Dagur - 23.03.1995, Page 7

Dagur - 23.03.1995, Page 7
MANNLIF Fimmtudagur 23. mars 1995 - DAGUR - 7 / / Vetraríþróttamiðstöð Islands á Akureyri var formlega stofnuð sl. laugardag. Fjöldi fólks mætti í Iþróttahöllina til að fagna þessum merku tímmótum og þá voru þessar myndir teknar. HA Bæjarfulltrúar í alvarlegum samræðum. Gísli Bragi Hjartarson, oddviti al- þýðuflokksmanna, milli sjálfstæðismannanna Björns Jóseps Arnviðarsonar og Þórarins B. Jónsonar. Benedikt Geirsson, formaður Skíðasambands íslands, er hér fyrir miðri mynd og honum sitt til hvorrar handar alþingismennirnir Tómas Ingi Ol- rich og Valgerður Sverrisdóttir. A Óðinn Árnason og skiðaíþrótt- in á Akureyri eru í raun eitt og hið sama og hann er hér lengst tii hægri á myndinni. Eiginkona hans, Gunnþóra Árnadóttir, situr honum á vinstri hönd og Rebekka Guð- mann honum á hægri hönd. Þá koma Ingvar Þóroddsson læknir og Hörður Blöndal framkvæmdastjóri, báðir kunnir skiðagöngumenn, þá Gísli Kr. Lórenzson, formaður Andrésar andar nefndarinnar, og Sigfríður Þorsteinsdóttir, forseti bæjarstjórnar, er lengst til vinstri á myndinni. Bak við þau má sjá Har- aid Sigurðsson, Halidór Blöndal, landbúnaðar- og samgönguráð- herra og son hans Pétur Blöndai. Ef vel er að gáð má greina Gunnar Níclsson í baksýn. Myndir: Halldór. Dóttirin, Bóndinn og Slag- hörpuleikarmn í Deíglunni - sýningar í kvöld og á laugardag Á heitum fimmtudegi í Deiglunni á Akureyri í kvöld, fímmtudaginn 23. mars kl. 20.30, veröa sýndir þrír einleikir eftir Ingibjörgu Hjartardóttur; Dóttirin, Bóndinn og Slaghörpuleikarinn. Leikstjóri er Sigríöur Margrét Guðmunds- dóttir og leikendur Guölaug María Bjamadóttir, Guöbjörg Thorodd- sen og Ingrid Jónsdóttir. Sýning veröur einnig í Deiglunni nk. laugardag, 25. mars, kl. 16. Þættimir segja sögu þriggja kvenna sem eiga að baki mismun- andi lífsferil. Dóttirin fjallar um konu sem er beðin að segja frá lífi móður sinnar, en segir kannski meira um sjálfa sig þegar upp er staöið. Bóndinn lýsir konu sem hefur orðið fyrir átakanlegum missi. Hún staldrar við og veltir fyrir sér lífi sínu, orsökum og af- leiðingum. Slaghörpuleikarinn sýnir okkur eldhressa, kaldhæðna konu sem geymir inn í sér gamlan harmleik úr æsku. Leikþættirnir hafa verið sýndir í Kaffileikhúsinu og í Listaklúbbi Þjóðleikhússkjall- arans viö mjög góðar undirtektir. Eins og áður segir verða sýn- ingamar tvær, í kvöld kl. 20.30 og á laugardag kl. 16. Miðaverð er kr. 1000. Hægt er að panta miða í síma 96-12609 frá kl. 13 til 17 virka daga. Bæklingar um gæðamat á kjöti Gefnir hafa verið út fjórir bækl- ingar um gæðamat á nauta-, svína- , hrossa- og lambakjöti í heilum skrokkum. I bæklingunum eru greinargóðar lýsingar í máli og myndum á gæðaflokkum hverrar kjöttegundar. Eins og flestir vita er verulegur verðmunur á milli gæðaflokka innan hverrar kjöttegundar, sem hefur afgerandi áhrif á afkomu bænda og skilar sér í mismunandi verði á kjöti til neytenda. Meðal þess sem tekið er tillit til við gæðaflokkun á heilum skrokkum má nefna; þyngd, holdfyllingu, fitu, aldur, kyn, gæði verkunar og heilbrigói. Til fróðleiks, fyrir þá sem ekki þekkja til, má geta þess að á ís- landi er hver einstakur kjötskrokk- ur skoðaður og metinn eftir slátr- un í sláturhúsi, bæói af dýralækni og kjötmatsmanni. Þessir aðilar annast gæðaflokkun og heilbrigð- isskoðun og tryggja að hver ein- stakur skrokkur sé auðkenndur með tilliti til ofangreindra atriða. í bæklingunum eru fjölmargar litmyndir og skýringartextar, sem útskýra muninn á milli gæða- flokka, ásamt töflum sem sýna mismunandi þyngd einstakra kjöt- hluta úr mismunandi gæðaflokk- um. Bæklingamir eru seldir á kostnaðarverói (4 saman í pakka) og kosta samtals kr. 500.-. Þeir fást hjá Yfirkjötmati ríkisins í landbúnaðarráðuneytinu, pöntun- arsími 91-609750. Úr fréttatilkynningu. KA-heimiliö v/Dalsbraut, sími 23482 Nýjar perur • Nýjar perur Komið í nýja og betrumbætta Ijósastofu KA-heimilið, sími 23482 Samvera eldri borgara verður í Glerárkirkju í dag, fimmtudag 23. mars kl. 15-17. Samveran hefst með stuttri helgistund í kirkjunni. Síðan er gengið í safnaðarsalinn þar sem gefst tækifæri til að hlýða á söng, spjalla saman ofl. Boðið verður upp á veitingar gegn vægu verói. Ath. takið með ykkur spil. Allir velkomnir. GLERÁRKIRKJA.

x

Dagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.