Dagur - 07.02.1995, Page 4
4 - DAGUR - Þriðjudagur 7. febrúar 1995
LEIÐARI ——— i ---—|-----—■—■—
Frábær úrslitaleikur
ÚTGEFANDI: DAGSPRENT HF.
SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31,
PÓSTHÓLF 60, AKUREYRI, SÍMI: 96-24222
ÁSKRIFT KR. M. VSK. 1500 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ M. VSK. KR. 125
RITSTJÓRAR: JÓHANN ÓUFUR HALLDÓRSSON, (ÁBM.),
ÓSKAR ÞÓR HALLDÓRSSON, (ÁBM.)
FRÉTTASTJÓRI: KRISTJÁN KRISTJÁNSSON
AÐRIR BLAÐAMENN:
GEIR A. GUÐSTEINSSON, HALLDÓR ARINBJARNARSON,
INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík vs. 96-41585, fax 96-42285),
KRISTÍN LINDA JÓNSDÓTTIR, SÆVAR HREIÐARSSON (íþróttir).
UÓSMYNDARI: ROBYN REDMAN
PRÓFARKALESTUR: SVAVAR OTTESEN
ÚTLITSHÖNNUN: RÍKARÐUR B. JÓNASSON
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
DREIFINGARSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: HÖRÐUR BLÖNDAL
PRENTVINNSLA: DAGSPRENT HF.
SÍMFAX: 96-27639
Það er rétt sem sérfróðir menn ura handknatt-
leiksíþróttina sögðu á úrslitaleiknum í bikar-
keppni Handknattleikssambandsins sl. laugar-
dag; þessi leikur var tvímælalaust sú albesta
auglýsing sem íþróttin getur fengið. Hreint
ótrúlegur leikur, spennandi frá upphafi til
enda, reyndar svo spennandi að viðkvæmt fólk
varð að draga sig í hlé og láta sér nægja að
heyra úrslitin að leiknum loknum. Leikurinn
var frábærlega spilaður af báðum líðum, í sókn
og vörn að ekki sé talað um markvörsluna sem
var á heimsmælikvarða. Þegar á heildina er litið
trúlega einn albesti úrslitaleikur bikarkeppn-
innar til þessa og öllum þeim sem á horfðu
ógleymanlegur.
Og ekki eyðilagði það ánægjuna að KA-
menn, sem margir spáðu að myndu eiga á
brattann að sækja gegn hinu sterka liði Vals,
stóðu uppi sera sigurvegarar og fluttu bikarinn
norður yfir heiðar. Sannarlega kominn tími til,
eftir þessu höfðu handknattleiksunnendur hér
nyrðra lengi beðið. Þetta er í fyrsta skipti sem
handboltalið á Akureyri hampar hinum eftir-
sótta bikar, KA-mönnum tókst að koma hönd-
um á hann í annarri tilraun.
Þetta var sigur liðsheildarinnar en enginn
hefur trúlega fellt fleiri gleðitár en þjálfari liðs-
ins og lykilmaður, Alfreð Gíslason. Þetta er
mikill sigur fyrir hann og örugglega hefur hann
mælt beint frá hjartanu í viðtali í fjölmiðlum að
leík loknum þegar hann sagði að þetta væri
sætasti sigur sinn til þessa. Alfreð sagði þegar
hann tók að sér þjálfun KA-liðsins á sínum tíma
að uppbyggingin tæki ákveðinn tíma - árangur-
inn skilaði sér að lokum. Það hefur gerst.
Þessi sigur KA-manna er afar mikilvægur fyr-
ir íþróttah'f á Akureyri. Hann kemur tvímælaust
til með að efla enn frekar áhugann á hand-
knattleiksíþróttinni og síðast en ekki síst er
hann til marks um það að sú minnimáttar-
kennd sem í gegnum tíðina hefur þvælst fyrir
norðanraönnum gagnvart „stóru" liðunum
syðra er á bak og burt. Það er stór áfangí og
góður.
Dagur óskar Knattspyrnufélagi Akureyrar til
hamingju með glæsilegan sigur.
Tækifæri lífs Akureyringa
sem fór forgörðum
Það fór eins og margan grunaði að
bæjarfulltrúum okkar tókst gjör-
samlega að klúðra góðu máli og
um leið viðhalda óbreyttu ástandi.
Akureyri hefur verið og verður
láglaunasvæði eftir sem áður og
flutningur á atvinnutækifærum aó
sunnan, sem lítil eftirsjá er í fyrir
þá, breytir engu þar um. ÚA verð-
ur áfram rekið eftir gamaldags
stjómunarháttum þar sem öll egg-
in em í sömu körfunni. Það er
ekki furða þótt talað sé um aó Ak-
ureyri sé bær afturhalds og viö-
halds óbreytts ástands.
SÍS-grýlan réði úrslitum
Enn loóir við margan Akureyring-
inn gamla Rússagrýlan sem brýst
fram í formi SIS veldisins sem
einu sinni var. Meira að segja
KEA sem hefur verið aó fíkra sig
til nútímalegra stjómunarhátta og
hefur tekist að mestu aó hrista af
sér félagsmálastimpilinn líður fyr-
ir fordóma bæjarbúa og ráða-
manna bæjarins. Tilfmningar í
staðs kalds mats á hagsmunum
heildarinnar skulu víkja fyrir ríkj-
andi skoðun um að óbreytt ástand
raskar engu í daglegu lífi okkar né
stjómunar- og hugsunarhætti ÚA.
Er nokkur furða þótt litlar fram-
farir verði á þessum stað þegar
aldrei má taka áhættu í einu eða
neinu? Er nokkur furða þótt at-
vinnuleysi sé öllu jafna það mesta
á landinu á þessu svæði? Nei, það
kemur engum á óvart eftir að hafa
fylgst með þeim farsa sem settur
var á svió af hálfu meirihluta bæj-
arstjómar í janúar s.l.
Tíkin pólitík og
hagsmunatengsl
Skrýtin er sú tík sem pólitík er
kölluð. Hún ruglar margan mann-
inn svo mikió aó hann er tilbúinn
að fóma sannfæringu sinni fyrir
ríkjandi ástandi. Henni tekst að
blinda menn þannig að þeir trúa
því sjálfir að óbreytt ástand sé
besti kosturinn í stöðunni, að
skammtímaáhrifm séu heppilegri
fyrir okkur en sú eina leið sem er
raunhæf og farsælust til lengri
tíma litið. Vissulega felur hún í
sér áhættu en það verða engar
framfarir ef menn þora ekki að
taka áhættu. Ekki skal gert lítið úr
tilboði SH-manna en mín skoðun
og margra annarra er að tilboð ÍS
sé betra til lengri tíma litið. Menn
fengu stórkostlegt tækifæri til að
spila úr en niðurstaðan er sorgleg.
Akureyringar höfðu tækifæri til að
rífa bæinn upp úr þeim doða sem
hann hefur orð á sér fyrir að vera
í. Bæjarfulltrúar unnu heimavinnu
sína illa og létu fjölmiðla löngum
leiða umræðuna. Þegar sú staða er
komin upp er ekki von á góðu.
Hefði ekki verið skynsamlegra að
undirbúa málið betur? Hefði ekki
verið líklegra til árangurs ef menn
hefðu byrjað á því aó skoða
hvemig sölumálum ÚA var háttað
og láta gera þá úttekt sem gerð var
fyrr? Hefði skaðinn ekki orðió
minni og meiri sátt um málalok ef
umræðan hefói farið hljóólega til
aó byrja með og tíminn nýttur til
að leggja kalt mat á alla þætti
málsins án tímapressu frá fjöl-
miðlum og þeim sem í hlut áttu?
Hagsmunir ÚA og hluthafa
Allir vildu að hagsmunir ÚA yrðu
tryggðir sem best. Röksemdir
þeirra sem vildu óbreytt ástand
em m.a. þær hvað arðgreióslumar
frá SH skipta ÚA miklu og hvað
ÚA myndi tapa miklu vió að fara
úr samstarfi við SH. Þar er verió
að tala um hundmð milljóna
króna. En óbreyttur hluthafi var
ekki spurður álits. Hann var ekki
heldur spurður álits þegar stjóm
ÚA tók þá ákvörðun aó eignast
hlut í Mechlenburger-dæminu fyr-
ir 300 milljónir króna auk 45
milljóna sem SH lagði tímabundió
fram, sennilega í formi fyrir-
framgreiddra sólulauna. Upphæðir
sem skipta vemlegu máli í dag.
Upphæðir sem eru jafngildi þess
sem tapast, samkvæmt því sem
fylgjendur SH segja, ef ÚA hættir
viðskiptum við SH.
Er ÚA vel rekið?
Maður spyr sig hvort ÚA sé vel
rekið fyrirtæki í dag eður ei.
Mechlenburger-ævintýrið segir
manni aö svo sé ekki, þó skal ekki
fullyrt aö það sé allt þar fyrir bí en
einhvem veginn hefur maður á til-
finningunni að það dæmi sé erfitt
fyrir ÚA. Einhver kann að segja
aó nú sé greinarhöfundur kominn í
„konflikt" við sjálfan sig. En
menn geta ekki borið saman
Bencdikt Guðmundsson.
áhættuna á því að taka þátt í rekstri
fyrirtækis í Austur-Þýskalandi og
þeirri áhættu að starfa frjálsir á
sviði sölumála þar sem sölusam-
tök keppa um að fá að selja afurð-
ir fyrirtækis á mörkuóum. Nútíma
stjómun byggir á að selja afurðir
hverjum þeim sem hæst verð getur
boðið á hverjum tíma. Það kostar
ögun í vinnubrögðum og yfirsýn
sem stjómendur ÚA og talsmenn
óbreytts ástands hafa ekki hug á
að nýta sér. Heldur skal fyrirtækið
hvíla undir pilsfaldi trausts aðila
sem greiðir náðarsamlega út arð á
hverju ári sem eðli málsins sam-
kvæmt er ekkert annað en ofreikn-
uð sölulaun. Sætta stjórnendur ÚA
sig vió það vegna þess aó þeir
þurfa fyrir vikið ekkert að hugsa
um afurðarsöluna og geta fyrir
vikið einbeitt séraó því að fram-
leiða.
Hverjir eiga hagsmuna að
gæta?
Starfsfólk ÚA hefur eðlilega haft
áhyggjur af þessu máli og afstaða
þess er skiljanleg í ljósi þessa að
þetta er jú lifibrauð þess. Skoðanir
starfsfólksins mótast ennfremur af
þeim hræðsluáróðri sem í gangi
hefur verið um aó Sambandsgrýl-
an væri aftur á leið í bæinn. Iskalt
mat á langtímaáhrifum og hvað
hugsanlega væri best fyrir bæjar-
félagið er sett til hliðar fyrir til-
finningum sem stuðla eingöngu að
Menn fengu stórkost-
legt tækifæri til að
spila úr en niður-
staðan er sorgleg.
Akureyringar höfðu
tækifæri til að rífa
bæinn upp úr þeim
doða sem hann hefur
orð á sér fyrir að vera
í. Bæjarfulltrúar
unnu heimavinnu
sína illa og létu §öl-
miðla löngum leiða
umræðuna.
því að viðhalda óbreyttu ástandi.
Köld rökhyggja segir manni aó sú
niðurstaða sem fékkst í málinu sé
sú næst besta. Helstu forustumenn
í atvinnulífinu á Akureyri hafa
lýst skoðun sinni á því að til langs
tíma litið væri IS hcppilegri kostur
fyrir Akureyri en það er víst ekki
það sama og hagsmunir ÚA. Eg
viðurkenni fúslega að endanleg
ákvörðunartaka á að vera á hendi
stjómar ÚA en ég er jafnframt
ósammála því að áhættan sé of
mikil af því að skipta um söluað-
ila. Því ef ekki núna þá hvenær?
Hvenær skapast þær aðstæður að
stjóm ÚA eða bæjaryfirvöld telja
áhættunnar virði að skipta um
Iðntæknistofnun íslands og Iðn-
lánasjóður eru að hefja nýtt þróun-
arverkefni - Vöruþróun ’95, um
þessar mundir. Tilgangur verkefn-
isins er að aðstoða fyrirtæki fag-
lega og fjárhagslega vió að þróa
markaðshæfa vöru.
Að þessu sinni gefst kostur á
að nýta hugbúnað við mat verk-
efna og ennfremur verður lögð
áhersla á að stytta þróunartíma.
Umsóknarfrestur er til 3. mars
n.k. og eru umsóknareyðublöó og
upplýsingar fyrirliggjandi hjá Iðn-
söluaðila eða spila frítt með sölu-
aðila?
Vonbrigði
Ég lýsi vonbrigðum mínum með
nióurstöðu málsins. Ég lýsi von-
brigðum mínum með aó Fram-
sóknarflokkurinn skyldi ekki láta
reyna á meirihlutasamstarfió með
því aó fylgja sannfæringu sinni.
Ég lýsi vonbrigðum mínum meó
Alþýóubandalagið sem annars-
vegar lætur persónuleg tengsli
vega þyngra en kalda rökhyggju
og sannfæringu sína víkja fyrir
flokksaga. Ég lýsi vonbrigóum
mínum með afstöðu Alþýðu-
flokksins sem metur meira að
tryggja sínum manni stjómarfor-
mannsstarfið í ÚA en að stuðla að
bættri afkomu bæjarbúa til lengri
tíma litið. Ég þarf ekki að lýsa
vonbrigðum mínum með afstöðu
Sjálfstæðismanna þar sem hún lá
fyrir löngu áður en málið komst í
umræðuna og er skiljanleg í ljósi
þeirra tengsla sem ætið hafa verið
milli flokksins og SH. Fyrir hönd
fjölmargra Akureyringa bið ég ís-
lenskar sjávarafurðir að virða það
okkur til vorkunar að hugsunar-
háttur og stórhugur þeirra sem
ráða ferðinni nær ekki lengra en
þetta. Við vitum að næst besti
kosturinn var valinn og því eru
vonbrigði okkar mikil.
Benedikt Guðmundsson.
Höfundur er starfsmaöur Byggóastofnunar á
Ákureyri.
tæknistofnun á Akureyri og at-
vinnuráðgjöfum á landsbyggðinni.
Samþykkt verkefni hljóta styrk frá
Iðntæknistofnun er nemur 25% af
viðurkenndum kostnaði, þó að há-
marki eina milljón króna. Jafn-
framt þessu fá verkefnin áhættu-
lán frá Iðnlánasjóði er nemur 50%
af áætluðum kostnaði.
Vöruþróun ’95 veróur kynnt á
morgunfundi kl. 08.00 þann 8.
febrúar n.k. á Akureyri, sjá nánar í
auglýsingu. (Fréttatilkynning)