Dagur - 14.12.1994, Blaðsíða 8

Dagur - 14.12.1994, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - Miðvikudagur 14. desember 1994 NYJAR BÆKUR <|^Hrísalundi Afgreiðslutími: Mánud.-föstud.kl, 10.00-19.30 laugard.kl. 10.00-18.00 ^^Sunnuhlíð Afgreiðslutími: Mánud.-laugard. kl. 10.00-20.00 Skjaldborg: Hestar og menn 1994 Bókaútgáfan Skjaldborg hefur gefið út bókina Hestar og menn 1994. Höfundar bókarinnar eru Guðmundur Jónsson og Þorgeir Guðlaugsson og segja þeir í henni frá hestamönnum og hestum þeirra á ferðalögum og í keppn- um. Fjallað er um helstu mót sumarsins og birt er skrá yfrir úr- slit þeirra. Viðtöl eru við þá knapa sem sköruðu framúr á árinu. Einnig er rætt um hrossaræktend- ur og landsmótshaldara á Hellu. Bókin er prýdd fjölda ljósmynda og svarthvítra. Hestar og menn 1994 er 250 bls. að stærö og í stóru broti. Verð bókarinnar er 3.980 kr. Líttu við í kjötdeildinni hjá okkur Unaðssemdir erótískrar nuddtækni Skjaldborg hf. hefur sent frá sér bókina „Unaðssemdir erótískrar nuddtækni“ eftir Stephen Russel og Jurgen Kolb í þýðingu Gissurar O. Erlingssonar. Tao erótískrar nuddtækni birtir í fyrsta skipti kerfi sem borist hef- ur fram aldirnar eftir duldum leið- um frá einum kunnáttumanni til annars. Skýrar leiðbeiningar eru dregnar fram í dagsljósið með ná- kvæmum og hugvekjandi ljós- myndum til þess að þú eigir auð- velt meó að tileinka þér list ta- óskrar nuddtækni til kynörvunar. Bókin er 190 bls. Verð kr. 3380. Heljarbrúin - eftir Hammond Innes Hjá bókaútgál'unni Iðunni er kom- in út bókin „Heljarbrúin“, ný skáldsaga eftir spennusagnahöf- undinn Hammond Innes, sem er íslenskum lesendum að góðu kunnur. Þetta er 26. bók hans sem út kemur á íslensku frá því að hin fyrsta, Ofsi Atlantshafsins, kom út hjá Ióunni árið 1967. Heljarbrúin er viðburðarík spennusaga sem gerist í lofti, á sjó, á Falklandseyj- um og suóur í Ishafinu. Edwin Cruse er fífldjarfur ofur- hugi sem breski flugherinn getur ekki hamió og eftir aó hann flýgur vélinni sinni undir brú í annaö skiptið á ferlinum neyóist hann til að hætta störfum. En þá birtist hinn dularfulli Iain Ward og býður honum starf við björgun flugvélar í Suóur-íshafinu. Þar býður Her- kúles-vél föst á borgarísjaka. Brátt rennur upp fyrir Cruse að nú hefur hann fengið erfiðasta verkefni lífs síns. Hvítar og nákaldar ísbreiður Suðurskautslandsins eru háska- legri en nokkur brú sem hann hef- ur komist í tæri vió og kannski stafar honum ekki síður ógn af ævintýramanninum Ward og hinni fögru en miskunnarlausu Belle, sem á skelfílega sögu aó baki. Hvert er raunverulegt erindi þeirra suður á ísinn? Og hverjir eru það sem elta þau? Nanna Rögnvaldardóttir þýddi bókina sem er 290 bls, prentuð í Prentbæ hf. Verð kr. 2280. Skjólstæðingurínn Iðunn hefur gefió út bókina „Skjólstæðingurinn“, nýja og æsi- spennandi sögu el'tir John Gris- ham, sem orðinn er einn vinsæl- asti spennusagnahöfundur verald- ar. Eftir hann hafa komió út hinar frábæru spennusögur Fyrirtækið og Pelíkanaskjalið. Kvikmyndin The Client, sem geró er eftir bók- VÖRUÚRVAL, GÆÐA FRAMLEIÐSLA OG GOTT VÖRUVERÐ ÞÚ FINNUR ÖRUGGLEGA EITTHVAÐ VIÐ ALLRA HÆFI HJÁ OKKUR! LEITAÐU EKKI LANGT YFIR SKAMMJ - KOMDU.VIÐ Á HÚSAVÍK AÐUR EN ÞU FERÐ ANNAÐ! VERSLUM I HEIMABYGGÐ FYRIR ÞESSI JOL! in yt Mattmr ffliðbcerl KAUPFELAG ÞINGEYINGA STOFNAÐ 1882 € f « 1 4 1 4

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.