Dagur - 15.02.1995, Page 5
Miðvikudagur 15. febrúar 1995 - DAGUR - 5
í Degi, 5. tbl. 7. janúar 1995 birtist
grein um Ar fjölskyldunnar og í
framhaldi af henni eru birtar stuttar
álitsgerðir 7 ungra kvenna, sem segja
álit sitt á þessu fyrirbrigði, Ari fjöl-
skyldunnar. Allar eru konumar ungar
og kemur það greinilega fram, álit
þeirra markast af því.
Hverju máli er hollt að fleiri en
eitt sjónarmið komi fram. í þessu
máli eru sjónarmið eldri borgara ekki
ógildari en önnur og ættu að eiga
sama rétt og önnur að koma til álita,
ef einhver umræða yrði um þessi mál
í tilefni af Ari fjölskyldunnar 1994.
Þótt nú sé að baki árið sem til-
einkað er fjölskyldunni finnst mér
ástæða til að spyrja: Ar fjölskyldunn-
ar, hvað er nú það? Er ekki hvert ár
ár fjölskyldunnar? Eða tala ekki há-
æruveróugir landsfeður svo á tylli-
dögum að fjölskyldan sé einn af
helstu máttarstólpum heilbrigðs
þjóðlífs? Það má líta svo á að ástæða
þess að árið 1994 var sérlega tileink-
að fjölskyldunni sé sú að ýmis veik-
leikaeinkenni fjölskyldunnar hafa
komið í ljós. Vaxandi lausung, jafn-
vel upplausn, verður æ meira áber-
andi, hjónabandsbrestir eru tíðir,
fjárhagsvandræði rústa fjölskyldulíf-
ið, unglingavandamál leiða inn á
hættulegar brautir.
Velferð bama á undir högg að
sækja. A yfirborði samfélagsins hef-
ur lengi allt sýnst slétt og fellt, fánar
velferðar og þjóðarsátta hafa blaktað
við hún og áherslan helst lögð á það
aó stilla verói öllum kröfum í hóf,
innan þeirra marka sem gjaldþol
þjóðfélagsins leyftr.
Skálkaskjól ráðamanna
Launakerfið hefur samt sem áður um
áratugi verið svo fjölskyldufjand-
samlegt að það hefur sundrað fjöl-
skyldum. Bæði foreldri hafa neyðst
til að fara á vinnumarkað til að sjá
fjölskyldunni farborða. Þetta fjöl-
skyldufjandsamlega launakerfi hefur
verið allsráðandi jafnt hjá opinberum
stofnunum og fyrirtækjum í einka-
geiranum. Tryggingakerfið gengur
framar öðram í beitingu misréttis.
Er ár fjölskyldunnar eitthvað
öðruvísi en nýliðin ár aldraóra, ár
bamsins eða ár trésins? Enginn sýni-
legur árangur varð vegna þeirra. Þess
vegna hneigist maður til að álíta aö
val á ári tileinkað vissu málefni sé
kærkomið skálkaskjól fyrir þá ráða-
menn þjóðar sem kjósa að blaðra um
málefnin fremur en að vinna þeim
gagn.
Þaó er auðvelt að fimbulfamba á
ári fjölskyldunnar um mikilvægi
hennar, kalla hana kjölfestu þjóófé-
lagsins, undirstöðu menningar og
mannlífs. Þetta minnir á sjómanna-
daginn þegar „hetjur hafsins“ eru
hylltar, en lögleg kjarabarátta þeirra
svo stöðvuð með lögum.
Fjölskyldur lífeyrisþega
hafa gleymst
í öllu blaðrinu er eins og gleymst
hafi að „fjölskylda" er meira en for-
eldrar með misstóran bamahóp. Fjöl-
skylda er líka einstætt foreldri með
sín böm, líka foreldrar með uppkom-
in böm sem líka eiga böm. Hvað var
gert á ári fjölskyldunnar til að leið-
rétta og afnema það ranglæti sem
slíkar fjölskyldur era beittar? Ekkert.
Þetta era hinar gleymdu fjölskyldur,
fullorðnu bömin í öskustónni. Um
hvaða ranglæti er verió að tala? Jú,
það er ranglæti sem særir meira and-
lega en jafnvel hlekkir fangelsa særa
líkamann.
A efri áram er þeim hjónum, sem
búin eru að skila foreldrahlutverki
sínu og hafa haldið sín hjónabands-
heit, refsað fyrir langa sambúö og
trúfesti með því að skerða ellilauna-
bætur þeirra. Þetta er látið líðast og
ekki sinnt kröfum um breytingar.
Samtök eldri borgara hafa vakið
athygli á þessu ranglæti. Landssam-
band aldraðra gerói ítarlega sam-
þykkt á aðalfundi sínum 2.-3. júní
1993 og leyfi ég mér að birta hana
hér. Tölumar geta staðist nú nær
hálfu öðra ári síðar, a.m.k. eru hlut-
föllin hin sömu.
Tillaga um jafnrétti til lífeyris al-
mannatrygginga:
Aðalfundur Landssambands aldr-
aðra haldinn 2.-3. júní 1993 telur að
hjón eigi að fá jafnháan lífeyri og
tveir einstaklingar og ekki sæta verri
kjörum en einhleypingar þegar kem-
ur að skerðingu tekjutryggingar.
Enn er það svo að hjón sem bæði
era komin á lífeyrisaldur fá aðeins
90% af lífeyri tveggja einstaklinga
og tekjutrygging hjóna skerðist fyrr
en tekjutrygging tveggja einhleyp-
inga.
Hjá einhleypingi byrjar tekju-
trygging að skerðast þegar atvinnu-
tekjur ná kr. 17.582 á mánuði, en hjá
hjónum byrjar skeröingin þegar sam-
anlagðar tekjur þeirra ná 24.615 á
mánuði. Skerðing vegna tekna úr líf-
eyrissjóðum er einnig óhagstæð
hjónum. Fundurinn telur aó sömu
skerðingarmörk eigi að gilda fyrir
alla lífeyrisþega.
Jafnframt beinir fundurinn því til
Alþingis að 11. gr. laga um almanna-
tryggingar verði breytt þannig að
grannlífeyrir hjóna hvors um sig
verði sá sami og lífeyrir einhleyp-
ings.
Dæmi:
Einstaklingur pr. mán.
Ellilífeyrir 12.329
Tekjutrygging 22.648
Heimilisuppbót 7.711
Sérstök heimilisuppbót 5.304
kr. 48.028
1/2 hjón pr. mán.
11.096
22.684
kr. 33.780 x 2 = 67.560
Einhleypur maður gctur haft
14.248 krónum meira á mánuói í
tryggingabætur en einstaklingur í
hjónabandi. Auk þess skerðist tekju-
trygging fyrr hjá hjónum og nemur
sú skerðing kr. 3.448 hærri upphæð
hjá hvoru hjóna.
Engin viðbrögð ráðamanna
Það er leitt til þess að vita að engin
vióbrögð hafa orðið við þessari sam-
þykkt. Það er sýnilegt að ekki hafa
ráðamenn hlustað á eða lesið það
sem samtök aldraðra láta frá sér fara,
þó þau telji tugi þúsunda innan sinna
vébanda.
Einar M. Albertsson.
Aldraðir og öryrkjar: Fylkjum
liði, stöndum saman!
Sú spuming hlýtur að vakna hvort
aldraðir og öryrkjar eigi ekki að
mynda „þrýstihóp" nú þegar líður að
kosningum. Það hlýtur að skipta
máli hvemig atkvæöi þessara þús-
unda falla. Oryrkjar og lífeyrisþegar
eiga sín landssamtök, öflug og mikil-
væg, sem eru þeim einstaklingum
sem innan þeirra era félagslega mik-
ilvæg. Þau era hinsvegar ekki mik-
ilsmetin af ráóamönnum sem hafa
ákvarðanir um lífskjör meðlima
þessara samtaka í hendi sér. Þeim er
ekki boðió til umræðna um kjaramál
sín og era ekki aðilar að neinum
kjaramálaumræðum. Samþykktir
sem þau gera eru því viljayfirlýsing-
ar og áskoranir gagnvart þeim sem
hafa kjör þeirra í sínum höndum.
Eingreiðslukerfið er
óverjandi
Launþegasamtök eiga nú í vök að
verjast vegna launakjara sinna fé-
laga. Þau hafa getað knúið fram
ákvæði í kjarasamningum sem taka
til verðbóta vegna rýmaðs kaupmátt-
ar. Launagreiðendur hafa kosið að
greiða þessar verðbætur með svo-
kölluðum eingreióslum. Slett er í
launþegana smáupphæð sem á að
sætta þá við smánina sem lága kaup-
ið er.
Lífeyrisþegum og öryrkjum er
svo úthlutaó smá klessu af slettunni,
það er fullgott. Með þessu cin-
greiðslufyrirkomulagi er svindlað á
lífeyrisþegum. Lífeyrir þeirra flestra
er miðaður við grannlaun. Ein-
greiðslur snerta ekki grannlaun og
því fá lífeyrisþegar ekki hækkun líf-
Þýskur strákur óskar
eftir pennavini
Ég heiti Friederike og bý í Þýska-
landi. Ég er tólf ára gamall, brátt
þrettán. Áhugamál mín eru útreið-
ar, lestur, sund, tónlist og bréfa-
skriftir.
Ég hef mikinn áhuga á aó kom-
ast í bréfasamband við krakka á
mínum aldri á Islandi. Vinsamleg-
ast skrifið á ensku eða þýskC.
Ljósmynd óskast af pennavini.
Nafnið er:
Friederike Stephani
Zum Eigen 16
40880 Ratingen
Germany.
Frjálslyndur karlmaður óskast
Tuttugu og tveggja ára gömul
stúlka frá Ghana, „gullfalleg og
aðlaðandi", að eigin sögn, sendi
Degi bréf á dögunum með ósk um
birtingu. í bréfinu kemur fram að
hún helur áhuga á að komast í
bréfasamband við frjálslyndan ís-
lenskan karlmann með hjónaband
í huga. Áhugamál stúlkunnar eru
útivera, kvikmyndir og tónlist.
Skrifið til:
Jane Quansah
P.O. Box 124
Agona Swedru
Ghana.
Hollendingur leitar pennavina
Ritstjóm Dags hefur borist bréf
þar sem C. Maasse, 55 ára Hol-
lendingur, óskar eftir pennavini á
íslandi. Hann segist hafa áhuga á
Islandi, náttúru þess og menningu
en þó sérstaklega á frímerkjum.
Fullt heimilisfang hans er eftir-
farandi:
C. Maasse
de Plantage 14
NL-3931 DX Woudenberg
Nederland.
Stefna núverandi
stjórnarflokka hefur
þetta kjörtímabil
einkennst af aðgerð-
um gegn þeim sem
helst þurfa stuðning
þess velferðarkerfis
sem einmitt þetta
fólk hefur lagt sitt
til að byggja upp.
Þessir flokkar ættu
því ekki að fá eitt
einasta atkvæði
eldri borgara eða
öryrkja.
eyris. Og svo má ekki gleyma tví-
sköttun lífeyristekna.
Þegar nú líður að lokum árs fjöl-
skyldunnar sýnist mér að ekki sé of-
sagt að um algert sýndarfyrirbrigði
er að ræða. Af hálfu yfirvalda er
ekkert gert sem bætir hag fjölskyld-
unnar, ekkert gagnvart fjölskyldum á
lífeyrisaldri annað en að boðaðar era
skerðingar á ýmsum greiðslum til
lífeyrisþega og öryrkja. I skattamál-
um er fátt jákvætt. Hækkun skatt-
leysismarka sem kratar lofuðu vora
svik, mörkin vora lækkuð stórlega.
Fjölskyldur eldra fólks hafa gleymst
nú í lok árs fjölskyldunnar, nema
hvað reynt er að plokka af þeim eins
og öryrkjum og sjúklingum.
Hvað geta þessar fjölskyldur
gert? Ekki geta þær farið í verkfall,
aðgerðir stéttarfélaga gilda ekki fyrir
þá sem era vamarlausir fyrir áníðlsu
stjómvalda.
Kosningaréttinn
höfum við enn
Eitt vopn eigum við eldri borgarar
og öryrkjar - kjörseðillinn. Ég skora
á öll eldri hjón að nota tímann fram
að kosningum til að hugleiða hvað
það gerir á kjördag. Þá gefast tugum
þúsunda aldraðra og öryrkja, sjúk-
linga særðra á sál og líkama mögu-
leikar til að sýna þeim stjómarherr-
um sem vanvirða lífshagsmuni þess
með sífelldri áreitni og skerðingu á
kjöram að það hefur þennan dag í
höndum áhrifaríkt vopn.
Stefna núverandi stjómarflokka
hefur þetta kjörtímabil einkennst af
aðgerðum gegn þeim sem helst þurfa
stuðning þess velferðarkerfis sem
einmitt þetta fólk hefur lagt sitt til að
byggja upp. Þessir flokkar ættu því
ekki að fá eitt einasta atkvæði eldri
borgara eða öryrkja.
Að loknu ári fjölskyldunnar þurfa
allar hinar gleymdu fjölskyldur sem
refsingu hafa hlotið ekki að þakka
neitt meö sínum atkvæðum.
Eldri hjón, eldri einstaklingar
Fram til baráttu! Notum kjörseðilinn,
vopnið sem við höfum á kjördag.
Einar M. Albertsson,
Hólavegi 15, Siglufirði.
Húsbréf
*
Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. flokki 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
3. flokki 1992
2. flokki 1993
Innlausnardagur 15. febrúar 1995.
1. flokkur 1989: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 845.616 kr. 84.562 kr. 8.456 kr.
1. flokkur 1990: Nafnverð: 500.000 kr. 50.000 kr. 5.000 kr. Innlausnarverð: 746.575 kr. 74.658 kr. 7.466 kr.
2. flokkur 1990: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.480.696 kr. 148.070 kr. 14.807 kr.
2. flokkur 1991: Nafnverð: 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 1.376.342 kr. 137.634 kr. 13.763 kr.
3. flokkur 1992: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 6.073.826 kr. 1.214.765 kr. 121.477 kr. 12.148 kr.
2. flokkur 1993: Nafnverð: 5.000.000 kr. 1.000.000 kr. 100.000 kr. 10.000 kr. Innlausnarverð: 5.603.538 kr. 1.120.708 kr. 112.071 kr. 11.207 kr.
Innlausnarstaður: Veðdeild Landsbanka íslands
Suðurlandsbraut 24.
c8g húsnæðisstofnun ríkisins
l | HÚSBRÉFADEILD • SUÐURtANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SÍMI 69 69 00