að baki langa og raunalega sögu og margar áfengis- meðferðir. Það var svo hér í þessu húsi sem fór aó rofa til og Fjólan skipti sköpum í lífi mínu. Nú hef- ur mér tekist aö höndla það aó láta mér líða vel frá degi til dags og það er stórkostlegt. Fjólan hefur breytt líFi margra annarra á þessum árum og það er ævintýri að fá að fylgjst með því hvernig menn rísa úr öskustónni þegar þeir skilja við Bakkus og ganga út í lífið nýir menn. Enginn skyldi láta sér detta það í hug að ég óski nokkrum manni þess að lenda í þeim sporum sem ég var í. Það er meðal annars þess vegna sem ég reyni aó leggja mitt af mörkum til dæmis meó því að starfa í áfengisvarnaráði,“ sagði Sæmundur, forstöðumaður Fjól- unnar. Eftirtektarverður árangur Að sögn Sæmundar ríkir mikil ánægja með þann árangur sem náðst hefur á áfangaheimilinu en heimilismenn, á þessum árum sem Fjólan hefur starfað, hafa verið á aldrinum frá 17 ára og upp í 63 ára. Árangurinn hefur verið sér- staklega eftirtektarverður í þeim tilvikum þegar langt leiddir vímu- efnaneytendur, sem hræróust í heimi harðrar neyslu á höfðuborg- arsvæðinu, koma í Fjóluna að lok- inni meðferð og kveöja staðinn sem fullnýtir þjóðfélagsþegnar. Flestum íbúum Fjólunnar tekst að veróa sér úti um vinnu eða stunda nám á meðan á dvölinni á áfangheimilinu stendur. Fjólan er því eins og hvert annað heimili þar sem heimilismenn búa saman en sækja sín daglegu störf út fyrir heimilið. Það gilda ákveðnar hús- reglur sem unnið er eftir og að sögn Sæmundar gengur heimilis- haldið árekstralaust þó mun fleiri séu í heimili en hefðbundið er. Ef til vill ættu önnur heimili að taka sér „Fjólumenn“ til fyrirmyndar og setja skýrar vinnu- og um- gengnisreglur til að komast hjá árekstrum? Út í lífið án vímu Æskilegur dvalartími á áfanga- heimili eins og Fjólunni er hálft ár en persónulegar aóstæður hvers og eins eru ávallt hafðar í huga og því getur dvalartíminn verió bæöi styttri og lengri. Þegar að því kemur aó heimilismenn flytji að heiman, af áfangaheimilinu, taka þeir sér góðan tíma til að íhuga næsta skref í eigin lífi. I vetur eru Borgarbíó: Krafta- verkájól- um Sambíóin í Reykjavík og Borg- arbíó á Akureyri hafa tekið til sýninga jólamyndina „Miracle on 34th Street“ eða Kraftaverk á jólum, eins og hún nefnist á ís- lensku. Með aðalhlutverkin fara þau Richard Attenboroug (Jurassic Park), Mara Wilson (Mrs. Doubt- fire) og Elizabeth Perkins (The Flintstones). Mynd þessi er endur- gerð klassískrar myndar frá 1947, þar sem segir frá hinni sex ára gömlu Susan Walker sem hefur glatað trúnni á jólasveininn. Mamma hennar hefur fyrir löngu sagt henni frá „leyndarmálinu“ um sveinka og svo virðist sem jólaóskir Susan muni aldrei rætast. En þessi jól eiga eftir aö koma á óvart. Susan mun fá allra dýrmæt- Sjóðfélagar í Lífeyrissjóði KEA Fundur verður í Starfsmannasal KEA Sunnu- hiíð sunnudaginn 4. desember 1994 kl. 13.30. Á fundinum verða bornar upp til samþykktar breytingar á reglugerð lífeyrissjóðsins. Sjóðfélagar! Mætum allir og gætum okkar hagsmuna, þetta eru okkar laun í framtíðinni. Stjórn SKE 1994. Akureyringar - Eyfirðingar Sorpurðunarstaður á Glerárdal verður frá og með 1. des. opinn sem hér segir: Mánudaga-föstudaga kl. 8.-18. Laugardaga kl. 10-16. Utan ofangreinds tíma er öll sorplosun á Glerárdal stranglega bönnuð. Sorpeyðing Eyjafjarðar b.s. Hcimilismenn á Fjólunni iáta fara vel um sig í gömiu sófunum í stofunni. Sæmundur Páisson forstöðumaður Fjólunnar. fjórir þeirra vistmanna sem dvalið hafa á Fjólunni á árinu á skóla- bekk, ýmist í framhaldsskólum eða á háskólastigi. Göt í stólum, sófum og teppum Ibúar Fjólunnar hafa ekkert fjár- magn til kaupa á húsgögnum, hús- búnaði eða til endurnýjunar á hús- næðinu aó Fjólugötu 10. Nú þegar heimilið hefur verið rekið á fjórða ár eru húsgögnin, sem gefin voru heimilinu þegar þaó tók til starfa, Þessi stóll er sannarlega búinn að skila sínu hlutvcrki en er þó enn í fuilri notkun. oróin slitin svo ekki sé meira sagt. Ibúar Fjólunnar hafa ákveðió aö nota dagana fram að jólum til aó vinna aó endumýjun og lagfær- ingum innanhúss. Áf því tilefni vilja þeir beina þeim óskum, fyrst og fremst til almennings, en einnig verslana svo sem, hús- gagna-, húsbúnaðar-, byggingar- vöru-, og vefnaðarvöruverslana og fyrirtækja hvort einhver eigi í fór- um sínum húsbúnað sem íbúar Fjólunnar gætu notið góðs af. Að skapa notalegra heimili „Hér eru öll húsgögn orðin slitin og úr sér gengin en auk þess væri mjög gaman að fá ýmiskonar hús- búnað sem skapar heimilislegan blæ. Við erum einfaldlega að óska eftir því sem til þarf til að skapa notalegt heimili. Hugsanlega eru einhverjir að breyta til hjá sér núna fyrir jólin og þá yrðum'vió mjög ánægðir ef viðkomandi vildi leyfa okkur að nýta húsgögn eða muni sem teknir hafa verið úr notkun. Hér vantar fyrst og fremst fataskápa, sófa, sófasett, stóla, rúm, hillusamstæðu og hillur. En einnig muni eins og ljós, lampa, myndir og íleira til að Fjólan verói enn heimilislegri en hún er í dag,“ sagði Sæmundur. Þeim sem geta liðsinnt heimil- ismönnum Fjólunnar er bent á að hafa samband við Sæmund í síma 11575 eða Lilju í síma 26558. KLJ 1 his is Uit* new lioliddv elaííic tíiat Americaliaí Wn waiting' fuv. I loveíl il! ★ ★ ★ ★’ -MuLcl NUvcl, SMEAK t'KliMWí ustu gjöf sem hægt er að hljóta ... eitthvaó til að trúa á. Mamma hennar, sem rekur verslun, ræður til sín eldri mann til aó leika jóla- svein og áður en varir segist hann í raun vera alvöru jólasveinn. Til að sanna mál sitt verður sveinki að mæta fyrir rétt og færa fram sannanir fyrir því að hann sé hinn eini sanni jólasveinn. Leikstjóri myndarinnar er Les Mayfield (California Man) en frantleiðandi er enginn annar en John Huges, sá hinn sami og gcrði Aleinn heima eða „Home Alone".

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.