Dagur - 25.02.1995, Side 9
Laugardagur 25. febrúar 1995 - DAGUR - 9
Ætlar þú að baka
bollur í dag?
Nú er hann á mánudaginn, bless-
aður bolludagurinn og tilhugsunin
um gómsætar rjómabollur veldur
því að flestir fá vatn í munninn.
Allir eiga sínar uppáhaldsbollur,
gerbollur, vatnsdeigsbollur, berlín-
arbollur, rúsínubollur eða kremboll-
ur því smekkurinn er misjafn. Það
er lystin líka og sumir borða eina
bollu í rólegheitum á meðan aðrir
háma þær í sig hverja á fætur ann-
arri, dag eftir dag.
A heimilum landsins er það eink-
um í dag og á morgun sem bollur er
á borðum en á mánudaginn gæða
margir sér á bollum með kaffinu á
sínum vinnustöðum.
Margrét Kristinsdóttir hússtjóm-
arkennari á Akureyri er ein þeirra
sem ávallt bakar bollur fyrir sig og
sína en auk þess hefur hún haldið
gerbakstursnámskeið fyrir almenn-
ing. Þar sem það er næsta víst að
myndarlegar húsmæður og heimilis-
feður vilja gjaman baka bollur í dag
eða á morgun var leitað í smiðju
Margrétar að hollum ráðum og ein-
földum en góðum uppskrifum. Við
gefum henni orðið:
Um gerbakstur
„Ger er lifandi gersveppur, sem tek-
ur til við að fjölga sér þegar við höf-
um búið honum góð skilyrði, þ.e.
gefíð honum næringu, raka og yl í
deiginu. Við skiptinguna framleiðir
hann loft sem þenst út og lyftir
deiginu og svo má ekki gleyma því
að við skiptinguna framleiðir hann
B-vitamín! Allur bakstur með geri
er því hollari en annar bakstur."
Ger - pressuger - þurrger -
perluger - hver er munurinn?
„Allt er þetta sami gersveppurinn að-
Margrét Kristinsdóttir.
eins mismunandi mikið þurrkaður í
þeim tilgangi að geyma gerið betur.
Ger eða pressuger er ferskt og
fæst í bakaríum og reyndar einnig
stundum í Hagkaup. Það geymist í
1-2 vikur í kæliskáp. Þurrger í smá-
um komum er sett beint saman við
hveitið en perluger í stærri kúlum er
betra að leysa upp í volgum vökva
áður en það er sett í deigið.
Hver og einn velur það ger sem
hentar honum best en ferskt ger er
alltaf fljótast til og ilmar best. Það
er mulið í skál, volgum vökva hellt
yfír og látið standa um stund.
Hafið það í huga að 1 tsk. af
þurrgeri er sama magn og 10 g af
pressugeri."
Langaföstubollur
Þessar bollur bakaði Margrét fyrst
þegar hún var í Húsmæðraskólanum
á Blönduósi. Hún segir þær mjög
góðar, sérstaklega mjúkar og er
uppskriftin enn í fullu gildi á hennar
heimili.
30 g pressuger
1 'Adl mjólk
250 g hveiti
120 g smjörlíki
30 g sykur
Myljið gerið í skál. Hellið volgri
mjólkinni yfír. Saxið smörlíkið
saman við % hluta hveitisins og bæt-
ið í ásamt sykri. Sláið vel af lofti í
deigið og látið lyfta sér í 'A-l klst.
Sláið nýtt loft í deigið og hnoðið
eins rniklu af hveiti upp í deigið og
þörf er á. Mótið bollur úr deiginu og
látið lyfta sér í ‘A-3/ klst. Bakið við
200°C í u.þ.b. 10 mín.
Þessar bollur má fylla að vild til
dæmis með eggjakremi, sultu og
rjóma, bræða súkkulaði eða glassúr
yfír eða sigta flórsykur yfir.
Vatnsdeigsbollur
2 dl vatn
80 g smjör eða smjörlíki
100 g hveiti
u.þ.b. 2 egg.fer eftir stœrð
Hitið vatn og smjörlíki að suðu,
bætið hveiti í, hrærið rösklega og
látið suðuna koma upp. Stráið ör-
litlu salti yfir og kælið dálítið. Þeyt-
ið eggin smátt og smátt saman við
þar til hæfílegri þykkt er náð. Deig-
ið á að forma sig þegar hrært er með
sleif í því. Sprautið eöa setjið með
tveim skeiðum á bökunarplötu og
bakið við 200°C í 20-30 mín.
Passið að opna alls ekki ofninn
fyrstu 15-20 mín. (tíminn fer eftir
stærð bollanna).
Kælið og fyllið að vild með t.d.
góðri ávaxtasultu, eggjakremi og
þeyttum rjóma, súkkulaði eða flór-
sykur á toppinn sakar ekki.
Góðar fyllingar innan í bollur
Margrét segist mjög gjaman setja
eggjafyllingu inn í gerbollur ásamt
rjómanum og sultunni, þá verði
bollumar enn gómsætari en ella.
Eggjaþykkni
20 g hveiti
2 dl mjólk
1 eggjarauða
20 g sykur
Setjið allt í pott, þeytið saman, hitið
rólega þar til þykknar, hrærið stöð-
ugt í á meðan.
Appelsínuþykkni
2 dl appelsínusafi
1-2 msk. sykur
1 msk. kartöflumjöl
1 msk. appelsínulíkjör (má sleppa)
1 eggjarauða
[ Brauðgerð KEA á Akureyri var starfsfólkið að baka bollur, setja inn í
boilur, setja ofan á bollur og pakka inn bollum þegar ljósmyndara Dags bar
þar að garði. Myndir: Robyn.
Sólgin í Lista-
saíninu á Akureyri
Þeytið vel saman, setjið yfir hita,
hrærið stöðugt i þar til þykknar.
Kælið.
Þetta krem er mjög gott í staðinn
fyrir eggjakremið og þá er settur
appelsínuglassúr, þ.e. flórsykur
bleyttur upp með appelsínusafa
í dag verður opnuð í Listasafn-
inu á Akureyri sýning sem ber
nafnið Sólgin og er samvinnu-
verkefni Nýlistasafnsins,
Slunkaríkis á ísafirði og Lista-
safnsins á Akureyri. Sólgin er
þáttur Listasafnsins á Akureyri í
Sólstöfum, norrænni menning-
arhátíð, sem haldin er á þremur
stöðum á íslandi um þessar
mundir, Akureyri, ísaflrði og
Reykjavík, í tilefni af fundi Nor-
rænu ráðherranefndarinnar hér
á landi.
Allir þátttakendur í Sólgin
vinna að verkum sem sýna óvænta
og skilyrðislausa afstöðu til mis-
munandi greina, tækni og efnis.
Einfaldar blýantsteikningar eru
jafn sjálfsagðar og límmiðar,
myndbandaverk, allt eins mögu-
lega kúluspil. Þeir eiga það sam-
eiginlegt aó athuga ómeðvitaða
þætti bæði hjá einstaklingum og
menningunni í heild.
I Vestursal Listasafnsins sýna
bráðefnilegir sænskir og danskir
listamenn, Anders Boquist, Ann
Kristin Lislegaard, Peter Hagdahl
og Maria Lindberg.
Teikningar Maríu Lindberg
virðast saklausar en í þeim er að
finna óleyfilega kynferðislega þrá.
Teikningar Ann Kristen Lisle-
gaard, sem gerðar eru í dáleiðslu,
kanna ómeðvitaða hugaróra lista-
mannsins sjálfs. I verkum Peter
Hagdahl virðast hlutimir í stöð-
ugri breytingu. Verk Anders Bo-
quist er könnun á brotafletinum
milli heims hinna fullorðnu og
unglinganna. KLJ
Ný
námskeið
hefjast mánudaginn
27. febrúar.
Skráning hafin
Hringdu strax
Líkamsræktin
Hamri
sími 12080
Vissulega eru þær girnilegar og
bragðið svíkur örugglega ekki.
(e.t.v. blönduðum appelsínulíkjör)
ofan á bollumar. Þær eru svo skreytt-
ar með rifnum appelsínuberki.
Margrét bendir á að það sé
skemmtilegur siður að baka vel af
bollum og bjóða allri fjölskyldunni í
bollukaffí, það sé kjörið tækifæri til
að eiga góða samverustund.
Að sjálfsögóu eru einnig ljóm-
andi bollur til sölu frá bakaríum
landsins en þegar lítið er í pyngj-
unni og marga munna þarf að metta
er umtalsverður spamaður að snúa
sér að eldavélinni og töfra fram eig-
in bollur. KLJ
Myljið gerið í skál.
Bræðið smjörlíki í potti og
kælið meó vökva,
blandan á að vera fmgurvolg.
Hellið henni yfir gerið og lát-
ið standa um stund, (ef um
þurrger er að ræða er það sett
beint saman við hveitið).
Ef egg er í uppskriftinni, fer
það saman við vökvann í
skálinni.
Hrærið um það bil / af þurr-
efnunum saman við og sláið
vel af lofti í deigið.
Stráið hveiti yfir og breiðið
klút yfir skálina.
Látið deigið lyfta sér
í 30-40 mín.
Sláið nýju lofti í deigið og
mótið að vild og setjið á plötu
eða í mót.
Látið deigið lyfta sér aftur.
Penslið með eggi og bakið.
• •
KAUPANGI
.
af bollum
Þriðjudag
Sprengitilboð á
sprengidaginn
Saltkjöt:
Rif 318 kr. kg áður 398 kr. kg
Blandaö 599 kr. kg áður 660 kr. kg
Valið 688 kr. kg áður 790 kr. kg
Rófur 55 kr. kg
Kartöflur 55 kr. kg
Gular baunir„Peak“ 69 kr. pokinn
Beikon kuri 408 kr. kg
k
SlMI 12933 - FAK: 12936