Dagur - 24.01.1995, Síða 3

Dagur - 24.01.1995, Síða 3
FRETTIR Þriðjudagur 24. janúar 1995 - DAGUR - 3 Úthafsrækjukvótinn er 63.002 tonn á fiskveiðiárinu 1994/1995: Norðlendingar hafa 34,1% af heildinni til ráðstöfunnar ÚTSALA ÚTSAIA -10,72% kemur i hlut Akureyrar Úthlutaður úthafsrækjukvóti á fiskveiðiárinu 1994/1995 er 63.002 tonn og hefur aldrei verið meiri, en á fiskveiðiárinu 1993/1994 var hann 51.998 tonn og 40.000 tonn fiskveiðiárið 1992/1993. Fjórðungur þess afla, eða 25,15%, kemur í hlut Norð- urlandskjördæmis eystra en 8,95% í hlut Norðurlandskjör- dæmis vestra. Næsthæst er Reykjaneskjördæmi með 16,56%, en önnur kjördæmi eru Suðurland með 7,84%, Reykja- vík með 8,84%, Vesturland með 8,26%, Vestfirðir með 14,30% og Austfirðir með 10,11%. Af einstaka byggöarlögum á landinu öllu hafa akureyrskar út- gerðir og verksmiðjur fengið mest í sinn hlut, eða 15.847 tonn, sem er 10,72% af heildarkvótanum en 42% af því magni sem kemur í hlut Norðurlandskjördæmis eystra. Onnur byggðarlög á Norð- urlandi eru Olafsfjörður með 1.236 tonn eða 1,96%, Grímsey meö 2 tonn eða 0,003%, Hrísey með 1.086 tonn eða 1,72%, Dal- vík með 2.106 tonn eða 3,34%, Árskógssandur með 601 tonn eða 0,95%, Hauganes meó 171 tonn eða 0,27%, Grenivík með 293 tonn eða 0,47%, Húsavík með 3.002 tonn eða 4,77% og Þórshöfn með 598 tonn eða 0,95% af heild- arkvótanum. Á Norðurlandi vestra kemur stærstur hlutinn í hlut Siglfirðinga, 2.876 tonn, eða 4,57% af heildar- kvótanum en 51% af þeim kvóta sem kemur á Norðurland vestra. Önnur byggðarlög eru Skaga- strönd með 806 tonn eða 1,28% og Blönduós með 1.955 tonn eóa 3,10%. Það vekur athygli að enginn út- hafsrækjukvóti er á Kópaskeri. Fimm milljónir í tilraunaverkefni til tveggja ára: Fjölskylduþjónusta fyrir allt Eyjafjarðarsvæðið Rannveig Guðmundsdóttir fé- lagsmálaráðherra hefur lagt fyr- ir Alþingi þingsályktunartillögu um mótun opinberrar fjöl- skyldustefnu og að styrkja stöðu fjölskyldunnar. Meðal þess sem þar er gert ráð fyrir er að komið verði á tilraunaverkefni, fjöl- skylduþjónustu á höfuðborgar- svæðinu og á vegum héraðs- nefndar Eyjafjarðar. Gert er ráð fyrir að sveitarfélögin leggi fram sömu fjárhæð og ríkið til þessa verkefnis. í frumvarpi til laga um breyt- ingu á lögum um vemd bama og ungmenna er gert ráð fyrir að grunnþjónusta, sem feli í sér ráð- gjöf og aóra félagslega aðstoð; verði í höndum sveitarfélaga. I umfjöllun landsnefndar um Ár fjölskyldunnar 1994 á málefnum bama og ungmenna komu fram áhyggjur yfir því að sveitarfélögin væru ekki reiðubúin aó veita þessa Atvinnumálanefnd Húsavíkur: VIII láta gera arðsemismat fyrir loðnu- verksmiðju Atvinnumálanefnd Húsavíkur hefúr fundað stíft að undan- förnu og rætt um hugsanlega uppbyggingu Ioðnu- og sfldar- verksmiðju á Húsavík. Slík upp- bygging er talin hafa mikla þýð- ingu fyrir framtíð Húsavíkur sem fiskvinnslubæjar. Atvinnuþróunarfélagið hefur látió gera forkönnun á möguleik- um á að koma upp loðnu- og síld- arverksmiðju og nefndin hefur fengið Bjama Aóalgeirsson út- geröarmann á fund, nefndinni til ráðuneytis, en meginforsenda til byggingar verksmiðju er að hægt sé að tryggja henni hráefni. Nefndin hefur óskað eftir því við Stefán Jónsson, atvinnufull- trúa, aö hann leiti eftir styrkveit- ingu til Atvinnuþróunarfélagsins til að láta gera arðsemismat fyrir síldar- og loðnuverksmiðju sem framleiði gæðaafurðir. IM þjónustu við núverandi aðstæður. Göngudeildarþjónusta við Ung- lingaheimili ríkisins verður lögð nióur og til þess að tryggja að sú þjónusta sem þar var veitt leggist ekki nióur hefur verið ákveðið að hvetja sveitarfélögin að sameinast um að efla fjölskylduþjónustuna. Verja á 18 milljónum króna til þess að setja á stofn tilraunaverk- efni um göngudeildarþjón- ustu/fjölskylduráðgjöf til handa fjölskyldum þar sem böm 0-18 ára eru innanborðs. Annars vegar var sveitarfélögunum á höfuðborgar- svæóinu boðin þátttaka og skyldi 13 milljónum varió til þcirrar framkvæmdar. Hins vegar er gert ráð fyrir 5 milljónum til þess að efla sameiginlega bama- og fjöl- skylduráðgjöf á öllu Eyjafjarðar- svæðinu. Skilyrði er að sveitarfé- lögin leggi fram sömu fjárhæð og ríkið. SV Fann dauðan fálka á Akureyri Ungur Akureyringur, Guðjón Unnar Hjálmarsson, fann dauðan fálka á Bárufelli á Akureyri sl. sunnudag. Talið er sennilcgt að fálkinn hafi drepist í óveðrinu í síðustu viku. Guðjón Unnar ætlaði að ræða við Ævar Petersen, fuglafræðing, um fund sinn og i framhaldinu verður fálkinn líklega sendur til Reykjavíkur, til rannsóknar. Á myndinni er Guðjón Unnar með fálkann. Mynd: KK Þar er fyrst og fremst unnin inn- fjarðarrækja veidd á Öxarfirði en einnig er eitthvað keypt af úthafs- rækju til vinnslu. Þaö sama má segja um Hvammstanga, Sauðár- krók og Hofsós, enginn úthafs- rækjukvóti kemur í hlut þessara byggðarlaga, en nokkuó stór rækjuverksmiðja, Dögun hf., er starfrækt á Sauðárkróki. GG • • Gránufélagsgötu 49, (Laufásgötu megin) sími 27743. VISA 4. Rammaáætlun ESB Rannsókna- og tækniáætlanir KYNNING Á AKUREYRI Efni: Kynning á starfsemi Evrópusambands- ins varðandi rannsóknir og tækniþróun á sviði iðnaðar og matvælaframleiðslu. Markhópur: Stjórnendur fyrirtækja og rannsóknar- stofnana á Norðurlandi. Staður: Hótel KEA, Akureyri. Dagur: Þriðjudaginn 24. janúar 1995. Tími: 13.00-15.30. Fundarstjóri: Dr. Þorsteinn Gunnarsson. DAGSKRÁ: 1. Kynning á 4. Rammaáætlun ESB. Dr. Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri. 2. Rannsókna- og þróunarstarfsemi: • Rannsóknasamstarf (CRAFT) Hörður Jónsson, Rannsóknarráði íslands. • Tækniyfirfærsla og nýting á rannsóknaniður- Stöðum (VALUE, SPRINT). Emil B. Karlsson, Iðntæknistofnun íslands. • Fiskveiðar og landbúnaður (AIR). Dr. Hjörleifur Einarsson, Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins. 3. Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna (KER) Emil B. Karlsson, lóntæknistofnun íslands. 4. Ferli umsókna. Hörður Jónsson, Rannsóknarráði íslands. Iðntæknistofnun Islands - Akureyri. Skrifstofa Atvinnulífsins á Norðurlandi. Háskólinn á Akureyri. Kynningarmiðstöð Evrópurannsókna.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.