Dagur - 07.02.1995, Qupperneq 11
Þriðjudagur 7. febrúar 1995 - DAGUR -11
Bjóðum Sölumiðstöðína velkomna
Við framsóknarmenn í Bæjar-
stjóm Akureyrar sögðum í kosn-
ingabaráttunni í vor að úrbætur í
atvinnumálum væru aðal baráttu-
mál okkar. í dag, 8 mánuóum
seinna, höfum við tilboð um 80 ný
störf hér. Geri aðrir betur.
I bréfi frá Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna, dags. 27. 2. ’95,
undirrituðu af Jóni Ingvarssyni,
stjómarformanni, er tímasett hve-
nær flutningur til Akureyrar og sú
starfsemi getur hafist, sem gerir
ráð fyrir 80 störfum.
Áætlunin er þessi:
1. Stofnun SH Akureyri og
flutningur starfa norður -
júní til ágúst.
2. Stofnun umbúðafyrirtækis og
gangsetning þess - að X hlut-
um innan 6 mánaða/að V*
hluta innan 12 mánaða.
3. Flutningamiðstöð Eimskips -
tekur til starfa innan 9 mán-
aða.
4. Prófessorsstaða (lektorsstaða)
- strax og HA hentar.
Jafnframt segir að ekki sé lokið
athugunum á flutningi starfsemi
skipafélagsins Jökla hf. norður,
svo og með hvaða hætti SH geti
best tryggt framhald vinnslu ígul-
kerahrogna við Eyjafjörð, en þeim
verði reynt að hraða.
Kjarkur framsóknarmanna
Hvaða bæjarfélag á íslandi annað
en Akureyri getur státað af tilboði
sem þessu? Og hvers vegna? Við
getum gert það vegna þess aó vió
framsóknarmenn höfðum kjark til
þess að hreyfa við sölumálum
UA. Hefðum við ekki farió af stað
með viðræóur á óformlegum nót-
um við stjómarmenn í IS, strax í
haust, lægi þetta tilboó ekki á
boróinu í dag. Atvinnutilboð sem
segja má að sé ígildi stórióju. Þeir
sem vilja gera lítið úr þessu afreki
okkar framsóknarmanna hafa eitt-
hvað annað að leiðarljósi en hags-
muni Akureyrar.
Alþýðubandalag í sárum
Sigríður Stefánsdóttir, bæjarfull-
trúi Alþýóubandalagsins, segir í
bókun sinni í fundargerð bæjar-
ráðs ffá 2. feb. m.a.:
„Hefðum við fram-
sóknarmenn átt að
láta brjóta á meiri-
hlutasamstarfínu og
láta minnihlutanum
eftir að setjast að
veisluborði, hlöðnu
krásum sem við fram-
sóknarmenn höfum
framreitt? Nei, við
ætlum sjálf að sitja
þá veislu og bjóða
öðrum með okkur.“
„Það er augljóst að Framsókn-
arflokkurinn telur meirihlutasam-
starfió í bæjarstjóm mikilvægara
en láta reyna á sannfæringu sína í
sölumálum ÚA. Það er mitt mat
að hagsmuna ÚA hafi ekki verið
Mannfjöldi á landinu 1. desember sl.:
Abæjarsókn fámennust sem fyrr
Þegar mannfjöldi eftir sóknum,
prestaköllum og prófastdæmum á
Norðurlandi er skoðaður, kemur í
ljós aö þann 1. desember sl. var
Ábæjarsókn í Skagafirói sem fyrr
fámennust allra sókna með aðeins
einn íbúa, Helga Jónsson á Merki-
gili. Þá er Víðihólssókn á Hóls-
fjöllum með aðeins 6 íbúa, 17 eru
í Þverársókn í Laxárdal S-Þing.,
18 í Ketusókn í Skagafirði og 24 í
Breiðabólssókn í Vesturhópi.
Annars var skipting Norólend-
inga í prestaköll sem hér segir:
Húnavatnsprófastdæmi: 4.898
Ámesprestakall 103, Hólma-
víkurprestakall 767, Prestbakka-
prestakall 273, Melsstaðarpresta-
kall 484, Breiðabólsstaðarpresta-
kall 832, Þingeyrarklausturspresta-
kall 1.329, þar af 1.095 í Blöndu-
sókn, Bólstaðarhlíðarprestakall
288, Skagastrandarprestakall 822.
SkagaQarðarprófastdæmi: 6.437
Sauðárkróksprestakall 2.888,
þar af 2.838 í Sauðárkrókssókn,
Útlendingar hérlendis:
Danir gölmennastir
Þann 1. desember sl. vom 266.786
manns með lögheimili hér á landi. Af
þeim vom 10.585 fæddir erlendis og
4.715 með erlent rikisfang, en 782 af
þeim voru fæddir hér á landi, þ.e. er-
lendir ríkisborgarar fæddir erlendis
vom 3.933 og Islendingar fæddir er-
lendis 6652. Það skal tekið fram að
erlendir sendiráðsstarfsmenn hér á
landi og vamarliðsmenn em ekki inn í
þessum tölum. Hluti þeirra sem eru
fæddir erlendis em böm íslenskra for-
eldra sem dvöldust erlendis vió nám
eða störf.
Ef litið er nánar á skiptingu þeirra
erlendu ríkisborgara sem hér voru
með lögheimili kemur í ljós aó Danir
em fjölmennastir, 1.027 talsins.
Bandaríkjamenn vom næst fjölmenn-
astir, 589. Hér vom einnig búsettir
340 Bretar, 299 Norómenn, 285 Þjóð-
verjar, 246 Pólverjar, 194 Tailending-
ar, 188 Svíar, 162 Filippseyingar og
116 Júgóslavar, en önnur lönd eiga
færri en 100 fulltrúa hér á landi.
Mörg lönd eiga hér enga fulltrúa,
t.d. vekur athygli að enginn frá Lux-
emborg á hér lögheimili meðan 218 Is-
lendingar eiga lögheimili í Luxemborg.
Frá þremur löndum var einn einstak-
lingur með lögheimili hér 1. desember
en það em Albanía, Malta og Rúmenía
og tveir vom frá Slóveníu, Indónesíu
og Sri-Lanka. Alls vom 22 lönd þar
sem færri en 10 einstaklingar vom hér
með lögheimili 1. desember sl.
Ef litið er á skiptingu erlendra rík-
isborgara hérlendis eftir landssvæóum
þá eru 2.952 búsettir á höfuðborgar-
svæðinu, þar af 2.151 I Reykjavík, en
1763 á landssbyggðinni. Á Norður-
landi vestra voru þann 1. desember sl.
búsettir 80 erlendir ríkisborgarar en
316 á Norðurlandi eystra. HA
Glaumbæjarprestakall 454, Mæli-
fellsprestakall 281, Miklabæjar-
prestakall 269, Hólaprestakall
326, Hofsósprestakall 485 og
Siglufjarðarprestakall 1.734.
Eyjafjarðarprófastdæmi: 20.184
Olafsfjarðarprestakall 1.189,
Dalvíkurprestakall 1.779, þar af
1.501 í Upsasókn, Hríseyjar-
prestakall 630, Möðmvallapresta-
kall 586, Akureyrarprestakall
8.831 og Glerárprestakall 6.202.
Þingeyjarprófastdæmi: 6.599
Laufásprestakall 710, Ljósa-
vatnsprestakall 564, Skútustaða-
prestakall 503, Grenjaðarstaðar-
prestakall 681, Húsavíkurpresta-
kall 2.640, Skinnastaðaprestakall
474, Raufarhafnarprestakall 397
og Þórshafnarprestakall 630. HA
Sigfríður Þorsteinsdóttir.
nægilega gætt í þeim umræðum,
sem staðið hafa undanfamar vikur
og aó fyrirtækið hafi þegar beðið
skaða af.“
Svo mörg voru þau orð. Full-
yrðingar S.S. um að ÚA hafi
skaðast af umræðum um flutning
IS til Akureyrar em algjörlega úr
lausu lofti gripnar. Hafi ÚA beóió
skaða nýlega þá em það frekar
kaupin á MHF sem hafa valdið
því. En Alþýðubandalaginu er
vorkunn þessa dagana. Oddviti
þeirra hefur verið manna drýgstur
við að berjast gegn hingaðkomu
IS, þrátt fyrir að sögur séu um
vilja hins almenna félagsmanns í
Alþýðubandalaginu til þess að IS
verði söluaðili fyrir afuróir ÚA,
og þrátt fyrir að Heimir Ingimars-
son, bæjarfulltrúi Alþýðubanda-
lagsins, láti hafa þaó eftir sér að
hann sé hlynntur IS en muni lúta
flokksaga við afgreiðslu málsins.
Hvers sannfæring ræður þar?
Hefðum við framsóknarmenn
átt að láta brjóta á meirihlutasam-
starfinu og láta minnihlutanum
eftir að setjast að veisluborói,
hlöðnu krásum sem við framsókn-
armenn höfum matreitt? Nei, við
ætlum sjálf að sitja þá veislu og
bjóða öörum með okkur.
Samstarf byggt á heilindum
Yfirlýsing Heimis Ingimarssonar,
um að hann hefði ekki neitað
meirihlutaviðræðum við fram-
sóknarmenn, kom of seint. Það er
einkennilegt að hún skuli hafa
birst daginn eftir að niðurstaðan lá
fyrir. Þess vegna er hún ekki til
þess fallin að við framsóknarmenn
tökum hann alvarlega og teljum
okkur hag í myndun meirihluta
með Heimi. Menn geta talað dig-
urbarkalega þegar engin ábyrgð
fylgir yfirlýsingunum.
Samstarf okkar við Al-
þýðuflokkinn hefur verið byggt á
heilindum og þrátt fyrir þaö að
okkur tækist ekki að fá þá til að
vera með flutningi afurðasölu ÚA
til ÍS þá treystum við því sam-
starfi betur en samstarfi með broti
úr flokki sem annaðhvort yrði í
sárum eftir úrsögn oddvitans eða
óstarfhæfur vegna innbyrðis
átaka. Við segjum líka: orð skulu
standa. Yfirlýsing okkar frá því
fimmtudaginn 2. febrúar stendur
óhögguð.
Gott atvinnutilboð
Góðir Akureyringar. Við skulum
ekki láta það spilla fyrir okkur
ánægjunni yfir tilboði SH að við
fengum ekki það sem við töldum
besta kostinn. Við höfum gott at-
vinnutilboð sem ekki má lítils-
virða. En við sendum ÍS og starfs-
mönnum þess fyrirtækis kveðjur
og vonumst til að það sjái sér hag
. í að flytja hingað norður þrátt fyrir
að ekkert varó úr flutningi afurða-
sölunnar til þeirra. Það standa
þeim allar dyr opnar hér og bæjar-
stjóm mun áreiðanlega öll leggjast
á eitt um að finna leiðir sem gætu
orðið til þess að ÍS flytti hingaó til
Akureyrar. En við bjóðum SH og
starfsmenn velkomna til Akureyr-
ar og tökum þeim opnum örmum.
Sigfríður Þorsteinsdóttir.
Höfundur er forseti bæjarstjómar Akureyrar og
bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins.
Söngleikjamúsík
Skipting íslendinga í trúfélög:
Tæplega 92% í Þjóðkirkjunni
Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru
91,8% íslendinga í þjóðkirkjunni
þann 1. desember sl., eða 244.924 af
266.786. í fríkirkjum voru 8.490
(3,2%), 6.944 í öðrum skráðum trúfé-
lögum (2,6%), í óskráðum trúfélögum
eóa með ótilgreind trúarbrögó 2.639
(0,2%) og utan trúfélaga voru 3.676
eða 1,3%.
Hlutdeild þjóðkirkjunnar hefur
dregist saman um 1,3% á síðustu 10
árum, en á sama tíma hefur reyndar
fjölgað í henni um 11,1% þar sem
landsmönnum hefur fjölgað talsvert.
Sá hópur sem hlutfallsleg mest fjölg-
un hefur orðið í á þessu 10 ára tíma-
bili eru þeir sem eru í óskráðum trúfé-
lögum eða með ótilgreind trúarbrögð.
Þeim hefur fjölgaó úr 537 í 2.639 eða
um tæp 400%.
Af einstökum skráðum trúfélögum
hefur Krossinn vaxið hlutfalllega mest
síðan 1984, eða um 142,3%, úr 73 í
345. Þar fjölgaöi um tæplega 40 manns
á síðasta ári. Ásatrúarfélagið stækkaði
hlutfallslega mest á síðasta ári, eóa um
32,3% og þar eru nú 172 skráðir. í að-
eins tveimur trúfélögum hefur meðlim-
um fækkað síóan 1984, í Fríkirkjunni í
Reykjavík um 16,4% og í Oháða söfn-
uðinum í Reykjavík um 10.1%.
Fríkirkjan í Reykjavík er stærsti
söfnuóurinn utan þjóðkirkjunnar með
4.872 meðlimi. I Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði eru 2.578, í Kaþólsku kirkjunni
2.535, í Hvítasunnusöfnuðinum
1.105, í Óháða söl'nuðinum í Reykja-
vík 1.040, Aóventistar eru 781 og
Vottar Jehóva 576, en í öðrum trúfé-
lögum er færra. HA
Miðvikudaginn 25. janúar
efndi Hómfríður Bene-
diktsdóttir, söngkona, til
tónleika á veitingastaðnum Við
Pollinn. Á tónleikunum naut hún
fulltingis hljóðfæraleikaranna
Karls Petersens á trommur, Karls
Olgeirssonar á píanó og Jóns
Rafnssonar á bassa.
Á efnisskrá voru söngleikjalög
frá Evrópu og Bandaríkjunum eft-
ir ýmsa höfunda, sem stóðu hátt í
þessari grein tónlistarinnar og
hafa margan manninn glatt meó
verkum sínum. Mörg þeirra eiga
meö réttu sess á meðal klassískra
söngverka, þó í öðrum anda séu
en þau, sem tíðast eru nefnd til
þess flokks.
Hólmfríður Benediktsdóttir
hefur greinilega mikla unun af
flumingi söngleikjatónlistar. Hún
hefur einnig aflað sér þekkingar á
efninu og höfundum þess og flutti
áheyrendum stuttar glefsur um
söngleikina og bakgrunn þeirra.
Þetta var mikils virði og gaf vídd í
flutning tónlistarmannanna.
Lög eftir Kurt Weill voru efni
fyrri hluta tónleikanna. Þar gerði
Hólmfríður miklu best í hinum
svokölluðu Berlínarlögum, sem
samin voru á árunum fyrir seinni
heimsstyrjöldina. Sem dæmi af
efnisskránni má nefna Alabama
Song og Surabaya Johnny. Þessi
lög eru nokkuð ádeilukennd.
Flutningur þeirra á að vera nokk-
uð hörkulegur og jafnvel sem næst
grófur. Þessum blæ náði Hólm-
fríður skemmtilega. I ljóðrænni og
rómantískari lögum var flutningur
ekki eins heildstæður og virtust
þau ekki láta söngkonunni svo vel
TONLIST
HAUKUR ACÚSTSSON
SKRIFAR
sem skyldi. Best þessara laga varó
The Song of Jeannie, þar sem náð-
ist bærileg sveifla.
Eftir hlé fluttu Hólmfríður og
undirleikarar hennar lög eftir Jer-
ome Kem, Leonard Berstein,
Andrew LLoyd Webber og
George Gershwin. Hér var um
mikla vídd að ræða, því að þó að
öll þessi tónskáld hafi skrifað
söngleikjatónlist, er stíll þeirra á
margan veg ólíkur. Best tókst
Hólmfríði Benediktsdóttur að
túlka lögin This World og I Am
Easily Assimilated, sem bæði eru
eftir Leonard Bemstein. Einnig
fór inngangur laganna gjaman all-
vel í flutningi Hólmfríðar. Þar er
tíðum um íhugandi lagferð að
ræða og ekki verulega byggt á
föstum takti eóa sveiflu. í lögum
Gershwins, þar sem oft er æski-
legt að fram komi veruleg jazz-
sveifla, tókst lakar til. Best varð
lagið I Got Rhythym. Einnig skil-
aði lagió Bill eftir Jerome Kem
sér allvel í túlkun Hómfríðar.
Hljómsveitin stóð almennt vel
fyrir sínu. Iðulega mátti heyra lip-
urleg tök Karls Olgeirssonar í
stuttum sólóum. Einna helst brá út
af í sólókafla í laginu I Got
Rhythym, þar sem Karl virtist
smástund ekki ná flugi. Bassaleik-
ur Jóns Rafnssonar var traustur en
ekki að jafnaði tilþrifamikill og
trommuleikur Karls Petersens var
öruggur og gaf þéttan takt á prúð-
legan hátt.
Það er vel, að tónlistarmenn
taki söngleikjatónlist til flutnings.
Hún er mikill og fjölbreyttur bálk-
ur, þar sem er að finna margar
góðar söngperlur, sem er að fullu
vert að veita eftirtekt. Margt þess-
arar tónlistar krefst hins vegar
tækni, sem gerir sínar eigin sér-
stöku kröfur og ekki er á allra færi
að mæta. Þar má nefna til dæmis
hin jazzísku áhrif, sem mikið af
þessari tónlist er samið undir, og
ekki síður áhrif nútíma dægurtón-
listar, svo sem í verkum Andrews
LLoyds Webbers. Þessir þættir
eru að jafnaði ekki innan þess
sviðs, sem klassískt menntaðir
tónlistarmenn hafa á valdi sínu
svo að vel sé.