Dagur - 03.12.1994, Side 10
10 - DAGUR - Laugardagur 3. desember 1994
Spáð í stjörnur
helgarinnar
eftir B. Kr.
Peningamálin
taka UNDAR-
LEGA stefnu.
Þú finnur bólgið
peningaveski í
Þetta er gamalt trix hjá
rannsóknarlögreglunni eftir
rólegan nóvember. Þú færð
sekt til að sleppa við kæru.
garðinum.
Þú ákveður að
hætta að
drekka á sunnu-
daginn eftir að
lögreglan stoppar þig við að
setja UPP gardínur í flug-
turninum.
Þú lendir í úr-
taki hjá Hag-
stofu íslands
MJÖG bráð-
lega. Spurt verður mjög
nærgöngulla spurninga um
kynferðismál. Æfðu ÞIG!
Helgin verður
ósköp dauf.
SVO dauf að
páfagaukurinn
heldur að hann sé dauður
og vængbrotnar þegar hann
dettur úr rólunni.
Þú lítur miklu
betur út þessa
dagana, VERST
hvað hlaupaból-
an stendur stutt yfir.
Ekki orð um
það sem sést
stjörnunum
þínum, ef kvik-
myndaeftirlitið hefði séð
það hefðu þau ÖLL sagt
upp. Gakktu HÆGT um
gleðinnar dyr.
Stjörnurnar
segja að þú
kaupir 400
BAGGA af heyi
um helgina, njóttu vel!
%
Þú verður fyrir
slökkvibíl, miss-
meðvitund
ir
og færð heila-
hristing. Þegar þú vaknar
verður þú komin/n með
framsóknarheila. Þú veist
ekkert hvert þú ert að
FARA eða hvað snýr upp og
hvað NIÐUR.
Hættu að ganga
í hægðum þin-
um og ÞU eign-
ast nýja vini.
Þú girnist bók-
staflega ALLT
um þessar
mundir, láttu
það eftir þér, þessum
stundum fækkar. FÍN helgi.
Vinnufélagarnir
eru orðnir leið-
ir á að þurfa
alltaf að vera
að sleikja þig UPP. Bjóddu
þeim að sleikja þig niður,
ÞÁ lagast allt.
EKKI fara út að
skemmta þér
um helgina,
ekki gifta þig,
ekki láta Ijúga upp á þig,
ekki aka of hratt, ekki
borða góðan mat. VERTU
heima og safnaðu skeggi.
STUTT5ACA
HOFUNDUR: SNÆFRIDUR INGADOTTIR
Þessi grænu augu
Hún hafði græn augu í vasanum.
Dökkgræn augu. Þau skoppuðu um
í takt viö hraðan hjartaslátt hennar
á hlaupunum. Blautur vasinn nudd-
aðist við sveitt læri hennar. Það var
gott. Það var gott vegna þess að
þessi blauti vasi sem eitthvaó
skoppaði í var það eina sem gaf
henni fullkomna vissu um það að
hún hefði í rauninni gert það. Að
hún væri í rauninni að hlaupa í
gegnum skóginn, gegnum kyrrðina,
ein.
Hún hljóp áfram, framhjá göt-
unni sem lá upp að húsinu. Húsinu
hans. Hún vissi að hann svæfi bak
við heklaðar gardínumar. Hann
svæfi fast. Hana langaði ekki heim
til hans, ekki strax. Fyrst ætlaði
hún að njóta þess að hafa loksins
sigrað. Loksins. Hún vissi það.
Hún hafði þessi grænu augu í vas-
anum. Loksins átti hún hann ein,
alein. Enginn gæti tekið hann frá
henni. Engin græn augu gætu horft
á hann daðurslega framar, aldrei,
hún réð yfir þeim núna, þau lágu í
vasanum. Klístruð.
Þessi augu höfðu alltaf haft
ágimd á honum, manninum hennar.
Þau höfðu horft, þau höfðu glápt,
hlegið, slefað. I hvert skipti í ná-
lægð hans. Hvemig átti hún aö geta
þolað það? Þau litu ekki af honum,
þau reyndu að tæla hann, tæla hann
burt frá henni. Hún sá það, sá það
með sínum bláu augum. Hún vildi
ekki vera nálægt þeim, hún vildi
ekki aó hann væri þaö.
Fyrst hélt hún þetta vera ímynd-
un, óstjómlega afbrýðisemi, en svo
vissi hún það. Það var ekki þannig.
Hún sá það. Auðvitað reyndi hún,
hún reyndi og reyndi. I fjögur ár
reyndi hún að sannfæra sjálfan sig,
ljúga að sér, reyndi að þola þetta
augnaráð sem þau sendu honum.
Þessi grænu augu gamallar æsku-
vinkonu hans. Núna lágu þau
hreyfingarlaus í vasa hennar. Blaut.
Það var gott.
Hún var stoppuð. Sveitt og móð
stóð hún á bakkanum.
Hún var komin niður að fljótinu.
Það var grátt og Ijótt í morgunkuld-
anum. Hún stakk hendinni í vas-
ann. Jú, þau voru þama enn. Þessi
grænu augu. Hún tók þau varlega
upp og velti þeim fram og aftur í
lófanum. Hún hafði slitið þau upp,
eins og blóm, það hafði ekki verið
erfiðara en það. Hún hafði bara
gripið fast um stilkinn og rifið í.
Hún horfðist í augu við þau örlitla
stund, lokaði síöan lófanum hægt,
en fast og ákveðið.
Vökvinn seytlaði út á milli
fingra hennar. Volgur. Það var gott.
Svo stakk hún höndunum í ískalt
fljótið, opnaði lófann, skolaði
klístrið burt af höndunum og þurrk-
aði bleytuna í gallabuxumar. Þar
flutu þau. Þessi krömdu dökkgrænu
augu flutu á fljótinu.
Þau horfðu á hana í síðasta sinn
þar sem hún gekk svo syngjandi
léttstíg í gegnum skóginn heim á
leið. Heim á leið á móti nýjum og
betri degi. Heim til hans sem hún
átti nú ein, alveg ein, alein.
H
fl
ELGARJUL EILARROT
Umsjón: GT
12. þáttur
Lausnir á bls. I4
Hvaða menntun hefur Fidel Castro?
I Hann er læknir
Hann er lögfræðingur
Hann ver verkfræðingur
í hverju eftirtalinna rikja eru faestir íbúar?
■ ■ íslandi BSfl Lúxembúrg
Möltu
Hvaða áhrif hefur hækkun markaðsvaxta á verð skuldabréfa með föstum vöxtum?
Verðið hækkar
Verðið lækkar
Engin áhrif
Hvaða ár var Marco Polo fæddur?
D 1254
1299
1347
Hvaða norrsent rfld flutti tugi þúsunda tonna af járni og kúlulegur til Þýskalands í selnni heimsstyrjöldlnni?
Danmörk
Noregur
Svíþjóð
6
Fyrir hvaða tölu stendur rómverska talan MDCXLVII?
1447
1647
1667
Hvemig nefnlr maður þýska stjúmlagadómstólinn á frummálinu?
Bundesverfassungsgerecht
Oberstgerichtshof
Konstitubonshof
Hvað eru margir taktar í tölti?
Hver eftirtalinna baeja hefur hlutfallslega flestar götur steyptar?
Akranes
Kópavogur
Reykjavík
Hvað heitir málgagn Samtaka herstöðvaandstæðinga?
Dagfari
Gjallarhorn
Úlfljótur
u
Hvaða merki var skjaldarmerki íslands frá 1904-1919?
Krýndur þorskur á rauðum grunni
Islenskur falki á bláum grunni
Krýndur íslenskur fáni
12
Hver er stundum nefndur faðir tilvistarstefnunnar (I existentiallsme)?
Sigmund Freud
Ronald Reagan
Jean-Paul Sartre
13
Er þlngraeði í Bandarfkjunum?
D Þ
Nei
Það er deilt um það
GAMLA MYNDIN
M3-1502 Ljósmynd: Hallgrímur Einarsson og synir/
Minjasafnið á Akureyri
Hver
kannast
við fólkið?
Ef lesendur Dags þekkja ein-
hvern á þeim myndum sem hér
birtast eru þeir vinsamlegast
beónir að snúa sér til Minja-
safnsins, annað hvort með því aö
senda bréf í pósthólf 341, 602
Akureyri eða hringja í síma
24162 eða 12562 (símsvari).