Dagur - 07.02.1995, Blaðsíða 15
Þriðjudagur 7. febrúar 1995 - DAGUR - 15
Skólamál
Félagsmiðstöðvar
Hér á Akureyri eru sendir út
bæklingar til aö kynna félags-
miðstöðvamar og annað ung-
lingastarf. En við viljum alltaf fá
að vita hvernig hlutimir eru ann-
ars staðar. Eg lýsi hér með eftir
upplýsingum um hvemig ung-
lingastarfi er háttað í öðrum skól-
um í umdæminu. Forsvarsmenn
foreldrafélaga, foreldrar og ung-
lingar, sendið nú
línu eða hringið í
mig og segió frá
hvemig þetta er í
ykkar skóla.
I Reykjavík er
verið að byggja
upp góðar félagsmiðstöðvar. Þær
eru aó mestu bundnar við skóla-
hverfi og eru í góðum tengslum
við skólastjómendur. Sumar eru í
skólahúsnæðinu sjálfu og hefur
það gefió mjög góða raun. Ung-
lingamir fá aðgang sumarið áður
en þau byrja í 8. bekk. Sumar eru
opnar á sumrin, en þó ekki allar.
Starfsmenn eru í miklum meiri-
hluta uppeldismenntaðir eða með
sambærilega menntun. I mörgum
tilfellum kennarar. Þessir starfs-
menn hafa einnig eftirlit í hverf-
inu kringum félagsmiðstöóvamar
og fylgjast með því hvað bömin
eru að gera fyrir utan miðstöðv-
amar. I líkingu við það sem for-
eldravaktin hér á Akureyri er aó
gera. Engin þeirra er opin lengur
en til kl. 24:00 á föstudagskvöld-
um, reyndar loka þær flestar kl.
23:30 um helgar. Flestar eru
miðstöðvamar opnar lengur en
við eigum að venjast hér fyrir
norðan. Þar er ýmislegt í boði og
má t.d. nefna athyglisvert fram-
tak hjá félagsmiðstöðinni í
Hólmaseli, en þar er boðið upp á
námskeió bæði fyrir unglinga og
foreldra. Eftirfarandi em glefsur
úr kynningarbæklingi sem gefínn
er út af íþrótta- og tómstundaráði
Reykjavíkur:
„Það veróa haldin stráka- og
stelpukvöld, náttfatapartí og
fleira og fleira. Listavikan er líka
árlegur vióburður og meðal þess
sem fengist er vió eru uppfinn-
ingar, leiklist, ljósmyndun, skart-
gripagerð og sirkusæfíngar.“
I Fellahelli er gerð áhuga-
könnun á hverju hausti til að
ákveða hvaöa klúbbar eiga að
vera starfræktir. Víða eru „sund-
laugarpartí“ fastur liður af starf-
seminni og útvarpsstöðvar eru
greinilega vinsælar. Fréttabréf
eru gefín út til að kynna það sem
er á döfinni í hverri stöð fyrir sig.
Lausar kennslustofur
I þeirri umræðu sem er í gangi
um einsetningu skólanna noróan
Glerár hér á Akureyri hefur kom-
ið fram að ein af tillögunum til
lausnar skorti á húsnæði er að
koma fyrir svokölluðum „lausum
kennslustofum“. Margir em
hræddir við þessa „bráðabirgða-
lausn“, þar sem þeim finnst í því
felast ófullkomið húsnæði. En sú
er ekki raunin. Lausar kennslu-
stofur í dag eru allt annað en
ófullkomið húsnæði. I orðinu
lausar felst einungis það að þær
eru færanlegar. Að öóru leyti eru
þær ekki verri en
steinsteypt hús-
næði. Ef um er aó
ræða fleiri en eina
stofu við einn
skóla þá er ekkert
einfaldara en að
tengja þær saman og einnig er
hægt aó tengja þær skólahúsinu
sjálfu ef vilji er fyrir hendi. Hér á
Akureyri eru miklar tilfæringar í
búsetu, ný hverfi að byggjast upp
og skólahverfi að taka miklum
breytingum. Því gætu lausar stof-
ur verið lausnin þar sem fyrir-
sjánleg er fækkun nemenda í
framtíóinni. Það getur ekki talist
gáfulegt að setja mikla peninga í
húsnæði sem kemur svo til með
að standa autt er fram líða stund-
ir. Við skulum opna hug okkar í
þessum málum og horfa á málið í
heild sinni.
Skrifstofa Heimilis og skóla
Skrifstofa Heimilis og skóla er
opin alla virka daga frá kl. 8:00-
12:00. Starfsmaður er Hildigunn-
ur Ólafsdóttir.
f*r*TÍTi
V37
LANDSSAMTÖKIN
HEIMILI OG SKÓLI
Akureyri:
Námskeið í makrobíó
tískrí matargerð
Sunnudaginn 12. febrúar frá kl. þar sem boðið verður upp á
12 mun Sigrún verða í Smiðjunni makrobíótískan mat. (Frétiatiikynning)
5KÁK
Hraðskákmót SA:
Baráttaí
eldrí flokknum
Laugardaginn 11. febrúar mun
Heilsuhomið og Bautinn fá Sig-
rúnu Ólafsdóttur, leiðbeinanda, til
að halda námskeió í makrobíot-
ískri matargerð.
Orðið makrobiotik er dregið af
heiti gríska goðsins Macro, sem
merkir stór eða mikill, og orðinu
bios, sem merkir líf. Makrobiotik
þýðir því mikið líf eða það að líta
á lífið í sem víðastri merkingu.
Matargerðin byggir á hug-
myndafræði Austurlandabúa, sem
notuðu daglegt fæði til að
viðhalda heilsu.
Aðalinntakið er að lifa í sam-
ræmi viö náttúruna, því við erum
hluti af henni og megum ekki
skilja okkur frá henni. Haga skal
mataræði eftir árstíðum, þ.e. hita-
og kraftgefandi mat á vetuma, á
sumrin aftur léttari tegundir og
minni matreiðsla.
Sigrún mun veróa með fyrir-
lestur og sýnikennslu þar sem
fólki gefst kostur á að bragða á
matnum og fá uppskriftir.
Hjónin Jóhann Kristinsson og
Guðrún Aspar, Ránargötu 9, hafa
gefið Akureyrarkirkju fagurt lista-
verk, sem Jóhann hefur unnið í
málm. Bakgmnnurinn er úr rauðu
efni.
Listaverkinu hefur verió komið
fyrir í gangi Safnaðarheimilisins
og þar er það öllum til sýnis.
Fyrir hönd Akureyrarkirkju vill
undirritaður þakka gjöfina góðu
og hlýhug þeirra hjóna til kirkj-
unnar. Birgir Snæbjörnsson.
Tvö hraðskákmót voru haldin hjá
Skákfélagi Akureyrar á dögun-
um, hið fyrra fyrir 45 ára og eldri
og hitt var opið 10 mfnútna mót.
Tveir skákmenn urðu jafnir að
vinningum á fyrra mótinu.
Urslit í hraðskákmóti fyrir 45 ára
og eldri sem haldið var 26. janúar
sl. urðu þannig:
1. Jón Björgvinsson, 10 vinn. + 2
2. Ari Friðfinnsson, 10 vinn. + 0
3. Þór Valtýsson, 8,5 vinn.
Skákþing Akureyrar 1995 hefst
nk. sunnudag 12. febrúar kl.
14.00.
Teflt er í Skákheimilinu Þing-
vallastæti 18 og er öllum heimil
þátttaka.
Að jafnaði er teflt á sunnudög-
um, miðvikudögum og föstudög-
um. Umhugsunartíminn er 2 klst. á
40 leiki og síðan 'A klst. til að ljúka
Tíu mínútna mót var haldið þann
2: febrúar og þar bar Þórleifur K.
Karlsson sigur úr býtum. Úrslit
mótsins urðu þannig:
1. Þórleifur K. Karlss., 6 vinn. af 7
2. Ari Friðfinnsson, 5 vinn.
3. Haki Jóhannesson, 4,5 vinn.
Næsta mót hjá Skákfélagi Akur-
eyrar verður næstkomandi föstudag.
Þá verður haldið 15 mínútna mót
sem hefst kl. 20.
skákinni. Hægt er að skrá sig í
mótið í síma 27655 (Skákheimilið)
á fimmtudags- og föstudagskvöld.
Þá er hægt að skrá sig á skákstað
sunnudaginn 12. febrúar frá 13.30
til 13.50.
Núverandi skákmeistari Akur-
eyrar er Gylfi Þórhallsson.
Keppni á Skákþinginu í yngri
flokkunum hefst laugardaginn 11.
febrúarkl. 13.30.
Skákþing Akureyrar 1995
Leikfélag Akureyrar:
Síðdegissýning á
Svörtum fjöðrum
- félagar í Lionsklúbbnum Hæng munu
aðstoða eldri borgara
Á morgun, miðvikudaginn 8.
febrúar, verður síðdegissýning
hjá Leikfélagi Akureyrar á leik-
ritinu „Á svörtum fjöðrum“ eftir
Erling Sigurðarson. Sýningin
hefst kl. 18. Félagar úr Lions-
klúbbnum Hæng munu aðstoða
eldri borgara og aðra þá sem
eiga erfitt með að fara upp stig-
ana í leikhúsinu.
Eins og kunnugt er var „Á
svörtum fjöðrum“ samið sérstak-
lega fyrir Leikfélag Akureyrar í
tilefni af aldarafmæli Davíðs Stef-
ánssonar, skálds frá Fagraskógi.
Höfundur byggir verkið á ljóðum
hans. Leikritió gerist kvöldstund
eina á heimili skáldsins, sem
hverfur á vit minninga sinna sem
endurspeglast í ljóðum þess og
fjölbreytilegir atburðir kvikna til
lífs, þar sem ástin er í aðalhlut-
verki.
Skáldið er leikið af Aðalsteini
Bergdal. Auk hans eru í veiga-
miklum hlutverkum: Rósa Guðný
Þórsdóttir, Sigurþór Albert Heím-
isson, Bergljót Amalds, Dofri
Hermannsson, Sunna Borg og
Þórey Aðalsteinsdóttir. Blandaður
kvartett syngur í sýningunni og
hann skipa: Þuríður Baldursdóttir,
Jónasína Ambjörnsdóttir, Jóhann-
es Gíslason og Atli Guðlaugsson,
sem jafnframt er tónlistarstjóri
sýningarinnar. Leikmynd og leik-
stjóm er í höndum Þráins Karls-
sonar, búningar eru eftir Olöfu
Kristínu Sigurðardóttur og lýsingu
hannaði Ingvar Bjömsson.
Innilegar þakkir til allra er sýndu
okkur hlýhug og vináttu við andlát
og útför eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður og afa,
AÐALSTEINS HALLDÓRSSONAR
frá Hvammi,
Eiðsvallagötu 32, Akureyri.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki gjörgæsludeildar FSA.
Guð blessi ykkur öll.
Þóra Björnsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn.
ísafoldu Jónatansdóttur,
Skarðshlíð 22, Akureyri.
Kveðja,
Valrós Kelly,
Þórður Pálmason.