Dagur - 07.02.1995, Blaðsíða 10
10 - DAGUR - Þriðjudagur 7. febrúar 1995
ENSKA KNATTSPYRNAN
SÆVAR HREIÐARSSON
Cole opnaði markareikninginn
Manchester United saxaði á for-
skot Blackburn á toppi deildar-
innar á laugardaginn með góð-
um sigri á Aston Villa þar sem
dýrgrípurinn Andy Colc skoraði
fyrsta mark sitt fyrir United.
Liverpool og Forest gerðu jafn-
tefli og Leeds náði ekki að skora
hjá Wimbledon. Hrakfarir Ar-
senal halda áfram og aðeins mu
leikmenn liðsins náðu að klára
leikinn gegn Wednesday.
MAN. UTD.-ASTON VILLA 1:0
Áhorfendur á Old Traf-
ford fengu loks að
kynnast markavél-
inni Andy Cole þeg-
ar meistaramir tóku
á móti Aston Villa.
Snemma í leiknum
lenti hann í samstuði
við Brian Small, vam-
armann Villa, og fékk
mikla bólgu í kringum
vinstra auga. Hann lét það þó ekki
á sig fá og eineygður lagði hann
upp fyrsta færi leiksins en Lee
Sharpe skaut í stöngina af stuttu
færi. Dennis Irwin var einnig ná-
lægt því að skora áður en Cole
skoraöi eina mark leiksins á 18.
mínútu. Eftir homspymu skallaði
Gary Pallister boltann inn í mark-
teig þar sem Andy Cole tók glæsi-
lega við og
skoraði meö
þmmuskoti.
Það setti
ljótan svip á
leikinn þegar
gamli
Úrslit Úrvalsdeild
Coventry-Cheisea 2:2
Everton-Norwich 2:1
lpswkh-C. Paiace 0:2
Uicester-West Hám 1:2
Man. UtdL-Aston V01a 1:0
N. Forest-Liverpool 1:1
QPR-Newcastle 3:0
Sheft Wed.-Arsenal 3:1
Southampton-Man. City : 2:2
Wimbledon-I^eds 0:0
Tottenham-Blackburn 3:1
1. deild
Bolton-Wolves 5:1
Bristol C.-Bamsley 3:2
Burnley-Swindon 1:2
Derby-Shcff,Utd. 2:3
Luton-Oldham 2:1
Middlesbrough-Reading 0:1
Millwall-Grirasby 2:0
Southend-Watford 0:4
Stoke-Portsmouth 0:2
Sunderiand-Port VaJe 1:1
Tranmere-Notts County 3:2
WBA-Charlton 0:1
Staðan
Úrvalsdeild
Blackburn
Man. Utd.
Newcastle
Uverpool
N. Forest
Tottenbam
Leeds
Sheff.Wed.
Wimbledon
Norwich
Arsenal
Chelsea
Man. City
Aston VUla
Southampíon
C.Palace
QPR
Everton
WestHam
Coventry
Ipswich
Leicester
1.
Bolton
Tranmere
Middlcsbrough
Wolvcs
Reading
Sheff. Utd.
Watford
Grimsby
Barnsley
Luton
Millwall
Derby
Oldham
Charlton
Southend
Stoke
West Brom
Portsmouth
Swindon
Port Vale
Sunderland
Bristol City
Burnley
Notts County
27 18 5 4 58:24 59
27 17 6 4 48:21 57
2713 9 S 45:2948
2613 8 5 45:2147
27 13 7 7 40:2946
26 12 6 8 44:37 42
2610 9 7 34:2839
2710 9 8 36:3339
26 10 6 10 31:40 36
26 9 7 10 25:2934
27 8 9 1030:3133
26 8 8 10 34:37 32
26 8 8 1035:41 32
27 7 10 10 32:3631
26 6 12 8 37:42 30
27 7 9 11 21:2630
25 8 6 1138:44 30
27 7 9 1127:36 30
26 8 4 14 24:33 28
27 6 101125:45 28
27 5 5 1729:5520
26 4 6 16 24:45 18
deild
2914 8 7 49:3150
29 14 7 1046:33 49
2814 7 7 41:2649
28 14 5 9 50:3947
29 13 8 8 34:2747
29 12 9 8 47:3345
291111 7 33:28:44
291011 8 42:4041
27 12 5 1034:3441
2811 7 10 38:3540
28 10 10 8 36:3240
28 10 9 9 35:30 39
2910 8 1139:3838
28 9 9 1042:4536
2910 5 1429:5235
27 9 8 10 28:3335
29 9 7 13 25:3534
29 8 9 1230:4133
27 8 8 1136:43 32
27 8 8 1133:36 32
28 6 14 8 28:2832
29 8 6 15 25:3930
26 6 9
29 6 6
1428:3827
17 30:4224
Andy Cole er
byrjaður að
skora fyrir Man.
Utd.
Wimbledon-maðurinn John Fas-
hanu tæklaði Ryan Giggs gróflega
í fyrri hálfleik með þeim afleið-
ingum að báðir vom bomir útaf
meiddir. Aston Villa barðist fyrir
jöfnunarmarkinu en var fyrirmun-
að aó skora. Dean Saunders var
nálægt því að jafna en skot hans
fór í þverslána og Peter Schmei-
chel varði glæsilega skot frá Steve
Staunton sem breytt hafði um
stefnu af vamarmanni. Manchest-
er United fékk einnig færi til að
bæta við mörkum og litlu munaði
að það tækist seint í leiknum þeg-
ar aó Paul Scholes átti skot í Andy
Cole og af honum fór boltinn í
þverslána hjá Villa.
N. FOREST-LIVERPOOL 1:1
Það var dramatík í lokin á sjón-
varpsleiknum á laugardaginn.
Robbie Fowler jafnaði fyrir Liver-
pool á síðustu mínútunni eftir að
lióið hafði verið einum Ieikmanni
færri síðustu 37 mínútumar. For-
est tók forustu strax á 10. mínútu
þegar að Stan Collymore potaði í
netið eftir að Bryan Roy hafði
komið boltanum framhjá David
James, markverði Liverpool.
Stuttu síóar fékk Ian Woan færi til
að bæta við marki en James sá við
honum. Á 53. mínútu var Phil
Babb, vamarmanni Liverpool,
vikið útaf fyrir að fella Steve
Stone, sem var að sleppa einn í
gegn. Leikmenn Liverpool vom
þó ekki á því að gefast upp og
litlu munaði aó Fowler næði að
jafna stuttu síðar en Mark Cross-
ley sá við skotinu. Ian Woan og
Alf Inge Haaland fengu báðir
gullin færi til að gera út um vonir
gestanna en misnotuðu færin og
leikmenn Liverpool refsuðu þeim
rækilega. Á síðustu mínútunni
spiluðu þeir sig í gegnum vömina
og Fowler skoraði með nákvæmu
skoti.
SOUTHAMPTON-MAN. CITY 2:2
Fyrsta markið kom á 24. mínútu
og var það sjálfsmark frá Tony
Coton, markverði Man. City. Sim-
on Charlton gaf fyrir ffá vinstri og
Coton virtist eiga auðvelt með að
grípa boltann vió nærstöng en á
ótrúlegan hátt missti hann boltann
í netið. Sex mínútum síðar jafnaði
Alan Kemaghan með skalla úr
markteig eftir homspymu. Tony
Coton var skipt útaf í leikhléi og
Andy Dibble kom inn í hans stað.
Það breytti þó litlu og liðið fékk á
sig annað klaufamark á 60. mín-
útu. Matthew Le Tissier átti þá
skot langt utan af kanti eftir stutta
homspymu og boltinn smaug á
milli stangarinnar og Nicky
Summerbee, sem stóð þar staður,
og í netió. City náði að bjarga
andlitinu með marki tveimur
mínútum fyrir leikslok. Garry
Flitcroft skoraöi af stuttu færi
eftir góðan samleik félaga hans.
SHEFF. WED.-ARSENAL 3:1
Það hefur mikið gengið á hjá
Arsenal undanfama mánuði og
leikurinn gegn Wednesday fellur
vel inn ófarir liðsins á þessari
leiktíð. Leikurinn byrjaði vel fyrir
Arsenal, sem hafði endurheimt
Paul Merson og Tony Adams eftir
langa fjarveru. Strax á 3. mínútu
var liðið komið yfir og markið
skoraði Andy Linighan með skalla
eftir homspymu. Þeir náöu þó aó-
eins að halda forustunni í fimm
mínútur og eftir það lá leióin nið-
ur á við. Rúmeninn Dan Petrescu
jafnaði eftir fallega sókn og á 25.
mínútu bætti Svíinn Klas Ingeson
öðru marki við af stuttu færi. I
upphafi síðari hálfleiks var Tony
Adams vikið af leikvelli fyrir að
gefa Mark Bright olnbogaskot og
ekki leið á löngu þar til búið var
að vísa framherjanum unga John
Hartson einnig af velli fyrir gróft
brot. Níu leikmenn Arsenal börð-
ust vel og reyndu að koma í veg
fyrir að fá á sig fleiri mörk en
múrinn gaf sig á síðustu mínút-
unni þegar að Mark Bright potaði
inn af stuttu færi.
WIMBLEDON-LEEDS 0:0
Áhangendur Leeds þurfa enn að
bíða eftir að sjá Anthony Yeboah í
byrjunarliði. Heimamenn byrjuóu
leikinn betur og Efan Ekoku var
nálægt því að skora í tvígang í
fyrri hálfleik og Nigel Worthing-
ton bjargaði því að Leeds lenti
undir með því að spyma frá á
marklínu. í síðari hálfleik átti
Leeds betri færi en Hans Segers sá
við öllum tilraunum gestanna.
QPR-NEWCASTLE 3:0
Newcastle átti aldrei möguleika
gegn spræku liði QPR og senni-
lega hafði það mikið að segja að í
leikmannahóp Newcastle vantaði
átta leikmeiin vegna veikinda,
meiðsla og leikbanna. Les Ferd-
inand kom aftur inn í lið QPR eft-
ir meiðsli og hann var hetja
heimamanna. Strax á 4. mínútu
slapp hann einn í gegn eftir send-
Les Ferdinand sökkti Ncwcastle á
fyrstu sjö mínútunum.
ingu frá Kevin Gallen og skoraói
af öryggi. Þremur mínútum síðar
léku þeir sama leikinn og aftur
skoraði Ferdinand, hans 16. mark
í deildinni. QPR gerði endanlega
út um leikinn á 18. mínútu þegar
að Simon Barker skallaði í netið
eftir fyrirgjöf frá Andy Impey.
Eftir það var bara spuming hversu
stór sigurinn yrði og Ferdinand
var mjög nálægt því aó fullkomna
þrennu sína í síðari hálfleik þegar
glæsilegt skot hans small í þver-
slánni. Kevin Gallen fékk senni-
lega besta færi leiksins undir lokin
en skallaði yfir fyrir opnu marki
og Newcastle náði að forðast frek-
ari niðurlæginu.
COVENTRY-CHELSEA 2:2
Mark Stein skoraði fyrsta mark
leiksins á 14. mínútu af stuttu færi
eftir að Steve Ogrizovic hafði
misst boltann klaufalega frá sér.
Tólf mínútum síðar jafnaði Sean
Flynn með skalla fyrir Coventry.
Á 33. mínútu var dæmd víta-
spyma á Steve Pressley, vamar-
mann Coventry, fyrir að fella
Steve Clarke í teignum. Þetta kom
fáum á óvart því þetta er fjóróa
vítaspyman sem dæmd hefur ver-
ið á Pressley í þeim 14 leikjum
sem hann hefur leikið með
Coventry. John Spencer skoraði af
öryggi úr vítaspymunni en fögn-
uður liðsins stóð ekki lengi. Þrem-
ur mínútum síðar skallaði Craig
Burley í eigið net og jafnaði leik-
inn, 2:2. Roy Wegerle fékk tvö
ágæt færi í síðari hálfleik til að
tryggja heimamönnum sigur en
eins og svo oft aður þá brást hon-
um bogalistin.
EVERTON-NORWICH 2:1
Graham Stuart spilaði í fremstu
víglínu hjá Everton í þessum leik
og á 42. mínútu skoraði hann
fyrsta mark leiksins eftir góða
sendingu frá Andy Hinchcliffe.
Vinny Samways hefur ekki náð að
sýna sínar bestu hliðar hjá Everton
en hann sýndi í þessum leik að
honum er margt til lista lagt. I síð-
ari hálfleik lenti hann í miklum
slagsmálum vió Rob Ullathome,
vamarmann Norwich, en af óskilj-
anlegum ástæðum sýndi dómarinn
honum einungis gula spjaldið og
Ullathome slapp með tiltal. Sam-
ways átti síðan heiðurinn að öðru
marki Everton á 65. mínútu þegar
fyrirgjöf hans rataói beint á koll-
inn á Paul Rideout sem skallaói í
netið. Norwich minnkaði muninn
tíu mínútum fyrir leikslok og það
gerði Mike Milligan, fyrrum leik-
maður Everton, með lúmsku og
lausu skoti.
LEICESTER-WEST HAM 1:2
Sannkallaður botnslagur og sex
stiga leikur. West Ham tók fomstu
á 28. mínútu þegar að Tony
Cottee skoraði 100. mark sitt fyrir
West Ham, eftir undirbúning frá
Julian Dicks. Þeir skiptu síðan um
hlutverk á 43. mínútu þegar að
Cottee var felldur innan vítateigs
og Dicks sá um að hamra boltann
í netið úr vítinu. Á síðustu mínútu
fyrri hálfleiks minnkaði Mark
Robins muninn fyrir heimamenn
með skalla eftir homspymu en
Leicester átti þó aldrei möguleika
á að jafna leikinn. West Ham sótti
ákaft og Kevin Poole varði oft frá-
bærlega í marki Leicester.
IPSWICH-C. PALACE 0:2
Annar sex stiga leikur þar sem
Ipswich var óheppið að ná ekki að
skora nokkur mörk snemma í
leiknum. Neil Thompson og
Stuart Slater áttu báðir hörkuskot í
þverslá og Tony Ward skallaði í
sömu þverslá fyrir hlé. En lukkan
var með Palace og á 53. mínútu
skoraði Iain Dowie í autt markið
eftir að Craig Forrest, markverði
Ipswich, hafði mistekist að
hreinsa frá marki sínu. Ricky
Newman, leikmaður Palace, var
rekinn útaf á 75. mínútu en liðið
hélt áfram að sækja og á 86. mín-
útu fékk liðið vítaspymu sem
Dean Gordon skoraði úr.
TOTTENHAM-BLACKBURN 3:1:
Spurs lagði efsta 11535
Blackburn náði ekki að auka
forskot sitt á toppi úrvalsdeild-
arinnar að nýju á sunnudaginn.
Þá mætti liðið ofjörlum sínum á
White Hart Lane og Tottenham
vann verðskuldaðan sigur, 3:1.
Blackbum byrjaói af miklum
krafti en Tottenham varðist vel en
var stórhættulegt í skyndisóknum.
Á 18. mínútu kom ein slík og Nick
Barmby renndi í gegnum vöm
Blackbum þar sem Jurgen Klins-
mann kláraði dæmið af miklu ör-
yggi, 1:0. Darren Anderton bætti
öðm marki við eftir glæsilegt sam-
spil vió Klinsmann en Anderton
hafði þó heppnina með sér þegar
boltinn breytti um stefnu af Colin
Hendry, miðverði Blackbum, og
rúllaði í bláhomið. Blackbum var
meira með boltann í fyrri hálfleik
en kraftmikill sóknarleikur Spurs
skilaði góðum árangri.
Strax á 2. mínútu síðari hálfleiks
minnkaði Tim Sherwood, fyrirliði
Blackbum, muninn eftir að hafa
fengið boltann einn og yfirgefinn á
markteig. Tottenham var þó ávallt
líklegra til að bæta við mörkum og
Klinsmann komst nærri því með
glæsilegri hjólhestaspymu sem
sleikti þverslána. Það var síðan
besti maður vallarins, Nicky Barm-
by, sem gerði út um leikinn á 79.
mínútu með glæsilegu skallamarki
utarlega úr teignum. Blackbum
gerði örvæntingafulla tilraun til að
bjarga sér í lokin og Alan Shearer
var nálægt því að skora en skot
hans small í stönginni.
Nicky Barmby átti stórleik og skor-
aði síðasta markið fyrir Tottenham.