Dagur - 14.12.1994, Síða 1

Dagur - 14.12.1994, Síða 1
Siglir með 130 tonn af frystum afurðum úr Smugunni Skandia ÆÉk Lifandi samkeppni W - lœgri iðgjöld Geislagötu 12 • Sími 12222 - fer væntanlega á loönufrystingu eftir áramót og mun þá brenna svartolíu Jólaösin byrjuð ápósthúsinu Þcgar aðeins 10 dagar cru til jóla er vissara að fara að huga að því hvenær þarf að vera búið að skila því á pósthúsið, sem komast á til viðtakenda fyrir jól. Jólaösin hjá póstfólki er þegar hafin og það var svo sannarlcga handagangur á bögglapóststofunni á Akureyri í gær. Mynd: Robyn. Togari Siglfirðings hf. á Siglu- firði, sem skráður er í Belize, kom til Sigluíjarðar um hádegis- bilið á mánudag eftir 63 daga túr í Smuguna með 130 tonn af frystum afurðum, mest þorski, og er aflaverðmæti um 34 millj- ónir króna. Auk Siglis hafa Há- gangur I og II frá Vopnafirði, Arnar II frá Skagaströnd og Ott- ar Birting frá Fáskrúðsftrði verið við veiðar í Smugunni. Togarinn heldur ekki aftur til veiða fyrr en í febrúarmánuði, og á þeim tíma verður unnið að því að togarinn brenni svartolíu í stað gasolíu. Að því loknu er hugmyndin að halda á loðnumiöin ef loðnan Atvinnuastandið a Norðurlandi i nóvember verra en í fyrra - eina landssvæðið þar sem ekki er um bata að ræða milli ára Norðurland eystra sker sig nokkuð úr þegar tölur um atvinnuleysi á landinu í síðasta mánuði eru skoðaðar. Frá því í október jókst atvinnuleysið um- talsvert á Norðurlandi vestra en mest íjölgun atvinnulausra var á höfuðborgarsvæðinu og Norður- landi eystra. Atvinnuástandið á landinu var betra á öllum lands- svæðum í nóvember nú en í nóv- ember í fyrra, nema á Norður- landi eystra. Þar versnar ástand- ið. Þá mældist hlutfallslegt at- vinnuleysi sem fyrr mest á Norð- urlandi eystra, 5,8%. Meðalfjöldi atvinnulausra á Norðurlandi vestra var 183 í nóv- ember, eða um 3,5% af áætluðum mannafla kjördæmisins, en var 2,2% í október. Atvinnulausum fjölgaði um 64 aö meðaltali milli mánaða. Atvinnuleysiö eykst um 52,6% því frá því í október en minnkar hins vegar um 23,5% frá nóvembcr í fyrra. Atvinnuástandið breyttist mest nrilli mánaða á Sauðárkróki og ná- grenni en það fjölgaði um 21 að meðaltali eða um 70%. Annars- staðar fjölgaöi um 5 eða færri. Lít- ilsháttar fækkun var á Siglufirði og Drangsnesi. 51 var skráður at- vinnulaus á Sauðárkróki og ná- grenni, 31 á Blönduósi og 13 í Önnur umræða fjárlaga á Alþingi: Ekki gert ráð fyrir fjárveitingu til kaupa á flotkví til Akureyrar Ekki er gert ráð fyrir fjárveit- ingu frá ríkinu í kaup á flot- kví til Akureyrar í fjárlögum fyrir árið 1995 en önnur umræða fjárlaganna fór fram á Alþingi í gær. Einar Sveinn Ólafsson, for- maöur hafnarstjórnar Akureyrar, hafði ekki séð þau gögn sem lögð voru fyrir Alþingi í gær, þegar Dagur hafði samband við hann. Einar Sveinn sagði það þó ekkert nýtt að fjárveitingar frá ríkinu kæmu eftir að framkvæmdir væru hafnar og hann vonast því eftir tjárveitingu á fjárlögum að ári. „Eg held að það hafí enginn reiknaö með fjárveitingu vegna kaupanna á fjárlögum nú. Við höfum hins vegar bréf í höndun- um um að upptökumannvirki séu styrkhæf samkvæmt hafnalögun- um,“ segir Einar Sveinn. Akureyrarhöfn fær 42 milljónir á fjárlögum nú og er þar um ræða skuld ríkissjóðs, vegna frarn- kvæmda sem þegar er lokió. KK Lýtingsstaðahreppi og einnig á Siglufirði. Atvinnuleysi karla mældist 4,1% í nóvember en var 1,6% í október. Atvinnuleysi kvenna mældist 5,5% en var 3,2% í október. Norðurland eystra Atvinnuástand á Norðurlandi eystra versnaði um 35,4% í nóv- ember miðað við mánuðinn á und- an og um 1% frá sama mánuði í fyrra. Atvinnulausir voru 703 eða 5,8% og fjölgaði um 183 í nóvem- ber. Atvinnuástandió breyttist langmest milli niánaða á Akur- eyri, þar sem fjölgar um 114 eóa 33%. Atvinnuleysið töfaldaðist á Ólafsfirði, þar fjölgaði um 22 að meðaltali, í Skútustaðhrcppi fjölg- aói um 11, um 8 í Eyjafjarðar- sveit, 7 í Aðaldælahreppi en litlar breytingar voru annarsstaðar. A Akureyri voru 464 skráóir at- vinnulausir aó meðaltali í nóvem- ber eða 66% af þeim sem atvinnu- lausir eru á svæðinu. A Ólafsfirði voru 44 skráðir atvinnulausir, 34 á Húsavík, 33 í Skútustðahreppi, 27 í Eyjafjarðarsveit, 13 í Aóaldal og 10 á Raufarhöfn, en fáir annars- staðar. Atvinnulausum körlum fjölgaöi að meðaltali um 129 og voru 5,1% þeirra án vinnu í nóvcmber. Var það hlutfall hvergi hærra á land- inu. Atvinnulausum konum fjölg- aói urn 54 og var hlutfallslegt at- vínnuleysi þeirra 6,8% í nóvem- ber. Aó lokum er vert að bera sam- an hlutfallslegt atvinnuleysi eftir landssvæðum í nóvember. A Vest- urlandi var það 3,8%, á Vestfjörð- um 1,5%, á Nl. vestra 3,5%, á Nl. eystra 5,8%, á Austurlandi 2,9% á Suðurlandi 4,6%, á Suðurnesjum 4,7% og í Reykjavík 4,3%. HA verður þá farin að gefa sig og verður loðnan þá fryst um boró, ýmist heil eða flökuð og verður þaó sem ekki nýtist brætt í mjöl- verksmiðju skipsins. Nýtingin verður því 100%. Sótt verður um aó fá að taka við loðnunni úti á sjó innan íslensku landhelginnar, og munu loönubátar þá landa við skipshlið. Til þess að fá þetta leyfí þarf aó breyta skráningu skipsins og verður þaó þá skráð B-skrán- ingu samkvæmt íslenskum lögum um skipaskráningar. Hinn togari útgerðarinnar, Sigl- firðingur SI-150, hefur síðustu 18 daga verið fyrir austan land á karfa- og grálúðuveiðum, en aflinn hefur verið ntjög tregur auk þess sem veður hefur verið mjög rysj- ótt. „Það er allt fullt af þorski kringum landið, en sáralítió af karfa og grálúðu fyrir austan að undanfömu. Siglfiróingur kemur inn til löndunar fyrir jól. Utgeróin á Sigli hefur gengið ágætlega síðan hann kom til lands- ins frá Kanada snemma í vor og byrjunarerfiðleikar sem vió lentum í vegna trollsins eru nú að baki,“ sagði Ragnar Ólafsson, skipstjóri á Sigli, og einn eigenda Siglfirðings hf. GG Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmi: Nýtt embætti héraðsprests - samkvæmt tillögu fjárlaganefndar Nái tillaga íjárlaganefndar Alþingis fram að ganga verður á næsta ári stofnað til nýs embættis héraðsprests í Eyjafjarðar- og Þingeyjarpró- fastsdæmi og segir Þorbjörn Hlynur Árnason, biskupsritari, að staðan verði þá auglýst laus til umsóknar strax eftir áramót. „Nái þessi tillaga fram að ganga má segja að Norðlendingar séu að fá til baka enrbætti sem hvarf við prestakallabreytinguna 1990. Þá voru sameinuð Háls- prestakall og Staðarfellsprestakall í eitt prestakall. Við höfum ítrekað á hverju ári síðan að nýtt embætti yrði tekið upp í stað Staðarfells- embættisins og það hefur loksins gengið eftir núna,“ sagði Þorbjörn Hlynur. Hann sagði ekki liggja fyrir hvar héraðspresturinn verði staðsettur, en honum sé ætlað að þjóna bæói Eyjafjarðar- og Þing- eyjarprófastsdæmi. - Hvaða hlutverk hefur héraós- prestur? „Hann hefur með hendi lögum samkvæmt ýmisleg sameiginleg verkefni í prófastsdæmum, eins og t.d. barna- og æskulýósstarf, fræðslustarf og e.t.v. starf meó öldruðum. Einnig tekur hann að sér tímabundnar afleysingar og aóstoð í einstökum prestaköllum.“ Þorbjörn Hlynur segir að áður en lögin árið 1990 tóku gildi hafi verið farprestar á landsvísu sem þjónuðu í afleysingum, veikindum og fríu'm sóknarpresta. „Síðan hafa veriö tekin upp tvö farprests- embætti í Reykjavík og eitt á Kjalarnesi og nú bætist væntan- lega íjóróa cmbættið við þarna fyrir noróan,“ sagði Þorbjörn Hlynur Árnason. óþh dagar 77, árg. Akureyri, miðvikudagur 14. desember 1994 240. tölublað

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.