Dagur - 25.02.1995, Síða 15
UTAN LANDSTEINANNA
Laugardagur 25. febrúar 1995 - DAGUR -15
UMSJÓN: SÆVAR HREIPARSSON
Á góðrí leið í gröfina
Fyrir einu ári
var ljúflingur-
inn KEAMU
REEVES á góðri leið
með að tortíma
sjálfum sér. Hann
drakk of mikið og
stundaði skemmt-
analífið af krafti en
hætti síðan skyndi-
lega eftir að hafa
verið handtekinn
fyrir ölvunarakstur.
Eftir að hafa slegist
viö laganna veröi í
dágóða stund var
hann færður í
fangageymslur þar
sem tekin var hin
hefðbundna andlits-
mynd lögreglunnar. Þegar
Keanu sá síðan myndina í
blöðum stuttu síðar var hon-
um illa brugðið og hét þess
að helga líf sitt leiklistinni
fremur en skemmtanalífinu.
Myndimar minntu Keanu á
föður hans, Sam Reeves,
Fangamyndir af
Sam Reeves...
,.og Keanu Reeves.
sem nú situr í fang-
elsi meö 10 ára
dóm fyrir kókaín-
neyslu. Nú er Ke-
anu heilsufæðis frík
sem stundar reglu-
lega líkamsrækt,
drekkur aðeins vió
hátíðleg tilefni og
skilur þá bílinn eftir
heima. „Ég var á
góðri leið í gröfína
en vildi ekki enda
eins og pabbi
gamli. Eg leit á
myndimar og sá að-
eins andlit fööur
míns.
virkaði
sem
vekjara-
klukka og
ég fór á fæt-
ur,“ sagði Ke-
anu í viðtali fyrir
skömmu.
I hár saman
Eitt vinsælasta ritefni slúðurblaða undanfama mánuði er
væntanlegur skilnaður leikarans Richard Gere og fyrirsæt-
unnar CIMDY CftAWFORD- Sérstaklega hafa ástarmálin hans
Gere verið í sviðsljósinu og hann ýmist verið bendlaöur við
ensku fyrirsætuna Lauru Bailey eða Reyfaraleikkonuna UMU
THURMAM. Fjölmargar sögur af framhjáhaldi hans með þessum
og fleiri meyjum litu dagsins ljós og það brá því mörgum í
brún þegar að Cindy og Uma hittust af tilviljun í teiti einu í
Nýju Jórvík. „Þú ert heimilisspillir,“ hvæsti Cindy á Reyf-
araleikkonuna en Cindy er sögð hamstola vegna sambands
hennar og eiginmannsins. Stúlkumar hvesstu augum hvor á
aðra og nærstaddir voru famir að búa sig undir stóromstu
þegar Cindy snérist skyndilega um hæl og stmnsaði út.
Annars er það af ástarmálum þessara tveggja kvenna að frétta
að Uma sést æ oftar í fylgd með hjartaknúsaranum Brad Pitt á
meðan Cindy er sögð í sambandi við Billy Baldwin.
Uma Thurman var farin
að búa sig undir
bardaga.
J. Howard Marshall hefur
ekki fengið mikið fyrir pen-
◄ ingana sína.
Anna Nicole Smith
flaggar sínu feg-
ursta.
Laustát oq tít
atts tíktey
Þrátt fyrir að hafa gifst hinum níræða olíubarón J. HOWARD
MARSHALL á síðasta ári er langt frá því að fyrirsætan og
leikkonan ANNA NICOLE SMITH láti aðra karlmenn eiga
sig. Fymim einkabílstjóri hennar og aðstoðarmaður, Clay Spires,
segist einnig hafa verið aðstoðarelskhugi en hafi þurft að deila því
hlutverki með fjölda annarra karlmanna. Leikaramir Sean Penn og
Judd Nelsoneru aðeins tveir af mörgum sem Clay segir hafa leikið
sér með Onnu í einrúmi undanfama mánuði. Hún býr ekki í
sama húsi og gamli karlinn og það lengsta sem hann hafi kom-
ist séu brjóstagælur en þá hafi hjartslátturinn orðið of ör og
hann fengið verðskuldaða hvíld. Clay hefur þó ekki miklar
áhyggjur af ástarmálum Önnu heldur segist hann óttast
mjög að hún verði skammlíf því hún mun vera forfallinn
eiturlyfja-
fíkill.
Hann
segir
Önnu, fyrrver-
andi lcikfélaga árs-
ins hjá Playboy, illa á
sig Jcomna af pilluáti og
hún sé til alls líkleg þegar
hún er komin í ham.
Cindy Crawford var
ekki tilbúin til að
sýna klærnar.
Clay Spires og Anna Nicole áttu ná-
ið samband.
Vænn biti genginn út
Tommy Lee og Heather Locklear á
meðan allt lék i lyndi.
Pamela Anderson hefur fundið
hamingjuna.
au válegu tíðindi bárust
frá Hollwood í vikunni
að strandvörðurinn barm-
góði PAMELA AMDERSON
væri gengin í hið heilaga. Sög-
ur af elskhugum hennar hafa
breyst nær daglega síðan hún
sagði skilið við söngvarann
Bret Michaels skömmu fyrir
áramót og margir mætir menn
verið tilnefndir. Fyrir tæpum
tveimur vikum átti hún í mjög
nánu sambandi við kvikmynda-
framleiðandann og milljarða-
mæringinn Jon Peters, sem
sagður er einn sá áhrifamesti í
Hollywood, og var hjónaband
sagt innan seilingar. Það kom
því mörgum slúðurdálkahöf-
undum í opna skjöldu þegar
spurðist út í vikunni að Pamela
hefði gifst trommaranum
Tommy Lee úr hljómsveitinni
Motley Crue sl. sunnudag. Sá
þykir í meira lagi vafasamur og
eicki mikill herramaður. Hann
var giftur leikkonunni Heather
Locklear, sem nú hefur slegið í
gegn í sjónvarpsþáttunum Mel-
rose Place í sjö ár en þau skildu
á síðasta ári. Heather ber hon-
um ekki vel söguna og segir
hann hafa byrjað að berja á sér
tveimur dögum eftir að þau
giftu sig. Hann mun hafa barið
hana reglulega upp frá því og
hún segir að hann hafi ekki
verið edrú nema örfáa daga á
ári. Ekki er talið líklegt að
Pamela fái mörg stórhlutverk í
Hollywood á næstunni þar sem
ekki þykir vænlegt að neita Jon
Peters um eitt né neitt.
Sérfræðingurinn Sly Stalione ætlar að snúa sér aftur að leiklistinni.
Mjáti maínLmm.
Kvikmyndagagnrýnendur hafa oft farið ófögrum orðum um
frammistöðu SYLVESTER STALLOME á hvíta tjaldinu. Nú hefur
hetjan sjálf viöurkennt að hann hafi ekki verið mikill leikari á
síðustu árum. „Ég hef í raun ekki leikið almennilega í 15 ár,“ viður-
kenndi hetjan í opinskáu viótali fyrir skömmu. Hlutverk hans í spennu-
myndum eins og Cliffhanger, Demolition Man og Rambo „treystu meira
á líkamsstyrk og áhættuatriði en leikhæfileika", segir Sly. „Ég veit að ég
get leikið. Ég gerði það í myndum eins og Rocky, First Blood og Night-
hawks. Ég hafði bara ekki gert það í nokkuð langan tíma þar til ég lék í
The Specialist.“ I þeirri mynd lék þessi 48 ára „leikari" sprengjusérffæð-
ing CIA sem átti í ástarsambandi við bombuna Sharon Stone. „I þetta
skiptið var það persóna mín, ekki hasaratriði, sem skipti máli. Ég fékk
að leika og sýna djúpar tilfmningar," segir Sly, sem greinilega kann því
vel að leika mjúka manninn því hann hefúr verið óhræddur við að opna
hjarta sitt fyrir fjölmiðlafólki undanfama mánuði.