Dagur - 15.02.1995, Blaðsíða 3

Dagur - 15.02.1995, Blaðsíða 3
FRETTIR Miðvikudagur 15. febrúar 1995 - DAGUR - 3 Klingjandi vinátta í grunnskólum á Norðurlandi Klingjandi vinátta, er heiti dagskrár sem afrískir listamenn fluttu á tónleikum fyrir grunnskólaböm á Akureyri á mánudag. Afrísku listamennimir héldu síðan tónleika í Borgarhólsskóla á Húsavík og Hafralækjarskóla í Að- aldal í gær. Þessi mynd var tekin í Oddeyrarskólanum og eins og sést voru bömin vel með á nótunum. Mynd: Robyn Samband veitinga- og gistihúsa: Hár virðisaukaskattur á veitingahús meðan svarti markaðurinn þrífst vel Samband veitinga- og gistihúsa gagnrýnir harðlega mismunun sem það telur felast í virðisauka- skattskerfinu. Á sama tíma og matvöruverslanir og kjötvinnsl- ur komist upp með að selja út mat, t.d. á þorrablót og árshátíð- ir, með 14% virðisaukaskatti hafx veitingahús þurft að greiða 24,5% virðisaukaskatt. Aðstöðu- munurinn sé mikill, jafnvel þó barátta veitingamanna hafi skil- að þeim endurgreiðslu á hluta irmskatts. Að mati Sambands veitinga- og gistihúsa eru árshátíðir, þorrblót og fleiri skemmtisamkomur í sí- auknum mæli haldnar í félags- heimilum, einkasölum og jafnvel íþróttahúsum. í flestum tilfellum séu veitingar aðkeyptar og svarti markaðurinn blómstri í kringum þessa starfsemi. Enginn viróis- aukaskattur sé greiddur, laun starfsfólks á staðnum ekki gefin upp og oft ekki sótt um lögboóin leyfi. „Þeir sem standa fyrir slíkum samkomum og greiða ekki út- skattinn sitja uppi með innskatt- inn. Með því að lækka virðisauka- skattinn á tilbúinn mat út úr versl- unum var verið að stórlækka kostnað skattsvikaranna. Sömu sögu er að segja af samkeppni skyndibitóstaðanna við sjoppum- ar. Á meðan veitingastaðurinn þarf að innheimta 24,5%, þarf sjoppan aðeins að innheimta 14% þótt bæði fyrirtækin selji ham- borgara út um lúgu. Hver ætlar að stöðva þessa vitleysu?,“ segir í gögnum Sambands veitinga- og gistihúsa um þetta mál. Veitingamenn telja einu færu leiðina þá að færa veitingahúsin niður í 14% virðisaukaskatt. Til að vega upp tekjumissi vegna áfengissölu hafi ríkið í hendi sér að hækka áfengisskattinn en meó lækkun virðisaukaskattsins geti veitingastaðir boðið viðskiptavin- um sínum lægra matarverð sem ekki síst sé mikilvægt gagnvart ferðaþjónustunni. Samkeppnis- staða veitingahúsanna verði með þessu mun betri og um leið sé stuðlað að því að fleiri fyrirtæki fari að lögum í landinu, ríkissjóði ekki síst til hagsbóta. JÓH Vegleg Davíðsdagskrá í grunnskólanum á Kópaskeri: Afar dýrmætt starf - segir Iðunn Antonsdóttir, skólastjóri Það var þröngt setinn bekkurinn í grunnskólanum á Kópaskeri sl. mánudagskvöld þegar nemend- ur skólans fluttu dagskrá til- einkaða þjóðskáldinu Davíð Stefánssyni frá Fagraskógi. Öll böm í skólanum komu við sögu og í samvinnu við kennara sína tókst þeim að skapa sýningu sem vakti athygli og aðdáun þeirra sem á horfðu, jafnt heimamanna sem aðkomufólks. „Við höfum jafnan lagt metnað okkar í það hér að böm lærðu að koma fram og það skilaói sér al- veg geysilega vel. Það er ekki síst að þakka frábærri leikstjóm Mar- grétar Óskarsdóttur, kennara hér við skólann, sem var hugmynda- smiðurinn á bak vió þetta og valdi efni. Við emm Hka svo heppin að hafa hér öflugan tónlistarskóla þar sem nánst hvert bam gmnnskól- ans er við nám og sum að læra á fleiri hljóðfæri en eitt. Það er því svo fjölbreytt sem hægt er að láta krakkana gera,“ sagði Iðunn Antonsdóttir, skólastjóri grunn- skólans á Kópaskeri. I upphafi dagskrárinnar lék hluti af Iúðrasveit Öxarfjarðarhér- aðs, síðan var kórsöngur þar sem sungið var eitt þekktasta ljóð Dav- íós, Komdu inn í kofann minn. Þá voru flutt og leiklesin mörg ljóða Davíðs og þótti aðdáunarvert hversu mikinn texta bömin gátu lært og flutt blaðalaust og jafn- framt komið efninu til skila. Einnig var leikið á tréspil og blokkflautur. Elstu nemendumir fluttu hluta úr Gullna hliðinu og gerðu það afar vel. Margrét Ósk- arsdóttir sá um leikstjóm sem fyrr segir, Elísabet Hauge æfði söng- inn auk þess sem kehnarar tónlist- arskólans lögðu hönd á plóginn. Iðunn sagði að um 80 manns hefðu séð dagskrána og var þröngt setið. Viðburður af þessu tagi er árviss í grunnskólanum á Kópa- skeri. „Það em sannkölluð stór- virki sem unnin hafa verið á þessu sviði undanfarin tvö ár, sem má þakka því að við höfum kennara hér við skólann sem jafnframt er leikstjóri. Með slíku fólki er hægt að vinna þrekvirki. Sem betur fer er það víða í skólum sem unnið er markvisst að skapandi starfi. List og verkgreinar virðast því miður alltaf eiga undir högg að sækja þrátt fyrir fögur orð þannig að svona starf er ekki minnst dýr- mætast í skólastarfinu og þeim tíma sem í þetta fer ákaflega vel varið að mínu mati,“ sagði Iðunn að lokum. HA ÓTBÚLEOT ÚRVAL! Patnaður, óveðursgrímur, yeti moon boots, aukasokk- ar, hanskar, lúffur, hjálmar, aukagler, reimar og oliur, speglar, áttavitar, íshakar, vatnsheldir pokar fyrir far- angur, kortaljós, kortatðsk- ur, bensinbrúsar 10 og 20 litra, trektar, brúsahaldar- ar, álskóflur, vólsleðagallar, lóranstrikuö plasthúðuö blöö af afmörkuöum svæöum, svefnpokar -28 (gráöur) og hitatæki, regnfatnaöur, flis- fatnaður frá 66 (gráöur noröur) og Regatta. Komið og skoðið xirvalið, sjáið gsmls ferðsmátsnn. Evenrude Bob ost og öku- manninn i gömlu Hekluúlp- unni með lambhúshettuna Sjón er sögu riksri (Tryggvsbraut 18). ÚTILÍFSMABKAÐUEINN [£sso) stööinni Leiruvegi Tryggvabraut 12 Gefum afslátt af stórum úttektum. JsSEsí orrahlafiborö öll föstudags- og laugardagskoöld Fjölskyldur, félagasamtök, vinnufélagar! Þorramatur afgreiddur alla aðra daga í okkar glæsilega sal Borðapantanir ísíma 21440 Lindin við Leiruveg

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.