Dagur - 23.03.1995, Síða 2

Dagur - 23.03.1995, Síða 2
2 - DAGUR - Fimmtudagur 23. mars 1995 FRÉTTIR íslenska Útvarpsfélagið hf. - Stöð 2: Nýir sendar settir upp í Þing- eyjarsýslu í næsta mánuði - dreifikerfið stórbætt á Norðurlandi á næstunni íslenska Útvarpsfélagið hf. er nú að fara í að stækka dreifkerfi sitt fyrir Stöð 2 á Norðurlandi. Að sögn Jafets Ólafssonar, sjón- varpsstjóra, vonast hann til að um miðjan næsta mánuð verði komnir upp tveir nýir sendar í Þingeyjarsýslu, auk þess sem settur verður stærri sendir á Húsavíkurfjall. „Annar nýju sendanna verður staðsettur við Goðafoss og nær til flestra íbúa í Bárðardal, Kinn og Ljósavatnshreppi en hinn verður staðsettur á Skollahnjúk við Syðra Fjall í Aóaldal og nær til íbúa í Aðaldal og stærstum hluta Reykjadals. Þá mun nýr og stærri sendir á Húsavíkurfjalli m.a. koma íbúum Grímseyjar til góða,“ sagði Jafet. Framhaldsstofnfundur ferða- málasamtaka fyrir Norður- Þingeyjarsýslu, Bakkafjörð og Vopnafjörð verður haldinn að Miðgarði í Vopnafirði nk. laug- ardag. Fyrr í vetur var haldinn undirbúningsstofnfundur og kjörin stjórn til að semja drög að samþykktum og undirbúa stofn- fúnd. Formaður hennar er Gunnlaugur Júlíusson, sveitar- stjóri á Raufarhöfn. Á fundinum verða Þórður Höskuldsson, ferðmálafulltrúi í Þingeyjarsýslu, og Kristófer Ragnarsson, ferðamálafulltrúi Austurlands, meó framsöguerindi, samþykktir félagsins veróa bomar upp og stjóm kjörin. Einnig verða almennar umræður um feróamál. Gunnlaugur segir það markmið samtakanna að samræma aðgerðir í feróaþjónustu í Norður-Þingeyj- arsýslu og tveim nyrstu hreppum Múlasýslu. Fyrirhugað er aó markaðsetja svæðið sem „Mið- nætursólarhring“, að sögn Gunn- laugs. Hann sagði aó það hefói margt aó bjóóa sem farið hafí framhjá mörgum. Á þessari leið séu skemmtilegir staðir sem vakió hafi minni athygli en ástæða sé til. Unnið verður að kynningu og markvissu starfi með samræmdum aógerðum á vegum félagsins. Pijona- og saumastofan Vaka á Sauðárkróki efnir í kvöld til kynningar á, Collection 1995- 1996, nýju framleiðslulínunni sem fyrirtækið hefur sett á markað. Að sögn Þorbjargar Morgan, framkvæmdastjóra Vöku, er þessi nýja lína byggð á íslenskum og þá Nýju sendamir eru komnir til landsins og sagöi Jafet að það væri undir Pósti og síma komið hvað þeir kæmust fljótt upp. „í sumar ætlum við svo að setja upp sendi nálægt Reykjahlíðarhverfi í Mývatnssveit, nánar tiltekið í Námaskarði og þá náum vió yfir alla Mývatnssveitina. Þá verður settur upp í sumar, sendir á Hvíta- bjamarhól, milli Hvammstanga og Hrútafjarðar og eftir þaö næst út- sending Stöðvar 2 í Hrútafirði, á Hólmavík og Drangsnesi. Þá erum við að athuga með útsendingarmál í sveitinni í kringum Blönduós.“ Jafet sagði að þegar þessum verkefnum lyki, yrði Stöð 2 kom- in mjög víða um Norðurland og aðeins einstaka staðir eftir, sem erfitt yrði að sinna með góðu Gunnlaugur sagði mikinn mun á að vinna að slíkum málum í sam- einingu frekar en að hver væri að bagsa í sínu horni. Staðið yrði sameiginlega að fræóslu- og kynningarstarfsemi og það skap- aði skemmtilega möguleika á svæðinu að það tengdist í báðar áttir. Hann sagói að ferðaþjónustu væri sinnt af vaxandi alúð víóa um land og sú vinna skilaói góð- um árangri, þó í sýslunni væru staðir sem drægju að ferðamanna- straum dygði það út af fyrir sig ekki til og vinna yrði markvisst að markaðssetningu. IM Stjórn Sjálfsbjargar á Akureyri hefur sent bæjaryfirvöldum á Akureyri bréf þar sem þess er eindregið óskað að tryggt verði að öll orlofshús í væntanlegri Kjarnabyggð, við Kjarnaskóg sunnan Akureyrar, verði að- gengileg fötluðu fólki. einkum skagfirskum mynstrum en Vaka framleióir eingöngu úr ís- lenskri ull. Tískusýningin verður í Tunglinu en það er sýningarfólk frá Icelandic Models sem sýnir fötin. Nánar verður fjallað um þessa nýju framleiðslulínu skag- firsku prjóna- og saumastofunnar Vöku síðar í Degi. KLJ móti. Hann sagði að fjölmargir Norðlendingar hefðu haft sam- band við Islenska Útvarpsfélagið og óskað eftir því að félagið kæmi í bréfinu kemur fram að stjóm Sjálfsbjargar styóur þær hugmynd- ir sem fram hafa komið um að sér- stök áhersla verði lögð á uppbygg- ingu sumarleyfismiðstöðvar fyrir fatlað fólk. „Orlofsumhverfi fatl- aóra þarf að bjóða upp á meiri fjölbreytni en fyrir ófatlaða og viróist að með Kjamabyggð skap- ist einstakar aðstæður er ekki eigi sinn líka hér á landi til orlofsdval- ar og sumarleyfa fatlaðra bæði innlendra og erlendra gesta. Þeim tilmælum er hér meó komið á framfæri að þegar verði unnið að könnun á möguleikum á fram- kvæmd slíkra hugmynda og hefur stjóm Sjálfsbjargar á Akureyri og nágrenni mikinn áhuga á því að taka þátt í umræóu um þetta áhugaverða mál,“ segir orðrétt í bréfi stjómar Sjálfsbjargar á Akur- eyri til bæjarstjómar Akureyrar. Jón Hlöðver Áskelsson, ritari stjómar Sjálfsbjargar, segir að með þessu bréfi vilji Sjálfsbjörg vekja athygli á því að aógengi um með Stöð 2 til þeirra. Það hafi hins vegar alltaf verið í áætlun fé- lagsins að bæta við dreifingarkerf- ió. hús sé jafnréttismál. „Varðandi uppbyggingu Kjamabyggðar þá teljum við að þar sé um að ræða einstakt tæki- færi til að byggja upp orlofsað- stöðu fyrir fatlaða. Við viljum benda á að þama er um ræða frá- bæra staðsetningu, stutt er í alla þjónustu og afþreyingu. Það er mikilvægt atriði. Þá viljum við leggja áherslu á að fatlaðir verði ekki einangraðir frá öðrum, þvert á móti að þeir séu innan um aóra,“ sagði Jón Hlöðver. Jón Hlöðver sagði að Akureyr- arbær væri eftirlitsaðili varðandi allar framkvæmdir innan bæjar- markanna, þar á meðal væntanleg orlofshús í Kjamabyggð. „Við viljum að bærinn tryggi það að ekki verði heimilað aö byggja þama orlofshús nema þau verði aógengileg öllum. Þess vegna snú- um við okkur með þessum form- lega hætti til bæjarstjómar Akur- eyrar,“ sagði Jón Hlöðver Áskels- son. óþh íslenska Útvarpsfélagið hefur unnió aö því að endumýja alla myndlykla fyrir Stöð 2 og á því verkefni að ljúka þann 10. apríl nk. og þá verður búió að dreifa samtals 50 þúsund myndlyklum um landið. „Myndlykladreifingin hefur gengið mjög vel og viðtökumar hafa farið fram úr björtustu von- um. Við höfum verið aö fjölga áskrifendum og í desember sl. fór fjöldinn í fyrsta skipti yfir 44 þús- und áskrifendur. Hins vegar er áskrifendafjöldinn nokkuð árstíða- bundin og t.d. eru áskrifendur færri á sumrin,“ sagði Jafet Olafs- son. KK Húsavík: Hververk- fallsdagur dýrkeyptur - seglr Foreldrafélag Borgarhólsskóla „Við krefjumst þess að það verði gerðir samingar við kennara í þá átt að hagsmun- ir nemcnda séu hafðir að leiðarljósi. Hver dagur sem líður í verkfalli er nemendum og framtíð þjóðarinnar allrar dýrkeyptur,“ segir Foreldra- félag Borgarhólsskóla á Húsavík. Félagið hélt fund sl. mánu- dag þar sem þess var krafist aö samninganefndir kennara og ríkisins nái samkomulagi nú þegar um laun kennara svo ekki verói meiri skaði unninn á skólastarfinu. Fundurinn tók eindregið undir kröfur foreldra sem fram kom á fundi á Hótél Sögu 16. mars sl. þar sem seg- ir m.a.: „Fundurinn leggur þunga áherslu á aö tími sé kominn til að endurskoða allt skipulag kennslu og skólahalds í takt við nýja tíma. Megin- markmið brcytinga s.s. ein- setning skóla og cndurskoöun á vinnutíma kennara hlýtur að vcra að auka gæði í skólastarfi. Til aó það markmið náist þairf vönduð vinnubrögö og vinnu- friö.“ IM Þrotabú Varar hf. á Akureyri: Kröfur nema 38 milljónum króna Heildarkröfur í þrotabú Var- ar hf. á Akureyri eru um 38 milljónir króna. Fyrsti skiptafundur verður nk. fóstudag. Af þessum 38 milljónum eru forgangskröfur, launakröf- ur, tæpar 6 milljónir og um 32 milljónir króna almennar krðf- ur. Ekkert fæst upp í almennar kröfur, þrotabúið er eignalaust, að sögn Ólafs Birgis Amason- ar, skiptastjóra. óþh Ferðamálasamtök á norðausturhorninu: Stofnfundur á laugardag Vaka á Sauðárkróki sýnir í Tunglinu - byggir tískulínu á skagfirskum mynstrum Dælt úr kjallaranum Vatnselgurinn á Akureyri var mikill í gær enda asahláka. Eigendur húsa voru að vonum áhyggjufullir, ekki síst þeir sem sem búa á Oddeyrinni. Raunin varð líka sú að víða þurfti að dæla út, eins og hér sést. Mynd: Robyn Stjórn Sjálfsbjargar á Akureyri sendir bæjaryfirvöldum bréf: Vill að orlofshús í Kjarnabyggð vetði aðgengileg fötluðum

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.