Dagur - 03.12.1994, Blaðsíða 20

Dagur - 03.12.1994, Blaðsíða 20
- segir Jakob Björnsson, bæjarstjóri á Akureyri, um frumvarp til fjárhagsáætlunar fyrir 1995 Jakob Björnsson, bæjarstjóri og oddviti Framsóknarflokks í bæjarstjórn Akureyrar, segir að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs fyrir árið 1995 sé aðhaldsáætlun. Út frá því sé gengið að ekki verði aukið við skuldir bæjarsjóðs og það kalli á strangt aðhald á öll- um sviðum. Jakob sagði að menn hafí stað- ið frammi fyrir vandasömu verk- efni þegar vinna við gerð fjárhags- áætlunar hófst. Útkoman á yfír- standandi ári sé mun verri en áætl- anir hafi gert ráð fyrir og skeiki þar um 70-100 milljónir króna. Margt komi þar til, t.d. haíi rekst- ur farið fram úr áætlunum og bæj- arsjóður verið dæmdur til að greiða íbúum við Grenilund 35 milljóna króna bætur vegna vatns- tjóns. „Að öllu samanlögðu höf- um við ekki nema um 300 millj- ónir til eignabreytinga, í eignfærð- an og gjaldfærðan stofnkostnað. Þaó er mun lægri upphæð en þriggja ára áætlun gerði ráó fyrir. I henni er gert ráð fyrir 400 millj- ónum króna á næsta ári til eigna- breytinga. Við höfum því um 100 milljónum króna minna fé til framkvæmda á næsta ári en gert var ráð fyrir.“ Jakob sagði að ein megin- ákvörðun viö gerð fjárhagsáætlun- arinnar hafi verið að auka ekki skuldir og þaó setji mönnum þröngan ramma. „Það er þónokkur ákvöróun að hækka ekki skuldir miðað vió þessa þröngu stöóu og hún setur okkur meiri skorður en við hefðum kosið. A undanfömum árum hefur átt sér stað skuldasöfn- un en viö teljum ekki forsvaran- legt að halda áfram á þeirri braut. Eg hefði gjaman kosiö aö svig- rúmið hefði verið meira. Verkefnin eru sannarlega næg. En við leggj- um áherslu á að skerða ekki þjón- ustu við bæjarbúa,“ sagói Jakob. Eins og kom fram í Degi í gær samþykkti meirihluti bæjarráös aö hækka álagningu útsvars á næsta ári um 0,2%, úr 9,0% í 9,2%. Þessi hækkun gefur bæjarsjóði um 24 milljónir króna í auknar út- svarstekjur. Hins vegar er sem fyrr lagt til að fasteignaskattar verði lækkaðir af eigin íbúð fólks sem verður 70 ára eóa eldra á næsta ári. Ekki er gert ráð fyrir Iækkun fasteignaskatts að öðru leyti á næsta ári. Þá verður sorpgjald hækkað á næsta ári um helming, en það var fyrst lagt á í fjárhagsáætlun yfir- standandi árs, úr 1000 krónum í 2000 krónur. Jakob sagði að gert væri ráð fyrir að auknar tekjur af sorpgjaldi, sem eru 5,2 milljónir króna, rynnu til þess að bæta með- feró sorps. Auknar álögur á bæjarbúa, hækkun útsvars og hækkun á sorpgjaldi, miðað við yfir- standándi ár, eru því tæpar 30 milljónir króna, sem er um 2% af heildartekjum bæjarsjóðs. Framkvæmdir ræddar við síðari umræðu Á bæjarstjómarfundi nk. þriðju- dag veróur fjárhagsáætlunin lögð fram til fyrri umræðu, en við síð- ari umræðu, sem er ráðgeró 20. desember, kemur fram hversu miklum peningum verði varið til einstakra framkvæmdaliöa. Jakob sagðist ekki vilja á þessu stigi upplýsa hvaða framkvæmdir væru efst á baugi. Hann sagði hins veg- ar aðspurður aó áfram yrói haldið meó nýjan leikskóla í Giljahverfi og gert væri ráö fyrir að halda áfram með framkvæmdir við ■ ** ■ * rnfi Húsnæðisnefnd Akureýrú^ býður bæjarbúum að skoða nýjar íbúðir í Snægili 5 sunnudaginn 4. desember milli kl. 13.00 og 17.00 Arkiickt: Fanncy 1 lauksdóltii Aftnlvciktnki: P;in hf. Kynntu þér kosti félagslegra íbúða. HUSNÆÐÍSSKRIFSTOFAN Á AKUkEYRl Skipagötu 12 • Sími 25311 Sundlaug Akureyrar. Þá sagði bæjarstjóri að gera mætti ráð fyrir töluverðum fjármunum til þess aó unnt yrói að halda áfram mark- visst vió einsetningu grunnskóla bæjarins. Jakob bætti við að ekki mætti gleyma fjárfestingu hafnar- sjóðs Akureyrar í nýrri flotkví, sem miklar vonir væru bundnar við. óþh Práfkðu Kr svolitla í matargerðina AKRA FLJÓTANDI mnsmrnm Nýr og spennandi möguíeiki í alla matargerð • Inniheldur hollustuolíuna, rabsolíu Þœgilegt beint úr kælis diskápnum mts SMJÖRLÍKISGERÐ AKUREYRI ■s g i i

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.