Dagur - 07.02.1995, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - Þriðjudagur 7. febrúar 1995
FRÉTTIR
Raufarhöfn:
Ásgeir Guð-
mundsson með
mjög góðan afla
Ásgeir Guðmundsson SF-
112, sem er 214 tonna bátur,
sem nýlega var keyptur til
Raufarhafnar, hefur fískað
mjög vel á þessu ári af mjög
góðum fiski sem landað hefur
verið á Raufarhöfn til vinnslu
hjá Fiskiðju Raufarhafnar hf.
Stofnað var sérstakt fyrir-
tæki, Atlanúpur hf., um kaupin
á bátnum, og er það meó heim-
ili og vamarþing á Homafirói.
Sl. föstudag landaði bátur-
inn 40 tonnum þrátt fyrir að
leiðindaveður hafi verið á mið-
unum fyrir Suðausturlandi, þar
sem báturinn hefur verió á
veiðum. Fiskurinn hefur farió í
dýrustu pakkningamar til út-
flutnings. GG
Frá undirritun samstarfssamningsins. Frá vinstri: Hermann Sigtryggsson, íþrótta- og tómstundafulltrúi, Gunnar
Jónsson, formaður HM-nefndarinnar á Akureyri, Jakob Björnsson, bæjarstjóri, Geir H. Haarde, alþingismaður og
formaður framkvæmdanefndar HM-95, Ólafur Schram, formaður HSÍ, og Hákon Gunnarsson, framkvæmdastjóri
kcppninnar. Lengst til vinstri er áifurinn Mókollur, lukkutröll HM-95 á íslandi. Mynd: Halldór.
HM-95 á Akureyri:
Samstarfssamningur undirritaður
- endurbætur á Iþróttahöllinni hefjast á næstu dögum
Sl. föstudag var undirritaður
samstarfssamningur milli Akur-
eyrarbæjar annars vegar og
framkvæmdanefndar um HM-
95 á íslandi hins vegar, varðandi
þann riðill Heimsmeistara-
keppninnar í handbolta sem
verður á Akureyri. Raunar
verða einnig á Akureyri tveir
leikir í 16 liða úrslitum og aðrir
tveir í 8 liða úrslitum keppninn-
ar. Fyrsti leikurinn á Akureyri
er 8. maí kl. 15.00 þegar Spán-
veijar og Kúvætar mætast.
Á Akureyri hefur verið starfandi
nefnd til að undirbúa þann þátt
keppninnar sem þar fer fram og að
sögn Gunnars Jónssonar, formanns
nefndarinnar, felur samingurinn
sem undirritaður var á föstudaginn
í sér verkaskiptinguna milli HM-
nefndarinnar á landsvísu og Akur-
eyrarbæjar. „Akureyrarbær skuld-
bindur sig til þess að íþróttahöllin
sé tilbúin til að taka við þessum
leikjum. Við hér fyrir norðan sjáum
um alla framkvæmd þeirra, tökum
á móti liðum, dómurum og þess
háttar. Einnig að tryggja öryggis-
gæslu, lyfjaeftirlit og við verðum
ábyrg fyrir ritaraborðinu og tíma-
vörslunni svo dæmi sem tekið.
Okkur ber einnig að sjá til þess að
„Ég vona að maðurinn fái aftur
fötin sín,“ sagði Sigurður Þórar-
insson hjá Fatahreinsun Húsa-
víkur. Hann telur líklegast að
föt sem átti að hreinsa eftir
brunann í Þingey hafí verið tek-
in af misgáningi og talið að um
rusl hafí verið að ræða.
Eins og fram hefur komið
hægt verði að sjónvarpa frá leikjun-
um. Veitingasala verður einnig á
okkar höndum, svo og sala minja-
gripa,“ sagði Gunnar.
Eins og fram hefur komið þarf
að gera talsverðar endurbætur á
Höllinni. Á næstu dögum verður
bjargaóist fáklæddur maóur naum-
lega úr íbúð yfir versluninni Þing-
ey á Húsavík í bruna sem þar varð
aðfaramótt 30. jan. Maðurinn
missti ótryggt innbú sitt í brunan-
um. Hann tíndi síðar saman sótug-
an og reykmettaðan fatnað, rúm-
fatnað og sængur og svefnpoka og
fór með í Fatahreinsunina, þar
sem reyna átti að hreinsa þetta
fyrir hann. Vegna reykjarlyktar-
innar var fatnaðurinn geymdur í
ólæstum gámi utan við hreinsun-
ina, og hið ótrúlega átti sér stað;
að á föstudagsmorguninn voru
pokar og kassar með þessum fatn-
aði horfnir úr gámnum.
„Þetta er skaði fyrir eigand-
byrjað að skipta um ljós og 7. apr-
íl hefst vinna við að endumýja
dúkinn á gólfinu. í þessum mán-
uði verður ráðinn starfsmaður
HM-nefndarinnar á Akureyri til
aó vinna að undirbúningi keppn-
innar. HA
ann,“ segir lögreglan og á bágt
með að trúa því að um eiginlegan
þjófnað hafi verið að ræða, heldur
hafi einhverjir talið sig vera að
hirða úr ruslagámi í skjóli nætur.
En fatnaðurinn var ekki rusl, held-
ur svo til það eina sem maðurinn
sem bjargaðist úr brunanum átti
eftir. Gámurinn er enn á sínum
stað ef þeir sem hafa þennan fatn-
að undir höndum vilja skila hon-
um. Eins tekur lögreglan á Húsa-
vík við nafnlausum ábendingum
um hvar fatnaðinn megi finna í
síma 41303 og slíkum tilkynning-
um má einnig koma á skrifstofu
Dags á Húsavík, en þar er sími
41585. IM
Flugmálastjórn hyggst kaupa
Bása í Grímsey:
Starf umdæmisstjóra
auglýst á næstunni
Byggingaskýrsla á Húsavík 1994:
Húsavík:
Þjófnaður eftir bruna?
- fatnaður mannsins sem bjargaðist er horfinn
Fjórar íbúðir fullgerðar
Flugmálastjóm hyggst á næst-
unni auglýsa starf umdæmis-
stjóra Flugmálastjórnar á Norð-
urlandi, en Stefán Árnason hef-
ur verið settur umdæmisstjóri
allt síðan Gunnar Oddur Sig-
urðsson lét af störfum á sl. ári.
Birgir Ólafsson, slökkviliðsstjóri
á Reykjavíkurflugvelli, leysti
Stefán af um skamman tíma á
sl. ári.
Jóhann H. Jónsson, fram-
kvæmdastjóri flugvallaþjónustu
Flugmálastjómar, segir að til
standi að kaupi fasteign í Gríms-
ey, Bása, sem auglýst hefur verið
til sölu. Flugmálastjóm á fyrir
gamalt, lítið, viólagasjóðshús í
Grímsey sem heldur hvorki vatni
né vindi og því nauðsyn á að end-
umýja húsakostinn. Jóhann segir
húsið í Básum fullstórt fyrir starf-
semi Flugmálastjómar í eyjunni,
þ.e. farþegaskýli, en ef áhugi er
fyrir hendi að halda áfram rekstri
hótels í sumar í húsinu eins og
undanfarin sumur þá er opið að
leigja þá aðstööu. Húsið er stað-
sett á flughlaðinu, og segir Jóhann
að Flugmálastjóm sé ekki hlynnt
því að ef húsið seljist á frjálsum
markaði og að í það flytji t.d. stór
bamafjölskylda. Þaó fari einfald-
lega ekki saman, flugrekstur og
böm, og því finnist þeim skylt að
reyna að ná samningum um kaup
á húsinu.
Vióbyggingu við flugstöðvar-
húsið á Akureyri lýkur í haust og
mun þá aðstaða flugfarþega batna
til muna, auk þess sem það auð-
veldar móttöku erlendra ferða-
manna sem koma hingað, t.d. í
beinu flugi erlendis frá.
Á sl. sumri var sett bundið slit-
lag á flugbrautir Húsavíkurflug-
vallar, Siglufjarðarflugvallar og
Þórshafnarflugvallar og á þessu
ári stendur til að leggja bundið
slitlag á Sauðárkróksflugvöll. GG
Byggingaskýrsla 1994 fyrir
Húsavíkurkaupstað hefúr verið
gerð. Samkvæmt skýrslunni
voru 4 íbúðir fúllgerðar á árinu
og 7 íbúðir náðu fokheldisstigi
auk þess sem 1 hús er í smíðum
en hefur ekki náð fokheldisstigi.
í Miðhvammi voru 16 íbúðir
teknar í notkun, þar af 12 bú-
seturéttaríbúðir.
Á árinu hófu Islenskir sjávar-
réttir byggingu á 220 fm atvinnu
húsnæði. Byggður var kjallari 2.
áfanga Borgarhólsskóla. Viðbygg-
ing var reist við Golfskálann og
auk þess voru byggðir bílskúrar
og minni viðbyggingar.
„Það hefur dregið úr opinber-
um byggingum en framundan er
útboð á 2. áfanga Borgarhóls-
skóla, uppsteypu og fullnaðarfrá-
gangi hússins að utan. Aðrar stór-
ar byggingaframkvæmdir eru ekki
fyrirsjáanlegar eins og er, en við-
gerðarþáttur hefur meira komið
inn í myndina. Það hefur ekki ver-
ið byggt minna af íbúðarhúsnæði
á sl. ári en árin þar á undan. Nýjar
félagslegar íbúðir hafa ekki verið
byggðar síðan 1992, en 1993 voru
keyptar þrjár íbúðir og verið er að
kaupa tvær núna. Þessar íbúðir
veróa endurbættar og seldar í fé-
lagslega kerfinu, en okkur ber
skylda til að kanna hvort íbúðir
eru fáanlegar til kaups áður en
ráðist er í nýbyggingar. Hins veg-
ar verð ég var við vaxandi þörf
fyrir leiguhúsnæði,“ sagði Olafur
Júlíusson, byggingafulltrúi, að-
spurður um bygginga- og húsnæð-
ismál. IM
Akureyri:
Bæjarmála-
punktar
■ Á fundi bygginganefndar 1.
febrúar sl. var tekið fyrir erindi
frá Guðnýju Önnu Annasdóttur
þar sem hún spyrst fyrir um
hvort leyfi fengist til aó breyta
og reka leikskóla í húsinu nr. 1
viö Móasíóu. Byggingarnel'nd
tekur jákvætt í erindið, en
bendir á að fyrir þarf að liggja
samþykki annarra eigenda í
húsinu.
■ Á sama fundi bygginga-
nefndar var tekið fyrir annaó
erindi lrá Guðnýju Önnu þar
sem hún spyrst fyrir um hvort
leyfi fengist til aó reka sérskóla
fyrir 5 ára böm í austurhluta
félagshcimilis Þórs, Hamri við
Skaróshlíö. Bygginganelhd
tekur jákvætt í erindið.
B Bygginganefnd hefur hafnað
erindi Péturs Bjamasonar, f.h.
Ötuls hf., um lóð austan gatna-
móta Glcrárgötu og Strandgötu
lil að byggja á hús fyrir veit-
ingarekstur ca. 300 l'ermetrar.
■ Gísli Bragi Hjartarson hefur
verið kjörinn formaður firam-
kvæmdanefndar, Jakob Bjöms-
son var kjörinn varaformaður
og Þórarinn B. Jónsson ritari.
Aðrir í nefndinni em Heimir
Ingimarsson og Ásta Sigurðar-
dóttir.
■ Leikskólanefnd lét bóka á
fundi sínum 25. janúar sl. aö
hún álíti aö ekki sé ráðlegt aö
gera róttækar breytingar á
starfsemi gæsluvalla bæjarins,
a.m.k. fyrr en séð verður hver
áhrif einsetning skóla hefur á
aðsóknina. Leikskólanefnd er
engu að síður þeirrar skoóunar,
að þegar þörfinni fyrir leik-
skólarými hefur verið mætt, sé
eðlilcgt aó leikskólancfnd hætti
starfrækslu gæsluvallanna en
gefi foreldra- eða hverfasam-
tðkum kost á að nýta mann-
virki og aðstööu.
■ Á fundi umhverfisnefndar 1,
febrúar sl. var rætt ura friðun
óshólma Eyjafjarðarár. Á fund-
inn mættu Bjami Guðleifsson,
formaður náttúruvemdamefnd-
ar Eyjaíjaröarsýslu, Benedikt
Bjömsson, skipulagsráðgjaft
Eyjafjarðarsveitar, og Pétur
Þór Jónasson, sveitarstjóri
Eyjafjarðarsveitar. Ákveðið
var að Benedikt Bjömsson og
Ámi Steinar Jóhannsson, um-
hverfisstjóri, vinni kort er sýni
afmörkun svæðisins og kanni
hvaða form vemdunar er
heppilegast.
■ Umhverfisnelhd samþykkti
að leggja til við bæjarstjórn
Akureyrar að hún beini þeirrt
tilmælum til Vegagerðar ríkis-
ins að sett verói upp götulýsing
á stofnbrautina frá Akureyrar-
flugvclli, að mörkum lögsagn-
arumdæma Akureyrar og Eyja-
fjarðarsveitar.
■ Húsnæðisnefnd hefur sam-
þykkt að halda áfram viðræð-
um við Pan hf. um kaup á sex
íbúða húsi vió Snægil, svo og
að hefja viðræður við Fjölni hf.
um kaup á tveim íbúðum vió
Skútagi. Einnig gerir nefndin
ráð fyrir að keyptar verói þrjár
notaðar íbúóir.